Morgunblaðið - 23.04.1978, Side 2
34
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. APRÍL 1978
1937: Hamingjan viröist blasa viö „stjörnuhjónunum“ og þau
fara meö aöalhlutverkin í sömu Korda-myndínni.
fíinn ömurlegi
sannleikur
um ævintýra-
prinsessuna
Lífið lék við Vivien Leight,
þóttust menn vita. En undir hinu
stjörnubjarta yfirborði ólgaði
harmleikurinn — Eftir Tohy David
Það var sagt um Vivian Leigh, þegar
hun stóð á hátindi frægðarinnar, að hún
væri fegursta kona veraldar, Hún var þá
gift mesta leikara heims, Laurence
Olivier. Og þau þóttu glæsilegust allra
hjóna í heimi leikhúss og kvikmynda.
Vivien Leigh var afburða glæsileg
kona. Hún var fáguð, smekkvís, greind og
afar viljasterk. Hún var rík og bar
aðalstitil. Hún átti að vinum marga
hæfileikaríkustu og skemmtilegustu leik-
ara, sem þá voru uppi, enda var hún
frábærlega heillandi í viðkynningu.
Þannig kom hún almenningi og
aðdáendum sínum fyrir sjónir, og þannig
hafa þeir minnzt hennar frá því að hún
dó fyrir tíu árum. En i-nýútkominni
ævisögu hennar eftir bandarískan blaða-
mann kemur á daginn, að þessi mynd er
glansmynd, og meira en lítið fegruð. Þar
er sagt frá því, að þær stundir komu, og
æ oftar á síðari árum, að þessi fágaöa og
glæsilega heimskona skipti bókstaflega
um ham, umhverfðist. Hún missti þá
alveg stjórn á sér, réðist á fólk með
óbótaskömmum og svívirðingum og
ósjaldán spörkum og barsmíðum; eigin-
maður hennar fór ekki varhluta af þessu,
og unni hún honum þó framar öllu öðru.
Þegar hún fékk köstin átti hún líka til að
byrja að afklæða sig á almannafæri.
Stundum reikaði hún um göturnar eins og
vændiskona og lagðist með hinum og
þessum ókunnugum sem hún rakst á.
Nokkrum sinnum kom það fyrir, að hún
reyndi að stökkva út úr járnbrautarlest-
um og flugvélum. Vivian Leigh var
geðbiluð og sjúkdómur hennar ágerðist
stöðugt með árunum. Nú er vandsagt um
það, hvað að henni gekk: það kunna að
hafa verið geðlæti, psychosis manio-de-
pressiva, ellegar geðklofi, schizophrenia.
Hvað sem um það er fer ekki milli mála,
að hún hefur liðið vítiskvalir langtímum
saman og eiginmaður hennar líka síðustu
árin áður en þau slitu samvistum.
Goðsögnin skráð
Þannig segir frá í hinni nýútkomnu
ævisögu eftir bandaríska blaðamanninn
Anne Edwards, sem fyrr var getið.
Ævisaga þessi ber það með sér, að
höfundurinn kann til verka, og hún er
rituð af einlægri samúð. Edwards byggir
fyrst og fremst á fjölda viðtala við gamla
kunningja ög vini Vivian. Sumt af því
fólki var mjög nákomið henni. Ekki tókst
höfundi þó að ná tali af Sir Laurence. Og
Vivien hitti hún aldrei. Bókin ber þess
líka merki hér og hvar; hún er yfirborðs-
kennd á köflum. En hún er kærkomin
þrátt fyrir það, og í henni er varpað ljósi
á ýmsa þætti í goðsögninni miklu um Sir
Laurence Olivier og hjónaband þeirra
Vivien.
Það virðist, að Vivien hafi frá upphafi
ævinlega fengið allt, sem hún vildi. Ekki
svo að skilja, að henni hafi hlotnazt það
fyrirhafnarlaust. En hún var gædd
mikilli kænsku, og viljastyrkurin feiki-
legur. Það má taka það til dæmis þegar
hún vann ástir Laurence Olivier. Hún
hafði „ætlað“ sér hann þegar áður en þau
hittust fyrst. Dag nokkurn fékk hún svo
veður af því, að Olivier mundi verða á
Savoy þá um kvöldið. Hún fékk þá vin
sinn einn til þess að fara með sér þangað.
Erindið var auðvitað að komast í kynni
við Olivier. Þau höfðu varla heilsazt,
þegar hún „ákvað" með sjálfri sér, að hún
væri ástfangin af honum! Hún var
reyndar gift, þegar þetta var, en orðin
leið og vonsvikin í hjónabandinu.
Skömmu síðar trúði hún vini sínum fyrir
því, að hún ætlaði að giftast Olivier. Hún
var reyndar gift öðrum þegar þetta var
og átti unga dóttur, aðeins eins og hálfs
árs gamla, en hún var þegar orðin leið og
vonsvikin í því hjónabandi. Olivier var
(íka giftur, Jill Esmond, og kona hans
ófrísk að fyrsta barni.
A Kaprí hófst ævintýriö
Nokkru eftir, að þau kynntust voru þau
fengin til þess að leika saman í kvikmynd,
„Fire over England". Laurence varð
fljótlega hrifinn af Vivien, er þau fóru að
vinna saman, en kvikmyndagerðin fékk
skjótan endi, og þau fóru hvort sína leið.
Þess var þó skammt að bíða, að þau
hittust aftur. Laurence hafði farið til
eyjarinnar Kaprí með konu sinni og
hugðust þau vera þar um nokkurn tíma.
Þau höfðu ekki verið þar lengi, þegar
Vivien birtist öllum að óvörum. Hún
hafði talið vin sinn á það, að koma rneð
sér til Kaprí. Laurence átti ekki að
sleppa. Og það var þarna á Kaprí, að þau
urðu ástfangin hvort af öðru, svo að
engum gat dulizt. Óvíst er, að það hefði
nokkurn tíma .orðið, ef ekki hefði verið
fyrir þrjózku og einbeitni Vivien.
Annað gott dæmi um vilja og ákveðni
Vivien er af því, þegar hún kom því í
kring að hún var valin í hlutverk Scarlett
0‘Hara í „Gone With the Wind“ — Á
hverfanda hveli. Skömmu eftir, að bókin
„Gone With the Wind“ kom út í Bretlandi
og ákveðið hafði verið að kvikmynda
söguna komst Vivien að þeirri niðurstöðu
að hún væri kvenna bezt fallin til þess að
leika hlutverk Scarlett. Sagði hún
umboðsmanni sínum það, og reyndar
margsinnis, og vænti þess að hann gerði
eitthvað í málinu. Kostnaðarmenn hinnar
væntanlegu kvikmyndar voru þá þegar
farnir að svipast um eftir leikkonu í
hlutverkið og höfðu leitað grannt og víða,
en ekki fundið neina, sem þeim þótti
sjálfkjörin. Margar frægar Hollywood
stjörnur voru boðnar og búnar og mátti
vænta þess, að einhver úr þeirra hópi yrði
LON DON TOWN
Nýja
hljómplatan
með Paul McCartney
& The Wings
Fæst hjá umboðsmönnum okkar um land allt.
mesta h ljóm plötu ú rval landsins
RGA
Cgs
Doivöor
OECCfi
FÁLKIN N*
Suðurlandsbaut 8 Laugavegi 24 Vesturveri
84670 18670 12110
\£jesíha ]
Mest selda steypuhræri- vél á heimsmarkaði.
: ' V.,
n ÞÚRHF REYKJAVÍK ÁRMÚLA 11.