Morgunblaðið - 09.03.1978, Side 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. MARZ 1978
Á hlaðamannafundinum moð dómsmálaráöherra. Frá vinstri eru Jón Thors deildarstjóri. Ólafur Jóhannesson dómsmálaráðherra. Eiríkur
Tómasson aðstoðarmaður dómsmálaráðherra og Þorsteinn Jónsson (ulltrúi í fangelsismáladeild. Ljósm. RAX
Boðin út vinna nýs gæzluvarð-
haldsfangelsis í Reykjavík
Breyting á skipulagi fangelsismála
ÚtlitsteikninK að Kæzluvarðhaldsfanselsinu við Tunguháls.
Útlitsteiknins að einanKrunardeild Vinnuhælisins að Litla Hrauni.
Á NÆSTUNNI verður boðin
út vinna við grunn og
botnplötu nýs gæsluvarð-
haldsfangelsis, sem rísa á
við Tunguháls í Reykjavík.
Mun þessi bygging leysa af
hólmi Hegningarhúsið við
Skólavörðustíg og fangelsið
í Síðumúla 28 og gegna
hlutverki sem
aðalgæzluvarðhaidsfangelsi
landsins. Hafin var í haust
bygging einangrunardeildar
við Vinnuhælið að Litla-
Hrauni, sem rúma á 10
fanga. Þá hefur að undan-
förnu verið unnið að því á
vegum dómsmálaráðuneytis-
ins að gera nokkrar skipu-
lagsbreytingar á sviði fang-
elsismála hér á landi. Er um
að ræða breytingar á yfir-
stjórn þessara mála, í öðru
lagi byggingu nýrra stofn-
ana og endurbætur á þeim
fangelsum og vinnuhælum
sem fyrir eru, og í þriðja
lagi nokkrar breytingar á
skipulagi og rekstri þessara
stofnana. Komu þessar upp-
lýsingar fram á blaða-
mannafundi sem dómsmála-
ráðherra, ólafur Jóhannes-
son, efndi til nýverið.
Hið nýja fangelsi em rísa mun
við Tunguháls mun rúma 52
fanga. Kom fram á fundinum að
bygging þessa fangelsis er orðin
brýn, þar sem Hegningarhúsið og
Síðumúlafangelsið uppfylla hvergi
nærri þær kröfur, sem gera verður
til gæzluvarðhaldsfangelsis nú á
dögum. Sagði Jón Thors deildar-
stjóri í dómsmálaráðuneytinu að
m.a. að mjög hljóðbært væri í
Síðumúlafangelsi og fangar í
einangrun gætu því komið skila-
boðum sín á milli. Fangelsið á
Tunguhálsi er mesta framkvæmd
á sviði fangelsismála Islandinga
síðan Hegningarhúsið var reist
fyrir liðlega eitt hundrað árum.
Unnið héfur verið að undirbúningi
að byggingu
gæzluvarðhaldsfangelsisins síðan
á árinu 1971. Á verðgildi síðustu
mánaða er reiknað með að kostn-
aður við bygginguna nemi um
500—800 milljóna króna.
Sagði dómsmálaráðherra þó að
nokkur tími liði þó áður en lokið
yrði við byggingu fangelsisins.
Sem liður í þeim skipulags-
breytingum á sviði fangelsismála
sem unnið hefur verið að innan
dómsmálaráðuneytisins hefur
verið sett á laggirnar sérstök
fangelsismáladeild, en hún tók til
starfa 1. marz. Deild þessi mun
fara með yfirstjórn fangelsismála
í landinu. Með tilkomu þessarar
deildar mun ráðuneytið framvegis
sjálft taka allar ákvarðanir er
varða fullnustu refsivistardóma
VIÐGERÐ á skrúfubúnaði vél-
bátsins Valþórs frá Siglufirði
lauk sl. þriðjudag i skipa
smíðastöðinni í Klakksvik í
Færeyjum og gat Valþór haldið
áfram för sinni til Hull. Standa
vonir til að báturinn geti selt
aíla sinn. 60—70 tonn af þorski,
í Hull á föstudaginn. Ef það
tekst verður Valþór fyrsti ís-
ienzki báturinn, sem selur ísfisk
í brezkri höfn frá því löndunar-
banninu var aflétt, en það var
sett á í síðasta þorskastríði.
Samkvæmt upplýsingum
Jónasar Haraldssonar skrifstofu-
stjóra LIÚ er líklegt að togarinn
Dagný frá Siglyfirði selji næst í
Hull, líklega á mánudaginn. Mjög
mörg útgerðarfyrirtæki hafa hug
á því að láta skip sín selja afla
ytra um páskana og nota þann
tíma til siglinga þegar þorsk-
veiðibann verður í gildi hér við
land en það verður í eina viku um
páskana.
Ennfremur hafa nokkur út-
annarra en varðhaldsdóma fyrir
ölvunarakstur. Hingað til hefur
þetta vald verið í höndum yfir-
sakadómara í Reykjavík, bæjar-
fógeta og sýslumanna. Sagði
Ólafur Jóhannesson að markmiðið
með þessari breytingu væri eink-
um það að samræma fullnustu
gerðarfélög hug á því að láta skip
sín selja í Þýzkalandi og þegar
hefur verið ákveðið að einn togari
selji þar ytra um páskana. Er það
Karlsefni.
fangelsisdóma og annarra refsi-
vistardóma. Sagði ráðherra að þar
sem dómar yfir einum og sama
manninum hefðu heyrt undir
fleiri en eitt embætti hefði af því
hlotizt nokkurt óhagræði og jafn-
vel ósamræmi.
Deildarstjóri hinnar nýju deild-
ar verður Jón Thors. Honum til
aðstoðar verður Þorsteinn Jóns-
son, og gert er ráð fyrir einum
fulltrúa að auki. í starfsreglum
fangelsismáladeildarinnar er gert
ráð fyrir stofnun nefndar sem
ætlað er, að láti í ljós álit sitt á
öllum umsóknum um reynslu-
lausn, náðun og uppreisn æru.
Skipar ráðherra í nefnd þessa, en
henni er ætlað að tjá honum hvort
umsækjendur geti talizt hæfir til
að fá reynslulausn, náðun eða
uppreist æru. Ólafur Jóhannesson
sagði að umsögn nefndarinnar
væri ekki bindandi fyrir ráðherra.
„Sérstaklega þarf þó að standa á
ef ráðherra þarf að fara öðru vísi
að en nefndin segir til um,“ sagði
Ólafur á fundinum.
Dómsmálaráðherra skýrði frá,
að hafin hefði verið í haust
bygging einangrunardeildar við
Vinnuhælið að Litla-Hrauni. Er
um að ræða viðbyggingu sem
rúma á 10 fanga í tveimur
aðskildum álmum. Deild þessi er
einkum ætluð erfiðum föngum,
sem brotið hafa gegn reglum
vinnuhælisins svo og föngum sem
öryggis vegna er talið nauðsynlegt
að hafa í strangari gæzlu en ella.
Að sögn ráðherra er áætlað að
bygging þessi kosti u.þ.b. 80—90
milljónir króna, en reynt verður
að draga úr byggingarkostnaði
með því að nýta að einhverju leyti
vinnuafl þeirra vistmanna sem
dvelja á hælinu. Sagði ráðherra
mikla þörf vera fyrir slíka ein-
angrunardeild og gert er ráð fyrir
að deildin á Litla-Hrauni rísi á
skömmum tíma og verði tiltæk
fljótlega.
Auk
gæzluvarðhaldsfangelsisins við
Tunguháls og einangrunardeildar-
innar við Litla-Hraun hafa átt sér
stað nokkrar aðrar framkvæmdir
á sviði fangelsismála. Á síðast-
liðnu ári var lokið við að ganga frá
þeim hluta lögreglustöðvarinnar á
Akureyri sem ætlaður er afplán-
unarföngum. Þess er vænzt að
deild þessi verði tekin í notkun
innan skamms, en þar verður rúm
fyrir 5—6 fanga. Þá var reistur
vinnuskáli við Vinnuhælið á Kvía-
bryggju á árinu ‘77, en í þeim
skála verður hluti framleiðslu
hælisins.
Um þessar mundir er verið að
vinna að heildarendurskoðun á
viðurlagakerfi refsilaga og al-
mennra hegningarlaga sem sér-
refsilaga. Er endurskoðuninni
sérstaklega beint að því að athuga
möguleika á enn rýmri heimildum
til að beita sektarrefsingu ein-
vörðungu, einkum um minni
háttar brot, en um meiri háttar
brot verði eftir atvikum beitt
sektarrefsingu samhliða fangels-
isrefsingu. Jafnframt verður
kannað hvort fært sé að taka upp
nýjar refsitegundir er komið gætu
í stað refsivistar í vissum tilvik-
um. Fram kom á fundinum að við
endurskoðunina yrðu ýmis fjár-
muna- og skjalabrot höfð í huga.
Sagði ráðherra að í flestum
tilvikum kæmi fjársekt verr niður
en stutt fangelsisdvöl á þeim sem
slík brot framkvæmdu.
Ég er kaupandi að raðhúsi
í Fossvogi ef um semst.
Húsið þarf að afhendast í ágústmánuði n.k.
Tilboð sendist til Mbl fyrir 16 þ m merkt:
Heimþrá — 4142"
Byggingasamvinnufélag
ungs fólks í Mosfellssveit
Félagið er að byrja byggingu annarra áfanga af
raðhúsum í landi Bjargastaðar, þeir félagsmenn
sem óska að vera með snúi sér til undirritaðs
sem veitir allar nánari upplýsingar 9. og 10.
marz í síma 66567 Byggðarholti 9 milli kl.
1—5.
Örn Kjærnested.
Ábyrgðartryggingin
upp í 100 þús. kr.?
VERÐI beiðni tryggingafélag-
anna um 67% hækkun áhyrgð-
artryggingar bifreiða sam-
þykkt munu iðgjöld þessarar
tryggingar fara yfir 100 þús-
und krónur á jeppum og
stórum fólksbifreiðum.
Samkvæmt upplýsingum
sem Mbl. aflaði sér í gær mun
ársiðgjald af minnstu gerð
fólksbíla hækka úr 44.700 kr. í
74.600 krónur verði beiðnin
samþykkt óbreytt, en þá er
ekki reiknað með neinum bón-
us, sem er allt að 50% á þessa
upphæð en síðan þarf að bæta
við söluskatti.
Iðgjald bifreiða í milliflokki,
t.d. á Cortínu, hækkar úr 53.300
krónum í 89.000 krónur, iðgjald
stórra fólksbifreiða, t.d. ame-
rískra, hækkar úr 61.800 krón-
um í 103.200 krónur og á
jeppum úr 59.900 krónum í 100
þúsund krónur réttar.
Valþór selur 1
HuU á f östudag
Margir ætla aö sigla medan
þorskveidibannid stendur