Morgunblaðið - 23.03.1978, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. MARZ 1978
11
r r
Olafur Emilsson formaður HIP:
Grípa verður til aðgerða
þegar félaginu er storkað
„Ég mun ekki greiða sektina,”
segir einn hinna sektuðu prentara
EINS og frá var greint í
Morgunblaðinu í gær, sekt-
aði Hið íslenzka prentara-
félag 5 akureyska prentara
fyrir að hafa unnið verk-
fallsdagana 1. og 2. marz
siðastliðinn. Þrír prentarar
fengu 50 þúsund króna sekt,
einn 10 þúsund króna og
einn 5 þúsund krónur.
Vegna rúmleysis í blaðinu í
gær, var ekki unnt að birta
umsagnir aðila þessa máls í
heild.
Morgunblaðið ræddi í fyrradag
við einn þeirra prentara, sem
sektaður hefur verið, Einar Árna-
son, sem vinnur hjá Valprent á
Akureyri. Einar kvaðst hafa hald-
ið í upphafi, að þetta verkfallsmál
yrði sem í öðrum félögum, að lagt
yrði að mönnum að hætta vinnu,
en það yrði mönnum þó í sjálfsvald
sett. „Okkur fannst þessi ákvörðun
félagsins algjörlega óþörf, vissum
að verkfallið var ólöglegt, svo að
við ákváðum hér þrír hreinlega að
vinna. Þessi ákvörðun félagsins að
skikka menn til þess að vinna ekki,
hleypti aðeins illu blóði í okkur."
Einar sagði að þrír fulltrúar
HÍP hefðu síðan komið til þeirra
umræddan verkfallsdag, tveir
starfsmenn Prentverks Odds
Björnssonar og einn úr Prent-
smiðju Björns Jónssonar,
trúnaðarmenn félagsins. Mæltust
þeir til þess, að prentararnir við
Valprent hættu störfum, en þeir
neituðu. „Svo hringdi formaðurinn
í okkur eftir hádegið," sagði Einar
Árnason, „og reyndi að fá okkur til
að hætta. Þeir hótuðu okkur
sektum og brottvísun úr félaginu
og ég veit ekki hvað og hvað.
Vorum við ákveðnir að láta reyna
á þetta. Svo gerist það að prentar-
ar í POB ákveða að skrifa heldur
vinalegt bréf til prentarafélagsins.
Ég þori ekki að fullyrða efni
bréfsins, en við höfum heyrt, að
þeir krefðust þyngstu refsingar
yfir okkur. Ef þeir megi eljki gera
neitt, þurfi að klekkja á okkur.
Virðist svo sem þeir hafi talið
ástæðu til að herða eitthvað á
formanninum."
„Síðan fáið þið bréf frá HÍP?“
„Síðan gerist ekki neitt og þeir
fara að verða eitthvað órólegir í
POB og hringja suður til þess að
fylgjast með því hvað sé að gerast.
Kom svo í síðustu viku
express-ábyrgðarbréf á allt liðið,
50 þúsund króna sekt á mann.“
„Og ef þið ekki borgið hana, þá
hvað?“
„Ég veit í raun ekki, hvað
gerist," sagði Einar, „en það
kemur aldrei til að maður borgi
þessa sekt, a.m.k. ekki ég, og ég
efast um að nokkur hér geri það.
Við höfum ekki gert neitt í þessu
enn, en finnst þetta anzi hart.
Formaðurinn sagði í símtali við
okkur, að hann vissi að hann ætti
von á málssókn frá prentsmiðju-
AUGLÝSINGATEIKNISTOFA
MYNDAMÓTA
eigendum og sagðist jafnframt
gera sér grein fyrir því, að
prentarafélagið tapaði því máli.
Ég sagði að okkur þætti það anzi
skrítið, að það væri verið að hóta
okkur fjársektum og jafnvel brott-
rekstri úr félaginu fyrir að brjóta
ekki landslög. Sagði hann þá, að
þetta ætti ekki að vera mál okkar
heldur félagsins. Sagði ég þá, að
við teldum hreinlega að við værum
að hafa vit fyrir þeim. Það vildi
hann ekki — hér væri aðeins um
að ræða mál félagsins."
„Við hér erum ekki sérlega
ánægðir með vini okkar í POB.
Okkur fannst þetta algjör óþarfi
af þeirra hálfu. Þeir bentu alltaf
á það, að stjórn prentarafélagsins
væri löglega kjörin stjórn og væri
þar með fær um að dæma um það,
hvort við ættum að fara í verkfall.
Við svöruðum því þá til, að þá
hlyti hún einnig að vera einfær um
að dæma í okkar máli — því þyrfti
ekki sérstakt bréf frá POB til þess.
Þá höfum við heyrt um fleiri
vinnustaði, m.a. í Reykjavík, sem
prentarar voru við vinnu umrædda
daga, en þeir hafa ekki fengið
neina sekt.“
„En var ekki unnið í annarri
prentsmiðju á Akureyri en Val-
prent?"
„Jú, í Prentsmiðju Björns Jóns-
sonar. Þar unnu tveir, en hættu,
þegar trúnaðarmennirnir komu.
Þeir fengu 5 og 10 þúsund króna
sekt. Er mér ekki ljóst, hvers
vegna þeir fengu mismunandi
sektir. Þá höfum við heyrt frá
starfsmanni POB, að hann hafi
skrifað undir bréfið, þar sem ef
stjórn prentarafélagsins hefði ekki
sektað okkur, þá hefði hann talið
sig geta gert hvað hann vildi í
næsta verkfalli og þyrfti ekki að
fara eftir ákvörðunum félagsins."
Mbl. ræddi í fyrrad. við
Ólaf Emilsson, formann Hins
íslenzka prentarafélags, um þessi
mál.. Hann sagði: „Á félagsfundi í
félaginu var ákveðið að taka þátt
í samræmdum aðgerðum verka-
lýðsfélaganna til þess að mótmæla
kjaraskerðingunni, sem leiðir af
lögum ríkisstjórnarinnar. Full-
trúaráðsfundur haldinn nokkrum
dögum seinna ræddi ástandið á
hverjum vinnustað, og komst að
þeirri niðurstöðu, að ekki væri um
annað að ræða en senda út
formlega tilkynningu til félags-
manna á grundvelli samþykktar
félagsfundarins um að öllum
félagsmönnum sé skylt að leggja
niður vinnu."
Morgunblaðið ræddi í fyrradag
við Ólaf Emilsson, formann Hins
„Þetta er löglega gerð samþykkt
í félaginu," sagði Ólafur Emilsson,
„fyrst á félagsfundi en síðan í
fulltrúaráði og það verða allir
félagsmenn að hlýða lögum og
löglega gerðum samþykktum inn-
an félagsins hverju sinni. Eftir-
litsmenn félagsins komu að þess-
um mönnum við vinnu. Létu þeir
okkur um leið vita. Hið sama
gerðist í hinu tilfellinu hjá Skjald-
borg — Prentsmiðju Jóns Björns-
son. Eftir að ég hafði fengið
vitneskju um að þeir væru allir að
vinna, 3 í Valprenti og 2 í
Skjaldborg, þá hringdi ég og talaði
við mennina. Bað ég þá um að
virða samþykktir félagsins, sem
væru löglega gerðar og leggja
niður vinnu. Þeir vildu ekki hlíta
þessum samþykktum félagsins og
sögðust ætla að vinna áfram hjá
Valprenti, en þeir í Skjaldborg
sögðust mundu leggja niður vinnu
þá um leið og símtalinu lauk. Eftir
á kom í ljós að þeir höfðu gert það
i Skjaldborg, unnu þvi aðeins 2
tíma annan daginn, en á hinum
vinnustaðnum unnu þeir báða
dagana, þrátt fyrir að ég ítrekaði
við þá að félagið hlyti að grípa til
i .^i,n,hygfra,. róóa. t ,ef. rnenn ,brytua
Fjallað m.a. um geimgeisla
og virkjun hraunhita í Eyjum
löglega gerðar samþykktir félags-
ins. Þegar stjórn og fulltrúaráði
félagsins er storkað svona, er ekki
um annað að ræða en grípa til
einhverra aðgerða. Aðgerðir voru
þær að þeir voru sektaðir í
samræmi við heimild í félagslög-
um um 50 þúsund krónur hver í
Valprenti, en í Skjaldborg var
annar sektaður um 10 þúsund
krónur, vegna þess að þar var um
ítrekað brot að ræða, en í hinu
tilfellinu um 5 þúsund krónur, þar
sem þar var fyrsta brot og hann
lagði niður vinnu, þegar við hann
var rætt.“
Að lokum sagði Ólafur Emils-
son: „Ég harma að þessir menn
skuli ekki virða samþykktir félags-
ins, þar sem félagið er alltaf að
berjast fyrir hagsmunum félags-
manna og það er erfitt að halda
uppi baráttu fyrir félagsmenn, ef
ekki er samstaða fyrir hendi um
þau mál, sem samþykkt hafa
verið."
A VEGUM Eðlisfræðifélags Is-
lands verða á næstunni haldin
fimm fræðsluerindi um eðlisfræði-
leg efni. Þau verða vikulega á
þriðjudögum kl. 16:30 í kennslu-
stofu 158 í húsi Verkfræði- og
raunvísindadeildar háskólans við
Hjarðarhaga og hefjast í vikunni
eftir páska.
Erindin eru þessi:
28. mars Jakob Yngvarsson:
Þróun skammtasviðsfræðinnar.
4. apríl Einar Júlíusson: Geim-
geilsar.
11. apríl Jón Pétursson: Ljós í
leiðslum og rásum.
18. apríl Rögnvaldur Ólafsson:
Ofurleiðni.
25. apríl Sveinbjörn Björnsson:
Aðferðír til virkjunar hraunhita í
Vestmannaeyjum.
Ollum er heimill aðgangur að
erindum þessum.
Eðlisfræðifélag íslands var
stofnað á síðasta ári og er því m.a.
ætlað að beita sér fyrir fræðslu
um eðlisfræðileg efni fyrir eðlis-
fræðinga og aðra áhugamenn. Það
er fyrst og fremst félag eðlisfræð-
inga og annarra, sem menntun
hafa hlotið í eðlisfræði eða skyld-
um fræðasviðum, svo sem jarð-
eðlisfræði, stjörnufræði og eðlis-
verkfræði, en öðrum áhugamönn-
um um eðlisfræði stendur til boða
að tengjast félaginu með því að
gerast aukafélagar.
I stjórn félagsins eru prófessor
Þorbjörn Sigurgeirsson, dr. Guð-
mundur Pálmason og Þórir Ólafs-
son, menntaskólakennari.
Jk.
G F — 1704 H/E TÆKIÐ ER MEIRA EN BARA FERÐATÆKI
Auk margra aukahluta hef-
ur þaS sérstakt mikrafón
kerfi sem gerir þér kleift að
syngja me8 þinni upp-
áhaldshljómsveit eða
söngvara.
E8a a8 búa til þinn eigin
skemmtiþátt þar sem þú ert
~>sjálfur kynnirinn.
Gefur til kynna í upptöku
pegar skipta parf um rafhlöóur.
Auk fjölda annarra atriSa
sem skipta máli
SHARPGF
1 704 er tæki sem vert er aS skoða og hlusta á
Hljómdeild
Simi frá skiptiborði 28155
ific Automatic Level Control sér um a8 upptaka sé jöfn. LED
5íuto Sjálfvirkur stoppari slekkur
á tækinu þegar bandiS er búiS.