Morgunblaðið - 23.03.1978, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. MARZ 1978
13
Eldur í
Arnarholti
GLDUR kom upp í einu húsi
vistheimilisins í Arnarholti á
Kjalarnesi í fyrrad. en starfs-
menn voru að ljúka við slökkvi-
starf, er fyrsti bíllinn frá
Slökkviliði Reykjavíkur kom á
staðinn 21 mínútu eftir til-
kynningu um eldinn. Gunnar
Sigurðsson, varaslökkviliðs-
stjóri í Reykjavík, sagði Mbl. í
gær, að fyrir um mánuði hefðu
slökkviliðsmenn verið í Arnar-
holti, þar sem slökkvibúnaður
vistheimilisins var endurnýjað-
ur. m.a. með slöngum við
brunahanana. og hefði sú end-
urnýjun sýnt gildi sitt í gær-
morgun. Húsið, sem eldurinn
kom upp í, var rýmt um
áramótin, en unnið var að því
að lagfæra þar til fyrir föndur-
aðstöðu.
Nokkrar skemmdir
urðu í herbergi því, sem eldur-
inn kom upp í, en að öðru leyti
urðu litlar skemmdir og sagði
Gunnar það mætti þakka því að
starfsmenn Arnarholts hefðu
gengið vasklega fram með hinn
nýja slökkvibúnað.
Starfsfólk vistheimilisins í Arnarholti hafði að mestu slökkt eldinn. þegar slökkviliðið kom á
vettvang. Ljósm. Mbl.i Rax.
Tvaer sýn-
ingar í
Norræna
húsinu
NÚ STANDA yfir tvær sýningar í
Norræna húsinu, önnur nefnist
Börnin og umhverfið og er á
vegum Kvenfélagasambands Is-
lands og Norræna hússins, en
fengin frá Forbrukerrádet í Ósló.
Lýkur henni annan dag páska. Hin
sýningin heitir Með augum barns
og sér Félag íslenzkra sérkennara
um hana. Eru á henni verk
grunnskólanemenda úr ýmsum
deildum og sérskólum og lýkur
henni 29. marz.
*
„A sama
tíma að
ári” sýnt
á Suður-
landi
UM SÍÐUSTU helgi var sýnt í
Vestmannaeyjum bandaríska
gamanleikritið „Á sama tíma að
ári“ og urðu sýningar þar 5. Eru
það fleiri sýningar en áður í
leikferð þar og var húsfyllir á
hverri sýningu.
Á næstunni verður verkið sýnt
víða um Suðurland og verður reynt
að sýna í flestum þeim félags-
heimilum og samkomuhúsum.
Verða þær sem hér segir: 27. og 28.
marz á Selfossi, 29. marz í Stapa,
30. marz í Minni-Borg, Grímsnesi,
1. apríl Hvoli, 2. Aratungu, 3. á
Flúðum, 4. á Hellu, 5. í Vík í
Mýrdal og 6. apríl á Kirkjubæjar-
klaustri. Það eru þau Margrét
Guðmundsdóttir og Bessi Bjarna-
son sem leika einu hlutverk
leikritsins.
Ljósmynda-
sýning í Bú-
staðakirkju
Nú fyrir páskana verður sett
upp ljósmyndasýnjng í Bústaða-
kirkju. Er það Kjartan Kristjáns-
son sem sýnir myndir sfnar og
eru þær hengdar upp í safnaðar-
sölum kirkjunnar. Sýningin verð-
ur opin fram yfir páska og fram
í aprílmánuð meðan fermingar f
kirkjunni standa yfir.
Sr. Ólafur Skúlason sagði, að
nýmæli væri að fá ljósmyndasýn-
ingu í kirkjuna, en áður hefðu
verið sýndar höggmyndir og mál-
verk og kvaðst hann vona, að þessi
sýning yrði kirkjugestum til auk-
innar ánægju í kirkjugöngu sinni.
nordíTIende
7
Bang &Olufeen
Magnkaup-
Gerum tilboð
í magnkaup,
yður að
kostnaðarlausu
Lita-
sjonvorp
ALLAR STÆRÐIR
r Magnafsláttur
Tilvalið fyrir: þorp, kaupstaði,
starfshópa og jafnvel
■HflfMÉHl byggðarlög.
_
gra
verð —
Betri
þjónusta
Skiphotti 19 R.
S. 29800 (5 línur)