Morgunblaðið - 09.03.1978, Síða 38

Morgunblaðið - 09.03.1978, Síða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. MARZ 1978 t Móðir mín, ÁSTRÍOUR ÓLAFSDÓTTIR, lézt í sjúkrahúsinu á Selfossi 8 marz Gunnar Gunnarsson. t Maðurinn mmn, HANS NIELSEN, mjólkurf ræðingur, lézt að Vífilsstöðum 8 marz Hallfríður Níelsen. t SVAVA ÞÓRLEIFSDÓTTIR, fyrrverandi skólastjóri, lézt á Borgarspítalanum. 7 marz Vandamenn Útför eiginkonu minnar. t KATRÍNAR JÓNASDOTTUR HARRYS, sem andaðíst 5 marz s.l.. verður gerð frá Breiðabólstaðakirkju á Skógarströnd 1 1 marz n k kl 14 Blóm afþökkuð, en þeir sem vilja minnast hinnar látnu, er bent á Breiðabólstaðakirkju Wayne Harrys. t Þökkum auðsýnda samúð við andlát og jarðarför, HELGA ODDSSONAR, frá Bolungarvík Oddur Kristjánsson. Þorgerður Hermannsdóttir. Sigurlaug Jónsdótt- ir—Minningarorð Fædd 9. október 1932 Dáin 26. febrúar 1978. Ævigöngu góðrar konu er lokið hér í heimi. Sporin hennar verða minnisstæð og lærdómsrík. Hún var dóttir hjónanna Guð- rúnar Sveinsdóttur og Jóns Þor- grímssonar bónda að Þönglaskála á Höfðaströnd en hann lést árið 1969. í Skagafirði ólst hún upp ásamt tveimur bræðrum, þeim Þorleifi og Eysteini, sem báðir eru búsettir fyrir norðan. Sigur- laug stofnaði heimili hér í Reykjavík með góð.um manni, Rafni Andreassyni, með honum eignaðist hún einkason sinn, Gunnar Andra, sem nú er 10 ára. Styrkri móðurhendi leiddi hún hann og samtaka hafa þau Rafn verið um uppeldi hans og velferð. Fyrir nokkrum árum varð hún fyrir heilsubresti og eftir erfiða læknisaðgerð náði hún allgóðum bata um sinn og lífið gekk sinn vanagang, oft fór hún til vinnu sinnar sárþjáð, þó sérstaklega síðustu mánuðina. Osérhlífni borin uppi af kjarki og hjálpsemi gerði henni fært að standa meðan stætt var. Lilla var að ytra útliti nett og fríð sýnum. Glaðlegt og elskulegt viðmót ásamt góðum gáfum og bjartsýni gerðu hana vinmarga og návist hennar hlýlega. Hennar mesta leiðarljós var sterk guðs- trú, þangað sótti hún styrk og gleði, samferðamenn sína bar hún á bænarörmum með mikilli samúð og kærleika. í ríkum mæli átti hún þá eiginleika sem lýst er í heilagri ritningu með þessum orðum: „Verið í bróðurkærleikan- um ástúðlegir hver við annan, verið glaðir í voninni, þolinmóðir í þjáningunni, staðfastir í bæn- inni. Minningin er ljúf um kæra frænku og tryggðavin. Það eru margir sem eiga um sárt að binda við fráfall hennar, þó á mesta samúð drengurinn hennar, móðir og aðrir nákomnir. í þökk og bæn er hún kvödd. Hún trúði á sigur hins góða, birtu og frið. Kristín Jóhannesdóttir. Þá eik í stormi hrynur háa hamra því beltin skýra frá, en þegar fjólan fellur bláa, fallio þaö enginn heyra má, en ilmur er horfinn innir fyrst urtabyggöin hvers hefur misst. Bjarni Thorarensen. Þessar vel þekktu hendingar hafa varla liðið mér úr minni síðan Sigurlaug Jónsdóttir lézt í Borgarspítalanum aðfaranótt sunnudagsins 26. febrúar s.l. Hún hafði verið þar til rannsóknar nokkra daga og dó í svefni. Hún kvaddi því veraldarsviðið jafn hljóðlega og hún hafði gengið um það, hún Sigurlaug „okkar“ eins og fjölskyldan hérna í Njörva- sundi 2 kallaði hana jafnan. Það fór eins með hana og fleiri þætti daglegs lífs; þeir eru fyrst metnir að verðleikum, þegar þeir slitna að fullu og öllu. Sigurlaug var fædd 9. október 1932 að Bjarnastöðum í Unadal í Skagafirði og stóðu að henni vel þekktar norðlenskar ættir. Móðir hennar, Guðrún Sveinsdóttir, er af Urðaætt úr Svarfaðardal og Bjarnastaðaætt í Skagafirði, en faðir Sigurlaugar, Jón Þorgríms- son, var af Bólstaðarhlíðarætt. Sigurlaug átti tvo bræður yngri, Þorleif bónda og Eystein smið, sem báðir eru á lífi og búsettir nyrðra. Hún var 14 ára, þegar fjölskyldan flutti að Gröf á Höfðaströnd. Jón faðir hennar lést árið 1969, en Guðrún lifir og er gift öðru sinni Birni Eggerts- syni bónda. Sigurlaug lauk venju- legu barnaskólanámi og tók síðan inntökupróf upp í annan bekk gagnfræðaskólans á Sauðárkróki. Var til þess tekið, að á því prófi fékk hún 10 í stærðfræði. Á þessum árum stjórnaði sr. Helgi heitinn Konráðsson skólanum og minntist Sigurlaug hans alla tíð með ást og virðingu. Að loknu gagnfræðaprófi lá leið hennar í húsmæðraskólann á Isafirði og síðan til Reykjavíkur. Þar vann hún nokkur ár í fyrstu kjörbúð landsins, SÍS í Austurstræti, var þar gjaldkeri eða „á kassanum" eins og kallað er. Rúmt ár dvaldi t Inmlegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát bróður okkar, HJÁLMARS JÓNSSONAR skipstjóra, Vestmannaeyjum. Systkini t Sonur okkar og bróðir GESTUR RÚNAR GUÐMUNDSSON Ægisíðu 107 verður jarðsettur frá Fossvogskirkju föstudaginn 10 marz kl 10 30 Þeir sem vildu minnast hans, láti Barnaspítala Hringsins njóta þess Ásta Björnsdóttir Guðmundur Gestsson Helena G uðmundsdóttir t Innilegar þakkir fyrir sýndan vinarhug við andlát, mannsins mins. föður okkar, tengdaföður afa. sonar og bróður, MAGNÚSAR HELGASONAR, Ása Snæbjornsdóttir og fjolskylda Magnea G. Magnúsdóttir og f jölskylda og aðrir aðstandendur. t SIGURLAUG JÓNSDÓTTIR. Framnesvegi 27, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju, fimmtudaginn 9 marz kl 1 3 30 Guðrún Sveinsdóttir, Eysteinn Jónsson, Gunnar Þórisson, Þórleifur Jónsson. t Innilegustu þakkirfyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför, eiginkonu minnar, móður okkar. tengdamóður, ömmu og langommu, ÞURIOAR DANÍELSDÓTTUR, Kirkjubraut 30, Akranesi. Þorleifur Sigurðsson. Hafþór Aðalsteinsson. Agatha Þorleifsdóttir, Sæunn Þorleifsdóttir, Ingvar Þorleifsson, Valdís Ingimundardóttir. Anna Þorleifsdóttir, Guðmundur Sigurðsson. Sigurður Þorleifsson, Heba Stefánsdóttir, Steinunn Þorleifsdóttir, Gisli Ellertsson, Bergmann Þorleifsson, Auður Sigurðardóttir, Ingunn Þorleifsdóttir. Gisli Eliasson, barnabörn og barnabarnabörn. t Jarðarför eiginkonu minnar, móður, tengdamóður og ömmu, DAGBJARTAR VILHJÁLMSDÓTTUR, Austurgötu 33, Hafnarfirði, fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði, föstudaginn 10 marz kl 2 Blóm og kransar afþakkaðir. en þeir sem vildu minnast hinnar látnu láti líknarstofnanir njóta þess Jón Eiríksson, Hafsteinn Jónsson, Stefanía Halldórsdóttir, Eiríkur A. Jónsson, Guðný Stefánsdóttir, Anna Magnea Jónsdóttir, Hjalti Sigfússon, Svala Jónsdóttir, Bragi Friðþjófsson, og barnabörn. hún í Danmörku og náði svo góðum tökum á málinu, að hún afgreiddi um skeið í bókaverslun. Eftir heimkomuna starfaði hún bæði í versluninni Liverpool og húsgagnaversluninni Víði hér í borg. Verslunarstörf féllu henni vel. Hún var töluglögg og skrifaði bæði „skýrt og rétt“ eins og stendur í vísunni gömlu. Það eitt út af fyrir sig ber vitni um góða uppfræðslu og gott næmi hennar. Árið 1966 hóf Sigurlaug búskap með Rafni Andreassyni úr Vest- mannaeyjum. Eignuðust þau einn son, Gunnar Andra, myndarpilt, sem nú er 10 ára, f. 29.7.1967. Var hann yndi og eftirlæti mömmu sinnar. Sigurlaug og Rafn slitu samvistum fyrir rúmu ári. Var sá skilnaður hvorki átaka- né sárs- aukalaus, svo sem þeir vita, er best þekktu til. Gott er þó að minnast þess nú, að vinátta hélst með þeim áfram, og drengurinn þeirra var enn bandið, sem tengdi þau meðan bæði lifðu. Síðast nú um jólin heimsótti Sigurlaug Rafn nærri daglega í sjúkdóms- legu hans. Marinó, bróður Rafns, og Monsu konu hans taldi hún með sínum tryggustu vinum. Hitti ég þau síðast öll saman við sjúkrarúm Sigurlaugar viku áður en hún lést. Haustið 1970 réðst Sigurlaug til starfa á heimili mitt og kom hér oftast tvisvar í viku. Árið 1973 veiktist hún af krabbameini og gekk undir mikla skurðaðgerð á Landakotsspítala. Náði hún sér þó furðufljótt, kom til okkar aftur og var vel fagnað af fjölskyldunni „sinni“ í Njörva- sundinu. Sigurlaug aðstoðaði viðar við hússtörf, en hvar það var veit ég ekki og kem nú að einum þætti, sem einkenndi þessa vinkonu mína öðrum fremur. Hún var svo einstaklega fátöluð um sjálfa sig og sína hagi. Það sem ég hefi fest á blað um hana hér á undan hefi ég mest eftir öðrum. Einstaka atvik skaust þó upp úr henni sjálfri og þá nánast af tilviljun. Slíkri hógværð og lítillæti hefi ég varla kynnst. Annars var hún ræðin, glaðleg í viðmóti og hafði gaman af spaugi. Við áttum það sameigin- legt, að okkur þóttu báðum heldur hvimleið þessi daglegu hreingerninga- og tiltektarstörf, sem eru að því leyti ólík ýmsum öðrum störfum, að það er helst tekið eftir þeim, þegar þau eru ekki unnin. Þetta var okkur báðum ljóst, og hún Sigurlaug mín studdi mig meðan hún mátti við þennan þátt heimilishaldsins. Sama haust og hún hóf störf hjá okkur varð faðir minn hér heimilisfastur og tókust fljótt með þeim góð kynni. Gunnar litli, sem oft kom á heimilið með mömmu sinni, tók bráðlega að kalla hann afa eins og hin börnin og.lét „afi“ sér það vel lynda. Ég hika ekki við að segja, að þau Sigurlaug og pabbi hafi orðið trúnaðarvinir, þótt aldursmunur þeirra væri meiri en 40 ár, og ég veit, að hann kveður hana nú með söknuði. Minnumst við bæði margra góðra stunda með Sigur- laugu yfir kaffibolla í eldhús-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.