Morgunblaðið - 09.03.1978, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 09.03.1978, Qupperneq 24
24 MORGUNBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 9. MARZ 1978 JWí>r|pwMíiW§> Útgefsndi Framkvæmdastjóri Ritstjórar R itstjórna rf u lltrúi Fréttastjóri Auglýsingastjóri Ritstjórn og afgreiðsla Auglýsingar hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthias Johannessen. Styrmir Gunnarsson. Þorbjöm Guðmundsson. Björn Jóhannsson. Árni GarBar Kristinsson. Aðalstræti 6. simi 1 01 00. ASalstræti 6, simi 22480. Áskriftargjald 1 700.00 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 90 kr. eintakið. Til verndar móðurmálinu Mannréttínda ekki getið í lok Belgradráðstefnu Belgrad. 8. marz. Reuter. AP. ÖryKgisinálaráðstefnunni í Belsrad lauk í dag án þess að minnzt væri á mannréttindi eða önnur áRreiningsmál austurs og vesturs í lokayíirlýsingu sem var samþykkt. Lokayfirlýsingin er óljóst orðuð og þar er aðeins lauslega minnzt á slökunarstefnuna, detente, en ekkert á það minnzt hvort mannréttindaákvæði Helsinki-samningsins hafi verið virt. Aðalfulltrúi Bandaríkjanna, Arthur Goldberg, sagði í ræðu á ráðstefnunni í dag, að bandaríska stjórnin mundi halda áfram að beita sér fyrir mannréttindum og harmaði að Rússar lögðust gegn því að mannréttinda væri getið í lokayfirlýsingunni. Játað er í yfirlýsingunni að þar sem reglur kvæðu á um samstöðu hefði verið ógerningur að ná samkomulagi í meiriháttar málum. Yfirlýsingin var sam- þykkt mótatkvæðalaust þegar Malta hafði samþykkt á síðustu stundu málamiðlunartillögu um öryggi landanna við Miðjarðar- haf eftir fimm daga umræður. Ráðstefnunni lauk með því að lagt var til að þriðja öryggis- málaráðstefna Evrópu yrði hald- in í Madrid 11. nóvember 1980 og að samþykkt var að umræðum um mál sem varða öryggi Mið- jarðarhafs yrði frestað til þess tíma. Malta hafði beitt sér fyrir því að viðræður um öryggi Mið- jarðarhafs hæfust með sér- fræðingafundi á Möltu í febrúar á næsta ári. Onnur ríki voru andvíg þessari tillögu þar sem þau óttuðust að umræður um þessi mál mundu snúast upp í þref um ástandið í Miðaustur- löndum og önnur deilumál. Goldberg sagði að Belgrad-ráð- stefnan hafnaði þeim staðhæfingum kommúnistaríkja að umræður um mannréttindi í Austur-Evrópu jafngiltu afskipt- um af innanríkismálum. Han fordæmdi líka tilraunir kommúnistaríkja til þess að koma í veg fyrir umræður um mannréttindi en án þess að nefna Sovétríkir, á nafn. „Tilraunir til að kæfa sannleik- ann í Belgrad eða heima fyrir munu ekki breyta sannleikan- um,“ sagði Goldberg. Lögð hefur verið fram á Alþingi merk þingsályktunartillaga um að fela ríkisstjórninni „að sjá svo um, að sjónvarp og útvarp annist kennslu og fræðslu í öllum greinum móðurmálsins. 13 manna ráð, kosið hlutfallskosningu á Alþingi, skal hafa með höndum stjórn þeirra mála.“ í greinargerð með tillögunni segir, að engum dyljist, að íslenzk tunga eigi nú í vök að verjast og eigi þetta ekki sízt við um talað mál, framburð og framsögn. Þá fari orðaforði fólks þverrandi og erlend áhrif á tunguna vaxi. „Engum orðum þarf að fara um nauðsyn þess að stemma stigu við slíkri óheillaþróun," segir í greinargerð með tillögunni, „og snúa við inn á þá braut íslenzkrar málhefðar, sem ein verður farin, ef íslenzk menning á að lifa og dafna.“ Síðan er greint frá því, að Ríkisútvarpið hafi lagt nokkuð af mörkum til fræðslu og kennslu í íslenzkum fræðum, tungu og bókmenntum, en það sé aftur á móti skoðun flutningsmanna, að enn sé ástæða til að leggja áherzlu á markvissari ræktun tungunnar, og þá ekki sízt í opinberum fjölmiðlum. Og enn segir: „Ahrifaríkasti fjölmiðillinn, sjónvarpið, hefur hins vegar í engu sinnt fræðslu í meðferð íslenzkrar tungu. Virðist jafnvel ekki lögð sérstök rækt við orðfæri eða framburð þeirra, sem þar starfa. Á þessu þarf að verða gjörbreyting. Langsterkasta áróðurstæki, sem flutzt hefur inn á gafl á hverju heimili landsins, þarf að taka tröllataki til eflingar íslenzkri menningu, sérstaklega til viðreisnar íslenzkri tungu, en það er brýnasta verkefnið nú ...“ í framsöguræðu Sverris Hermannssonar, aðalflutningsmanns tillögunnar, kemur fram, að mikill og almennur áhugi sé á íslenzkri tungu og meðferð hennar og þá ekki sízt íslenzkum bókmenntum, fornum og nýjum. Hann segir, að með lestri þeirra og vandaðri kynningu verði tungan bezt efld og þarf ekki að ganga að því gruflandi, svo augljóst sem það er. Á Islandi séu til miklar og góðar bókmenntir og því af nógu að taka. Og enn segir flutningsmaðurinn, að ekki þurfi um það að deila, að mæltu máli íslenzku hafi hrakað að undanförnu „og á það aðallega við í munni yngri kynslóðar þéttbýlis. Málskóli heimilanna og þó einkum hinna öldruðu er þar aflagður, en erlend áhrif hvers konar hafa vaxið að sama skapi. Ástæður fyrir erlendum áhrifum eru augljósar og gætir í því efni ekki sízt áhrifa frá hinum sterka fjölmiðli, sjónvarpinu, einmitt því tækinu, sem getur gefið okkur kost á straumhvörfum í þróun og meðferð málsins, ef farið verður að efni þessarar tillögu ...“ Þá bendir flutningsmaður á, að útvarpið hafi sýnt íslenzkri tungu og bókmenntum ræktarsemi með ýmsu móti og vill ekki gera lítið úr því hlutverki hljóðvarps, nefnir þætti orðabókar- manna og fræðsluþætti um Daglegt mál „og eins lestur úr bókum okkar, t.d. lestur Einars Ól. Sveinssonar úr Njálu á sinni tíð, svo eitthvað sé nefnt. Ef ég væri útvarpsráðsmaður, myndi ég leggja til, að á hverjum vetri yrði Njála lesin, Bandamanna saga, Hrafnkels saga Freysgoða og enn fleiri fornrit okkar, auk Laxness, Þórbergs og fjölda annarra höfunda síðari tíma. Á annan tug ára er nú liðið síðan sjónvarpið hóf göngu sína. Fyrir utan flutning íslenzkra leikrita hefur sjónvarpið í litlu sinnt bókmenntum okkar og alls enga fræðslu veitt í meðferð tungunnar. Má þó öllum augljóst vera, að í því efni hefur sjónvarpið yfirburðaaðstöðu. Þetta sinnuleysi er gagnrýnivert og raunar lítt skiljanlegt. En nú er lagt til, að á þessu verði gerbreyting. í tillögu þessari er lagt til, að sjónvarpið sérstaklega verði tekið til afnota til kynningar á íslenzkum bókmenntum og til gagngerðrar fræðslu í öllum greinum íslenzkrar tungu .. Morgunblaðinu þykir sérstök ástæða til að vekja athygli á þessari þingsályktunartillögu um móðurmálið í opinberum fjölmiðlum og leggur áherzlu á, að tillagan fái þá meðferð á Alþingi, sem íslenzk tunga og menning eiga skilið af þjóðkjörnum fulltrúum löggjafarsamkomunnar. Það er skemmti- legt til þess að vita, að í öllum umræðunum um efnahagsmál skuli a.m.k. heyrast ein rödd, sem talar máli íslenzkrar tungu og þess arfs, sem við erum stoltust a.f, en án hans og tungunnar væri hér hvorki sérstakt né sjálfstætt þjóðfélag, svo fámenn sem við erum. Að höfðatölu erum við lítil þjóð, en stórveldi ef miðað er við arf okkar og menningu og hún borin saman við menningu margra annarra miklu fjölmennari ríkja. Flutningsmenn eiga þakkir skilið fyrir tillöguna um eflingu menningar okkar og móðurmáls. Park hafnar mútuásökunum Washinrton. 8. marz. Reuter. Auðkýfingurinn Tongsun Park frá Suður-Kóreu hefur neitað ásökunum um að hann hafi verið viðriðinn samsæri um að múta bandarískum þing- mönnum. Bandarísk þingnefnd hefur yfirheyrt Park fyrir luktum dyrum og honum hefur verið heitið því að mál verði ekki höfðað gegn honum. Blaðamenn spurðu Park að loknum vitnaleiðslum hvort hann hefði sagt allan sannleikann um Mendes- France neitar París. 8. marz. Reuter. PIERRE Mendes- -France, fyrrverandi for- sætisráðherra, neitaði því í viðtali við blaðið Le Matin að hann keppti að því að verða forsætisráð- herra þjóðstjórnar ef vinstri flokkarnir sigr- uðu í frönsku þing- kosningunum. Kommúnistaforinginn Georges Marchais lét í ljós ugg um að reynt yrði að gera Mendes-France að forsætisráðherra vinstristjórnar til að róa hægrimenn. Mendes- -France sagði í viðtalinu, að með afstöðu sinni væru kommúnistar að auka ágreining vinstri- flokkanna rétt fyrir kosningarnar. tilraunir Suður-Kóreumanna til að hafa áhrif á bandaríska þingmenn. Hann svaraði því til að hann hefði aldrei tekið þátt í tilraun- um til að hafa áhrif á bandaríska þingmenn og gæti því ekkert um málið sagt. Aðspurður sagði Park að hann hefði aldrei mútað núverandi forseta fulltrúadeildarinnar, Thomas 0,Neil, eða fyrrverandi forseta fulltrúadeildarinnar, Carl Albert. Siðanefnd fulltrúadeildarinnar komst að þeirri niðurstöðu eftir opinberar vitnaleiðslur í október, að fyrir lægju sannanir um samsæri Suður-Kóreumanna um að hafa áhrif á þingmenn og að Park hefði tekið þátt í því. Hreinsanir í Rúmeníu Vín. 8. marz. Rrutor NICOLAE Ceausescu, forseti Rúmeniu. hefur skýrt frá víð- tækum hreinsunum í kommún- istaflokknum og ríkisstjórninni og segir að tilgangurinn með þeim sé sá að efla umhótastefnu sína í efnahagsmálum. Samkvæmt tilksipun frá for- setanum eru sjö ráðherrar og fjórir af 10 riturum miðstjórnar flokksins leystir frá störfum. Mikilvægasta breytingin er sú að a'ðalhugmyndafræðingur flokksins, Cornel Burtica, hefur verið lækkaður í tign. Hann var leystur frá störfum flokksritara og skipaður ráðherra utanríkis- viðskipta sem hann gegndi á árunum 1969 til 1972. Tilskipunin var birt að loknum fundi í æðstu stjórn flokksins og samkvæmt henni er stofnað nýtt embætti fyrsta aðstoðar forsætisráðherra. í það embætti var skipaður Ilie Verdet, sem hefur verið talinn starfandi forsætisráðherra sem var jafn- framt vikið úr framkvæmda- nefnd miðstjórnarinnar. Ceausescu sagði á fundi í miðstjórninni að breytingarnar miðuðu að því að efla þau ráðuneyti sem fjalla um efna- hagsmál. Hann tilkynnti að miðstjórnin yrði kölluð saman til fundar í Búkarest 22. marz. Mannrán í tveimur löndum Antwerpen, Mílanó, 8. mars. AP. TVÖ mannrán voru framin í Evrópu á þriðjudag og þriðjudagsnótt. í Antwerpen í Belgíu hvarf góðkunnur forstöðumaður tryggingafyrirtækis, Charles Bracht, barón, að sögn belgísku fréttastofunnar „Belga". Honum var rænt á bílastæði fyrir utan fyrirtækið, sem hann vinnur við í borginni. Baróninn er heiðurs- konsúíl Austurríkis í Antwerpen. í Mílanó á Norður-Ítalíu var mexíkönskum fjármálamanni, David Beissah að nafni, rænt af fjórum grímuklæddum mönnum úr bifreið sinni á þriðjudagsnótt. Að sögn lögreglu var eiginkona mannsins áhorfandi að verknaðinum. Mann- ræningjarnir munu hafa verið vopnaðir vélbyssum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.