Morgunblaðið - 20.04.1978, Page 44

Morgunblaðið - 20.04.1978, Page 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. APRÍL 1978 VtK> /C.V MORöUN- K'AFf/NO * 1 pi -r 4ö- ••rO Reyndu þetta. vinur, það nota þeir í lúðrasveitunum! Ólæsiicgi kaflinn í bréfinu til hennar systur minnar, þótti mér beztur! \ ' 525 v r * "*■ Djw. - N Ég vissi ekki að hjúskaparvott- orðið gæti fallið úr gildi? Því sagði mér enginn að þessi hurð væri læst! Verðhækkanir og gengislækkanir BRIDGE Umsjón: Páll Bergsson Fleiri bækur hafa verið skrifað- ar um bridge en nokkurn annan leik að skákinni undanskilinni. Því mætti halda, að skráðar hafi verið allar hugsanlegar stöður og spila- aðferðir. En svo er nú ekki. Varla líður svo ár að ekki komi fram nokkrar nýungar. Og hér er ein. Norður S. ÁK875 H. KD1097 T. 6 L. 42 Á dögunum barst Velvakanda fyrirspurn frá manni ér vildi nefna sig Þorgeir og fjallaði hún um verðlagsmál. Fer fyrirspurn hans hér á eftir og síðan fylgir svar frá skrifstofu verðlagsstjóra: „Verðlagsmál. Ég þykist hafa veitt því athygli, að suinar bóka- búðir, sem selja erlendar bækur, hafa eftir gengislækkun hækkað verð á eldri birgðum til samræmis við hið nýja gengi. Þetta gildir aðallega um þær bókabúðir, sem ekki hafa verðmerkt erlendar bækur í íslenskum krónum. Hið sama gildir um ýmsar hljómplötu- verslanir og e.t.v. eru fleiri tegundir verslana undir sömu sök seldar í einhverju formi. Nú langar mig að biðja blaðið um að afla um það upplýsinga hjá verðlagsstjóra hvort framan- greind háttsemi í álagningu sé heimil? Og hvað gerir verðlags- stjóri til að koma í veg fyrir þennan verslunarmáta? Það er nefnilega útilokað að þessi álagn- ingaraðferð fái staðist sem almenn regla. Ef þetta er óheimilt, er um ólögmætan hagnað að ræða er skiptir tugum milljóna hjá hverju fyrirtæki, svo hátt er verðlag nú orðið á erl. bókum, hljómplötum og kassettum. Ef þetta er látið viðgangast, er jafnframt verið að. refsa þeim heiðarlegu bóksölum, sem verðmerkja vöru sína, en þeir ættu frekar skilið hrós en að keppinautar þeirra séu verðlaun- aðir fyrir slælegri þjónustu og að öllum líkindum ólögmæta álagn- ingu. Þorgeir.“ Velvakandi hafði samband við skrifstofu verðlagsstjóra og fékk þar eftirfarandi svar: • Álagning frjáls „Vegna fyrirspurnar sem beint er til Verðlagsskrifstofunnar vegna meintrar hækkunar á birgð- um af erlendum bókum og hljóm- plötum í kjölfar gengislækkunar- innar á dögunum, vill skrifstofan taka fram eftirfarandi: 1. Álagning á bókum og hljóm- plötum hefur verið frjáls um langt árabil. Vestur S. DG63 H. 84 T. ÁD4 L. G976 Austur S. 109 H. G32 T. 987532 L. 85 Suður S. 42 H. Á65 T. KG10 L. ÁKD103 Vestur doblaði lokasögnina, sex grönd spiluð í suður, og spilaði út hjartaáttu, tíu, gosa og ás. Sagn- hafi gat talið tíu slagi beint. Dobl vesturs staðsetti á hendi hans tígul ÁD og hann hlaut einnig að stöðva báða svörtu litina. Sagnhafi tók hjartaslagina en ekki var sama hvað spil hann lét af hendinni. Hann fann furðulega lausn á vandanum. Lét spaðana tvo og rauf með því samband sitt við blindan. En vestur átti eftir að láta í fimmta hjartað og var í vanda staddur. Hann átti á hendi þrjá spaða, laufin fjögur og tígul ÁD. Ekki kom til greina að láta spaða og lauf gæfi sagnhafa þar fimm slagi. Hann vár því neyddur til að láta tíguldrottninguna. En hann fékk þá næsta slag á tígulás og var þar með dauðadæmdur. Átti að- eins spaða og lauf og sama var hvoru hann spilaði. Unnið spil. Gerum ráð fyrir, að sagnhafi láti spaða og lauf í hjörtun. Vestur gæti þá haldið tígulháspilunum og látið lauf í síðasta hjartaslaginn. Sagnhafi tæki þá laufslagina en vestur réð við hann. Léti tígul- drottningu í síðasta laufið og aðeins ellefu slagir væru fáanlegir. Að vísu fellir spaðaútspil í byrjun spilið. En þá hefði Ika skemmtileg lokastaða dáið í fæð- ingu. MAÐURINN A BEKKNUM Framhaldssaya eftir Georges Simenon Jóhanna Kristjónsdóttir íslenzkaói 2 4 hefði lokið dagsverkinu eins og venjuiega. Konu hans hafði ekki grunað neitt. Né heldur dóttur hans. mágkonurnar né svilana. sem báðir störfuðu við járnbraut- irnar. Allt benti til þess að engan hefði grunað neitt. Og loks skýtur honum svo upp kollinum í Rue de Clingan- eourt með peningana sem hann skuldaði fröken Leonc ásamt með gjöf til hennar og smáveg- is sælgæti handa aldraðri móð- ur hennar. Og var þá klæddur í brúna skó! Var það vegna þessa að Maigrct hafði fengið áhuga á manninum? Hann vildi ekki viðurkenna fyrir sjálfum sér að svo væri. En þó hafði hann sjálfan árum saman dreymt um að eiga skó í þessum lit. Þeir höfðu verið í tízku í dcn tíð. Skömmu eftir að hann gift sig hafði hann ákveðið að kaupa sér ljósbrúna skó og hann var miður sín af feimni þegar hann mjakaði sér inn í skóbúðina. Hann hafði ckki vogað sér að fara í þá 5g þegar hann tók þá upp úr kassanum hafði kona hans rekið upp skellihláturt — Þú ætlar vonandi ekki að fara í þessa skó? Reyndin hafði orðið sú að hann fór aldrei í skóna. Síðar hafði kona hans skilað þeim og sagt þcir væru of þröngir. Louis Thouret hafði einnig keypt sér Ijósbrúna skó og í augum Maigret var það mikils- háttar merki. í fyrsta lagi var það tákn um ákveðið frelsi sem hann tók sér. Þegar hann var með þessa makalausu skó á fótunum hlaut hann að hafa innra með sér einhverja alveg sérstaka til- finningu um að hann væri frjáls og sjálfstæður maður sem léti cngan segja sér fyrir verkum hvorki til eins né neins. Það þýddi einnig að fram til þess augnabliks að hann setti aftur svörtu skóna á fæturna hafði hvorki kona hans, mág- konur eða svilar nokkuð yfir honum að scgja. Þetta hafði einnig aðra merk- ingu. Daginn sem Maigret hafði keypt skóna sína hafði fulltrúinn í hverfinu, þar sem hann starfaði þá. tilkynnt honum. að hann myndi fá tiu franka kauphækkun. Louis Thourct hafði einnig átt pcninga. Hann hafði gefið gamla bókhaldaranum pípu og endurborgað skuld sína og geíið vinum sínum gjafir. Nú gat hann aftur farið að venja komur sínar til þeirra og spjallað við þá, fyrst og íremst til fröken Leone. Hvers vegna spurðu þau hann aldrei um hvað hann hefði fyrir stafni? Af tilviljum hafði húsvörður- inn komið auga á hann að morgni dags, um ellefu-Ieytið hvar hann sat á bekk á Boulcvard Saint Martin. Hún hafði ekki talað við hann og hafði tekið á sig krók til að hann kæmi ekki auga á hana. Maigret gat vel skilið hana. Henni hafði hrugðið að sjá hann sitja þarna eins og iðju- og auðnuleysingja. Mann á borð við hr. Louis, sem alla sfna ævi hafði unnið tíu tíma á sólarhring og allt í einu sat hann þarna á bekk um hábjart- an dag mcðan allir ærlcgir menn voru við störf! Ekki að það væri að kvöldlagi! Eða um helgi! Saimbron hafði einnig hitt sinn gamla starfsfélaga á bekk nýlega. Það hafði verið á Boulevard Bonne Novelle, steinsnar frá Bouievard Saint Martin og Rue de Bondy. Saimbron hafði ekki orðið jafn mikið um þetta. Þeir höfðu hitzt síðdegis og auðvitað gat vel vcrið að það hefði vcrið Thouret sem hefði séð hann á undan. Var Thouret þá að fara á stefnumót við einhvern? Og hver var maðurinn sem hafði

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.