Morgunblaðið - 20.04.1978, Side 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. APRIL 1978
VALUR er Islandsmeistari í handknattleik árið 1978. Eítir einn æsilegasta leik í handknattleik, sem farið hefur fram á fjölum Laugardalshallarinnar,
vann Valur 14«13 sigur á Víkingum. Þar með náði Valur 20 stigum í þessu íslandsmóti og íslandsbikarinn verður því í eitt ár enn á Hliðarenda
Það þarí ekki að hafa mörg orð
um það hve mikil gleði var meðal
Valsmanna að leiknum loknum.
Liðið hafði byrjað íslandsmótið
illa og í rauninni var búið að
afskrifa liðið í haráttunni um
titilinn þegar siðari umferðin
byrjaði. En Valsmenn klifu bratt-
ann jafnt og þétt á sama tíma,
sem Víkingar misstu dýrmæt stig
í mörgum leikjum. í gærkvöldi
nægði Víkingum jafntefli, en
Valur þurfti sigur. Það gekk þó
ekki átakalaust, en iítum á gang
mála síðustu mínútur leiksins.
Valur var yfir 11:6 rétt fyrir
miðjan seinni hálfleikinn, fimm
marka munur og sigurin blasti við
liðinu að því er virtist. En það voru
miklar sveiflur í þessum leik allan
tímann. Víkingar náðu upp mikilli
baráttu, skoruðu þrjú mörk á jafn
mörgum mínútum. Allt gat gerzt
í leiknum og er hér var komið sögu
þoldu Valsmenn greinilega illa
spennuna og það að vera yfir i
leiknum.
Þó svo að Olafi Einarssyni væri
vikið af leikvelli tókst Víkingum
að jafna og staðan var 12:12 þegar
8 mínútur voru eftir. Jón H.
Karlsson fyrirliði Vals hafði verið
utan vallar um tíma og er hann
kom inn á að nýju breyttist leikur
Vals á ný til hins betra. Þó svo að
Jón væri eltur hafði hann greini-
lega góð áhrif á sína menn. Valur
komst yfir 13:12, en Björgvin
Björgvinsson jafnaði 13:13. Þá
voru tvær mínútur eftir og
Magnúsi Guðmundssyni, Víkingi,
var vikið af velli.
Þar má segja að úrslit hafi
ráðist í leiknum. Að vísu mis-
heppnaðist næsta sóknarlota hjá
Val og Víkingar fengu knöttinn.
Þeir höfðu aðeins leikið með
knöttinn í um hálfa mínútu er Páll
Björgvinsson, sá leikreyndi maður,
reyndi markskot úr erfiðu færi.
Knötturinn fór framhjá og Valur
sneri vörn í sókn, þá- voru 45
sekúndur eftir.
Spenningurinn var orðinn gífur-
legur í Höllinni, áhorfendur
beggja liða skulfu eins og lauf í
vindi, sekúndurnar tifuðu. Víking-
ar bökkuðu ekki upp að línunni,
heldur héldu þeir áfram að koma
út og trufla Valsmennina. Það
varð afdrifaríkt. Valsmennirnir,
sem voru einum fleiri, áttu allt í
einu mann í dauðafæri á miðri
línunni, sá var Þorbjörn Jensson.
Hann fékk knöttinn, metri í næsta
mann. Þorbjörn stökk inn í teiginn
og gat ekki annað en skorað. Þar
Það var mikil gleði í búningsklefa Valsmanna að loknum sigurleiknum í gærkvöldi. Eiginkonur leikmanna, unnustur
þeirra og vinir fögnuðu meisturunum og kampavínið flaut í stríðum straumum. (Ljósm. Friðþjófur).
VANNVIKING 14:131
ÆSISPENNANDI LEIK
með hafði þessi leikmaður, sem
kom frá Akureyri í fyrrasumar,
fryggt Val íslandsmeistaratitilinn.
Víkingar byrjuðu á miðju þegar
15 sekúndur voru eftir. Þeir
reyndu hvað þeir gátu, Valsmenn
tóku hraustlega á móti og þó svo
að Víkingur fengi tvö aukaköst um
það bil, sem leiktíminn var að
renna út, þá tókst liðinu ekki að
skora. Sigurinn og meistaratitill-
inn var Valsmanna.
Sá elzti og sá
yngsti björguðu
deginum hjá Val
Allt Valsliðið átti góðan leik að
þessu sinni, það verður ekki af
liðinu tekið. Tveir leikmenn Vals
voru þó öðrum betri, þeir Gísli
Blöndal, elzti leikmaður Valsliðs-
ins, og Brynjar Kvaran, yngsti
leikmaðurinn í liðinu. Gísli Blön-
dal gerði 3 mörk í þessum
mikilvæga leik og ævinlega skap-
aði hann hættu þegar hann var á
ferðinni með knöttinn. Gísli hefur
e.t.v. oft verið betri en hann er um
þessar mundir, en hann hefur
aldrei kunnað meira en einmitt
núna. Brynjar Kvaran varði tvö
vítaköst frá Víkingum í leiknum
og meira en það. Hann varði vel
þegar mest á reið og án hans er
erfitt að segja hvernig þessi leikur
hefði farið.
Annars byrjaði Valsliðið þennan
leik mjög illa. Víkingur komst í 3:0
"Húrra fyrir beztu og
ódýrustu þjálfurunum
og í vörninni tókst liðinu að klippa
sóknarleik Vals í sundur með því
að koma vel út og á milli. Virtust
leikmenn Vals vera yfir sig
spenntir og óðagotið var mikið á
þeim til að byrja með. Víkingarnir
virtust ætla ða brjóta þá niður og
Valsliðið skoraði ekki mark fyrr
en eftir 12 mínútna leik. Þá fór
líka ð syngja í netmöskvum
Víkingsmarksins. Staðan breyttist
úr 3:0 fyrir Víking í 6:3 fyrir Val,
6 Valsmörk í röð og Víkingar
skoruðu ekki í 16 mínútur í fyrri
hálfleiknum.
Á þessum tíma var bekkstjórnin
herfileg hjá Víkingum. Tilraun var
gerð til að nota Olaf Einarsson í
leiknum og hann settur inn um
miðjan fyrri hálfleik. Með honum
komu aðrir nýir. menn, sem
Víkingur hafði ekki áður notað í
leiknum. Það var ekki fyrr en
menn eins og Páll, Viggó og Ólafur
Jónsson komu inn á að hjólið fór
VALUR ISLANDSMEISTARI
„Ég er að sjálfsögðu mjög
ánægður með sigurinn í mótinu,"
sagði Gunnsteinn eftir leikinn.
„Leikurinn einkenndist af tauga-
spennu í byrjun en það lagaðist
þegar á leikinn leið. Fyrir leikinn
klufum við Víkingsliðið niður í
einstaklinga en reyndum að
byggja heild á móti þeim og það
heppnaðist fullkomlega."
„Um mótið sjálft er hægt að
verða fáorður. Það var algerlega
eyðilagt með landsliðsæfingunum
og hinu langa hléi vegna mótsins
í Danmörku. Reykjavíkurmótinu
var frestað fram yfir áramót og
það bitnaði illilega á okkur í
byrjun mótsins að hafa ekki féngið
Reykjavíkurmótið sem upphitun
og þess vegna gekk okkur svona
illa. Ég vil að lokum þakka
Víkingunum fyrir drengilegan
leik,“ sagði Gunnsteinn.
Markverðinum
mest að þakka
„Ég tel að við Valsmenn eigum
Brynjari markverði mest að þakka
áð við unnum," sagði Stefán
Gunnarsson fyrirliði, sem að
sjálfsögðu var í sjöunda himni yfir
sigrinum.
„Þetta var dæmigerður úrslita-
leikur," sagði Stefán. „Víkingarnir
byrjuðu mjög vel og þeir spiluðu
mjög yfirvegað alveg eins og þeir
hafa gert þegar við höfum tapað
fyrir þeim í síðustu leikjum. Ég
var um tima orðinn hræddur um
að þetta ætlaði að fara illa hjá
okkur en svo náðum við þessu upp
með góðri vörn og góðri mark-
vörzlu. Um mótið sjalft get ég
verið fáorður. Það hefur verið
slitrótt og leiðinlegt og það er
alger fásinna að slíta það svona í
sundur eins og gert hefur verið,"
sagði Stefán.
HM-undirbúningurinn
kom niður á liðnu
„Ég er að sjalfsögðu sáróánægð-
ur með úrslitin," sagði Karl
Benediktsson þjálfari Víkings
eftir leikinn, en stemningin í
herbúðum Víkinganna var skiljan-
lega heldur lítil að loknum leik.
„Það vantaði ekki að Víkingur
byrjaði vel en eftir 3:0 ætluðu
menn sér of mikið og það kom
okkur í koll. Skipulagning leik-
tímabilsins og undirbúningurinn
fyrir Heimsmeistarakeppnina kom
illa niður á Víkingsliðinu í vetur
og tveir af toppmönnum þess,
Olafur R. Einarsson og Kristján
Sigmundsson voru lengi frá vegna
meiðsla. Liðið var gott og samstillt
í upphafi mótsins en eftir Heims-
meistarakeppnina gekk þetta bara
ekki upp hjá okkur.“
Betra liðið vann
„Staðreyndin er sú að betra liðið
vann í þessum leik en ég er ekki
viss um að bezta liðið hafi unnið
mótið," sagði Björgvin Björgvins-
son fyrirliði Víkings.
„Það er auðvitað mjög svekkj-
andi að verða alltaf númer tvö. í
þessum leik náðum við tveimur
góðum leikköflum en duttum niður
þess á milli. Góðu kaflarnir komu
í byrjun og í lokin og við hefðum
átt að geta haldið jöfnu ef við
hefðum ekki verið of bráðir.
Heimsmeistarakeppnin hefur
óneitanlega sett strik i reikning-
inn í vetur og hún kom verr niður
á okkur en öðrum liðum. Við, sem
tókum- þátt í HM-stússinu, vorum
óneitanlega orðnir anzi leiðir á
þessu í lokin. En það þýðir ekkert
að gráta heldur stefna að því að
gera betur næst. Ég vil að lokum
koma á framfæri hamingjuóskum
til Valsmanna frá okkur
Víkingum."