Morgunblaðið - 20.04.1978, Qupperneq 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. APRIL 1978
Elín Pálmadóttir:
Vidfangsefni í garðyrkju
og skógrækt eru ómet-
anleg fyrir ungt fólk
Adda Bára Sigfúsdóttir (Abl)
lagði fram tillögu á síðasta fundi
borgarstjórnar þar sem segir m.a.;
„borgarstjórn telur tímabaert að
leggja gangstétt, sem einnig mætti
ætla hjólreiðamönnum norðan
Suðurlandsbrautar, en þar væri
sýndur göngu- og hjólreiðastígur á
korti sem fylgdi framkvæmda-
áætlun um umhverfi og útivist
1974-1977.“ „Þá verði frcstað
framkvæmdum við stíga frá Ægis-
síðu um Fossvogsdal vegna þess,
að stígarnir ættu að liggja undir
flugbraut og yrðu þau göng
vafalaust æði dýr“. „í staðinn
verði lagður hljólreiða- og gang-
stígur austan flugvallar til Naut-
hólsvíkur eins og sýnt væri á
umræddu korti". „Þá leggi borgar-
stjórn áherzlu á að hraða verkefn-
um sem auðveldað gætu blindum
og öðru fötluðu fólki að njóta
útivistarsvæða og ferðast um
borgina samanber áður
framkomna tillögu í borgar-
stjórn." „Teknar verði upp
áætlunarferðir í Heiðmörk að
sumri til svo sem áður hefur verið
rætt í borgarstjórn." Adda Bára
sagðist vilja gera hættulausa leið
suður í Nauthólsvík og gæti slíkt
verið gott verkefni fyrir vinnu-
skóla borgarinnar. Loka ætti
gamla flugvallarveginum sunnan
Laufásvegar að Loftleiðahóteli,
gera þar gangbraut yfir og síðan
göngustíg suður úr. Við Suður-
landsbraut þyrfti að lagfæra
göngustíg því nú væri sökkvandi
for meðfram götunni.
Borgarstjóri Birgir ísleifur
Gunnarsson (S) tók næstur til
máls og sagði, að við afgreiðslu
hverrar fjárhagsáætlunar hefði
verið tekin ákvörðun um að veita
fé í einstaka liði. Þess vegna hefðu
borgarfulltrúar átt að geta fylgst
með þegar framkvæmdaáætlun
hafi legið frammi. Samanborið við
samþykkt, sem gerð hefði verið
vorið 1974 í borgarstjórn væri ekki
hægt að segja annað en þegar yfir
heildina væri litið hefði vel tekist
til í útivistarmálum.
Á þessum árum fram að síðustu
áramótum hefði verið unnið fyrir
970 milljónir við málaflokkinn
umhverfi og útivist. Birgir Isleifur
svæðanna, ræktun og fegrun
borgarinnar og gerð göngu- og
hljólreiðastíga. Ef skoðað væri
hvernig þeim verkefnum á sviði
ræktunar og fegrunar hefði vegn-
að sem þá voru nefnd í fram-
kvæmdaáætlun kæmi eftirfarandi
í ljós; lokið væri flestum þeim
verkefnum sem þarna eru sett
fram sem forgangsverkefni, önnur
væru vel á veg komin og sum hver
hefðu verið viðameiri en upphaf-
lega var áætlað. Ennfremur hafi
staðið yfir framkvæmdir á svæð-
um er ekki var reiknáð með í þeirri
áætlun sem gerð var um umhverfi
og útivist 1974. Mætti þar nefna
lóð Blindraheimilisins við Hamra-
hlið, Skrúðgarð við Grundargerði
og þrjá grenndarvelli í Fellahverfi
í Breiðholti. Þá hefur verið eins og
ráð var fyrir gert lokið við
gangstéttargerð í íbúðarhverfum
og grasreimar gerðar á öllum þeim
stöðum, sem endanlega hefur verið
gengið frá götum. Á nokkrum
Birgir (sleifur Gunnarsson
_ *
Birgir Isleifur Gunnarsson borgarstjóri:
Nauðsýnlegt er að sýna hugul-
semi til að gera blindu og fötluðu
fólki auðveldara að komast leið-
ar sinnar, ekki sízt að því er
varðar mannvirkjagerð
Islenzkt
tónverk
á ISCM-
hátíðinni
Á IIINNI árlegu tónlistarhátið
ISCM. International Society for
Contemtorary Music, sem haldin
verður í Stokkhólmi og Helsinki
dagana 6.—14. maí n.k. verður
flutt íslenzkt tónverk, Guépardes
impuissantes eftir Eli'as Daviðs-
son.
Verk þetta hefur ekki verið flutt
hér á landi, en oft erlendis. Það er
hópur sænskra listamanna frá
tónlistarfélaginu Fylkingen í
Stokkhólmi sem flytja mun verkið.
sagði rétt að endurskoða tillögu
um gangstíg undir flugbrautina þá
mætti og huga að gerð gangstígs
frá Loftleiðahóteli í Nauthólsvík.
Hins vegar bæri að geta þess, að
gangstígar væru ekki ódýrar
framkvæmdir og kvaðst hann ekki
reiðubúinn að skera af hér og nú
annars staðar til að veita fé í
gangstíga. Varðandi gamla flug-
vallarveginn væri það að segja, að
þar hefði verið máluð sérstök lína
sem afmarkaði vel göngustíg fyrir
fólk og meira segja eftir undan-
genginn vetur stæði nokkuð af
línunni enn. Varðandi blinda vildi
hann segja, að nauðsynlegt væri
að sýna hugulsemi til að gera
blindu og fötluðu fólki auðveldara
að komast leiðar sinnar m.a. í
mannvirkjagerð. Að öllu þessu
athuguðu legði hann til, að málinu
yrði vísað til borgarráðs.
Elín Pálmadóttir (S) tók næst
til máls og sagði, að heildaráætlun
sem gerð hefði verið 1974 í febrúar
segði, að hún skyldi vera stefnu-
markandi um nýtingu útivistar-
stöðum vantar frágang við aðal-
brautir, á gangstéttum. Fram-
kvæmdir hljólreiðastíga og fleira
þess háttar hafi hins vegar
dregist.
Varðandi gangstíga upp í Heið-
mörk væri það að segja, að gert
hefði verið ráð fyrir að gerð þeirra
fylgdi lagningu aðalæðar Vatns-
veitu, sem nú væri unnið að og við
lok þess verks myndi opnast leið
milli Elliðaársvæðisins og Heið-
merkur. Vegna þáttar æskufólks í
verkefnum borgarinnar á sviði
umhverfis og útivistar þá væri
þetta ómetanlegt viðfangsefni
fyrir unga fólkið svo sem upp-
græðslan í Hólmsheiði. Elín
Pálmadóttir sagði ágætt, að tiilag-
an fengi nánari umfjöllun en hún
vildi leggja áherzlu á, að upp-
græðsla lands yrði látin ganga
fyrir. Adda Bára Sigfúrsdóttir
kvaðst fallast á, að tillögunni yrði
vísað til borgarráðs og var það
samþykkt.
Reglur um
veitingastaði
til umræðu
Á síðasta fundi borgarstjórnar
bar Björgvin Guðmundsson fram
eftirfarandi fyrirspurni „Borgar-
ráð skipaði vorið 1977 nefnd til
þess að fjalla um gildandi reglur
um veitingastaði og hugsanlegar
breytingar á 4)eim. Hvað líður
störfum þessarar nefndar?"
Magnús L. Sveinsson svaraði
fyrirspurninni og sagði, að komið
hefðu fram tillögur varðandi þetta
frá borgarlæknisembættinu. Fram
hefði einnig komið, að nauðsynlegt
væri að kanna málið mjög náið
áður en farið yrði út í breytingar.
Magnús sagði tillögur ekki hafa
borist frá veitinga- og gistihúsa-
eigendum vegna óviðráðanlegra
ástæðna. Magnús L. Sveinsson
sagðist vilja leggja áherzlu á, að
heildarendurskoðun á veitingalög-
gjöfinni yrði flýtt. Á undanförnum
árum hefðu risið upp veitingastað-
ir með létta rétti og komið hefðu
fram kvartanir um, að of strangar
kröfur væru gerðar til þeirra en
þessir staðir væru ekki í sama
gæðaflokki og beztu matsölustaðir
borgarinnar. Við breytingu á
lögunum þyrfti að taka mið af
þessari eðlilegu þróun og finna
millistig milli dýrra fyrsta flokks
staða og annarra sem ekki þyrfti
að gera jafnmiklar kröfur til. Árið
1964 hefði verið sett reglugerð um
gisti- og veitingastaði samkvæmt
lögum frá 1963. Þá þegar hefði
heilbrigðismálaráð Reykjavíkur
haft ýmislegt við þessa reglugerð
að athuga og hafi margítrekað
beiðni til samgönguráðuneytisins
um endurskoðun reglugerðarinn-
ar. Engu af þessum erindum hafi
verið sinnt. Þetta sannaði því, að
ekki væri auðvelt að fá breytingar
fram og því eins gott að vinna
tillögurnar svo vel, að ekki þyrfti
að gera ráð fyrir breytingum á
löggjöfinni fljótlega eftir setningu
hennar.
Frá
borgarstjórn
Ragnar Júlíusson formaður útgerðarráðs:
Er hægt ad fa hagkvæm-
ari skip fyrir BÚR?
Samsöngur karla-
kóra á Akranesi
Akranesi. 18. aprfl.
LAUGARDAGINN 15. aprfl s.l.
var samsöngur kariakóranna frá
Keflavík, Selfossi og Svana frá
Akranesi f íþróttahöllinni hér í
bænum. Kórarnir sungu hver í
sínu lagi og einnig allir saman og
var söngskráin mjög fjölbreytt.
íöngstjórar kóranna voru Sigur
óli Geirsson hjá Keflavíkurkórn-
um, Ásgeir Sigurðsson hjá Sel-
fosskórnum og Jón Karl Einars-
son hjá Svönum. Undirleikarar
voru Ragnheiður Skúladóttir á
píanó, Njáll Sigurjónsson á kon-
sertbas! a, Ágúst Ármann bor
láksson á harmoniku og Agnes
Löve á pi'anó. Raddþjálfarar voru
Guðmunda Elíasdóttir og Guð-
mundur Guðjónsson.
f fþróttahöliinni var ágætur
hijómburður og var hún þéttskip-
uð fagnandi áheyrendum.
Ólafur F. Sigurðsson, sem hefur
sungið í Svönum í s.l. 40 ár við
góðan orðstír var gerður að
heiðursfélaga kórsins á 75 ára
afmæli Ólafs hinn 23. marz s.l. Þá
kom kórinn í heimsókn til Ólafs og
söng við hús hans.
—Júlíus.
Eins og kunnugt er af fréttum
var fyrir skömmu rætt um sölu á
stóru skuttogurum BÚR og kaup
á minni gerðinni í staðinn. A
fundi borgarráðs 21. marz lét
Björgvin Guðmundsson bóka, að
hann teldi ekki koma til greina
að selja alla stóru togara BÚR
því togaraflotinn ætti að ,vera
samsettur af stórum og smáum
skipum. Hins vegar taldi Björgv-
in, að athuga mætti sölu á hluta
stóru togaranna og kaupa smærri
togara f staðinn.
Á fundi borgarstjórnar 6. apríl
gerði Björgvin Guðmundsson mál
þetta. að umtalsefni. Þar vitnaði
hann m.a. í tillögu sem hann flutti
í borgarráði 28. marz sem hljóðar
svo: „Borgarráð heimilar BÚR að
selja einn af Spánartogurunum ef
viðunandi verð fæst, enda verði
tveir notaðir skuttogarar af minni
gerðinni keyptir í staðinn."
Björgvin sagðist vilja vekja at-
hygli á því, að menn hefðu slæma
reynslu af því að taka gildar
yfirlýsingar meirihluta útgerðar-
ráðs um að ný skip yrðu keypt í
•stað eldri skipa, sem seld væru.
Þetta kom m.a. fram í ræðu
Björgvins svo og bókun hans í
borgarráði. Hann sagði, að helztu
rök fyrir sölu umræddra skipa
væru óhagkvæmur rekstur. Hins
vegar lægi ljóst fyrir að annars
staðar á landinu hefði rekstur
skuttogara af stærri gerðinni
sums staðar gengið með ágætum.
Nú mætti vænta að umræddir
togarar myndu seljast fyrir
900—1000 milljónir. Hins vegar
hefði tilboð í togara numið um 600
milljónum króna. Augljóst mætti
því vera, að fráleitt væri að selja
togarana við slíkar aðstæður
vegna þess þá myndi borgin þurfa
að gefa hundruð milljóna með
þeim. Hann sagðist telja koma til
greina að selja einn togara en væri
hins vegar algerlega á móti sölu
allra stóru togara útgerðarinnar.
Ragnar Júlíusson (S) formaður
útgerðarráðs tók næst til máls og
gat þess í upphafi, að engin
formleg ákvörðun hefði verið tekin
um sölu á togurunum. Hins vegar
væri svo, að ósk um að selja þrjá
Spánartogara og kaupa fjóra af
minni gerðinni væri til komin
vegna þess hve útgerðarkostnaður
þeirra stærri er ógurlegur miðað
við minni skipin, sem þó kæmu
með svipað aflaverðmæti að landi.
Sannleikurinn væri sá, að stóru
togararnir eyddu olíu fyrir
125.500.- kr. meira á dag en
Hjörleifur.
Ragnar Júlíusson sagði, að
þegar á þessar tölur væri litið
mætti það vissulega teljast
ábyrgðarhluti að draga það að
kanna hvort ekki fengist hag-
kvæmari skip í rekstri en þessi.
Rétt er að geta þess, að tillaga
Björgvins Guðmundssonar fékk
ekki stuðning í borgarráði. Á
umræddum fundi borgarráðs lét
Kristján Benediktsson (F) bóka, að
ekkert væri athugavert við að gera
verðkönnun í stóru togara BÚR
því í slíku fælist engin ákvörðun
um sölu eða skipti í minni togara.