Morgunblaðið - 20.04.1978, Síða 15

Morgunblaðið - 20.04.1978, Síða 15
15 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. APRÍL 1978 _____________________ . _______ Þórir Steingrímsson og Sigurveig Jónsdóttir í hlutverkum. Sigur Ég get ekki látið hjá líða að skrifa nokkrar línur um leikritið Hungangsilmur U»A Taste of Honey"), sem frumsýnt var sl. föstudag á Akureyri. Þetta leikrit var samið af 19 ára gamalli stúlku af írskum ættum, Shelagh Delaney. Það var frumflutt í Theatre Workshop árið 1958. Þetta leikrit hefi ég séð utan- lands og innan þrisvar sinnum áður, og að auki lesið það. Það var því með hálfum huga að ég rölti í fallega gamla leikhúsið okkar til að horfa á sjónleikinn í fjórða sinn. Hélt satt að segja að það ylli mér vonbrigðum. En það varð nú annað upp á teningnum. Ég held, að sjaldan hafi ég notið betur leiksýningar. Allir leikarar stóðu sig með slíkri prýði, að áhorfend- um fannst í raun að þeir væru þátttakendur í þessu harmskopi, og hvað er betra í leikhúsi? Aðalhlutverkið lék Kristín Ólafsdóttir með óvæntum tilþrif- um, og vil ég bera henni sérstakar þakkir fyrir aðdáunarverða frammistöðu. Sigurveigu Jónsdóttur þarf ekki að lýsa. Það er sama í hvaða hlutverki hún er, öllu skilar hún jafnvel. Ætti að vera á stærra sviði — til skiptis ljót og fögur — eins og hún getur alltaf verið. Aðalsteinn Bergdal var ágætur sem blámaðurinn — lítið hlutverjc en vel gert — hann var bara ekki nógu dökkur. Ef til vill ljósum að kenna — eða farða. Þá kem ég að öðru aðalhlut- verki. Það er Gestur E. Jónasson. Hann lék forkunnarvel vin ungu stúlkunnar, bar einkar fallega umhyggju fyrir henni. Hann gegndi erfiðu hlutverki og stóð sig með prýði, eins og í Kristnihaldinu um árið. Það er strákur sem ætti að láta meira bera á sér á sviði. Þórir Steingrímsson hefir oft verið á leiksviðinu, misgóður í hlutverkum, en á þessari sýningu fer hann með köflum á kostum. Hefi ekki séð hann betri í annan tímá. Leikstjóri var Jill Brooke Árna- son, og á hún miklar þakkir skilið fyrir mjög athyglisverðan þátt sinn í þessari sýningu. Lýsing var sómasamleg, leikmynd einnig. Búningar í samræmi við tímann, svo og tónlist. Þýðing Ásgeirs Hjartarsonar var létt, lipur og eðlileg, eins og hans var von og vísa. Ég skrifa þessar línur fyrst og fremst til þess að þakka fyrir mig og mitt fólk, en einnegin vil ég vekja athygli á því, að það er til gott leikhús líka utan Reykja- víkur, og mætti gjarna hygla því. Gott og menntað fólk hefir lagt á sig að koma til Akureyrar, dvalið þar marga mánuði, kennandi og gefandi „hunangsilm" okkur sem öndum löngum að okkur annarri og hversdagslegri angan. Þökk sé Brynju Ben. og Erlingi fyrir að hafa komið til Akureyrar. Einnig öðrum sem áður voru hér. Með ósk um að listunnendur sjái sóma sinn í því að fallega gamla leikhúsið okkar Akureyringa koðni ekki niður. Bryndís Jakobsdóttir. Kristín Ólafsdóttir og Aðalsteinn Bergdal í hlutverkum. Fáanlegir aukahlutir 1. Hakkavél 2. Pylsufyllir 3. Grænmetis- og ávaxtakvörn 4. Sítrónupressa 5. Grænmetis- og ávaxtajárn 6. Stálskál 7. Ávaxtapressa 8. Dósahnifur Hér er ein lítil systir.. CHEFETTE KENWOOD HEKLA HP Laugavegi 170-172, — Sími 21240 3 mismunandi litir Fáanlegir aukahlutir 9. Grænmetis- og ávaxtarifjárn 10. Kaffikvörn 11. Hraógengt grænmetis- og ávaxtajárn 12. Baunahnífur og afhýóari 13. Þrýstisigti 14. Rjómavél 15. Kartöfluafhýóari 16. Hetta ....oghér er önnur Nl "CITROEN^" TÆKNIBÚNAÐ SLÆR ENGINN ÚT CITROÉNAGS FÆST BÆÐI SEM FÓLKSBÍLL OG STATIONBÍLL Síðasta sending af CITROÉN GS seldist upp en nú er komln ný sending. Hægt er að velja um margvíslega liti, áklæði og aukabúnað. Talið við sölumenn okkar um verð og hina hagkvæmu greiðsluskilmála. SJÁIÐ - REYNSLUAKIÐ G/obus? LAGMULI 5. SIMI81555 SANNFÆRIST

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.