Morgunblaðið - 09.03.1978, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. MARZ 1978
33
samanburðarflokki. Varpið hélst
vel fyrstu vikuna, en snarféll þá f
tveimur tilraunum. Astæður fyrir
þessu varpfalli var ekki sönnuð
og þarfnast miklu frekari rann-
sókna. Þriðja tilraunin var gerð
með fóðurblöndu, sem þannig var
saman set:
37% maísmjöl
31% grasmjöl
15% þorskmjöl
9% feiti (tólg og lýsi)
6% fóðurkalk
2% Stewart-fóðursalt
I 100 kg af blöndunni voru 97.3
Ffe með um 150 g meltanlegu
proteini í Ffe. I hvorum flokki
voru 12 hænur. Tilraunaskeiðið
var 50 dagar og niðurstöður voru
þessar:
hafi sérstaklega góð áhrif á frjó-
semi og hreysti. Hér er aðeins um
að ræða að fá hæfilega margar
fóðureiningar með um 150 g af
meltanlegu proteini í Ffe. Þessu
má auðveldlega ná með íbland-
aðri feiti. Vandinn er meiri með
fóðrun smágrfsanna en gyltn-
anna. Hins vegar hafa Danir ný-
lega birt niðurstöður af tilraun-
um (1976) með mismunandi
magn af dýrafeiti í grísafóðri.
10% íblöndun gaf ágætan árang-
ur á aldrihum 3—10 vikna. Niður-
stöðurnar eru þessar:
„Tabel 12. Tilvækst og foderud-
nyttelse ved forskellige mængder
fedt f fodret til tidligt fravænn-
endegrise (Nielsen et al. 1976).
Fjöldi eggja á dag
Hænuþyngd 1. dag
Hænuþyngd 50. dag
Létting á tilraunaskeiði:
Tilraunafl. SamanburAarfl.
6.96 7.04
1.98 kg -2.01! kg
1.92 kg 1.981 kg
0.06 kg 0.03 kg
,Pct. fedt tilsat 0 5 10 15
Vægt ved 3 uger, kg 5.9 6.0 6.0 5.9
Vægt ved 10 uger, kg 23.1 25.0 25.7 . 24.2
Daglig tilvækst, g 351 387 402 375
FEs pr. gris daglig 0.86 0.91 0.95 0.88
FEs pr. kg tilvækst 2.47 2.34 2.37 2.34
Alder I dage ved 20 kg 66 63 61 64
Um bragðprófun, sem gerð var
á Rannsóknastofnun fiskiðnaðar-
ins segir í skýrslu frá þeim:
„Prófunin var framkvæmd með
þrihyrningsaðferð (Completely
balanced triangle test). Sex dóm-
arar, sem áður hafa sýnt næmi
fyrir bragðmun, voru valdir til að
prófa eggin þrjá daga f röð. 1
hvert skipti fengu þeir þrjú sýni,
tvö úr öðrum eggjaflokknum, eitt
úr hinum og áttu að velja staka
sýnið úr. Eggin voru soðin (5V4
min.), og helminguð og borin
fram heit.
Enginn merkjanlegur munur
reyndist vera á nýorpnum eggj-
um úr flokki A og B. I 7 tilfellum
af 18 fannst staka sýnið. Athugun-
in sýnir, að búast má við 6 réttum
niðurstöðum, ef valið er af handa-
hófi. Til að segja tneð 95% vissu,
að munur sé4 sýnum A og B þarf
10 rétt svör, en 12 rétt svör fytir
99% vissu.
Egg geymd í 3 vikur gáfu svip-
aðar niðurstöður (2 rétt svör af 6)
og virtust egg í flokki B ekki
geymast verr en egg í flokki A. Þó
kvartaði einn dómari um lýsis-
bragð af geymdu eggi úr flokki
B.“
Þetta gefur vísbendingu um, að
gera megi islenzkt heilfóður
handa varphænum með 60—70%
alinnlendu fóðri. Á þessu þarf að
gera ýtarlegar rannsóknir á
næstu árum.
Um svfnin er meira vitað.
Tveggja áratuga gamlar amerísk-
ar rannsóknir gefa ákveðnar vis-
bendingar um, að fóðra megi svín,
sérstaklega gylturnar, með miklu
°sB<?aðL
Spendýrafitu þarf að með-
höndla á sérstakan hátt í fóður-
verksmiðjunum til þess að hún
verði nothæf til skepnufóðurs.
Við þurfum að rannsaka og reyna,
hvernig við þurfum að meðhöndla
fiskiolíurnar, sem við framleiðum
í svo stórum stfl, til þess að þær
geti komið að sama gagni. Sér-
staklega verður vandamálið á sfð-
ustu 6 vikum eldistfma grfsanna,
en þann eldistíma þurfa grísirnir
um 125 kg (Ffe), en það er um
40% af heildarfóðrinu, sem fer til
kjötframleiðslunnar.
Sem vísbending um það, hvað
við kynnum að geta gert með ís-
lenzku fóðri, teldi ég ráðlegt að
gera tilraunir með Grísa-
Gyltufóður, sem mætti vera
þannig saman sett:
77.0% grasmjöl
15.0% karfamjöl
8.0% feiti (tólg eða lýsi)
I svona blöndu eru um 98.0 Ffe
og f hverri eru um 155 g af
meltanlegu proteini. Eg tel senni-
legt, að nota mætti þetta fóður
handa gyltum eingöngu, bæði á
meðgöngutfma, mjólkurskeiði og í
geldstöðu og handa göltum, einn-
ig handa eldisgrfsunum frá, upp-
hafi, unz ca. 6 vikur eru eftir til
slátrunar, en þessi eldisdýr og
þessi fóðrunartími tekur um
60—65% af allri fóðurnotkun-
inni.
Hvernig blanda eigi eldissvfna-
fóðrið, er aftur annað mál og
vandasamara. Með það þarf að
prófa sig áfram og kanna, hvaða
áhrif feitin og grasmjölið saman
hafa á bragðgæðin og vaxtarhraða
grfsanna. Allt eru þetta mikilvæg
og áhugaverð rannsóknarefni,
sem vonandi er, að Rannsóknar-
stofnunin geti tekið sem fyrst á
dagskrá.
— Tónbókasöfn
Framhald af bls. 12
um, raðdskrám, og nótum, en
treyst á miölunarstofnanir út
um allar trissur í Reykjavík.
Enda fyllist maöur forundran f
heimsóknum á heimili íslenskra
tónlistarmanna, en þar getur
oft og einatt að líta heila veggi
„fóöraða" meö kjörgripum, sem
engum erlendum einkaaðila
dytti í hug að festa kaup á;
enda ætlaöir tónlistarháskólum
og söfnum. Þaö er sagt að
neyðin kenni naktri konu aö
spinna — en fyrr má rota en
dauörota.
Rétt er aö geta þess í
sambandi viö tónbókasöfn tón-
listarskóla höfuðborgarinnar,
aö ekki eru ákvæöi í lögum og
reglugeröum þess efnis aö
tónlistarskólum sé skylt, aö
reka almenn bókasöfn. Tón-
listarskólum ber hins vegar
siöferöileg skylda til aö sjá
nemendum sínum fyrir viöunn-
andi aöstööu á þessu sviöi. Viö
vonum aö svo sé.
Um tónbókasöfn úti á lands-
byggðinni veit ég ekkert, og því
síður, hvar upplýsingar er um
þau aö fá. Þó veit ég, aö í
Hafnarfirði hefur verið starf-
rækt myndarlegt tónlistarsafn,
og hafa mér borist góðar sögur
af því nýverið.
ÚTLENDINGAHERDEILDIN
Ekki eru okkur allar bjargir
bannaöar. Viö búum svo vel aö
hafa í landinu „útlenskar“
menningarstofnanir, og veit ég
ekki hvaö tónlistarunnendur
gerðu nytu þeirra ekki viö. Hér
um ræöir Norræna húsiö og
Menningarstofnun Banda-
ríkjanna.
Norræna húsiö á álitlegt safn
tónlistarbóka, sem og hljóm-
plötur. En efni alls þessa er aö
sjálfsögöu norræns eðlis.
Þaö veit hvert mannsbarn, aö
atburöarás tónlistarsögunnar
hefur sjaldnast ruðst fram á
Norðurlöndum, og því skarö
fyrir skildi; eöa öllu heldur, stór
eyöa í tónbókasafni Norræna
hússins. Nú stendur til aö
stækka tónlistardeildina, og
ber aö þakka af alhug þá rækt,
sem Norræna húsiö hefur lagt
viö tónlist norrænna skjólstæö-
inga sinna.
Menningarstofnun Bandaríkj-
anna átti, þegar síöast var vitað
til, stærsta tónlistarsafn í
Reykjavík í almennri notkun. En
safnið á þaö sammerkt meö
safni Norræna hússins, aö þaö
einskorðast við afmarkað tíma-
bil tónlistarsögunnar, og eina
heimsálfu, sem lítið lét á sér
kræla á alþjóðlegum tónlistar-
vettvangi fyrr en nú á þessari
öld; enda nútímatónlist í fyrir-
rúmi á safninu.
ÞJÓÐARHLÖÐU-UNDRIÐ
Hvaö má gera til úrbóta? Þaö
hlýtur aö vera öllum Ijóst aö
þetta sundrungar-ástand er
óhæft. Eigum viö aö bíöa
átekta í trausti þess að „yfir-
valdiö“ bjargi málinu, , eöa
hefjast handa sjálf? Veljum
seinni kostinn! Og orð eru til
alls fyrst: Viö væntum þess, aö
gert sé ráö fyrir fullkomnu
tónbókasafni í fyrirhugaðri
Þjóöarbókhlööu. Viö væntum
þess, aö einhver tónelskur
bókavörður sérhæfi sig og
starfi sem slíkur. Viö væntum
úrbóta. Fróðlegt væri aö heyra
frá þeirri stofnun, eöa aöila,
sem meö væntanlega Þjóöar-
bókhlööu hefur aö gera.
Kannski getum viö tónlistar-
menn oröið aö liöi; kannski
væri ekki svo galiö aö hafa
okkur meö í ráöum?
Mikið vatn á eflaust eftir aö
renna til sjávar áöur en Þjóöar-
hlöðu-undrið gerist, og því rétt,
aö skyggnast eftir skammtíma
úrbótum. Ekki veröur viö svo
búiö lengur. Það er augljóst, aö
fyrsta skrefiö er, aö koma undir
eitt þak, segi og skrifa EITT
ÞAK, bókum + nótum sem nú
-ecujilum allar jaröir. og koma
aö engum notum fyrir vikið.
Mér heyrist á máli bókavaröa,
aö þeir yrðu þeim degi fegnast-
ir er olbogabörnunum yrði
fundinn sameiginlegur dvalar-
staður. Ég trúi ekki ööru en
bókasafnsmenn yrðu sam-
vinnuþýöir í slíkum aögeröum,
og aö þeir létu eigin hagsmuni
sitja á hakanum, tónlistinni til
framdráttar.
Aö lokum þetta: í hvers
verkahring, í skrifstofubákni
okkar, er þaö, aö hafa
RAUNVERULEGA forgöngu um
mál sem þetta? Spyr sá sem
ekki veit.
— Staksteinar
Framhald af bls. 7
vísitölubyltingu. örugg-
lega sannfærður um að
slík kerfisbreyting þjón-
aði hagsmunum þeirra
ólíku hópa, sem fiokkur
hans styðst við.
Sama er að segja um
formann þingflokks
Alþýðuflokksins. Hann
hefði ekki sett fram hug-
myndir um þjóðhagsvísi-
tölu nú nýverið hér í
biaðinu. ef hann teidi það
ekki þjóna sameiginleg-
um hagsmunum laun-
þega og atvinnufyrir-
tækja. Lúðvík Jósepsson
hefur metið pólitísku
taflstöðuna öðruvísi, en
hann hefur við aðrar
aðstæður bæði í stjórn og
stjórnarandstöðu talið
nauðsynlegt að stöðva
visitöluuppbætur á laun.
Það hefur hann örugg-
lega ekki gert gegn hags-
munum launþega. enda
hefur flokkur hans mest
ítök í verkalýðshreyfing-
unni.“.
— Þingmanna-
frumvarp
Framhald af bls. 21
fjárhagsleg og rekstrarfræðileg
sjónarmið eru í heiðri höfð við
ráðstöfun fjármagns og rekstur
þeirra fyrirtækja og stofnana,
sem reikningsskilin ná yfir; d) að
öðru leyti skal endurskoðunin
framkvæmd skv. góðri endurskoð-
unarvenju á hverjum tíma.
Tilgangur frv. er að efla eftir-
lits- og aðhaldshlutverk Alþingis
með því, hvort upphaflegum vilja
fjárlaga og annarra laga, er varða
fjárútlát, er framfylgt, sem og að
vinna að bættum afköstum og
nýtingu þeirra útgjalda, sem
ráðstafað er með fjárlögum eða
öðrum lögum, segir í greinargerð.
Aukin verkefni hins opinbera
krefjist herts eftirlits og aðhalds
af hálfu Alþingis og tengsla þess
við hinar ýmsu stofnanir. „Alþingi
getur ekki sinnt þessu hlutverki
nema hafa yfir að ráða stofnun,
sem hefur í þjónustu sinni sér-
þjálfað starfslið til þeirra starfa.
Ríkisendurskoðun er stofnun sem
getur þjónað Alþingi, en til þess
að ná tilgangi frv. þarf hún að lúta
Alþingi en ekki framkvæmdavald-
inu. Einnig er nauðsynlegt að
endurskipuleggja stofnunina mið-
að við nýtt hlutverk og aðstæðui,“
segir ennfremur í greinargerð. I
lok gr.g. segir: „Ríkisendurskoðun
skal m.a. gera kannanir á kerfi
hverrar stjórnsýslustofnunar að
því er varðar skipulag, stjórnun og
eftirlit, finna veika hlekki, greina
frá niðurstöðum athugana og
setja fram tillögur um
endurbætur...“
U FERÐAKYNNING:
öenidorm
Sjálfstæðishúsinu
Akureyri
föstudaginn 10.
marz kl. 19.00
Ljúffengur spánskur veizlumatur.
Ferðakynning: Benedorm
Ferðabingó: 3 umferðir.
Skemmtiþáttur: Baldur Brjánsson
Týzkusýning: Karon samtökin
Danssýning: Sæmi og Didda
Dans: Hljómsveit hússins.
Borðapantanir
i síma 22970
Férðamiðstöðin hf.
Aóalstræti 9 Simar 11255 12940