Morgunblaðið - 20.04.1978, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. APRÍL 1978
Ung kona stór-
slasast í bílslysi
UNG kona, 32ja ára gömul,
liggur stórslösuð á gjörgæzlu-
deild Borgarspítalans eftir um-
ferðarslys, sem varð á Hafnar-
fjarðarvegi við Garðabæ um |
áttaleytið í gærmorgun.
Konan ók Volkswagenbifreið og
kom hún akandi suður Hafnar-
fjarðarveg og ætlaði að beygja til
vinstri upp Vífilsstaðaveg. Beið
bifreið hennar kyrrstæð þegar
Volvo-vörubifreið kom aðvífandi
og ók harkalega aftan á bíl i
konunnar. Hentist Volkswagen-
bíllinn fyrir Mazda-bifreið, sem
kom á móti og síðan langt út fyrir
veg.
Konan klemmdist í bílnum og
tók nokkurn tíma að ná henni út.
Hún var strax flutt á slysadeild
Borgarspítalans og við skoðun þar
kom í Ijós, að konan var hrygg-
brotin. Atti hún að gangast undir
mikla aðgerð í gær.
Allir bílarnir skemmdust, mest
þó Volkswagen-bíllinn. Bæði fram-
hjólin brotnuðu undan Volvobíln-
um og Mazda-bíllinn skemmdist
töluvert. Ekki meiddust aðrir í
þessu slysi en kónan.
Samkvæmt upplýsingum Rann-
sóknarlögreglunnar í Hafnarfirði
tók bílstjórinn á vörubílnum ekki
eftir kyrrstæða bílnum fyrr en of
seint. Hann hemlaði snögglega en
gat ekki afstýrt árekstrinum, sem
varð mjög harður.
Sædýrasafnið í Hafnarfirði hefur fengið þrjár kengúrur og verða
þær í fyrsta skipti til sýnis í dag. Jón Gunnarsson, forstöðumaður
safnsins, sagði Mbl. að um væri að ræða eitt karldýr og tvö
kvendýr, ársgömul, og eru þau keypt frá Dýragarðinum í
Kaupmannahöfn. Hingað komu dýrin fyrir þremur vikum, en hafa
verið í sóttkví þar til nú. Það var fyrirtækið Rafha hf., sem gaf
fé til kengúrukaupmanna, en dýrin kostuðu um 480 þúsund krónur.
Mikill meiri-
hluti starfs-
fólks vill
fagna gestum
-segir Halldór
Eyjólfsson, starfs-
maður við Sigöldu
„VIÐ SKRIFUÐUM líka nokkrir
undir önnur mótmæli við mót-
mælunum,* sagði Halidór Eyjólfs-
son, starfsmaður Landsvirkjunar
við Sigöldu, er hann hafði sam-
band við Mbl. í gær vegna fréttar
blaðsins af mótmælum starfsfólks
við Sigöldu við „veizluhöldum
Landsvirkjunar“. „Við teljum það
ekkert eftir þótt gestum sem eru
langt að komnir sé gefið að
borða,“ sagði Halldór.
Halldór sagði, að í hádeginu á
þriðjudag hefði verið komið upp
vegg í mötuneytinu orðsendingu til
starfsfólksins við Sigöldu þess
efnis að til stæði að senda
„eftirfarandi mótmæli til fjöl-
miðla seinnipartinn í dag“. Síðan
sagði, að ef einhverjir væru því
mótfallnir að ályktunin yrði send
skyldu þeir skrifa nöfn sín á blaðið
fyrir klukkan 16. „Við tókum þessu
flest sem einhvers konar gríni,
enda vanari því að skrifa undir
eitthvað til samþykktar," 3agði
Framhald á bls. 39.
Yfirnefnd ákveður 10.80 kr. fyrir kílóið af kolmunna:
„Meirihluti gegn
stefnu r áðherra’ ’
-segir Kristján Ragnarsson og Ingólfur Ingólfsson
VERÐ á kolmunna og spærlingi
var ákveðið á fundi Yfirnefndar
sjávarútvegsins í gær og var
FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ hef-
ur gefið út nýja reglugerð um
innflutningsgjald af bifreiðum og
bifhjólum. sem íelur í sér að
afnumið er 25% innflutnings-
gjald af tollverði almenningsbif-
rciða fyrir 18 farþega og fleiri,
dráttarbifreiða svo og vörubif-
reiða með burðarþol 6 tonn og
þar yfir. Að öðru leyti eru ákvæði
þessarar reglugerðar óbreytt.
Samkvæmt upplýsingum er Mbl.
fékk hjá Ágúst Hafberg, forstjóra
eins umboðsins fyrir tæki sem
þarna um ræðir, felur reglugerðar-
breytingin í sér lækkun á verði á
stórum vörubifreiðum, 6 tonn og
þar yfir, og getur verið allt á bilinu
frá 1,4 milljónum upp í 2,2
milljónir króna þegar innflutn-
ingsgjaldið hefur verið afnumið.
Verð á dýrustu bifreiðum af þessu
tagi var um 16 milljónir króna.
Það kom fram hjá Ágústi
Hafberg að þessi reglugerðar-
breyting hefur um skeið verið
baráttumál Bílgreinasambands-
ins, enda verðþróun á þessum
bifreiðum verið mjög óhagstæð nú
ÉG reikna með um 115 gestum í
þessa ferð, en Landsvirkjun bauð
þingmönnum og borgarstjórnar-
fulltrúum ásamt mökum þeirra.
Ætli kostnaðurinn verði ckki um
tvær milljónir krónat bílar, mat-
ur og áfengi, en hádegisverður
verður snæddur að Sigöldu og
síðan verður boðið upp á hress-
ingu á heimleið í Árnesi,“ sagði
Eiríkur Briem, framkvæmda-
stjóri Landsvirkjunar, er Mbl.
spurði hann í gær um boðsferð
Landsvirkjunnar að Sigöldu og á
svæði fyrirhugaðrar Hrauneyja-
fossvirkjunar.
Þegar Mbl. spurði Eirík, hvað
verðið ákveðið af oddamanni og
fulltrúum kaupcnda. Eftir þessa
verðákvörðun gáfu fulltrúar selj-
um 2ja ára skeið, bílverðið liðlega
tvöfaldast á þessum tíma og frá
því í nóvember sl. hefði það
Framhald á bls. 39.
DÓMUR féll í gær í bæjarþingi í
Reykjavíkur í máli dr. Braga
Jósepssonar gegn fjármálaráð-
herra f.h. ríkissjóðs vegna
meintrar ólöglegrar brottvikn-
ingar úr starfi deildarstjóra
menntamálaráðuneytisins. Var
fjármálaráðherra dæmdur til
þess að greiða dr. Braga 1800
þúsund krónur f bætur auk vaxta.
Dr. Braga var vikið úr starfi
honum fyndist um framkomin
mótmæli gegn boðsferðinni, svar-
aði hann: „Mér finnast þau órétt-
mæt. Ég sé ekkert athugavert við
það að fulltrúum eigenda sé gefinn
kostur á því sjöunda hvert ár að
kynna sér rekstur fyrirtækisins,
ekki hvað sízt þegar ný virkjun er
nú framundan." Eiríkur kvaðst
vilja taka fram, að ekki væri hægt
að bjóða mönnum í slíkt ferðalag
án þess að leggja til bílakost og
bjóða upp á máltíð og rétt hefði
þótt að bjóða einnig upp á
hressingu á heimleiðinni og yrði
því áð í Árnesi, þar sem boðið yrði
upp á hanastél.
enda, þeir Kristján Ragnarsson
íormaður Landssambands ísl.
útvegsmanna og Ingólfur Ingólfs-
son forseti F.F.S.Í., út yfir-
lýsingu, þar sem þeir telja að með
verðákvörðuninni hafi meirihluti
yfirnefndar stefnt því í hættu að
Islendingar veiði kolmunna og
spærling á þessu vori. Verð það
sem ákveðið var fyrir kíló af
kolmunna er kr. 10.80 og fyrir
kíló af spærlingi kr. 10.30. Til
samanburðar má geta þess að
gildandi hráefnisverð í Færeyjum
deildarstjóra í desember 1974.
Höfðaði hann mál og krafðist bóta,
þar sem hann taldi að uppsögnin
hefði verið ólögmæt. Dómur gekk
í málinu árið 1976 og var ríkissjóð-
ur þá dæmdur til þess að greiða dr.
Braga 3,5 milljónir króna.
Dómi þessum var áfrýjað tiT
Hæstaréttar og í byrjun ársins
1978 var dómur þar upp kveðinn og
málinu vísað á ný til héraðsdóms,
þar sem láðst hefði að láta málið
fara fyrir sáttanefnd áður en
dæmt var.
I röksemdum hins nýja dóms
segir að nú séu aðrar forsendur en
þegar fyrri dómurinn var kveðinn
upp, þar sem dr. Bragi hafi á ný
tekið við stöðu hjá ríkinu sem
námsráðgjafi við Fjölbrautaskól-
ann í Breiðholti. Er því bótaupp-
hæðin lækkuð.
Dóminn kvað upp Emil Ágústs-
son borgardómari.
35% hækkun
fargjalda
Landleiða
HEIMILUÐ hefur verið 35%
hækkun á fargjöldum Land-
leiða. Nú kostar einstakt far-
gjald Reykjavík-Hafnarfjörður
170 krónur fyrir fullorðna en
fer væntanlega í 230 krónur
eftir hækkun. Samkvæmt upp-
lýsingum Georgs Ólafssonar
verðlagsstjóra er þetta sama
hækkun og Strætisvögnum
Reykjavíkur var heimiluð 1.
febrúar s.l.
Stórir bílar lækka
um allt að 2,2 millj.
Framkvæmdastjóri Landsvirkjunar:
r
Aætlaður kostnaður
við boðsferðina ei
tvær milljónir króna
Framhald á bls. 26
Dr. Braga dæmdar
l,8millj.íbætur
Bætur lækkaðar þar sem Bragi er
byrjaður að vinna hjá ríkinu að nýju