Morgunblaðið - 23.03.1978, Blaðsíða 1
96 SIÐUR
61. tbl. 65. árg.
FIMMTUDAGUR 23. MARZ 1978
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Begin í mótbyr
í W ashington
Washington, 22. marz. Keuter.
MENACHEM Begin íor
sætisráðherra átti í gær-
kvöldi erfiðasta samninga-
fund sem fsraelskur for-
sætisráðherra hefur átt
með bandarískum forseta
og á eftir mætti hann
harðri andstöðu þegar
hann svaraði spurningum
Sadat
hló
Kairó, 22. marz. Reuter.
ANWAR Sadat forseti hló í
dag þegar honum var sagt
frá kviksögum um að hann
hefði verið ráðinn af dögum.
Blaðafulltrúi forsetans,
Saad Zaghlul Nasar, sagði að
Sadat hefði kallað fréttina
„grátt gaman". Fréttin olli
óróleika í kauphöllum í ýms-
um löndum.
Nasar sagði, að hann hefði
talað við Sadat forseta í
bústað hans í útborg Kaíró
skömmu eftir fund sem hann
átti um efnahagsmál. Hann
staðfesti að forsetinn væri við
góða heilsu.
utanríkismálanefnda
beggja deilda
þjóðþingsins.
Leiðtogi demókrata í öldunga-
deildinni, Jim Wright, neyddist til
að fullvissa Begin um að nefndar-
menn væru ekki fjandsamlegir
heldur spyrðu spurninga á grund-
velli áframhaldandi vináttu við
Israel. Begin varði andstöðu sína
gegn brottflutningi ísraelsmanna
frá vesturbakka Jórdanár og þá
afstöðu sína, að ísraelsmenn hefðu
fullan rétt til landnáms á
herteknum svæðum.
Fréttir af fundinum benda til
þess, að afstaða Carters forseta til
friðarsamninga í Miðaustur-
löndum njóti víðtæks stuðnings í
þinginu. Bandaríkjamenn krefjast
þess að ísraelsmenn flytji herlið
sitt frá vesturbakkanum og eru
andvígir landnámi Gyðinga á
herteknum svæðum.
Seinna héldu Begin og Carter
með sér annan fund og ekkert
bendir til þess að þeir hafi leyst
ágreining sinn.
Carter forseti tekur á móti Menachem Begin, forsætisráðherra ísraels í Hvíta húsinu.
Fyrstu gæzlusveitir S.Þ.
komnar til Suður-Líbanons
New York. Beirút. Tel Aviv.
22. marz. Reuter. AP.
FYRSTU hermennirnir í gæzlu-
liði Sameinuðu þjóðanna sem
komið verður fyrir í Suður-Líban-
on komu þangað í dag og var þar
um að ræða lítinn flokk íranskra
hermanna sem fluttur var ór
búðum Sameinuðu þjóðanna í
Gólanhæðum. Næstu daga eru
væntanlegir liðsmenn í sveitina
frá Frakklandi, Noregi, Svíþjóð,
Nepal, Kanada, Austurríki og
fleiri löndum. Alls er gert ráð
fyrir að í gæzlusveitinni verði
4000 hermenn.
fsraelsmenn sögðu í dag að
engir bardagar hefðu verið í
Barre býðst
til að hætta
París. 22. marz. AP. Reuter.
RAYMOND Barre forsætisráð-
herra bauðst til þess að segja af
sér í dag til að Valery Giscard
d'Estaing forseti gæti fengið
frjálsar hendur til að mynda nýja
ríkisstjórn eftir < kosningasigur
stjórnarflokkanna.
Talsmaður forsetans sagði, að
Giscard d'Estaing mundi ákveða
hvort hann ætti að taka boðinu
„þegar þar að kæmi“, sennilega
þegar nýkjörið þing kæmi saman
3. apríi.
Enn er talið líklegast að Barre
verði áfram forsætisráðherra en
nokkrar breytingar ef til vill
gerðar á stjórninni. Giscard
d.Estaing hefur hins vegar ekkert
viljað um það segja hvað hann
hyggist fyrir.
Forsetinn ávarpaði frönsku
þjóðina í kvöld til þess að skýra
þjóðinni frá þeim ályktunum, sem
hann drægi af kosningaúrslitun-
um og jafnframt til að greina í
höfuðdráttum frá þeim umbóta-
málum sem hann berst fyrir að fá
þingið til að samþykkja.
S-Líbanon í dag og að vopnahléið,
sem þeir lýstu einhliða yfir,
virtist halda. Palestínumenn
sögðust á hinn bóginn halda uppi
eldflaugaárásum frá S-Líbanon
inn í norðanvert Ísraelsríki og
sögðust þeir ekki mundu leggja
niður vopn gegn ísrael.
Ezer Weizman varnarmálaráð-
herra Israels sagði í dag í
útvarpsviðtali að ísrael hefði náð
öllum meginmarkmiðum sínum
með innrásinni, bækistöðvar
skæruliða hefðu að mestu verið
eyðilagðar, fjölmargir skæruliðar
hefðu verið drepnir og mikið af
vopnum og skotfærum verið tekið
herfangi. Hann sagði einnig að
Israelsmenn mundu veita gæzlu-
sveitum S.Þ. alla mögulega aðstoð
og að Israelsmenn mundu draga
allan herstyrk sinn til baka frá
Líbanon ef trygging væri fyrir því
að svæðið yrði ekki aftur þakið
hryðjuverkamönnum og
PLO-hreyfingin tæki ekki aftur
yfir fyrri bækistöðvar, sem ísra-
elsher hefði nú á valdi sínu.
Opinberar tölur ísraelsmánna
um mannfall í innrásinni eru þær,
að 250 skæruliðar hafi verið
drepnir en 18 ísraelskir hermenn
hafi látiö lífið.
Egyptar hafa ákveðið að senda
lækna og hjúkrunargögn til S-Líb-
anons til að hlynna að palestínsk-
um fórnarlömbum innrásar ísra-
elsmanna og kemur þessi ákvörð-
un, sem Sadat forseti er sagður
hafa tekið sjálfur, nokkuð á óvart
í ljósi hinnar stirðu sambúðar
Egypta og Palestínumanna að
undanförnu.
170 þús. t hafa
lekið úr geym-
um olíuskipsins
Brest, Frakklandi, 22. marz.
AP. Reuter.
LJÓST er nú, að um 170.000 tonn
af hráolíu hafa lckið úr geymum
risaolíuskipsins Amoco-Cadiz,
sem strandaði úti af strönd
Bretagne-skaga á fimmtudag. Er
þetta mesta olíumengun sem
nokkru sinni hefur orðið í
heiminum, og talið er líklegt að
mengunin eigi eftir að verða
meiri áður en yfir lýkur.
Harry Renkama, einn af eigend-
um skipsins, sagði að rannsóknir
sem gerðar hefðu verið á skips-
flakinu bentu til þess að allir 13
olíugeymar skipsins væru
skemmdir og að aðeins 50.000 tonn
af þeim 220.000, sem voru í
Háttsettur Spánverji myrtur
Madrid 22. marz. AP.
HERMDARVERKAMENN myrtu í dag
framkvæmdastjóra spánskra fang-
elsa, Jesus Haddad, átta dögum eftir
að fangi var barinn til dauða í
Carabanchel-fangelsinu í Madrid.
Andlát fangans vakti mikla reiði á
Spáni og fjölmargar mótmælagöngur
voru farnar til að mótmæla aðbúnað-
inum í spánskum fangelsum.
Haddad var myrtur er hann var að
leggja af stað til vinnu sinnar árla
morguns. Hann var kominn út í bifreið
sína er þrír vopnaðir menn réðust að
bifreiðinni, yfirbuguöu bílstjóra
Haddads og skutu á Haddad úr
vélbyssum og skammbyssum. Kona
Haddads stóð á svölum húss þeirra
hjóna og horfði á morðiö en henni var
ekki gert mein. Haddad var þegar í
stað fluttur á sjúkrahús, en hann var
látinn er þangað kom.
Jesus Haddad var fertugur að aldri,
en hann var skipaöur í embætti
framkvæmdastjóra fangelsa í desem-
ber síöastliönum.
geymum Amoco-Cadiz er það
strandaði, væru þar enn.
Tilraunir til að dæla olíunni yfir
í annað olíuskip hafa hingað til
mistekizt vegná erfiðra veðurskil-
yrða og hættulegra skerja við
strandstaðinn. Veðurofsinn hefur
dreift oliunni yfir stórt hafsvæði
og talið er að olíubrákin þekji nú
Framhald á bls. 19.
Eigin vöm
var hafnað
Torino, 22. marz. Reuter
Hermdarverkamönnunum 15
sem nú eru fyrir rétti í Torino var
í dag neitað um að fá að flytja
mál sín sjálfir eins og þeir hafa
krafizt.
Flestir lögfræðinga þeirra hafa
sagt sig frá málinu og stutt kröfur
hermdarverkamannanna. Eftir að
úrskurður dómstólsins um þetta
efni hafði verið kveðinn upp var
réttarhöldunum frestað þar til um
miðja næstu viku.
Lögregla leitaði í dag ákaft að
Aldo Moro leiðtoga kristilegra
demókrata en án nokkurs
árangurs.