Morgunblaðið - 09.03.1978, Side 36

Morgunblaðið - 09.03.1978, Side 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. MARZ 1978 Svæðid austan Aðalstrætis: „Vísvitandi rangtúlkun Alþýdu- bandalagsins á tillögu um deili- skipulag hefur leitt tíl misskflnings” - segir Birgir ísl. Gunnarsson Eins og menn rekur minni til urðu fyrir nokkru allmiklar umræður í fjölmiðlum vegna uppbyggingar á framkvæmda- sviði austan Aðalstrætis. Á fundi borgarstjórnar 16. febrúar urðu snörp orðaskipti milli borgarfulltrúa varðandi þetta mál. Fyrir fundinum lá tillaga um deiliskipulag austan Áðalstrætis. ólafur B. Thors formaður skipulagsnefndar tók fyrstur til máls. Ræddi hann ítarlega gang málsins, ennfremur greindi hann frá tillögunni, sem fyrir fundinum lá. í tillögunni er greint frá þeim meginatriðum, sem hafa beri til hliðsjónar við nánari útfærslu skipulagsins. Landnutkun. Uppbygging fari fram á lóðunum Aðalstræti 3, 7 og 9, Austurstræti 1, 2 og 3, Hafnar- stræti 2 og 4, Valiarstræti 4 og Veltustundi 3 A og 3 B. Á fyrstu og annarri hæð fari fram verzlunar- og þjónustustarfsemi, samtals um 4900 fm. að gólffleti. Á efri hæðum verði íbúðir, um 80 talsins, um 5800 fm. að gólffleti. Auk þess verði byggt yfir torg á lóðinni Austurstræti 2 (Hallærisplanið). Torg þetta verði „opið“ svæði til fjölþættra athafna borgaranna. Til athugunar er, hvort hús þetta skuli rúma nokkra starf- semi á annarri hæð, á einhvers konar svölum. Umíerð. Umferð bifreiða helzt um Austurstræti, þó þannig að vesturendi strætisins lokist; en umferð verður beint um Vallarstræti í Hafnarstræti. Tillag- an hefur ekki önnur afgerandi áhrif á almenna umferð bifreiða. Við horn Aðalstrætis og Hafnarstrætis við Hafnarstræti er gért ráð fyrir leigubílastöð svo og viðkomustað SVR. Bifreiðastæði. Mælt er með, að gert sé bifreiðastæði neðanjarðar á einni hæð, sem er að mestu undir Hótel Islands lóðinni. Stefna skal að ekki færri stæðum en 140. Reikna skal með, að húsbyggjendur kosti eitt bifreiðastæði pr. íbúð og eitt stæði pr. 150 ferm. í gólffleti verzlunar- og þjónustuhúsnæðis í þessari bifreiðageymslu sbr. ákvæði aðalskipulags 1975—1995. Aðkpma að bifreiðastæði verði frá Aðal- stræti. Tryggja verður, að bifreiða- stæði þetta sé öllum opið á almenn- um verzlunartíma og engin stæði séu merkt neinum ákyeðnum aðila. Byggingarákvæði. í meginatriðum er skipulagsnefndsammála þeirri stefnu, sem mörkuð er í tillögu B frá Teiknistofunni Garðastræti 17, þ.e. að mesta hæð bygginga sé 5 hæðir, að frá og með 3ju hæð skulu hæðir inndregnar, áð öðru leyti vísast í uppdrætti. Stjórnun. Itreka skal eftirfarandi sjónarmið, sem fram koma í bókun skipulagsnefndar frá 26. júlí 1977: „Nefndin telur eðlilegt, að nánari ákvæði um framkvæmd þessa skipu- lags þróist í meðförum starfshóps, sem skipaður væri fulltrúum lóða- eigenda og borgaryfirvalda, enda hljóti skipulag svæðisins þá fyrst endanlega afgreiðslu nefndarinnar". Lagt er til, að starfshópur þessi verði þegar myndaður og vinni hann að gerð byggingarforsagnar í samræmi við hugmyndir lóðaeigenda um nýtingu einstakra lóða og samkvæmt liðunum hér að framan. Lóðahafar skulu hafa forgöngu um skipan þessa vinnuhóps (framkvæmdastjórn) og kalla hann til starfa. Þá fyrst er framkvæmdastjórn og hönnunarað- ilar hennar hafa endurskoðað bygg- ingarmöguleika svæðisins skal það að nýju kynnt skipulagsnefnd og tekur hún þá endanlega afstöðu til uppbyggingarinnar. Framkvæmda- stjórnin skai vinna í náinni sam- vinnu við borgaryfirvöld. Skipulags- nefnd hefur ekki á móti því, að hönnunaraðilar verði fleiri en einn, enda starfi þeir í anda skipulagsins og í náinni samvinnu innbyrðis og á vegum framkvæmdastjórnarinnar. Fulltrúar lóðaeigenda í fram- kvæmdastjórn skulu koma fram f.h. lóðaeigenda gagnvart borgaryfir- völdum. Ólafur B. Thors minnti á að síðastliðið vor hefði aðalskipulag Reykjavíkur verið samþykkt í borg- arstjórn að undangenginni rækilegri kynningu á skipulagssýningunni að Kjarvalsstöðum. Hugsunin bak við sýninguna hefði verið, að kynna hvað í skipulagstillögunum fælist. Varð- andi deiliskipulag austan Aðal- strætis væri það að segja, að unnin hefði verið greinargerð hvar þrem valkostum var lýst. Ur einum valkostinum hefði síðan verið unnin umrædd tillaga. Eigendum lóðanna á svæðinu hefði síðan verið kynnt tillagan og þau áhrif sem hún myndi hafa í för með sér. Ólafur B. Thors sagði, að hér væri ekki verið að samþykkja endanlegt skipulag held- ur forsögn að skipulagi. Verið væri að samþykkja hvernig tillaga að skipulagi yrði unnin síðan yrði hún send skipulagsnefnd og borgarráði til umfjöllunar. Borgarfulltrúinn sagði því augljóst að meðan ný forsögn að tillögu um aðalskipulag væri ekki samþykkt gilti sú gamla. Það væri hins vegar borgaryfirvalda að ákveða hvort breyting yrði gerð á núgildandi aðalskipulagi. Ólafur sagði ósatt, að meðferð borgar- stjórnar á máli þessu væri brot á skipulagslögum eins og fram hafði verið haldið. Þetta mál hefði goldið þess að vera misskilið. Hins vegar ætti öllum að vera ljóst nú, að hér væri verið að marka ákveðinn farveg fyrir áframhaldandi skipulagningu. Varðandi skipulag í Grjótaþorpi sagði Ólafur, að nær óhætt væri að fullyrða, að ný tillaga komi frá skipulagsnefnd um það og það áður en langt um liði. Yrði þar vernd að einhverju leyti. Ólafur B. Thors sagðist vilja vekja athygli að sem gerast myndi á svæðinu þyrfti alls ekki að vera í neinum tengslum við það sem gerast myndi í Grjótaþorpi. Svæðið austan Aðalstrætis væri framkvæmdasvæði en Grjótaþorp hugsanlegt verndunarsvæði. Formaður skipulagsnefndar sagði menn tala mikið um að lífga uppp á miðbæinn og engin leið væri betri til þess en sú sem gert væri ráð fyrir í tillögunni en þar lagt til að 80 ibúðir verði. Ólafur lagði síðan til að tillagan yrði samþykkt. Sykurhuð á pillunni Sigurður Harðarson (Abl) tók næst til máls og sagði að með samþykkt þessarar tillögu væri einungis verið að hygla lóða- og húseigendum sem ætluðu sér mikinn gróða þarna. Sykurhúðin á pillunni væri svo bygging 80 íbúða. Borgarfulltrúinn sagði að sí og æ fjölgaði þeim íbúðum í miðborginni, sem teknar væru undir rekstur fyrirtækja. Hann varpaði síðan fram þeirri spurningu hvort ekki ætti að þinglýsa kvöðum á íbúðanotkun í gamla miðbænum, þannig þær yrðu aðeins notaðar til íbúðar. Það væri skynsamlegra en tildra upp 80 íbúðum á Hallæris- planinu. Meðferð þessa máls sann- aði, að borgarstjórnaríhaldið ræki borgina eins og einkafyrirtæki. Ein heild Kristján Benediktsson (F) mælti næst, hann las upp tillögu sína og Björgvins Guðmundssonar (A) um að efna til kynninga fyrir almenning á tillögunni, en á meðan verði afgreiðslu málsins frestað. Borgar- fulltrúinn sagðist telja mikilvægt að skoða allann miðbæinn og Grjóta- þorpið sem eina heild. Hann teldi því æskilegt að hafa þessa tillögu og líkan til sýnis. Kristján sagði, að sér virtist tillagan þvert á, að gamli bærinn héldi sér, hún væri í algerri mótsögn við aðalskipulagið. Hann sagðist vilja, að menn gerðu sér grein fyrir hvernig svæðið liti út þegar búið væri að byggja fimm hæða hús frá gamla krikjugarðinum að Hafnarstræti Þá vantaði nú heildaráætlun um umferðarmál mið- bæjarins, enn hefði ekki verið sýnt fram á hver áhrifin yrðu, ef íbúðirnar myndu byggðar — á umferðina. Þá væri það furðulegt, að mönnum dytti í hug að setja neðanjarðarbílastæði á landi neðan við sjávarmál. vegna hefi þegar í upphafi verið ljóst, að mikil átök yrðu í borgar- stjórn við afgreiðslu á tillögum um endurnýjun eldri hverfa. Menn hefðu vitað um hina miklu andstöðu Alþýðubandalagsins og að þeir myndu nota sér þá aðstöðu sem þeir hefðu í ýmsum samtökum, máli sínu til framdráttar. Borgarstjóri sagði, að rauði þráðurinn hjá Alþýðu- bandalaginu hefði síðan verið Sigurður Harðarson arkitekt en hann hefði beitt öllu er hann gat á móti tillögunum. Björgvin Guð- mundsson hefði setið hjá við sam- þykh á tillögum um endurnýjun eldir hverfa og ástæðan hefði verið, að honum hefði ekki fundist nóg að gert, í uppbyggingu. Þess vegna lægi nú beint við að spyrja hvers vegna borgarfulltrúi Alþýðuflokksins sneri nú máli sínu við og vildi tvístíga. Birgir ísleifur sagði það hins vegar ekki óvanalegt, að Kristján Bene- diktsson og Björgvin Guðmundsson hrykkju undan og tvístigu heyrðu þeir orð utan að. Borgarstjóri sagði, að bókun skipulagsnefndar fjallaði um landnotkun, umferð, bifreiða- viðmóti í Reykjavík. Þarna væru gapandi brunagaflar yfir mismun- andi förnum húsum og sum væru úr sér gengin. Bókunin Borgarstjóri óskaði síðan eftir, að eftirfarandi yrði fært til bókar frá borgarfulltrúum Sjálfstæðisflokks- ins. „Einn þáttur aðalskipulags þess, sem samþykkt var í borgarstjórn þann 25. apríl sl., var endurnýjun eldri hverfa. Samkvæmt því var miðborginni skipt niður í þrjú meginsvæði, þ.e. framkvæmdasvæði, endurnýjunarsvæði og verndunar- svæði. Eitt þeirra svæða, sem afmörkuð voru sem framkvæmda- svæði, er svæðið austan Aðalstrætis, sem nú er til umræðu hér í borgarstjórn. í greinargerð skipuj lagsnefndar var framkvæmdasvæði skilgreint sem hér segir: „Hér er um að ræða svæði, þar sem lagt er til, að verulegar framkvæmdir og upp- bygging eigi sér stað á skipulags- tímabilinu. Á þessum svæðum er rétt, að borgaryfirvöld eigi frum- kvæði að sameiningu lóða, deili- skipulagi og framkvæmd á áætlun- um í samráði við eigendur viðkom- andi fasteigna. Hér er lögð áherzla á það, að byggð verði blönduð og að inn á svæðin komi verulegt magn íbúðarhúsnæðis.“ Á grundvelli þess- arar samþykktar hefur verið unnið að undirbúningi að skipulagi fram- kvæmdasvæðisins austan Aðalstræt- is. Tillagan, sem hér er til meðferð- ar, felur í sér eftirfarandi meginatr- iði: Ákvörðun um landnotkun og umferð, ákvörðun um bifreiðastæði neðanjarðar, svo og byggingar- ákvæði þess efnis, að mesta hæð bygginga sé 5 hæðir og að frá og með 3. hæð skuli hæðir vera inndregnar. Einn kafli bókunar skipulagsnefndar Yfirbygging Hallærisplans — góð hugmynd Björgvin Guðmundsson (A) sagði, að vegna mikilla mótmæla gegn fram kominni tillögu væri full ástæða til að doka við og kynna hana betur, áður en hún yrði keyrð í gegn. Hann sagði sína skoðun að vernda bæri Hótel Vík. Athuga beri vel hvort ekki skuli varðveita einhver hús líka annars staðar en þarna og til þess máls þurfi borgarstjórn að taka afstöðu. Björgvin sagði sér litist vel á yfirbyggingu Hallærisplans og það mætti gera þó húsin í kring yrðu vernduð. Varðandi nýjustu hug- myndir áhugamanna, sem birst hefðu í fjölmiðlum væri að segja, þær bæri að athuga vel. Dauðadómur tíu hiísa Þorbjörn Broddason (Abl) sagði, að ef þessi tillaga yrði samþykkt væri með því kveðinn upp dauða- dómur yfir tíu húsum í miðborg Reykjavíkur. Þegar 40 arkitektar sendu ósk úm frestun á afgreiðslu málsins til borgarstjórnar væri erfitt að hafna slíku. Formaður skipulagsnefndar væri niðurrifsmað- ur með því að vilja láta rífa tíu hús og í staðinn reisa þúsundir fermetra í steinhúsum. Alþýðubandalagsmenn væru uppbyggingarmenn með því að vilja vernda þessi umræddu hús. Alþýðubandalagið væri að reyna að forða þeirri gerræðisákvörðun að tillagan yrði samþykkt og þar með niðurrif tíu húsa í miðborginni. Sigurður Harðarson vísvitandi rang- tiílkaði tillöguna. Borgarstjóri Birgir ísleifur Gunnarsson (S) tók næst til máls. Hann sagði, að við afgreiðslu á aðalskipulagi borgarinnar í apríl sl. hefði Alþýðubandalagið nánast verið á móti skipulaginu. Það hefði verið á móti uppbyggingu eldri hverfa, ennfremur setið hjá við afgreiðslu á uppbyggingu nýrra svæða. Þess stæði, byggingarákvæði og stjórnun. Sérstaka athygli bæri að vekja á, að myndaður verði starfshópur lóðaeig- enda og borgaryfirvalda og vinni hann að gerð byggingarforsagnar í samræmi við hugmyndir lóðaeigenda um nýtingu einstakra lóða og samkvæmt fyrrgreindum liðum. Þá fyrst er framkvæmdastjórn og hönnunaraðilar hennar hafi endur- skoðað byggingarmöguleika svæðis- ins skuli það að nýju kynnt skipu- lagsnefnd og tæki hún þá endanlega afstöðu til uppbyggingarinnar. Borg- arstjóri sagði, að hvergi stæði hámarkshæðin fimm hæðir um öll húsin, það bæri að undirstrika. Hér væri alls ekki verið að taka endan- legt skipulag til samþykktar né niðurrif húsa, heldur væri verið að byggja ákveðinn grunn. Alþýðu- bandalagið með Sigurð Harðarson í broddi fylkingar hefði vísvitandi rangtúlkað umrædda tillögu. Hann hefði þá fræðilegu þekkingu að geta það. Birgir Isleifur Gunnarsson sagði gagnrýni hafa komið fram á mikla nýtingu. En hvar vildu Islend- ingar helzt vera er þeir kæmu erlendis? Hvernig væri með Kaup- mannahöfn? Fara Islendingar sem þangað koma ekki alltaf á Strikið og göturnar þar í kring? Jú, það gerðu þeir. Og af hverju skyldu Islendingar fara þangað? Vegna þess, að þar iðar allt af lífi, þar er hátt nýtingarhlut- fall. Erlendis væri raunin sú, að íslendingar sæktust alltaf í þétta byggð. Því miður hefðum við ekki getað haldið lífi í gamla miðbænum, nú værum við á síðasta snúningi að skapa þá sál sem borg þarf og leiðin til þess væri að flytja íbúa og þjónustu í miðbæinn. Birgir ísleifur minnti á, að hérlendis hefði Reykja- víkurborg haft frumkvæði um vernd- un gamalla húsa. Borgarstjóri sagði ástæðulaust vanmat á íslenzkum arkitektum, að þeir geti ekki teiknað hús, sem féllu vel inn í gamla byggð og bæri nýbygging við gamla Eim- skipafélagshúsið bezt vitni um það. Hann sagðist ekki hafa vanmat á íslenzkum arkitektum. Svipmót þessa umrædda svæðis austan Áðal- strætis væri eitt hið ömurlegasta í er um stjórnun og segir þar: „Itreka skal eftirfarandi sjónarmið, sem fram kom í bókun skipulagsnefndar frá 26. júlí 1977: „Nefndin telur eðlilegt, að nánari ákvæði um framkvæmd þessa skipulags þróist í meðförum starfshóps, sem skipaður væri fulltrúum lóðareigenda og borgaryfirvalda, enda hljóti skipulag svæðisins þá fyrst endanlega af- greiðslu nefndarinnar." Lagt er til, að starfshópur þessi verði þegar myndaður, og vinni hann að gerð byggingarforsagnar í samræmi við hugmyndir lóðareigenda um nýtingu einstakra lóða og samkvæmt liðum 2—5 hér að framan. Lóðarhafar skulu hafa forgöngu um skipan þessa vinnuhóps (framkvæmdastjórn) og kalla hana til starfa. Þá fyrst, er framkvæmdastjórn og hönnunarað- ilar hennar hafa endurskoðað bygg- ingarmöguleika svæðisins, skal það að nýju kynnt skipulagsnefnd og tekur hún þá endanlega afstöðu til uppbyggingarinnar." Eins og ljóst er af framansögðu felur sú ályktun, sem nú kemur til atkvæða, í sér nokkur grundvallaratriði varðandi skipulagið, en hér er ekki um endanlegt skipulag að ræða, eins og rangtúlkað hefur verið af ýmsum þeim, sem mælt hafa gegn þessu skipulagi. Endanleg ákvörðun skipu- lagsins kemur aftur til meðferðar í skipulagsnefnd, borgarráði og borg- arstjórn, þegar nánari útfærsla þess hefur farið fram og nánara útlit svæðisins mótast betur í meðförum skipulagsmanna og arkitekta, sem vinna munu á vegum einstakra lóðareigenda og húseigenda. Á þessu stigi felur tillagan því ekki í sér ákvörðun um niðurrif á neinu húsi, né ákvörðun um endanlegt útlit þessa svæðis. Við munum greiða atkvæði með þessari tillögu, en leggjum áherzlu á, að þegar skipu- lagið hefur verið nánar útfært, verði það kynnt almenningi með almennri sýningu, þar sem allir borgarbúar eigi greiðan aðgang að og vegið og metið þær tillögur, sem þá munu liggja fyrir. Borgarstjóri Birgir ísleifur Gunn- arsson las síðan eftirfarandi tillögu Sýning verður á endanlegum tillögum við lokaafgreiðslu málsins

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.