Morgunblaðið - 09.03.1978, Síða 5

Morgunblaðið - 09.03.1978, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. MARZ 1978 5 A.S.Í. mótmælir útgáfu reglugerðar um verðbótaákvæði Vegna útgáfu forsætisráðuneytisins, á reglugerð um verðbótaákvæði hefur Alþýðusamband’ íslands sent frá sér eftirfarandi fréttatilkynningu. Reglugerð sú um verðbótaviðauka, sem verið hefur í smíðum undanfarnar vikur og forsætisráðuneytið sendi frá sér í dag, staðfestir svo ekki verður um villst, þær fullyrðingar samtaka launafólks, að ekki sé unnt að framfylgja kjaraskerðingarlögun- um nr. 3/1978. Þar kemur glöggt fram, að þessi reglugerð skerðir laun láglaunafólks umfram það sem ákveðið er í umræddum ólögum. Sem dæmi má nefna, að í 5. grein reglugerðarinnar segir, að launþegi sem búi við verðbótakerfi Alþýðusambandsfólks og nái 169 þúsund krónum í heildarmánaðarlaun eftir 1. mars 1978, samkvæmt töxtum vinnuveitenda, fái ekki svokallaðan verðbótaviðauka. Launþegi sem var í lægsta launaflokki Alþýðusambandsfólks fyrir 1. mars 1978, skaðast umfram það sem lögin gera ráð fyrir um 800 krónur á mánuði, sé farið eftir þessu ákvæði reglugerðarinnar. DÆMI. Lægsti taxti iðnverkafólks 1. mars 1978, skv. kaupgjaldsskrá VSÍ nr. 35: Kr. 111.475. Kaup fyrir 49,6333 næturvinnutíma (eða ígildi þeirra) skv. sömu heimild: 49,6333 x 1.159 = Kr. 57.525. MÁNAÐARTEKJUR SAMTALS. Kr. 169.000. Þar af vegna verðbóta: Dagvinna:l/3 ,78 skv. kaupgjaldsskrá VSÍ 111.475 kr. Dagvinna: 1/12 ,77 skv. kaupgjaldsskrá VSÍ 105.840 kr. Mismunur 5.635 kr. Næturvinna: 1/3 ,78 skv. kaupgjaldsskrá VSÍ 1159 kr. Næturvinna: 1/12 ,77 skv. kaupgjaldsskrá VSÍ 1100 kr. Mismunur 59 kr. 59 x 49,6333 = kr. 2.928 VERÐBÆTUR SAMTALS KR. 8.563. Lágmarksverðbætur skv. lögum: 880 x 10,64 — kr. 9.363. SKERÐING UMFRAM LAGASKERÐINGU KR. 800 á mánuði. Heiöursfélagarnir prír, f.v. Hilmar Ó. Sigurösson, Ragnar Jónsson, Helgafelli og Ragnar Jónsson hrl. 3 heidursf élagar í Félagi íslenzkra bókaútgefenda Á SIÐASTA aðalfundi Félags ís- lenzkra bókaútgefenda á sl. ári voru Orír núverandi og fyrrverandi félagsmenn kjörnir heiðursfélagar, beir Ragnar Jónsson, bókaútgef- andi, Ragnar Jónsson hæstaréttar- lögmaður og Hilmar Ó. Sigurðsson framkvæmdastjóri. Formaður félagsins afhenti bremenningun- um heiðursskjöl sín sl. miövikudag að viöstaddri stjórn félagsins og framkvæmdastjóra bess. Fór for- maður félagsins par nokkrum orðum um störf Dessara manna í bágu félagsins og bókaútgáfu í landinu. Þáttur Ragnars Jónssonar í íslenzkri bókaútgáfu er alþjóð kunn. Forlag hans, Helgafell, hefur um áratugaskeið verið í fremstu röð íslenzkra bókaforlaga og hefur um árabil annazt útgáfu flestra verka fremstu rithöfunda þjóðarinnar, segir í frétt félagsins. Þá segir: Ragnar Jónsson, hrl., rak um alllangt skeið umfansmikla og merka bókaútgáfu og var virkur félagi í Bóksalafélagi islands, eins og Félag ísl. bókaútgefenda hét á þeim árum, sat lengi í stjórn þess og gegndi formennsku í því 1952—1957. Átti hann mikinn þátt í að móta störf félagsins og breyta lögum þess í samræmi við kröfur tímans. Hilmar Ó. Sigurðsson var um aldarfjórðungs skeið starfandi í félaginu og gjaldkeri þess í tíu ár. Vann hann félaginu í því starfi mikið gagn og átti hvað mestan þátt í því að félagið festi kaup á húsnæði fyrir starfsemi sína, og á það án efa eftir að vera félaginu traustur bakhjarl í framtíðinni. Njarðvíkur- veitan skuld- ar 10 millj. Athugasemd frá RARIK VEGNA athugasemdar Alberts Sanders, bæjarstjóra í Njarð- víkum, í Morgunblaöinu í dag um að Rafveita Njarðvíkur sé ekki í vanskilum við Rafmagnsveitur ríkisins vill stofnunin taka fram, að Rafveita Njarðvíkur skuldar enn röskar 10 milljónir króna vegna viðskipta sl. árs, þar af eru 7 milljónir króna vegna raforku- kaupa en röskar 3 milljónir króna vegna dráttarvaxta. Ágreiningur um upphæð dráttarvaxta breytir framangreindri skuldarupphæð lítið. Það hörmulega wlys varð sem kunnugt er í Súgandafirði í lok síðasta mánaðar, að ungur drengur beið bana þegar snjó- dyngja brast undan honum og félaga hans. Félaginn slapp lifandi. Drengurinn sem lézt hét Egill Traustason, 8 ára gamall. Er myndin af honum. Wj&tXfr*: Bing Crosby b Louis Atmstrong John Coltrane — Love Supreme Louis Armstrong — Greatest ffíts Ornette Coteman Biliy Holfíday - Lady sings the B/ues Coleman Hawkins Quartet - Crisis Davé Brubeck : — All time Greatest Hits Keit Jarret — Romantic Warrior Mitt Jackson - Sou/ Fusion Weather Report Flestar Oscar Petetson Joe Zawinu! - Zawinu! The Duke EHington Songbook Al Di Meola — Landof the Midnight Sun Gerry MuWgan - The Arranger Charles Mingus - East Coasting Crusaders - F/estar Ray Charles Et Milt Jackson - Sou/ Meeating Art Tatum The Tatum So/o Masterpieces S. B467G S. 18670 S. 121ÍÖ Suðurlandsbraut 8 Laugavegi 24 Vesturveri Mi/$s Davies

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.