Morgunblaðið - 20.04.1978, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. APRÍL 1978
íþróttavöllurinn er mikið notaður af drengjunum í Vatnaskógi og í baksýn sést í hinn nýja íþróttaskála.
Ymsar framkvæmdir
í Vatnaskógi í sumar
HAFINN er undirbúningur að
starfrækslu sumarbúða Skógar-
manna KFUM í Vatnaskógi en í
ár er það 56. sumarið sem þær eru
starfræktar. Árleg kaffisala
Skógarmanna verður í dag, sum-
ardaginn fyrsta, í húsi KFUM og
K að Amtmannsstig og verða frá
kl. 14 bornar fram kökur og kaffi
sem velunnarar starfsins f Vatna-
skógi hafa lagt fram.
í kvöld kl. 20:30 er síðan
Skógarmannakvöldvaka á sama
stað og er efni hennar bundið
sumarbúðunum í Vatnaskógi í ta.li
og söng. Er kvöldvaka þessi öllum
opin, ekki sízt foreldrum drengja
er dvalið hafa í Vatnaskógi.
Innritun er hafin í sumarbúðirnar
en alls verða 10 dvalarflokkar og
fer sá fyrsti hinn 31. maí. Fer
innritunin fram á skrifstofu
KFUM og K að Amtmannsstíg.
Á undanförnum árum hefur
verið unnið að ýmiss konar fram-
kvæmdum í Vatnaskógi, t.d. end-
urnýjun girðingarinnar og í sumar
verður því verki haldið áfram. Þá
verður einnig haldið áfram við
byggingu íþróttaskólans eftir því
sem fjármagn aflast til byggingar-
innar," en undir öllum kostnaði
verðum við að standa þar sem
sjóðir hins opinbera, sem styrkja
slíkar byggingar annarra, eru
okkur lokaðir," eins og segir í frétt
frá Skógarmönnum KFUM.
Þriðja stóra verkefnið er breyt-
ing og endurbót á rafmagnsheim-
taug staðarins og lagning jarð-
strengja. Gefur þetta möguleika á
að taka upp rafmagnshitun sem
talin er bót í staðinn fyrir
olíukyndingu og vatnskerfi. Ágóði
kaffisölunnar í dag verður látinn
ganga upp í þessi verkefni, svo og
önnur sem þörf er á að unnið verði
að.
Góðir
gestir
Sæluviku
/
a
KÓR Menntaskólans við Hamra-
hlíð var þátttakandi í nýliðinni
Sæluviku okkar á Sauðárkróki og
hélt opinbera hljómleika laugar-
daginn 8. apríl.
Sú söngskrá, sem kórinn hafði
fram að færa, meðferð laganna og
framkoma kórfélaga í hvívetna
gerir þessa heimsókn að meiri-
háttar menningarviðburði. Þeim,
sem eitthvað fylgjast með fram-
vindu tónlistarlífs í landinu, er
kunnugt um það góða orð sem af
Hamrahlíðarkórnum fer og þá
ágætu dóma, sem hann hefir hlotið
hér á landi og erlendis fyrir hinn
þjálfaða og fagra söng. Það eitt að
fá í heimsókn kór sem slíkt orð fer
af er menningarviðburður. En
fleira kemur til. Hin ljúfa, frjáls-
mannlega en þó háttvísa fram-
koma hins unga söngfólks gerir
þessa stund sem hljómleikarnir
stóðu mjög eftirminnilega.
Þá má ekki gleymast hin óvænta
en skemmtilega heimsókn kórsins
á sjúkrahúsið, vinnustaði og í
skóla. Fyrir það mun ýmsum vera
meira þakklæti í huga en auðvelt
er að móta í hversdagslegum
orðum.
Hið unga söngfólk er mikillar
hamingju aðnjótandi að eiga þess
kost að ástunda hina göfugustu
list allra lista undir stjórn jafn
mikilhæfs listamanns sem Þor-
gerðar Ingólfsdóttur. Þær augljósu
ytri aðstæður, þ.e. hve félagarnir
hafa tiltölulega skamma viðdvöl í
kórnum — og það að þurfa að taka
inn á hverju ári allstóran hóp af
nýju og lítt vönu söngfólki, gerir
árangur stjórnandans enn at-
hyglisverðari. Hafa oft verið notuð
hástemmd lýsingarorð af minna
tilefr.i. Ég tek mér leyfi til að færa
félögum þessa góða kórs og
stjórnanda hans hjartans þakkir
fyrir Sæluvikuheimsóknina til
Sauðárkróks. Og þá á ekki síður
þakkir skildar það fólk, sem gerði
þessa heimsókn mögulega með
undirbúningsvinnu og móttökum.
Ég vona, að þau kynni, sem
sköpuðust milli Sauðárkróksbúa
og Hamrahlíðarkórsins megi
?ndurnýjast í svipuðu formi sem
fyrst.
Jón Karlsson
Nýuppgerður
bátur til
Eyrarbakka
Stykkishólmi. 18. aprfl.
Á LAUGARDAGINN var í Stykk-
ishólmi afhentur nýuppgerður
vélbátur, 52 lestir að stærð, sem
skipasmíðastöðin Skipavík í
Stykkishólmi hefir að undanförnu
endurbyggt. Báturinn er eikarskip
og búinn nýjustu tækjum. Hann
hlaut nafnið Bakkavík ÁR 100 og
er hann seldur til Eyrarbakka og
kemur í stað samnefnds báts, sem
eyðilagðist í náttúruhamförunum
á Stokkseyri í vetur. Eigendur eru
Þórður og Sigfús Markússynir á
Eyrarbakka og verður Þórður
skipstjóri á bátnum, sem heldur
nú þegar á togveiðar.
— Fréttaritari
Leikvallanefnd Reykjavíkur
rekur 33 gæsluvelli um alla
borgina og er þar séð um gæslu
barna á aldrinum 2—6 ára.
Einnig eru starfræktir 8 starfs-
vellir á vegum Leikvallanefndar
og er sú starfsemi fyrst og
fremst ætluð börnum á aldrin-
um 6—12 ára.
Sumarstarf Æskulýðs-
ráðs Reykjavíkur kynnt
hverfi verða leiðbeinendur sem
starfa með börnum í hverfinu að
skipulagningu leikja og ýmiss
konar útistarfs. Á kvöldin verð-
ur svo opið hús, leiktæki og
diskótek fyrir unglinga. í Fella-
helli verður svipuð starfsemi og
í Bústaðahverfi.
Á vegum íþróttaráðs Reykja-
víkur verða haldin sundnám-
skeið fyrir börn 1971 og eldri.
Námskeiðin 'fara fram í fimm
sundlaugum borgarinnar.
Iþrótta- og leikjanámskeið
verða einnig starfrækt á vegum
Iþróttaráðs. Þau verða fyrir
börn á aldrinum 6—12 ára og
lýkur með íþróttamóti á Mela-
velli hinn 15. júní.
Siglinganámskeið verða haldin í Nauthólsvík eins og undanfarin
sumur og er ekki að efa að margir munu sækja þau.
BÆKLINGURINN „Sum-
arstarf fyrir börn og ungl-
inga 1978“ er kominn út og
var dreift til allra aldurs-
hópa á skyldunámsstigi í
skólum Reykjavíkurborgar
; gær. í bæklingi þessum er
að finna framboð borgar-
stofnana í starfi og leik
fyrir börn og ungiinga í
borginni sumarið 1978.
Þessar stofnanir erui
Fræðsluskrifstofa Reykja-
víkur, Æskulýðsráð
Reykjavíkur, Leikvalla-
nefnd Reykjavíkur,
íþróttaráð Reykjavíkur,
Skólagarðar Reykjavíkur
og Vinnuskóli
Reykjavíkur.
Þeir starfsþættir sem kynntir
eru í bæklingnum eru fyrir börn
og unglinga á aldrinum 2—16
ára og eru með svipuðu sniði og
undanfarin ár. Siglinganám-
skeið verður haldið í Nauthóls-
vík bæði fyrir byrjendur og þá
sem lengra eru komnir. Kynnis-
ferð í sveit er fyrir börn á
aldrinum 10—12 ára. Dvalið
verður í þrjá daga á sveitaheim-
iium í Austur- og Vestur-Land-
eyjum og er sú dvöl ókeypis.
Reiðskóli verður starfræktur í
Saltvík í samvinnu við Hesta-
mannafélagið Fák. Þar verður
hafður sami háttur á og áður en
þó eru fleiri starfsmenn til
leiðbeiningar. Að Fríkirkjuvegi
11 verður aðstaða til fundar-
halda og námskeiða fyrir æsku-
lýðsfélög og samtök. I Bústaða-
Vinnuskóli Reykjavíkur er
starfræktur fyrir þá nemendur
sem sátu í 7. og 8. bekk
grunnskóla í borginni skólaárið
1977—1978. Síðastliðið sumar
var tímakaup nemenda um 55%
af taxta Dagsbrúnar fyrir sömu
aldursflokka en það er tiltölu-
lega minna en t.d. í Kópavogi.
Skólagarðar borgarinnar
starfa í sumar á fjórum stöðum
í borginni. Garðarnir geta veitt
11 —1200 börnum viðtöku á
aldrinum 9—12 ára. Með börn-
unum starfa aðallega kennara-
nemar sem leiðbeina þeim við
ræktunina og fara með þeim í
náttúruskoðunarferðir.
Sumarstárfsemi Æskulýðs-
ráðs Reykjavíkurborgar er mið-
uð við börn og unglinga á
aldrinum 6—16 ára. Sagði Hin-
rik Bjarnason formaður Æsku-
iýðsráðs á blaðamannafundi í i
gær að það hefði sýnt sig að
eldri unglingar tækju ekki þátt 1
í starfseminni að marki.
Borðtennismót gagnfræðaskóianna var haldið í Fellahelli 8. apríl
s.l. en mót þetta fer fram árlega að loknum tómstundanámskeiðum
Æskulýðsráðs Reykjavíkur í skólúnum. Sigurvegari að þessu sinni
varð A-sveit Hagaskóla.
Fyrir skömmu var skákmót gagnfræðaskólanna 1978 haldið á
vegum Æskulýðsráðs Reykjavíkur og bar Álítamýrarskóli þar
sigur úr býtum.