Morgunblaðið - 20.04.1978, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 20.04.1978, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR' 20. APRÍL 1978 13 Aðalfundur Fuglaverndarfél.: Yfirvöld vöruð við „fálkaunga-þjófum” Á AÐALFUNDI Fuglaverndar- félags íslands. sem haldinn var um síðustu helgi, skýrði formað- ur félagsins, prófessor Magnús Magnússon, frá því að það væri álit sérfræðinga að landsmönnum hefði tekizt að koma í veg fyrir frekari fækkun arnarins í land- inu. — Og hefðu ernir sézt í landshlutum. sem þeirra hefði ekki orðið vart áður um margra áratuga skeið. Myndu þessir ungu ernir væntanlega vera að kanna aðstæður til hreiðurgerðar á nýjum stöðum. Væri nauðsyn- legt að áfram yrði haldið á þeirri braut að hlúa að erninum. Gnn væri arnarstofninn veikur og ekki úr hættu. Lagði formaður- inn áherzlu á áframhaldandi gott samstarf við bændur landsins um þessi mál. Tali sínu vék formaðurinn einn- ig að öðrum íslenzkum fuglum, sem yfirvofandi hætta virðist vera á að geti horfið með öllu, m.a. keldusvínið, haftyrðillinn og æ sjaldséðari verður snæuglan. Eins er það álit manna að fálkanum fari fækkandi í landinu. Fór formaðurinn nokkrum orð- um um þá hættu, sem fálkanum stafar af mönnum, sem vilja gera sér hann að féþúfu. Minnti hann í því sambandi á það atvik er varð suður á Keflavíkurflugvelli fyrir tveimur árum, er upp komst um tilraun til að smygla fálkaungum úr landi. Varaði formaðurinn eindregið við þeirri hættu sem stafaði af „erlendum fálkaunga- þjófum", eins og hann komst að orði. — Hefði Fuglaverndar félagið bréflega vakið athygli löggæzluyfirvalda á nauðsyn þess að herða eftirlit með erlendum ferðamönnum sem fara hér um fjöll og firnindi, einkum þeim sem eru á bílum. Hefði Fuglaverndar- félagið t.d. bent á nauðsyn þess að herða eftirlitið með bílum ferða- manna sem aka frá borði og beint um borð aftur að ferðalagi loknu, á færeyska skipinu Smyrli. Það væri einmitt hætta á því að þessi leið yrði reynd af „fálkaunga-þjóf- um“, að nota bíl til að smygla ungunum úr landi eða ungum annarra ísl. fugla. Gat prófessor Magnús þess er hanrt vék aftur tali að „fálkaunga- málinu" að um síðir hefði tekizt að upplýsa það suður í Þýzkalandi þar sem „fálkaungaþjófarnir" eiga heima. Nokkrum orðum fór formaður- inn um nauðsyn aukinnar fugla- verndar í landinu og óhjákvæmi- lega aukinni þátttöku fjárveit- Þakkir fyrir Turninn Innilcgar kveðjur og þakkir til borgarstjócnar, borgarráðs og allra, sem hjálpuðu til við endurbyggingu á gamla sölu- turninum mínum. Mér þykir staðsetningin á Turninum góð. Þegar ég stend hjá honum sé ég langt'til allra átta. Þakkir íyrir birtinguna. Gleðilegt sumar! Ólafur Sveinsson frá Mælifellsá. ingavaldsins í því starfi, sem nú væri mjög óveruleg. Gat hann þess að á síðasta ári hefði bankastjórn Seðlabankans fært félaginu að gjöf 300.000 krónur. Færði for- maðurinn bankastjórninni þakkir fyrir hina höfðinglegu gjöf. Er póf. Magnús ræddi um starf Fuglaverndarfélagsins fór hann viðurkenningarorðum um dr. Finn Guðmundsson. — Það er alltaf eftir því tekið og tillit tekið til þess er dr. Finnur kveður sér hljóðs um fuglaverndarmál Einn fálkaunganna, sem smygla átti úr landi, á Keflavíkurflugvelli. okkar Islendinga, sagði formaður- inn. Færði hann dr. Finni þakkir fyrir mikil störf í þágu fugla- verndarmála. Á aðalfundinum voru gerðar nokkrar samþykktir. Meðal þeirra var áskorun til ráðamanna Þörungavinnslunar á Reykhólum um að gæta varúðar og sýna tillitssemi þegar starfsmenn eru við þangskurð á þeim stöðum sem nærri liggja arnabyggð þar vestra. — Var því beint til þeirra er yfirumsjón hafa með þangskurði hvort ekki séu möguleikar á því að þangskurður á þessum slóðum fari fram á haustin í stað þess að skera á vorin. Á aðalfundinum tóku þrír menn sæti sem meðstjórnendur í félags- stjórninni en það eru þeir Jón Baldur Sigurðsson líffræðingur, Aðalsteinn Sigurðsson fiskifræð- ingur og Hjörtþór Ágústsson rafvirkjameistari. Eru íslendin útíaöa Já margir hverjir, það fer ekkert milli mála - þó eru þeir sérstaklega úti að aka ásumrin - þáskipta þeir þúsundum. Ástæðan? Jú ástæðan er einföld, hún er sú að afsláttarfargjöld okkar gera öllum kleift að komast utan ísumarleyfi til þess að sjá sig um, kynnast frægum stöðum - og gista heimsborgir. Þeir sem þannig ferðast ráða ferð- inni sjálfir - sumir fara um mörg lönd - aðrir fara hægar yfir og halda sig lengst þar sem skemmtilegast er. Það þarf engan að undra þótt margir séu úti að aka á sumrin - á eigin bílum eða leigðum bílum. Kynntu þér afsláttarfargjöld okkar - þau gætu komið þér þægilega á óvart - og orðið til þess að þú yrðir líka úti að aka í sumar. fíf/fí££lc LOFIMBIR /SLA/VDS

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.