Morgunblaðið - 20.04.1978, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. APRÍL 1978
45
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
0100 KL. 10—11
2. Ákveðnar reglur gilda um
heimildir til þess að hækka
vörubirgðir í kjölfar gengisfell-
inga, og til þess að hægt sé að
svara fyrirspyrjanda verður því að
kanna þetta mál sérstaklega.
3. Um leið og Verðlagsskrifstofan
þakkar ábendinguna tekur hún
það fram, að umrætt mál er nú
þegar í athugun."
Velvakandi þakkar verðlags-
stjóra svarið og vonar að það hafi
orðið fyrirspyrjanda nokkur upp-
lýsing. Þá er hér næst fjallað
nokkuð um fyrirbæri ef nefnist
• Fyrirburðafræði
„Til Velvakanda.
Það er algeng skoðun að A.
Einstein og S. Freud hafi verið á
móti því sem nefnt er fyrirburða-
fræði (parapsychology), en það er
nú mikill misskilningur eins og
m.a. eftirfarandi saga sýnir:
Árið 1915 var A. Einstein í
Vínarborg og hafði fundið mikið
miðilsefni, þar sem var ungur
maður frá Póllandi að nafni W.
Messing. Lét Einstein Messing
koma heim til sín samtímis því
sem Freud kom þar, í því skyni að
sanna hinum síðarnefnda hæfi-
leika unga mannsins. Freud vék til
hliðar og skipaði í huganum unga
manninum að reyta þrjú hár úr
yfirskeggi Einsteins með töng,
sem lá inni í baðherbergi. Ungi
maðurinn varð hálfvandræðaleg-
ur, en sagði þó við Einstein um leið
og hann kom með tengurnar: „Ég
verð að fá að reyta þrjú hár úr
yfirskeggi yðar.“ Trúr og dyggur
málstað vísindanna lét Einstein
þetta eftir honum, enda gat hann
með þessu sannað Freud hæfileika
piltsins. — En það að Einstein gat
aldrei komið þessum hæfileikum
saman við kenningu sína er önnur
saga, sem gerðist á öðrum vett-
vangi.
W. Messing mun vera enn á lífi
í Moskvu, 78 ára gamall, og á að
baki sér sögulegan feril. Það er
haft eftir honum að hann geti gert
óáreiðanlegan mann gagnheiðar-
legan með dáleiðsluáhrifum — en
það standi þó aðeins í þrjár
mínútur. Hversu heiðarlegur W.
Messing er yfirleitt, skal ég ekki
fullyrða neitt um, en fáir munu
verða til að rengja hæfileika hans.
borsteinn Guðjónsson.“
Þessir hringdu . . .
• Aðstoð
við aldraða
Guðrún.
— Sem kunnugt er býr margt
gamalt fólk í sínu eigin húsnæði og
nú er rekin t.d. á vegum félags-
málastofnunar Reykjavíkur sér-
stök heimilishjálp við aldraða.
Felst hún í því að starfsfólk
þessarar þjónustu vitjar gamla
fólksins, þrífur fyrir það og fer ef
til vill í búðir og aðstoðar á ýmsan
hátt.
Mig langar að varpa fram einni
hugmynd, sem ég held að sé
nokkuð athugandi, en það er að
einhver aðili taki að sér að veita
gömlu fólki aðstoð við viðhald á
húseignum sínum. Oft þurfa þess-
ar húseignir mikið viðhald sem er
erfitt í framkvæmd og ef þær
drabbast niður vegna viðhalds-
leysis þá geta þær orðið fyrir
barðinu á skemmdarvörgum. Væri
ekki hægt að virkja starfskrafta
æskulýðsráðs eða annarra slíkra
aðila til að koma hér til sögunnar
og væri það ekki verðugt verkefni
fyrir unglinga eða aðra innan t.d.
SKÁK
Umsjón:
Margeir Pétursson
Á alþjóðlega skákmótinu í Lone
Pine í Bandaríkjunum, sem lauk
fyrir stuttu, kom þessi staða upp
í skák þeirra Balinas, Filippseyj-
um, sem hafði hvítt og átti leik, og
P. Whiteheads, Bandaríkjunum.
14. b4! - Bxb4,15. Rd5 - Bxd2.
(Skárra var 15... exd5, þó að
hvítur hafi vinningsstöðu eftir 16.
Dxb4 - Re5, 17. Bxe5 - dxe5, 18.
exd5) 16. Rxc7+ og svartur gafst
upp, því að hann verður óum-
flýjanlega heilum hrók undir.
æskulýðsráðs og slíkra félagahópa
að taka að sér að huga að þessu
verkefni.
Mér finnst það vissulega verðugt
verkefni að sinna þessu gamla
fólki okkar á einhvern hátt, það er
'um margt ósjálfbjarga þótt ekki
beri mikið á því og er áreiðanlega
mikil þörf á að svona aðstoð sé
fyrir hendi.
HÖGNI HREKKVÍSI
Við hefðum gaman af því að þú kæmir með hundinn þinn!
0r
mCt\\
Umboðsmenn um land allt.
HANSPETERSENHF
BANKASTRÆTI GLÆSIBÆR AUSTURVER
S: 20313 S: 82S90 S: 36161
r Eigum >
fyrirliggjandi
hina viöurkenndu
Fagertum gólfdúka
s, frá Noregi.
GÓLFDÚKAR
FRIÐRIK BERTELSEN,
LÁGMÚLA 7, SÍMI 86266
Hagstætt verð.