Morgunblaðið - 09.03.1978, Qupperneq 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. MARZ 1978
Tillögur Verzlunar-
ráðs Islands um verd-
myndun atvinnuveganna
í nýútkominni skýrslu
Verzlunarráðs íslands fyrir
árin 1976 og 1977 eru
tillögur Verzlunarráðsins
um verðmyndun atvinnuveg-
anna nokkuð raktar og
kemur þar m.a. fram að á
árinu 1978 eru liðin 40 ár
frá því að verðlagsnefnd tók
fyrst til starfa. Þetta 40 ára
tímabil hefur verið nær
samfellt verðbólguskeið.
Þegar nefndin tók til starfa,
hafði verðlag vöru og þjón-
ustu verið stöðugt eða farið
lækkandi frá lokum fyrri
heimsstyrjaldar. A 40 ára
starfstíma verðlagsnefndar
hefur verðlag vöru og þjón-
ustu hins vegar lækkað til
jafnaðar um 14% á ári.
Með verðstöðvunarlögum, sem
gilt hafa nær samfellt síðan 1970,
hefst þó fyrst veruleg óðaverð-
hólga hérlendis:
Hækkun verðlags
vöru og þjónustu
á árinu
Ár
1971
1972
1973
1974
1975
1976
1977
Af þessu má sjá, að hvorki
verðstöðvun né önnur verðmynd-
unarhöft hafa megnað að halda
verðlagi stöðugu. Slíkt skal engan
furða, þar sem þessar aðgerðir
jeru gagnslausar til þess að halda
jverðlagi niðri til langframa,
þvert á móti hafa þær auðveldað
Isamræmdar og almennar verð-
jhækkanir.
Ríkjandi verðmyndunarhöft
'hafa einnig í för með sér fleiri
ókosti en hækkandi verðlag. Þau
FIAT 127
langmest
seldi bíllinn í
Evrópu í 5 ár
FIMMTA árið í röð er FIAT
127 langmest seldi bfllinn í
Vestur-Erópu. Alls munu
hafa selst 453.000 bflar á
árinu 1977^, þar af um
243.000 á Ítalíu, 22.700 í
Vestur-Þýzkalandi og 16.800
í Bretlandi, segir í frétt
verksmiðjanna, sem eru í
Turin.
Að sögn verksmiðjanna er
salan í Bretlandi um 5% af
giarkaðnum þar á sama tíma og
salan í Evrópu er um 5,5% af
markaðnum. Segir verksmiðjan
það takmark þeirra að í Evrópu
verði hlutfallið orðið 6—6,5% á
næsta ári.
Þá segir að sala FIAT 127 með
minni útgáfu af vél sé mun
vinsælli á Ítalíu, en því sé alveg
öfugt farið alls staðar annars
staðar í Evrópu. Allt frá marz-
byrjun 1971 þegar bíllinn var
fyrst settur á markað hafa verið
smíðaðar yfir 2 milljónir eintaka
af honum á Ítalíu og um 750.000
á Spani, en í lok ársins 1972
yfirtók FIAT 127 stöðu Volks-
wagen-„bjöllunnar“ sem vinsæl-
asti bíllinn í flokki smábíla í
Evrópu, segir að lokum í frétt
verksmiðjanna.
3%
16%
35%
49%
42%
33%
34%
SKEGG JASTAÐAH RE PPUR
Byggdar jardir og
eydijardir árid 1975.
hafa slævt verðskyn almennings,
leitt til óhagkvæmni og sóunar í
atvinnurekstri, dregið úr sam-
keppni milli fyrirtækja og inn-
leitt ófrelsi og boðið heim spill-
ingu. Eftir fjörutíu ára fram-
kvæmd kerfis, sem hefur svo
marga ókosti, má segja að
kominn sé tími til að breyta um
starfshætti og innleiða svipaðar
verðmyndunar- og samkeppnis-
reglur og tíðkast annarsstaðar á
Vesturlöndum.
í september 1976 voru félags-
mönnum sendar tillögur um
nýjar reglur um samkeppni,
verðmyndun og samruna fyrir-
tækja, sem nefnd á vegum
ráðsins samdi í framhaldi af
Viðskiptaþingi 1975. Síðan þá
hafa þessar tillögur verið ítarlega
ræddar og verið kynntar fjölda
aðila: stjórnvöldum, samtökum
atvinnuveganna, samtökum laun-
þega og samtökum neytenda.
Strax í upphafi lýstu fulltrúar
smtaka atvinnuveganna yfir
stuðningi við meginefni þessara
tillagna, enda mynduðu þær
grundvöllinn að umsögn samtaka
atvinnuveganna um dreg að
frumvarpi til laga um verðlag,
samkeppnishömlur og óréttmæta
viðskiptahætti, sem Viðskipta-
ráðuneytið sendi ýmsum aðilum
til umsagnar 3. nóvember 1976.
Afstaða stjórnvalda og Alþingis
til tillagna Verzlunarráðsins er
enn óljós, en markast á yfir-
standandi þingi, þar sem varafor-
maður Verzlunarráðsins Albert
Guðmundsson, alþm., hefur nú
flutt tillögurnar sem frumvarp á
Framhald á bls. 27
SKÝRINGAR:
■ Byggd jörd drid 1975
x Jörd s«m sydst hsfur 1951 - 1975
— " Vegir
••••••• Hrappamök
Haimild: Jardoskró Landnóms rikisins 1975-76.
Framkvæmdastofnun ríkisins:
Gera þarf stórátak í byggðaþró-
unarmálum Skeggjastaðahrepps
Atvinnulíf í Skeggjastaða-
hreppi í Bakkafirði byggist að
langmestu leyti á landbúnaði
og sjávarútvegi. Tekjur verða
ekki taldar góðar þar, ef
miðað er við meðalbrúttótekj-
ur framteljenda tekjuárið
1975. Hlutfallsleg aldursskipt-
ing í hreppnum er allfrábrugð-
in því, sem gerist á landinu í
heild. Búast má við mannafla-
fækkun í hreppnum næstu
áratugi. Búferlaflutningar
voru allnokkrir tímabilið
1966—1974. og hafa mun fleiri
flust brott en sest að í hreppn-
um á timabilinu, segir í
nýútkominni Byggðaþróunar
áætlun fyrir árin 1978—1983,
sem Framkvæmdastofnun
ríkisins hefur gert.
Landbúnaður er með mjög
smáu sniði í hreppnum. og
voru þar 11 býli árið 1975.
Búin hafa stækkað allnokkuð
undanfarna áratugi eins og
víða annars staðar á landinu,
en þó eru þau miklu minni en
meðalbú. Abúendum á setnum
lögbýlisjörðum hefur fækkað
mikið í hreppnum síðustu
áratugi. Búseta verður þó að
teljast örugg í nokkur ár á
samtals 9 jörðum í hreppnum
að öðru óbreyttu.
Allmiklar þorskveiðar hafa
verið stundaðar í Bakkaflóadjúpi
undanfarin ár. Sjósókn Bakkfirð-
inga er nú eingöngu bundin við
grásleppu- og þorskveiðar. Fisk-
vinnsla er nú eingöngu fólgin í
söltun grásleppuhrogna og salt-
fiskverkun. Fiskverkun er mjög
einhæf, og þar sem fiskveiðar
hafa einkum verið stundaðar á
tímabilinu mars-september, þá
liggja bæði fiskveiðar og fiskiðn-
aður að mestu niðri yfir vetrar-
mánuðina.
Að óbreyttum framlögum til
vegamála tekur bersýnilega lang-
an tíma að ná því markmiði að
gera vegakerfi hreppsins not-
hæft, svo að ekki sé talað um
gott. Er því lögð þung áhersla á
úrbætur á þeim vegaköflum, sem
eru hvað verstir.
Heildarkostnaður forgangs-
framkvæmda er talinn nema um
108 milljónum króna, ef koma á
vegaköflunum í gott ástand, en 90
milljónir er áætlað að kosti að
gera þá nothæfa. Þessar
kostnaðartölur eru miðaðar við
verðlag 1. ágúst
Óhætt er að fullyrða, að léleg
hafnaraðstaða hafi staðið útgerð
frá Bakkafirði verulega fyrir
þrifum. Bætt hafnaraðstaða
verður að teljast grundvöllur
fyrir útgerð stærri báta og þar
með væntanlega aukinni fisk-
vinnslu, en þessar atvinnugreinar
verður fyrirsjáanlega að treysta
á í náinni framtíð, ef byggð á að
haldast í hreppnum. Talið er , að
kostnaður við hafnarfram-
kvæmdir á Bakkafirði verði það
mikill, að tæplega verði í þær
ráðist á áætlunartimanum. Því er
lagt til, að kannaðir verði mögu-
leikar á því að koma upp föstum
krana á núverandi hafnarbakka,
en á þann hátt mætti hugsanlega
leysa til bráðabirgða vanda
Bakkfirðinga á sviði hafnarmála.
Flugvöllur við Bakkafjörð er
um 2,5 km frá þorpinu. Þar er ein
flugbraut, um 600 m löng, og er
ekki fyrirhugað að lengja hana í
náinni framtíð. Hins vegar hefur
Flugvallanefnd mælt með nokkr-
um framkvæmdum, og miða þær
að því að fullnægja settum
lágmarkskröfum um öryggi og
aðbúnað.
Skortur á íbúðarhúsnæði virð-
ist standa í vegi fyrir flutningi
fólks til Bakkafjarðar. Þrátt fyrir
óbreyttan íbúafjölda verður
byggingarþörfin talin brýn í
þorpinu. Kemur þar bæði til
endurnýjun á eldra íbúðarhús-
næði og væntanleg fækkun íbúa
á íbúð. Lauslega er áætlað, að á
áætlunartímabilinu verði bygg-
ingarþörf á Bakkafirði um 10
íbúðir.
Mannfjöldaþróun í Skeggja-
staðahreppi sýnir glöggt, hve
byggð hefur grisjast þar mjög
síðustu áratugi. Ekki verður
annað séð en að á næstu árum
verði byggðaþróun í Skeggja-
staðahreppi með svipuðum hætti
og verið hefur, ef ekki verður
gripið til aðgerða til að sporna
þar á móti. Talið er æskilegt að
miða opinberar aðgerðir við jafna
og stöðuga uppbyggingu, sem
tryggir frumkvæði heimamanna
enn sem fyrr. í því skyni er hér
sett fram sem meginmarkmið, að
á næstu fimm árum verði unnið
að því að , treysta
undirstöðuatvinnugreinarnar og
aðgerðir miðaðar við stuðning við
landbúnað og framtíðaruppbygg-
ingu í sjávarútvegi.
Áætlað er, að heildarkostnaður
framkvæmda á sviði landbúnaðar
í Skeggjastaðahreppi verði varla
lægri en 95—105 milljónir króna.
Ríkisframlög samkvæmt jarð-
Framhald á bls. 27
Tala um óeðlilega skulda
söfnun ekki réttmætt?
Mjög mikið hefur verið rætt hérlendis um
óeðlilega skuldasöfnun rikisins, þannig að
skuldir á hvern einstakling væru mun meiri
en alls staðar í heiminum. Við nánari athugun
kemur hins vegar í ljós að svo er ekki. T.d.
eru við íslendingar rétt um miðjuna í hinum
Vestræna heimi hvað þetta snertir um síðustu
áramót eins og sést glögglega á meðfylgjandi
súluriti.
1) Japan — skuldir á cinstakling DM 2274
eða 330.000 íslenzkar krónur.
2) Ítalía — skuldir á einstakling DM 3301
eða 396.000 íslenzkar krónur.
3) V Þýzkal. — skuldir á einstakling DM
4752 eða 570.000 íslenzkar krónur.
4) Holland — skuldir á einstakling DM 6504
eða 780.000 íslenzkar krónur.
5) Noregur — skuldir á einstakling DM 7768
6) Belgía — skuldir á einstakling DM 8675
eða 1040.000 íslenzkar krónur.
7) U&A — skuldir á einstakling DM 10578
eða 1270.000 íslenzkar krónur.
8) Svíþjóð — skuldir á einstakling DM 8115
eða 975.000 íslenzkar krónur.
9) Sviss skuldir á einstakling DM 7576 eða
910.000 íslenzkar krónur.
10) Bretland — skuldir á einstakling DM
6496 eða 780.000 íslenzkar krónur.
11) Island — skuldir á einstakling DM 5735
eða 690.000 íslenzkar krónur.
12) Danmörk — skuldir á einstakling DM
3686 eða 440.000 íslenzkar krónur.
13) Austurr. — skuldir á einstakling DM
2954 eða 355.000 íslenzkar krónur.
14) Frakkl. — skuldir á einstakling DM 2340
eða 280.000 íslenzkar krónur.
eða 930.000 íslenzkar krónur
OPINBERAR SKDLDIR VESTRÆNNA RÍKJA Á HVERN ÍBÚA LANDSINS UM ÁRAMÓT 1977
1. DM 2274 Japan
2. DM 3301 Ítalía
3. ÐM 4752 V-býzkal.
4. DM 0504 Holland
5. DM 7768 Norejfur
6. DM 8675 BelKÍa
7. Ml) 10578 USA
8. DM 8115 Svíþjóð
ft. DM 7576 Sviss
10. I)M 64ft6 Bretland
11. DM 5735 ísland
12. DM 3686 Danmörk
13. DM 2954 Austurríki
11. DM 2340 Frakkland