Morgunblaðið - 23.03.1978, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. MARZ 1978
3
Minnisblað
lesenda
MORGUNBLAÐIÐ hefur aö
venju leitað upplýsinga, sem
handhægt getur veriö fyrir
lesendur þess að grípa til um
bænadagana og páskahátíðina.
Slysadeild Borgarspítalans er
opin allan sólarhringinn, sími
81212.
Slökkviðliðið í Reykjavík,
sími 11100, í Hafnarfirði 51100.
' Bilanir. Hitaveitu- og vatns-
veitubilanir skal tilkynna til
Vélamiðstöðvar Reykjavíkur-
borgar, en þar verður vakt alla
hátíðisdagana í síma 27311.
Símabilanir tilkynnist í síma 05.
Sölututurnar verða opnir
eins og venjulega á skírdag,
laugardag fyrir páska og á
annan í páskum. Hins vegar eru
þeir lokaðir á föstudaginn langa
og á páskadag.
Vcrzlanir verða lokaðar frá
og með skírdegi til og með
annars í páskum. Þó verður
opið frá klukkan 09 til 12 á
laugardag fyrir páska.
Lögreglan í Reykjavík, sími
11166, upplýsingasími 11110, í
Kópavogi 41200 og í Hafnar-
firði sími 51166.
Sjúkrabifreið í Reykjavík,
sími 11100, í Hafnarfirði
•51100.
Læknavarzla — Nætur- og
helgidagavakt er fram til
klukkan 08 á þriðjudagsmorgun
28. marz í síma 21230.
Bensínafgreiðslur verða
opnar á skírdag frá klukkan
09.30 til kl. 11.30 og frá klukkan
13 til 18. Á föstudaginn langa er
lokað, en á laugardag fyrir
páska er opið eins og venjulega
frá klukkan 07,30 til 21.15.
Stöðvarnar eru lokaðar á páska-
dag, en opnar á annan í páskum
frá klukkan 09.30 til 11.30 og frá
klukkan 13 til 18.
Strætisvagnar Reykjavíkur.
Tannlæknavarzla — Neyðar-
vakt verður í Heilsuverndar-
stöðinni við Barónsstíg alla
bænadagana, laugardag fyrir
Páska og báða páskadagana frá
klukkan 14 til 15.
Lyfjavarzla — Á skírdag
yerður nætur- og helgidagavakt
1 Garðsapóteki, en auk þess er
Lyfjabúðin Iðunn opin til
klukkan 22. Á föstudaginn
langa, laugardag, páskadag og
annan í páskum verður nætur-
°K helgidagavakt í Lyfjabúð
Breiðholts, en auk þess verður
Apótek Austurbæjar opið alla
Pá sömu daga til klukkan 22,
öema á páskadag.
Messur. Tilkynnipgar um
jnessur og guðsþjónustur yfir
hátíðarnar eru birtar á öðrum
stað í blaðinu í dag.
Utvarp, sjónvarp. Dag-
skráin er birt í heild á öðrum
stað í blaðinu í dag.
Á skírdag verða vagnarnir í
förum eins og á venjulegum
sunnudegi. Á föstudaginn langa
hefst akstur vagnanna klukkan
13 og er ekið samkvæmt tíma-
töflu helgidaga í Leiðabók SVR.
Á laugardag verður akstri vagn-
anna háttað sem á venjulegum
laugardegi, en á páskadag hefst
akstur kluVkan 13 og er ekið
samkvæmt tímatöflu helgidaga
í Leiðabók. Á annan í páskum er
akstri vagnanna háttað sem á
venjulegum sunnudegi.
Strætisvagnar Kópavogs —
Á skírdag og á annan í páskum
hefst akstur vagnanna klukkan
10 og er ekið samkvæmt tíma-
áætlun helgidaga í leiðabók
vagnanna. Á laugardag fyrir
oáska er ekið sem á venjulegum
laugardegi, en á föstudaginn
langa og á páskadag hefst
akstur vagnanna klukkan 14 og
er þá ekið samkvæmt tíma-
áætlun helgidaga í leiðabók
vagnanna.
Reykjavík — Hafnarfjörður,
Landleiðir h.f.: Akstri vagnanna
verður hagað á laugardag fyrir
páska sem um venjulegan
laugardag væri að ræða. Hina
dagana verður ekið eins og á
sunnudegi. Hefst akstur
klukkan 10 á skírdag og á annan
í páskum, en klukkan 14 á
föstudaginn langa og á páska-
dag.
4 vor-
feröunurnr
Sérsíakuf
^árnaafsláttur
GreiösJusfftJrn átar
Enginn baðstaður Evrópu getur nú keppt
við Costa del Sol, Miðjarðarhafsströnd
Andalúsíu, með besta loftslag álfunnar,
náttúrufegurð, sem óvíða á sinn líka,
einkum á vorin þegar allur gróður er í
glóma.
Enginn staður í álfunni tryggir ferða-
manninurii betur hinn eftirsótta fagur-
brúna hörundslit, því að hér skín sólin frá
morgni til kvölds í a.m.k. 320 daga ársins
án þess að geislar hennar verði óþægilega
heitir.
Allar upplýsingar um Útsýnar-
feröir 1978 eru í Útsýnarblaðinu
sem fylgdi Morgunblaðinu í gær.
ÞAÐ ER MEÐ ÚTSÝN,
SEM FERÐIN BORGAR
SIG
Austurstræti
II. hæd,
sími 26611.
17,
Utsýnar-
kvöldið
að Hótel Sögu
2. í páskum