Morgunblaðið - 09.03.1978, Qupperneq 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. MARZ 1978
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Tæknifræðingur
Fyrirtæki á stór-Reykjavíkursvæöinu vill
ráöa skipa- eöa véltæknifræðing sem hefur
nokkra starfsreynslu.
Tilboð leggist inn á afgr. Mbl. fyrir 15. þ.m.
merkt: „Tæknifræðingur — 9894“.
Sendibílastöð
Hafnarfjarðar
óskar eftir bílum til aksturs á stöðinni.
Upplýsingar í síma 51111.
Sendibílastöð Hafnarfjarðar,
Helluhraun 7.
Peningastofnun
í Reykjavík
óskar eftir að ráöa gjaldkera (féhiröi.)
Umsóknir merktar: „P — 4144 sendist
auglýsingadeild Mbl. fyrir 18. marz. n.k.
Laus staða
Staða deildarstjóra dýrafræöideildar
Náttúrufræðistofnunar íslands er 'laus til
umsóknar.
Samkvæmt lögum nr. 48/1965, um almenn-
ar náttúrufræöirannsóknir og Náttúrufræöi-
stofnun íslands, skal deildarstjóri dýrafræöi-
deildar vera sérfræöingur í einhverri þeirra
aöalgreina, sem undir deildina falla og hafa
lokið doktorsprófi, meistaraprófi eöa ööru
hliöstæöu háskólaprófi í fræöigrein sinni.
Laun samkvæmt launake>fi opinberra
starfsmanna.
Umsóknir sendist menntamálaráöuneytinu
fyrir 8. apríl 1978, ásamt upplýsingum um
menntun og fyrri störf.
Menntamálaráðuneytið, 6. mars 1978.
Afgreiöslustarf — Eldhússtarf
Aukavinna
Starfskraftur óskast sem kalla má í eftir
þörfum, aðallega á kvöldin og um helgar.
Umsóknir leggist inn á afgr. Morgunblaösins
fyrir 13. marz ,78. Meö upplýsingar um
aldur, heimilisfang, símanúmer og síöasta
vinnustaö. Merkt: „Heiöarlegur, duglegur —
4145“.
Stúlka óskast
til bókhalds og almennra skrifstofustarfa.
Upplýsingar gefur Ragna Þóröardóttir eftir
hádegi.
Heildverzlun Eiríks Ketilssonar,
Vatnsstíg 3.
Ungur starfs-
kraftur óskast
til starfa hjá traustu innflutningsfyrirtæki í
miöborginni. Starfiö er fólgiö í: afgreiöslu á
vörum, útkeyrzlu og sendiferöum. Nauösyn-
legt er, aö umsækjandi hafi ökuleyfi.
Traust starf, fyrir traustan starfskraft.
Tilboö merkt: „J — 4143“, sendist Morgun-
blaöinu, fyrir 15. marz.
Hótelstarfsfólk
Viö óskum aö ráöa yfir sumartímann
(maí/sept.).
Yfirkokk, kokka í kalt og heitt/eldhús,
eldhússtúlkur og stúlkur í uppþvott.
Framleiöslustúlkur. Stofustúlkur.
Laun samkvæmt launaákvæöum. Fastur
vinnutími.
Skriflegar umsóknir sendist:
Lindström Turisthotell,
5890 Lærdal, Norge.
Apotek
Starfskraftur óskast í aþótek. Heildagsstarf
eöa hlutastarf eftir samkomulagi. Umsókn
sendist blaöinu fyrir 16.3. merkt: „Apótek —
4148“.
Fasteignasala —
Sölumaður
Vanur sölumaöur óskast til starfa viö
fasteignasölu í miðborginni. Umsóknir er
greini aldur, menntun og fyrri störf sendist
afgreiöslu Morgunblaösins fyrir 14. marz
n.k. merkt: „Sölumaöur — 4147“.
Oskum eftir
að ráða
karlmann eöa konu til símavörslu o.fl. í
vörugeymslu okkar viö Njaröargötu sími
22620.
Einnig viljum viö ráöa skrifara í vörugeymslu
okkar á Grandagaröi sími 21166.
Hafskip hf.,
Viljum ráða
framkvæmdastjóra
í hálfsdags starf nú þegar. Viökomandi þarf
aö hafa áhuga á menntamálum og geta
umgengist fók á öllum aldri. Mjög góörar
enskukunnáttu krafist.
Laun eftir samkomulagi. Umsóknir skulu
hafa borist AFS fyrir 15. þessa mánaöar.
AFS
International Scholarships
á íslandi
Hverfisgötu 39
P.O. Box 753 Reykjavík
— Þættir um ...
Framhald af bls. 15
ar rannsóknarniðurstöður sem
eru samhljóða eldri næsta
gleymdum kenningum frá 1950
geti skýrt þetta vandamál. Svo
virðist sem hluti blóðfitu sjúkl-
inga, sk. „H.D.L. þáttur“ verndi
fólk gegn kransæðasjúkdóm, en
annar hluti sk. „L.D.L. þáttur
stuðli að kransæðasjúkdóm. Blóð-
fitugreining sem hér er lýst, er
hafin hér á landi m.a. fyrir
tilstilli Hjartaverndar.
Nauðsynlegt er að efla þessa
starfsemi til muna. Ef ofannefnd
kenning reynist sönn mun mikilli
orrahríð linna.
Um mjóik
Enginn vafi er á að mjólk er
heppileg fæða fyrir börn á
vaxtarskeiði. Ekki vegna fitunn-
ar, heldur vegna kalkinnihalds
enda aðal kalkgjafi okkar. Mjólk-
in inniheldur D-vítamín, kalk og
fosfór í heppilegu hlutfalli.
Líkaminn nýtir mjólkurkalk
mjög vel úr þessari blöndu. I
hörðum áróðri gegn land-
búnaðarvörum sem rekinn hefur
verið hér, hefur mjólkin flotið
með óafvitandi eða vitandi. Mér
er kunnugt um að í sumum
skólum hefur mjólkin beinlínis
verið tekin af börnum. Bráða-
birgðaniðurstöður úr neyslu-
könnun Manneldisráðs bendir til
þess að brýnna sé að „svipta“
börn og unglinga öðrum fæðu-
tegundum en mjólk. Það er
áhyggjuefni að sala gosdrykkja
á undanförnum árum heíur
aukist í öflugu hlutfalli við
minnkun á mjólkurneyslu.
Samtök barnalækna í Banda-
ríkjunum hafa ítrekað varað við
mjólkurtakmörkunum (J.A.M.A.)
og mælt með að börn drekki V2
— 3A lítra af mjólk á dag. Eldri
fullyrðingar um að sést hafi
„kolesterolútfellingar" í æða-
veggjum ungbarna virðast byggð-
ar á misskilningi. Við nánari
athugun virðist hér vera um
afleiðingar vírussjúkdóma að
ræða. Niðurstöður rannsókna í
Bretlandi frá árunum 1976—77
hafa leitt í ljós að mjólk og
undanrenna lækkar kolestrol-
gildi blóðs, en að smjör valdi
nokkurri hækkun. Þau börn, sem
hafa mjög hækkað kolestreol
vegna erfðasjúkdóms, þurfa sér-
staka meðferð.
Lokaorð
Ráðleggingar um matarræði
hljóta að mótast af niðurstöðum
neyslukannana og upplýsinga um
heilsufar.
Hægt er að miða við nýlega
gerðar rannsóknir svo sem dr. G.
Sigurðssonar, sem til er vitnað
framar í þessari grein. Nú voru
þátttakendur fáir í þeirri rann-
sókn og því má deila um hvaða
ályktanir má draga af henni.
Ekki sýnist mér niðurstöður gefa
tilefni til byltingar í manneldis-
málum okkar, en kalla frekar á
víðtækari neyslukannanir.
Helstu niðurstöður verða því
eftirfarandi:
1. Heilsufarsrannsóknir hér hafa
gefið til kynna að of mikill
líkamsþungi sé nokkuð algengt
fyrirbæri hér á landi. Fólki ber
því að forðast ofát og draga
stórlega úr neyslu sykurauð-
ugra fæðutcgunda sem bæst
hafa á matarhorð okkar s.l.
20—30 ár. Vil ég þar fremst
nefna sælgæti og gosdrykki. En
málið er ekki svo einfalt, því
offituvandamálið er aðeins angi
af miklu ofneysluvandamáli s.s.
ofneyslu fæðu, drykkja, lyfja o.fl.
Vandamálið snertir og aðra þætti
samfélags okkar s.s. atvinnu-
hætti, fjárhag, viðskipti, mennt-
un, erfðir o.fl.
2. Brýn nauðsyn er að endurskoða
rækilega vöruval söluturna.
Manneldisráð mun á næstunni
gera grein fyrir óheillavænlegupi
áhrifum „sjoppusölu" á neyslu-
venju unglinga.
3. Vitaskuld ber að gefa fólki
kost á fiturýrari mjólk og kjöti.
Mjólkursamsalan hefur rætt þau
mál við ráðið og er von á
fiturýrari mjólk á markaðinn á
næstunni.
4. Hyggilegt er að stórauka
íþróttaiðkanir. Ráð er að fyrir-
tæki búi starfsfólki aðstöðu til
líkamlegrar þjálfunar 2—3 klst. á
viku, jafnvel í vinnutíma þess. Án
efa er slíkt fyrirkomulag góð
fjárfesting.
5. Brýnt er að auka stórlega
rannsóknarstarfsemi stofnana
er starfa að heilsuvernd svo og
neyslukönnun á landinu.
Sérfræðingum er starfa að
manneldismálum er hollt að hafa
í huga að ísland liggur við
heimskautabaug og afrakstur
landsins ræðst af jarðvegi og
veðráttu. Hvort sem mönnum
fellur vel eða miður erum við
nauðbeygð að nærast á dýra-
afurðum um ókomin ár. Okkur
ber að hafa hugfast að allt frá því
að efnahagur og félagslegur
aðbúnaður hér á landi færðist í
svipað horf og í nágrannalöndun-
um, höfum við íslendingar státað
af lengstu meðalævi í heimi.
— Bridge
Framhald af bls. 31.
40 pör þátt í keppninni. Keppt
er í fjórum 10 para riölum, og
eftir 1. umferö af fimm, eru
eftirtalin pör efst:
stig
1. Guðríður Guömundsdóttir
Sveinn Helgason 140
2. Alda Hansen —
Georg Ólafsson 131
3. Sigríöur Pálsdóttir —
Eyvindur Valdimarsson 130
4. Lilja Petersen -»-s
Jón Sigurösson 128
5. Steinunn Snorradóttir —
Agnar Jörgensson 127
6. Osk Kristjánsdóttir —
Dagbjartur Grímsson 126
7. Sigrún Ólafsdóttir —
Magnús Oddsson 124
8. Kristín Þóröardóttir —
Jón Pálsson 121
Meöalskor: 108
Næsta umferð í þessari
keppni veröur spiluö mánudag-
inn 20. marz og hefst keppnin
kl. 20 stundvíslega í Domus
Medica.
— Stjórnar-
frumvarp
Framhald af hls. 21
sérmenntaðs og sérþjálfaðs fólks.
Það er fyrst og fremst með hliðsjón
af þessu sem frumvarp þetta er
borið fram til þess að tryggja á
sem bestan hátt, að störf á þessum
vettvangi skili sem bestum árangri
fyrir einstaklinginn og þjóðfélagið.
Að svo stöddu sé ég ekki ástæðu
til þess að fara frekari orðum um
frumvarp það sem hér liggur fyrir.
Um einstakar greinar frum-
varpsins sé ég ekki heldur ástæðu
til þess að fjalla um á þessu stigi,
en leyfi mér að vísa til
athugasemda með frumvarpinu."