Morgunblaðið - 20.04.1978, Síða 25
24
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. APRIL 1978
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. APRÍL 1978
25
Utgefandi hf. Árvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson.
Ritstjórar Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Ritstjórnarfuiltrúi Þorbjörn Guðmundsson.
Fróttastjóri Björn Jóhannsson.
Auglýsingastjóri Baidvin Jónsson
Ritstjórn og afgreiósla Aöalstræti 6, sími 10100.
Auglýsingar Aöalstræti 6, sími 22480.
Áskriftargjald 2000.00 kr. á mánuði innanlands.
í lausasölu 100 kr. eíntakíð.
Nú er sumar,
gledjist gumar,
gaman er í dag...
Idag er sumardagurinn
fyrsti. Það er gamall ís-
lenzkur siður að gefa mönnum
sumargjöf á þessum degi og
er það oftast vel þegið. Nú
hyggst stjórn Landsvirkjunar
sýna stórhug í verki og bjóða
fulltrúum eigenda Lands-
virkjunar, alþingismönnum
og borgarfulltrúum ásamt
mökum þeirra í svonefnda
skoðunarferð að Sigölduvirkj-
un og einnig kanna aðstæður,
þar sem Hrauneyjarfossvirkj-
un á að rísa, eins og segir í
fréttum. Þetta er hin bezta
sumargjöf og bráðnauðsynleg,
a.m.k. er kominn tími til að
makarnir líti dálítið í kring-
um sig og andi að sér tæru
fjallaloftinu með „fulltrúum
eigenda". Auk þess er ekki úr
vegi, að þeir segi álit sitt á
væntanlegum framkvæmdum
þar eystra. Þá er einnig í ráði
að snæða hádegisverð á virkj-
unarstað til þess að „fulltrúar
eigenda Landsvirkjunar" geti
áttað sig betur á aðstæðum,
en á heimleið verður áð í
Árnesi og haldið upp á sumar-
daginn fyrsta á viðeigandi
hátt. Að sjálfsögðu á starfs-
fólkið við Sigöldu að vera
utangátta áhorfendur.eins og
vera ber, þegar höfðingjar
sækja heim merka staði.
Starfsfólkið hefur mótmælt
þessu og haft ýmislegt að
athuga við veizluhöld
embættismanna og „fulltrúa
eigenda", enda ekki óskiljan-
legt, þegar það er haft í huga,
að þeir eru ekki síður fulltrú-
ar eigenda en hin fríða sveit
ráðamanna. Eða lítur stjórn
Landsvirkjunar svo á, að
starfsfólkið, sem þarna vinn-
ur, eigi einhverja minni aðild
aö þessum mannvirkjum en
ráðamenn? Ef svo er, þá er
það misskilningur og mikil
tímaskekkja. Starfsfólkið er
jafnmiklir „fulltrúar eigenda"
Landsvirkjunar og hvaða
maki sem er og eina leiðin til
að réttlæta þessa sumarferð í
óbyggðir hefði verið að bjóða
starfsfólkinu og mökum þess
að taka þátt í gleðinni og
leyfa því að gera sér einu
sinni dagamun á kostnað
fínheitanna.
Hitt væri þó nær að fara
enga slíka ferð og efna ekki til
neinnar veizlu, en fagna
sumri á annan og ódýrari
hátt. Svona tildurferðir, sem
að sögn kosta milljónir, eru í
hrópandi andstöðu við þann
tíma, sem við nú lifum. Stjórn
Landsvirkjunar verður, ásamt
öðrum fyrirmönnum þjóðar-
innar, að fara að gera sér
grein fyrir því, að við lifum
ekki á Viktoríutímanum. Ef
þessu héldi áfram færi fólk að
óska þess, að nýr Jörundur
hundadagakonungur tæki að
sér stjórnina á útskeri þessu
— a.m.k. um tíma. Starfsfólk-
ið eystra segist vitanlega
„mótmæla því harðlega að
standa undir kostnaði af
veizluhaldi sem þessu með
skattfé okkar" og mundu
ýmsir aðrir raunverulegir
eigendur Landsvirkjunar, þ.e.
ýmsir aðrir Islendingar, vilja
gera slíkt hið sama, enda hafa
þeir yfirleitt „nóg með að
vinna fyrir daglegu brauði".
Efnahagsvandi íslendinga
hefur verið með þeim hætti að
brýna nauðsyn hefur borið til
þess að skerða vísitölubætur
fólks og það er ekki ástæða til
að skerða laun þess frekar
með veizluhöldum í kóngastíl.
Ef Bokassa keisari væri alls-
ráðandi í Landsvirkjun, væri
þetta kannski ekki til um-
ræðu, en fyrst svo er ekki, er
ástæða til að benda á þessi
atriði, „fulltrúum eigenda“,
mökum þeirra og stjórn
Landsvirkjunar góðfúslega til
athugunar.
Hér verða engar sumargjaf-
ir gefnar, enda er það ritstjór-
um Morgunblaðsins efst í
huga, að sumarið verði gott og
gjöfult og án óþarfa útgjalda
á kostnað skattgreiðenda og
maka þeirra; og við getum
alveg verið án allra stórt
hundrað manna sumarferða á
vegum fínna fyrirtækja —
nema þá næsta ferð yrði í
Kröflu.
Það hefur hingað til þótt
nóg að gefa fólki silkiklút eða
eitthvert smáræði í sumar-
gjöf. Og ekki er það góður
íslenzkur siður að ganga fram
hjá þeim, sem helzt ætti að
bjóða til veizlu; allra sízt á
sumardaginn fyrsta. Vonandi
verður þetta síðasta sumar-
dagsferðin af þessu tagi.
Og eitt smáatriði í lokin:
hvernig væri nú að halda upp
á sumarkomuna með því að
afnema öll fríðindi „fulltrúa
eigenda" og láta t.a.m. ráð-
herra, bankastjóra og for-
stjóra opinberra fram-
kvæmdastofnana greiða sína
bíla fullu verði og reka þá
sjálfa — en borga þeim að
vísu laun, sem eru í samræmi
við mikla ábyrgð.
Með þá ósk í huga, að
einhverjum fyndist þetta
ómaksins vert, óskum við
landsmönnum öllum — og
ekki sízt „fulltrúum eigenda"
og mökum þeirra
GLEÐILEGS SUMARS.
SAMKVÆMT hinu nýja skatta-
lagafrumvarpi eru bændur skatt-
lagðir sem atvinnurekendur. í
frumvarpinu segir að launatekj-
ur þeirra, er landbúnað stunda,
skulu miðast við launaþátt í
verðlagsgrundvelli landbúnaðar-
afurða, þó að teknu tilliti til
aðstæðna hverju sinni, svo sem ef
bóndi nær ekki heildartekjum
SAMKVÆMT hinu nýja
skattalagafrumvarpi verða
starfsmenn utanríkisþjón-
ustunnar, sem starfa er-
lendis, skattskyldir sem
aðrir þegnar þessa þjóð-
félags. Þetta er breyting,
þar sem starfsmennirnir
hafa hingað til verið skatt-
frjálsir af öllum embættis-
launum sínum, en skatt-
skyldir af öðrum tekjum.
Þær hafa hins vegar oftast
lent í lægst skattþrepi og
hafa starfsmenn utanríkis-
þjónustunnar því almennt
ekki greitt neina skatta.
grundvallarbúsins vegna afurða-
verðs, árferðis eða annarra atriða
cr máli skipta að mati ríkisskatt-
stjóra.
Ef svo tekjuafgangur er af
búinu, er launatekjur hafa verið
dregnar frá, tekjur bóndans, tekj-
ur maka hans og barna, skiptist
hann milli hjónanna í samræmi
við vinnuframlag þeirra til búsins.
í frumvarpinu er gert ráð
fyrir því að laun utánríkis-
starfsmanna skiptist í
tvennt, annars vegar föst
laun samkvæmt launaflokki
þess stéttarfélags, sem þeir
tilheyra, og af honum greiði
þeir skatt og hins vegar
staðaruppbót, sem er mishá
eftir því hvar í heiminum
þeir eru staðsettir. Er gert
ráð fyrir að staðaruppbótin
sé skattfrjáls.
Þetta er hið sama kerfi og
tekið hefur verið upp á
Norðurlöndum á undan-
förnum árum og Danir
Skattalagafrumvarpið
nýja, ef að lögum verður,
tekur gildi 1. janúar 1979
og kemur til framkvæmda
við álagningu skatta á
árinu 1980 vegna tekna á
árinu 1979 og eigna í lok
þess árs.
Þetta þýðir að skatta-
lagafrumvarpið verður
ekki notað við álagningu
skatta vegna launa þessa
árs, heldur hins næsta. Er
þetta í samræmi við það,
sem fjármálaráðherra,
Matthías Á. Mathiesen,
hefur lýst yfir, en hann
hefur lýst sig andvígan
því, að sett séu skattalög
sem virki aftur fyrir sig.
Yfirlýst er að menn eigi
að geta á árinu 1978 tekið
munu hafa tekið upp nú
nýlega.
Staðaruppbót starfs-
manna utanríkisþjónust-
unnar er ákveðin í upphafi
hvers árs og einnig heildar-
launapakki þeirra í erlendri
mynt. Breytist hann ekki
við gengisbreytingar, en
hins vegar miinu þessi
íslenzku laun, sem skatt-
skyld verða, miðast við
launaþrep viðkomandi í
launaskala BSRB eða BHM
eftir því sem við á hverju
sinni.
ákvarðanir í eigin málum
án þess að eiga á hættu að
þær séu þeim óhagkvæm-
ar verði skattalagabreyt-
ing. Þá vita menn einnig
með góðum fyrirvara við
hverju er að búast eftir 1.
janúar.
Réttindi til
stöðugra
tekna teljast
til eignar
í skattalagafrumvarp-
inu, þar sem fjallað er
um skattskyldar eignir
til eignaskatts, er
klausa, sem er óbreytt
frá síðustu og gildandi
skattalögum, sem hljóð-
ar svo. „Réttindi til
stöðugra tekna skal telja
til eignar eftir því end-
urgjaldi, sem hæfilegt
væri fyrir þau í lok
hvers árs. Skattstjóri
getur metið verð þessara
réttinda.“
Morgunblaðið spurðist
fyrir um það, hvað þessi
klausa þýddi og sam-
kvæmt upplýsingum Sig-
urbjörns Þorbjörnssonar
ríkisskattstjóra er hér
átt við réttindi til stöð-
ugra tekna, sem skipt
geta um eiganda, svo sem
einkaréttur, einkaleyfi,
hugverkaréttur seldur á
leigu, þannig að eigandi
eða sá er í hans stað
kemur fái umsamdar
fjárgreiðslur fyrir afnot-
in miðað við tiltekið
tímabil, framleiðslumagn
eða notkunareiningu.
Bóndi er eigin
atvinnurekandi
Frumvarpið tekur til
tekna ársins 1979
Skattfnðindi starfemanna
utanríkisþjónustu afnum-
in samkvæmt frumvarpinu
Tekjur og gjöld af sameign hjóna
leggjast á tekjuhærri makann
EINS og getið var í Morgunblaðinu í gær eiga skattþegnar þess kost að
velja sér 10% launafrádrátt í stað fjögurra frádráttarliða, sem eru iðgjöld
af lífeyri, iðgjöld til stéttarfélaga, vaxtagjöld, verðbætur, afföll og
gengistöp og einstakar gjafir til menningarmála. Velji annað hjóna
10%-regluna verða bæði að hlíta henni, þ.e.a.s. þau verða að velja sömu
frádráttarreglu.
í 30. grein frumvarpsins eru taldir upp mismunandi frádrættir í 5 liðum,
A, B, C, D og E. Liðir A, C og D eru persónubundnir og er ekki unnt að
færa þá milli hjóna. í lið A eru eftirtaldir frádrættir: skyldusparnaður,
fargjöld vegna ferða á vegum atvinnurekenda, útgjöld vegna móttekins
risnufjár, hlunninda af fæði, fatnaði, húsnæði o.fl., launatekjur
embættismanna sem starfa hjá alþjóðastofnunum, þar sem samningar
kveða á um skattfrelsi, endurgjald til annars aðila fyrir þjónustu, sem
skattfrjáls er samkvæmt sérlögum, og helmingur greiddra meðlaga með
barni innan 17 ára aldurs. Undir B-lið frádrátta falla: vaxtatekjur umfram
vaxtagjöld, verðbætur og afföll, vaxtatekjur barna innan 16 ára aldurs,
fenginn arður að hámarki 10% af nafnverði eða 250 þúsund fyrir einstakling
og 500 þúsund fyrir hjón, vaxtatekjur af stofnsjóðseign og fé, sem fært hefur
verið félagsmanni í félagi í stofnsjóði hans á árinu. I C-lið eru:
sjómannafrádráttur, fiskimannafrádráttur, námsfrádráttur og kostnaður
vegna stofnunar heimilis. í D-lið eru iðgjöld af lífeyri, iðgjöld til
stéttarfélaga, og í E-lið eru: vaxtagjöld, verðbætur, afföll og gengistöp og
einstakar gjafir til menningarmála.
Eins og sést af þessu eru það liðirnir D og E, sem falla niður, ef hjón
velja launafrádráttinn. Liðir A, C og D eru persónubundnir og geta ekki
færzt á milli hjóna, en liðir B og E, sem varða tekjur af sameiginlegum
eignum þeirra og útgjöld velna eigna þeirra, svo sem vaxtagjöld, eru með
þeirri kvöð að þeir fylgja alltaf þeim makanum, sem hærri hefur
launatekjurnar. Er þetta ákvæði sett inn í til þess að hjónin geti ekki leikið
það, að það sem lægri hefur launin, geti þar með komið tekjum af sameign
þeirra í lægra skattþrep.
Skemmdir
á Rauðanúp
TOGARINN Rauðinúpur frá Raufarhöfn var tekinn upp í slipp í Reykjavík í gær.
Kom í ljós eins og óttazt var, að miklar skemmdir eru á botni skipsins og mun
viðgerð taka langan tíma. Sjóþpróf vegna strands togarans fara fram í Reykjavík
á morgun.
Ljósm. Friðþjófur.
Hrólfur Sigurðs-
son hlaut fyrsta
Minningarsjóðsstyrk
Barböru Arnason
I GÆR. miðvikudaginn 19. aprfl,
var úthlutað í fyrsta sinn styrk
úr Minningarsjóði Barböru heit-
innar Árnason, hinnar ágætu og
fjölhæfu listakonu. Hrólfur Sig-
urðsson listmálari hlaut styrk-
innt var nafn hans dregið úr
nöfnum tuttugu umsækjenda.
Af þessu tilefni bauð sjóðs-
stjórnin blaðamönnum til fundar
svo og stjórn Félags íslenzkra
myndlistarmanna, en það er skil-
yrði að styrkþegi hafi fengið
inngöngu í FIM. Magnús Árnason,
listmálari, sagði að hann og Vífill
sonur þeirra Barböru hefðu stofn-
að sjóðinn sumarið 1976 eftir að
haldin hafði verið yfirlitssýning á
verkum Barböru á Kjarvalsstöð-
um. Var öllum ágóða þeirrar
sýningar varið til að mynda
sjóðinn og nam sjóðurinn við
stofnun einni milljón króna. Að
þessu sinni er nú veitt úr honum
300 þús krónur. Magnús sagði að
vonandi yrði það föst ver.ja að
veitt yrði úr sjóðnum á afmælis-
degi Barböru konu sinnar, sem
hefði verið 19. apríl. í sjóðsstjórn-
inni sitja nú þeir feðgar Magnús
og Vífill og frá FÍM er Hjörleifur
Sigurðsson.
Hrólfur Sigurðsson sagðist vera
mjög glaður yfir því að hafa fengið
þennan styrk. Hugsanlegt væri að
hann færi til útlanda fyrir féð, en
einnig gæti vel verið að hann
Rafmagns-
truflanir í
Borgarfirði
Hvanneyri 19. aprfl
RAFMAGN í Borgarfirði
sló út af hvað eftir annað á
föstudaginn.
Talið er að veður hafi
verið slíkt á Skarðsheiði,
þar sem byggðalínan liggur,
að línunum hafi slegið
saman. - Fréttaritari.
notaði peningana til að kaupa liti
og léreft og vonandi yrði þetta
honum til framdráttar sem lista-
manni.
Hrólfur nam hjá Nínu Tryggva-
dóttur og síðan í fjögur ár við
Listaakademíuna í Kaupmanna-
höfn. Hann hefur tekið þátt í
langflestum samsýningum FÍM
um árabil, og einnig haldið einka-
sýningar.
Magnús Árnason, listmálari, afhendir Hrófli Sigurðssyni styrk úr
Minningarsjóði Barböru Árnason.
Beðið eftir viðræðum í Nígeríu:
300 kr. innflutningstollur af
hver ju kílói af skreið?
„ÞAÐ eina sem hefur frétzt af
fulltrúum skreiðarseljenda í
Lagos, er að þeir bíða eftir að fá
viðtöl við fulltrúa nígerískra
stjórnvalda og hefur þeim verið
lofað viðtölum öðru hvoru megin
við helgina," sagði Hannes Ilall á
skrifstofu Samlags skreiðarfram-
leiðenda þegar Morgunblaðið
ræddi við hann í gær.
Þeir Bragi Eiríksson frá
Skreiðarsamlaginu, Bjarni
Magnússon frá Sameinuðum fram-
leiðendum og Magnús Friðgeirsson
frá Sambandinu eru nú staddir í
Lagos til að ræða við Nígeríumenn
um skreiðarkaup frá íslandi. Eins
og Morgunblaðið hefur áður skýrt
frá hafa nígerísk stjórnvöld í huga
að setja innflutningstolla á skreið,
en það hefur ekki verið gert enn,
en rætt hefur verið um að
tollurinn verði 30—35%.
Skilaverð á hvert kíló á skreið
var 700 kr. fyrir þorsk og keilu
þegar síðast var selt til Nígeríu, en
ef gengissig og gengislækkun
íslenzku krónunnar eru tekin með
í dæmið, ætti skilaverð að verða
kringum 1000 kr. á kíló nú. Ef hins
vegar innflutningstollurinn verður
ofan á hjá Nígeríumönnum, og að
hann verður 30—35% er ljóst að
allt að 300 kr. eiga að greiðast í
tolla af hverju kílói.
Hannes Hall hjá Skreiðarsam-
laginu sagði að það væri ljóst að
íslenzkir skreiðarframleiðendur
gætu ekki staðið undir svo háum
innflutningstollum. Hins vegar
væri ekkert hægt að segja um
þessi mál, þar sem stjórnvöld í
Nígeríu hefðu engar ákvarðanir
tekið enn að því er virtist.
Kanadískur skákmaður
krefst heimsmeist-
aratitilsins í fjöltefli
KANADÍSKUR skákmaður,
Branimir Brebrich, hefur krafizt
viðurkenningar sem heimsmethafi
í fjöltefli í stað Vlastimil Horts,
sem setti fjölteflisheimsmet sitt
hér á landi í fyrra.
„Mér sýnist af þeim fréttum, sem
ég hef, að þetta fjöltefli Kanada-
mannsins sé alls ekki sambærilegt
við fjöltefli Horts," sagði Jóhann
Þórir Jónsson, útgefandi Tímarits-
ins Skákar í samtali við Mbl. í gær.
„Branimir Brebrich hefur 2081
Elo-skákstig, sem þýðir að hann er
ekki meðal sterkustu skákmanna.
Fjöltefli hans fór fram dagana 27.
og 28. janúar sl. og tefldi hann við
30 andstæðinga í einu, alls 575
skákir, og mér sýnist að hann hafi
i hæsta lagi teflt við um 200 manns,
þannig að hann hefur teflt allt upp
í margar skákir við suma.
Af þessum skákum vann hann
533, gerði 27 jafntefli og tapaði 15,
sem er um 95% árangur. Þá virðist
mér einnig sem hann hafi teflt við
mjög slaka andstæðinga, því í
skákblaði því sem ég hef undir
höndum er þess sérstaklega getið,
að sterkari skákmenn hafi sýnt
honum þá tillitssemi að taka ekki
þátt í fjölteflinu."
Þegar Hort setti heimsmet sitt í
Valhúsaskóla á Seltjarnarnesi
tefldi hann við 201 andstæðing í
einu, 550 í allt og lauk fjölteflinu á
24 klukkustundum og 25 mínútum.
Hort vann 477 skákir, gerði 63
jafntefli og tapaði 10, þannig að
heildarvinningshlutfall hans var
92,4%. Meðal andstæðinga Horts í
fjölteflinu voru margir þekktir
skákmenn, þar á meðal meistara-
flokksmenn og landsliðsflokks-
menn.