Morgunblaðið - 09.03.1978, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 09.03.1978, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. MARZ 1978 23 Framleiðslu- og markaðsnefnd Búnaðarþings: Nemendur Menntaskólans við Sund sýna í Breiðholti TALÍA, Leiklistarfélag Menntaskól- ans viö Sund, frumsýnir á fimmtu- dag í Breiöholtsskóla leikritið „Stundum bannað og stundum ekki“ eftir skopleikjahöfundana Arnold og Bach í pýðingu Emils Thoroddsens. Leikstjóri er Gísli Rúnar Jónsson. í frétt frá Talíu, segir að leikritið hafi verið sýnt fyrst hér á landi í Iðnó árið 1940 og hafi valdið þvílíkum „úlfaþyt meðal stjórnvalda að þau gerðu þegar ráðstafanir til að hindra sýningar leikritsins og var til þess kvödd sérstök dómnefnd sem í sátu fulltrúar lögreglunnar og barna- verndar auk Jónasar frá Hriflu, sem vildi þegar í stað láta banna leikritið sem hann taldi vera siðspillandi, klúrt og með öllu óhæft til sýning- ar.“ Reynt er í uppfræðslu M.S. að líkja eftir stemmningu er var viö frumsýninguna í Iðnó 1940 og er í því skyni bætt viö forleik sem Jón Hjartarson samdi fyrir L.A. þegar það setti upp leikinn fyrir nokkrum árum. Sviðsmynd hafa nemendur gert eftir hugmyndum leikstjórans. Sýningar á „Stundum bannaö og stundum ekki“ verða dagana 9., 10. 12., 13. og 14. marz kl. 20.00. Þjóðle ikh úsk órinn 25 ára í dag TUTTUGU og fimm ár eru í dag liðin frá stofnun Þjóðleikhús- kórsins. Hann heíur tekið þátt í öllum óperu- og óperettusýning- um, söngverkefnum öðrum og ýmsum leikritum Þjóðleikhúss- ins allt frá stofnun kórsins, segir í frétt frá Þjóðleikhúsinu. Þá hefur hann sungið bæði á vegum ríkisútvarpsins með Sin- fóníuhljómsveit íslands og fyrir sjónvarpið og farið í söngferða- lag til Ameríku með leikurum á vegum Þjóðleikhússins o.fl. Ætlunin var að Þjóðleikhús- kórinn héldi afmælistónleika á sjálfan afmælisdaginn í Þjóðleik- húsinu, en í samráði við þjóðleik- hússtjóra hefur þeim verið frest- að þar til síðar á leikárinu, þar sem söngfólkið er fast við æfing- ar og undirbúning að frum- sýningu óperunnar „Kátu ekkjunnar", sem frumsýnd verður 22. marz n.k. Á afmælistónleikum Þjóðleik- húskórsins verða flutt verk frá þessum 25 ára ferli. Stjórnandi kórsins á tónleikunum verður Ragnar Björnsson hljómsveitar- stjóri, en æfingar með honum annast Carl Billich. Þjóðleikhús- kórinn er blandaður kór, skipað- ur um 40 söngmönnum. For- maður hans hefur verið í rúm 22 ár Þorsteinn Sveinsson, en aðrir í stjórn kórsins eru Svava Þor- bjarnardóttir og Jónas 0. Magnússon. Skákþing íslands hefst í næstu viku SKÁKÞING ísland hefst 16. marz n.k. og því lýkur um páskana. Stendur skráning yfir og er því ekki ljóst enn hvaða skákmenn taka þátt í keppninni að þessu sinni en vitað er að hvorki Friðrik Ólafsson né Guðmundur Sigurjónsson verða meðal keppenda. Að þessu sinni verður teflt á tveimur stöðum í Reykjavík. Landsliðs- og áskorendaflokkur tefla í hinu nýja húsnæði Skák- sambandsins að Laugavegi 71 en meistaraflokkur, opinn flokkur og drengja- og „telpnaflokkar tefla að Grensásvegi 46. Keppt verður í kvennaflokki eftir páska. Verðlaun verða nú hærri en nokkru sinni fyrr eða samtals 250 þúsund krónur og verða fyrstu verðlaun í landsliðsflokki 100 þúsund krónur. Fyrirlestur um þingkosn- ingarnar í Frakklandi FRIÐRIK Páll Jónsson frétta- maður heldur fyrirlestur um frönsku þingkosningarnar á vegum Alliance Francaise í franska bókasafninu. Laufás- vegi 12. í kvöld kl. 20.30 (9. mars). Þingkosningarnar sem fram munu fara sunnudagana 12. og 19. mars. vekja sérstaka athygli að þessu sinni, vegna þess hve úrslit þeirra eru tvísýn og búast má við verulegum breytingum ef vinstri flokkarnir sigra. Friðrik mun fjalla um stjórn- málaþróun í Frakklandi frá því að De Gaulle komst til valda árið 1958, kynna helstu stjórnmála- flokka og ræða horfur fyrir og eftir kosningar. Friðrik Páll Jónsson lauk stúdentsprófi við Menntaskólann í Reykjavík 1965. Hann stundaði síðan háskólanám í París og lauk þar prófum í heimspeki, rökfræði og hagfræði. Hann hefur lengi unnið við fréttastörf og starfar nú á Fréttastofu útvarpsins. Fyrirlesturinn, sem er á íslensku, er öllum opinn og að honum loknum fara fram almennar umræður. (Stjórn Alliance Francaise.) Mælir með fóðurbætisskatti og leiðbeiningum um samdrátt í mjólkur- og sauðf járframleiðslu Félagar í leiklistarklúbbí M.S. byggingar á grænfóðuriönaði. í sam- bandi við ráöstöfun kjarnfóðursgjalds að öðru leyti leggur nefndin til aö tryggt verði í lögum að álagning þess, upphæð og notkun verði jafnan tekin í fullu samráði viö Framleiðsluráð landbúnaðarins. Heimilt verði að endurgreiða gjaldið en sú endur- greiðsla sé eingöngu bundin við sérstakar landfræði-, veðurfars- eða markaðslegar aðstæður og tekiö er fram í greinargerð aö ekki komi til mála að endurgreiða gjaldið til ákveð- inna búgreina og er þá átt við svína- og alifuglarækt. Bennt er á að vel beri að athuga, hvort ekki sé hepþilegast, að gjaldið gangi að mestu eða öllu leyti til niöurgreiöslu á tilbúnum áburöi og ekki komi til mála að kjarnfóðurgjald verði notað sem rekstursfé græn- fóðurverksmiðja. ( lok tillögunnar segir að þar eð gjaldtaka af kjarnfóöri bitni mest á mjólkurframleiðslu í hækkuðum fram- leiðslukostnaöi, en lækkun áburðar- verðs komi allri innlendri fóðurfram- Framhald á bls. 27 Ný stjóm Verzlunarráðs FYRSTI fundur nýkjörinnar stjórnar Verzlunarráðs íslands var haldinn nýlega> Á fundinum var kosinn varaformaður Verzlunarráðsins til næstu tveggja ára. auk þriggja manna í framkvæmdastjórn þess, en formaður ráðsins hafði verið kjörinn á aðalfundi þcss 23. febrúar s.l. Úrslit kosninga urðu þau að framkvæmdastjórn Verzlunar- ráðs íslands verður þannig skip- uð árin 1978 og 1979. Formaður: Hjalti Geir Kristjánsson, forstjóri, Kristján Siggeirsson hf. Varaform: Ragnar Halldórs- son, forstjóri, Islenzka álfélagið hf. Jóhann J. Ólafsson, forstjóri, heildverzlun Jóhann Ólafsson & Co, hf. Hörður Sigurgestsson, fram- kvæmdastj., Flugleiðir hf. Ólafur B. Ólafsson, forstjóri, Miðnes hf, Sandgerði. Skrifstofur Verzlunarráðs ís- lands eru að Þverá, Laufásvegi 36, og er Þorvarður Elíásson framkvæmdástjóri þess. Heitt vatn finnst við Ytri-Tjarnir BORINN Narfi kom niður á heitt vatn um hádegi í dag. þar sem hann er að störfum á Ytri-Tjörnum í Eyjafirði. Gizk- að er á að þarna hafi fundizt um 20 sek/1 af 60—70 stiga heitu vatni, en mæling hefur ekki farið fram enn, þar sem stöðva þarf borinn til þess að unnt sé að mæla vatnsmagn og hitastig. Vatnsæðin sem fannst er á 473 metra dýpi, og glæðir vonir manna um að þarna kunni að fást enn meira vatn neðar, en ætlunin er að bora að minnsta kosti 1000 metra niður á þessum stað. Þá er ekki talið ólíklegt, að þarna sé um annað vatnskerfi að ræða eh á borsvæðinu við Laugaland. Þá bar það einnig við r morgun að mönnum tókst að losa borinn Dofra, sem hefur verið fastur á 500 metra dýpi í holu á Lauga- landi. Þar var Dofri búinn að bora um 1700 metra niður en ekkert vatn hafði fundizt í þeirri holu. Ekki er ákveðið hvort borun verður hætt á þeim stað eða einhverjar frekari tilraunir gerðar. — Sv.P. „BÚNAÐARÞING 1978 lýsir fylgi sínu við pá afstöðu Stéttarsambands bænda aö mæla með álagningu sérstaks gjalds á innflutt kjarnfóður sem færustu og fljótvirkustu leið til að draga úr framleiðsluaukningu landbúnaðarvara." Þannig er komist að orði í tillögu að ályktun, sem Framleiöslu- og markaðsmálanefnd Búnaðarpings lagði fram á fundi Þingsins í gær. Þá lagði nefndin einnig fram tillögu Þar sem lagt er fyrir leiðbeiningarÞjónustu land- búnaðarins að hefja baráttu fyrir nokkrum samdrætti í framleiöslu mjólkur og sauðfjárafurða en auka verulega sumar aukabúgreinar. Miklar umræður uröu á fundum Þingsins í gær um pessar tillögur og komu Þar fram skiptar skoðanir varðandi réttmæti álagningar kjarn- fóðursskatts. Tillögurnar verða báðar teknar til síðari umræðu og af- greiðslu á fundi Þingsins í dag en gert er ráð fyrir að BúnaöarÞingi 1978 veröi slitið Þá síödegis. Eins og fyrr sagði mælir nefndin í tillögu sinni með álagningu kjarnfóð- ursskatts og segir að auk þess að draga úr framleiösiuaukningu þá felist líka í þeirri aðgerð áhrifamikil vernd fyrir innlenda fóðurframleiðslu. Minnt er á ályktun síöasta Búnaðarþings um álagningu kjarnfóðursskatts til upþ- Staðan í útvarpsskákinni NÚ STENDUR yfir skákkeppni milli Norðmannsins Leifs Ögaard og Jóns L. Árnasonar heimsmeistara sveina og er hún í daglegu tali nefnd „útvarps- skákin“. Fer hún þannig fram. að í fréttatíma útvarpsins í hádcginu dag hvern er lesinn einn leikur og leika því skák- kapparnir einn leik annan hvern dag. Nú er lokið 6 leikjum í skák- keppninni og hefur skákin teflzt sem hér segir: Hvítt: Leif Ögaard. Svart: Jón L. Árnason. 1. d4 - Rf6, 2. c4 - c5, 3. d5 - e6, 4. Rc3 — exd5, 5. cxd5 — d6, 6. Rf3 - g6. Staðan í skákinni er þessi:

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.