Morgunblaðið - 20.04.1978, Side 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR- 20. 'ÁPRÍL 1978
Skagfirzka söngsveitin á fyrstu samæfingunni í kirkju FíladelfiusafnaÖarins, en þar veröa tórdeikamir.
SkaKÍirzka söngsveitin situr
ekki auðum höndum um þessar
mundir. Kúrinn er að búa sig
undir flutning á kantötunni
Olivet to Calvary eftir brezka
tónskáldið James H. Maunder,
sem ekki hefur verið flutt á
tónleikum hér. En þetta er
stærsta verkefni, sem kórinn
hefur ráðizt f og í annað sinn
sem hann efnir til kirkjutón-
leika. í flutningi tekur verkið
kiukkutíma og tuttugu mi'nút-
ur.
Tónleikarnir eru fyrirhugaðir
í kirkju Fíladelfíusafnaðarins í
Hátúni 2 kl. 17 laugardaginn 22.
apríl og að kvöldi mánudagsins
24. apríl. Þar var kórinn á fyrstu
samæfingunni með einsöngvur-
um og orgelleikara, er frétta-
mann Mbl. bar að garði. Árni
Snæbjörg Snæbjamardóttir stjómar hluta af kómum og einsöngvurunum Margréti
Matthíasdóttur, Rut Magnússon, Hjálmtý Hjálmtýssyni, Friöbimi Geir Jónssyni og
Halldóri Vilhelmssyni, sem standa fremst.
urðu að hlaupa frá niður í
Þjóðleikhús til að syngja í
Leðurblökunni.
Stór hópur fólks þarf að sýna
mikinn áhuga til að æfa upp
slíkt verk og ekki eru kórfélagar
sínkir á tíma sinn. Æfingar
byrjuðu í haust og er æft tvisvar
sinnum í viku í félagsheimilinu
og oftar þegar dregur að hljóm-
leikum. Nú orðið 3—4 sinnum.
Hefur þetta verið aðalverkefni
kórsins í vetur, auk hefðbund-
inna verkefna, svo sem að
syngja hjá Skagfirðingafélaginu
og í sjúkrahúsum o.fl.
— Það er gaman að reyna
eitthvað nýtt, sem krefst meira
en við eigum að venjast, sagði
Gunnar Björnsson, formaður
kórsins. Hann sagði að fólkið
mætti ákaflega vel, miðað við að
það væri allt áhugafólk. Og
þegar spurt var hvort ekki væri
dýrt fyrirtæki að flytja slíkt
verk, tók Gunnar undir það.
Sagði að kórfélagar fjármögn-
uðu þetta sjálfir með einum eða
öðrum hætti, bæði með beinum
framlögum og ýmiss konar
skemmtunum, fyrir utan það
sem inn kæmi á tónleikunum.
Og hann tók fram, að þetta væri
ákaflega skemmtilegt viðfangs-
efni.
Rut Magnússon, sem er eins
og kunnugt er ensk að uppruna,
kvaðst hafa sungið verkið áður
heima hjá sér í kór þegar hún
var unglingur. Hún hafði aldrei
sungið með söngsveitinni fyrr,
en þætti ákaflega gaman að
taka þátt í flutningi verksins
með þessum áhugasama kór.
— Verkið Olivet to Calvary er
einfalt verk og ákaflega fallegt,
sagði hún. Það segir píslarsög-
una frá atburðunum í
Getsemanegarðinum og að
krossfestingunni.
I sama streng tók Snæbjörg
Snæbjarnardóttir, sem sagði að
verkið væri ákaflega fallegt og
Skagflrzka söngsvelt-
in með stórverkefni
Arinbjarnar leikur á orgel
kirkjunnar í þessu verki. Hann
hefur áður leikið með Skag-
firzku söngsveitinni, en reglu-
legur meðleikari kórsins hefur
frá upphafi verið Olafur Vignir
Albertsson.
Söngstjórinn, Snæbjörg Snæ-
bjarnardóttir, var að fara yfir
einsöngskafla með einsöngvur-
utium, er okkur bar að. Ein-
söngvararnir eru Rut Magnús-
son, Margrét Matthíasdóttir,
Hjálmtýr Hjálmtýsson, Frið-
björn Geir Jónsson, Hjálmar
Kjartansson og Halldór Vil-
helmsson. Síðan hófst æfing
með kórnum. Kórfélagar eru
sextíu og ekki auðhlaupið að því
að ná saman svo mörgu fólki á
samæfingu. í þetta sinn var hún
um kvöldmatarleytið og sumir
Hluti af Skagfirzku söngsveitinni á æfingu. Lengst til hægri erformaöur kórsins, Gunnar
Bjömsson.
melódískt. Olivet to Calvary
minni á látlausan og auðmjúkan
hátt á síðustu daga frelsarans á
jörðinni.
Snæbjörg fræddi okkur ofur-
lítið um höfundinn, J.H. Maund-
er, sem fæddist 1858 í London og
lézt árið 1920. Hann var organ-
isti og kórstjórnandi í ýmsum
kirkjum í nágrenni Lundúna-
borgar og var síðar ráðinn
kórþjálfari við Lyceum Theatre,
sem þótti mikil viðurkenning.
Af tónverkum hans eru þekkt-
astar kantöturnar Penitence,
Pardon and Piece og Olivet to
Calvary. Hefur Olivet to
Calvary notið mestrar hylli
áheyrenda og er mjög oft flutt,
bæði í Bretlandi og Kanada,
enda hugljúft verk, sagði Snæ-
björg að lokum.
Hluti kórsins á æfingu á kantötunni Olivet to Calvary.
Ámi Arinbjamar leikur á orgel kirkjunnar í verkinu
Olivet to Calvary. AÖ baki honum má greina Hjálmar
Kjartansson, sem er einn einsöngvaranna í verkinu.