Morgunblaðið - 09.03.1978, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. MARZ 1978
13
Atvinnuleik-
hús í uppgangi
Um þessar mundir sýnir
Leikfélag Akureyrar „Alfa
Beta" á litla sviðinu í kjallara
Þjóðleikhússins. í tilefni af
því ræddi blm. Mbl. við annan
leikaranna. Sigurveigu Jóns-
dóttur. og bað hana að segja
sér lítillega frá sjálfri sér og
leikhúslífinu fyrir norðan.
„Ég byrjaði að leika með
leikfélaginu árið 1949, og var
það mest fyrir tilviljun. Einn
úr stjórn félagsins kom að máli
við mig og spurði mig hvort ég
hefði ekki áhuga á að leika í
„Orrustunni á Hálogalandi"
sem átti að fara að sýna. Það
var úr að ég lék Anne-Lise
Hansen í leikritinu, fær-
eysk-danska konu. Ég varð að
tala með hreim, og þótti það
nokkur fyndið. Síðan kom hlé
hjá mér, og næst lék ég ekki
fyrr en fjórum árum síðar, en
síðan þá hef ég leikið um 50
hlutverk.
Leiklistaráhugi hefur alltaf
verið mikill fyrir norðan og ég
man eftir því, að þegar ég var
krakki, var ekkert bíó á Ólafs-
firði þar sem ég er fædd. Ég fór
því oft á leiksýningar og sá öll
leikrit sem ég mögulega gat
séð. Um jólin færðu ýmis félög
og klúbbar leikrit upp á svið, og
minnist ég þess að kvenfélagið
og slysavarnadeildin sýndu
bæði leikrit ein jólin.
Þegar ég byrjaði að leika
fyrir alvöru 1953 var öll
leikhúsvinna sjálfboðavinna,
unnin á kvöldin og næturnar^
þegar fólkið hafði frí frá öðrum
störfum. En vinnufélagarnir
voru mjög skilningsríkir og allt
blessaðist þetta einhvern veg-
inn. Síðar, þegar frumsýnd
voru fjögur — fimm leikrit á
„Kaupið sem vio fengum
greitt var alveg hlægilega lágt
og í raun og veru var varla
hægt að kalla það kaup,“
sagði Sigurveig.
hverjum vetri, sáu allir að
þetta gat ekki gengið og það
varð úr að leikárið 1973—‘74
voru átta leikarar ráðnir upp á
hálft kaup í níu mánuði.
Þangað til hafði aðeins fram-
kvæmdastjóri L.A. verið á
kaupi og var Sigmundur Örn
Arngrímsson, er var fram-
kvæmdastjóri 1970—‘71, sá
fyrsti sem var á föstum laun-
um.
Kaupið sem við fengum
greitt 1973 var alveg hlægilega
lágt og í raun og veru var varla
hægt að kalla það kaup. í fyrra
var svo í fyrsta skiptið farið að
greiða leikurum full laun fyrir
vinnu sína en að vísu eru
aðeins fimm fastráðnir. Þegar
farið er að greiða leikurum full
laun fyrir vinnu sína, má segja
að þáttaskil verði hjá L.A og þá
fyrst er hægt að kalla leik-
félagið raunverulegt atvinnu-
leikhús.
Vinnutími okkar nú er frá
tíu á morgnana til átta á
kvöldin alla daga vikunnar
nema mánudaga, en mánudag-
ar eru frídagar. Þó segir í
reglum að sé frumsýning í
vikunni megi halda æfingar á
mánudögum. Vinnutíminn er
hafður svona rýmilegur til að
geta einnig nýtt starfskraft
þeirra leikara sem vinna annað
starf utan leikhússins.
Leiklistaráhugi er mikill á
Akureyri og í fyrra sáu um
12.000 manns sýningar L.A.,
sem svarar til þess að hver íbúi
bæjarins hafi farið einu sinni
í leikhús á árinu. Þá er einnig
mikill áhugi á leiklist í
byggðarlögunum í kringum
Akureyri, og varla er það þorp
til við Eyjafjörð, þar sem ekki
er leikfélag starfandi. Leik-
ferðir eru oft farnar, og það
eru fleiri félög en L.A. sem fara
þær, litlu félögin sýna oft í
nágrannasveitum þeirra og
maðan við sýnum „Alfa Beta“
í Þjóðleikhúsinu, sýndu Dalvík-
ingar „Fjölskylduna" og
Menntaskóli Akureyrar
„Hlaupvídd sex“ í okkar húsi.
Annars er það svo að fólki
hættir til að gleyma því að það
eru þrjú starfandi atvinnuleik-
hús í landinu, það einblínir á
leikhúsin í Reykjavík og man
ekki eítir Leikfélagi Akureyr-
ar. Við gjöldum dreifbýlisins í
þessum efnum.
„Alfa Beta“ er fjórða leikrit-
ið sem leikfélagið frumsýnir á
þessu leikári, hin eru söng-
leikurinn „Loftur", „Snæ-
drottningin" og „Galdraland".
„Galdraland" frumsýndum við
í Hrísey annan marz en frum-
sýningin á Akureyri er þann
10. Við lentum í hrakningum
við að komast frá Hrísey, og
Sigurveig Jónsdóttir og Erlingur Gíslason í hlutverkum sínum
í „Alfa Beta“.
sýnir það hve erfitt það getur
verið að halda uppi öflugri
leiklistarstarfsemi á Norður-
landinu um hávetur. Við fórum
til Hríseyjar með ferju og gekk
það vel fyrir, en þegar við
ætluðum að halda aftur til
Akureyrar að frumsýningunni
lokinni hafði dregið í skafla.
Við komumst þó til lands með
ferjunni, en til að komast til
Akureyrar urðum við að fá
aðstoð bóndans á Hellu með
traktor og snjóblásara til að
koma okkur yfir nokkra skafla.
Þaðsama var uppi á teningnum
þegar við sendum leikmuni
okkar, sem notaðir eru í „Alfa
Beta“ til Reykjavíkur, það tók
bílinn, sem var með leikmun-
ina, viku að brjótast suður."
Upphaflega stóð til* að hafa
sex sýningar á „Alfa Beta“ á
litla sviðinu, en vegna verk-
fallsins varð að fækka þeim um
þrjár. Var verkið frumsýnt á
sunnudag og hefur það hlotið
góða dóma. Er nú uppselt á
allar sýningarnar, en leikritið
verður síðan. sýnt aftur á
Akureyri á sunnudaginn.
„Alfa Beta“ er eftir E.A.
Whitehead og er þetta annað
leikrit höfundar. Það var fyrst
frumsýnt í Apollo-leikhúsinu í
London 1972 og síðar sama ár
í Royal-Court-leikhúsinu. Árið
eftir var það sýnt í New York
og síðan hefur það verið sýnt
víða um heim. Leikstjóri verk-
sins hér er Brynja Benedikts-
dóttir, Kristrún Éymundsdótt-
ir hefur þýtt leikinn, en leik-
myndina gerði Þráinn Karls-
son, hana fluttum við ekki með
suður, heldur aðeins húsgögn-
in, leikmuni og búninga. Hlut-
verk eru tvö og fara þau
Sigurveig Jónsdóttir og Erling-
ur Gíslason með þau. Leikur-
inn er í þremur þáttum og
fjallar um hjón í borginni
Liverpool í Englandi. Fjallar
leikritið um það hvernig um-
hverfi og uppeldi marka mann-
skepnuna.
Næsta viðfangsefni L.A.
verður leikritið „Hunangsilm-
ur“ eftir Shelagh Delaney, og
mun Jill Brooke Árnason leik-
stýra því. Kristín Á. Ólafsdótt-
ir og Sigurveig leika mæðgurn-
ar í verkinu, þær Jo og Helenu,
en karlhlutverkin þrjú leika
fastráðnir leikarar félagsins,
þeir Gestur E. Jónasson, Aðal-
steinn Bergdal og Þórir Stein-
grímsson.
/
Stationgerðirnar af Citroén GS og CX flytja fólk
og vörur jöfnum höndum. Og það er nóg rými.
Auk þess fer vel um það sem flytja skal.
Hvort sem það er brothætt gler, múrsteinar eða
manneskjur. Citroén tæknin sér um það:
Vökvafjöðrun, snjall tæknibúnaður, sem CITROÉr
byggir þó á einföldu lögmáli. Hæðar og
hleðslujafnari, sem tryggir alltaf jafna hæð undir bílnum, óháð
hleðslu. Þrjár mismunandi hæðarstillingar. Straumlínulögun sem eykur á
þaulhugsaðan hátt aksturseiginleikana, einkum þegar veður
versnar eða hraðinn vex. Auk þess er sparneytnin rómuð. Endingin einnig,
því opinberar sænskar kannanir sýna að Citroén bílar eru
með þeim endingarbestu þar í landi.
í Citroén bílnum fer því svo sannarlega saman þægindi og hagkvæmni.
CITROEN * CX
Komið og reynsluakið — það er raunhæfast
Globus
H LÁGMÚLI5,
F SÍMI81555
CITROÉN*