Morgunblaðið - 23.04.1978, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 23.04.1978, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. APRÍL 1978 49 Byltingar og rómantfskur skáld- skapur, framfarir í visindum og órói í trúmálum settu mark sitt á hina „eirðarlausu“ 19 öld. Fólk gerði sér brátt ljóst, að þjóðfélags- ' skipuninni var hægt að bylta á skammri stund. Og þó að líkamleg fegurð lyti hefðbundnum lögmál- um enn, þá lá í loftinu vissa um hræringar, hreyfingar, aðgerðir og breytingar i aðsigi, — að venj- um yrði bylt jafnt sem ríkisstjórn- um. Andi óánægju hafði snortið hið staðfasta og alvarlega mann- kyn. Breytingarnar komu fljótt í ljós í tizkunni. Þó að fínir kjólar yrðu aftur fyrirferðarmiklir, þá hafði ákveðin sérvizka, hvað sneri snið og skraut, reglubundin áhrif á klæðnað kvenna. Kvenlíkaminn átti helzt að vera mikill um sig að ofan og neðan , en afskaplega' mjór í mittið. Karlmenn skyldu helzt verða vöðvamiklir og sterk- byggðir, en með fötunum var þeim gert nær ókleift að hreyfa sig eða beygja. Feimni- og tepruskapur Þótt undarlegt megi virðast, þá gætti þess í ríkum mæli i klæða- burði, að fólk væri í senn alls ófeimið og einkar teprulegt. Til dæmis huldi kvenfólk á daginn nær hvern blett líkamans, en henigðist til að klæðast mjög flegnum kjólum á kvöldin. Þetta óeðlilega og tímabundna ástand mála í klæðaburði hlaut að kalla á endurbætur — og þegar mátti sjá merki um breytingar í aðsigi á sviði stjórnmálanna. Þar urðu grannir menn i stífum fötum tákn hins sanna endurbóta- og uppreisnaranda, andlegrar óþreyju og óánægju með ríkjandi ástand. Þar af leiðandi risu brátt upp hreyfingar til að stuðla að endurbótum í klæðaburði, og þær voru af hugmyndafræðilegum rót- um runnar. Á fyrri tímum þegar skrautlegur klæðnaður var talinn heilög forréttindi og jafnvel skylda æðri stétta, gátu engar slikar hryfingar orðið til. En í hinum borgaralega heimi, sem var gagnsýrður af hreintrúar- stefnu (púrítanisma) og félags- legri samkennd, tók iburðarmikill klæðnaður og heldri manna fita að virðast ekki lengur við hæfi eða vera sæmandi. Smám saman fór sekt að leynast undir lífs- stykkjum.bryddingum og silki- höttum, eins og síðar kom fram í byltingum þeim, sem Freud var upphafsmaður að. 20. öldin sá margar ef tilraun- um 19 aldar til endurbóta verða að veruleika. Tvær heimsstyrjald- ir flýttu breytingum, sem þegar voru hafnar. Það varð til þess, að hinn granni endurbótasinni í lát- lausum fötum varð leiðtogi tízk- unnar í stað hins leynda óvinar hans. Heilsan og holdafarið Á fyrri öldum þurfti ekki að taka -tillit til læknavísindanna, hvað snerti smekk manna og mælikvaða á líkamsfegurð. Góð heilsa var tryggilega tengd þrif- legu holdafari. Lágmarks neyzla matar og mikil hreyfing — sem hvort tveggja er nauðsynlegt til að halda sér grönnum — átti greinilega engan þátt í hefð- bundnum hugmyndum manna um fegurð líkamans og gott heilsufar. Þvert á móti var naumur matur og erfiðisvinna álitin vera hið ólukkulega hlutskipti þjóna og verkamanna. Heilbrigði táknaði þá ekki vöðvaþrótt og eðlilega blóðrás. Hún táknaði, að viðkom- andi væri laus við sjúkdóma. Nú á dögum eyða menn fé, tíma og orku til að ná beinagrindar útliti galeiðuþrælanna. Fitan, sem um aldaraðir var stöðutákn, hefur týnt allri virðingu með tveimur kynslóðum. Nú er hún í rauninni almennt tekin sem merki um andlega ánauð — veik- lyndi, taugabilun eða fastheldni við þjóðlegar venjur, sem byggist á því, að kolvetnisrík fæða sé aðalefni mataræðis. Og það sem jafnvel verra er, að fita bendi til heilsuveilu og stuðli að skammlífi — alveg eins og þunnir vangar og holdleysi var talið gera áður fyrr. Algengasta skýringin á astríðu 20. aldar, hvað megrun snertir, er uppgötvanir læknavísindanna. Sambandið milli fitu og hjarta- sjúkdóma hefur verið mjög til umfjöllunar í fjölmiðlum og sleg- ið milljónir sálna miklum óhugn- aði. Óttinn við dauðann er að sjálfsögðu stóralvarlegt mál. Fólk, sem var hrætt við að verða horað, svo að það jafnvel tærðist upp, er núna hrætt við að verða svo feitt, að það springi. Það er líka hrætt við að sitja kyrrt, því að það gæti stirðnað, og því hefur ströng líkamsþjálfun ásamt hóf- semi í mataræði hjá mörgum ekki aðeins orðið heilbrigðisatriði, heldur stöðugt umhugsunarefni og þá sérstaklega meðal hæggerðs fólks með margar tómstundir. Að sjálfsögðu er um vissar al- gildar staðreyndir að ræða varð- andi offitu, sem voru óþekktar á tímum Rubens og fyrirmynda hans en nú á dögum verður að taka tillit til. Og mikill líkams- þungi getur stuðlað mjög að slæmri heilsu og jafnvel dauða. En þó er almenn þekking á heilsufarslegum hættum af offitu mjög ný í samanburði við hinn almenna smekk fyrir grönnum líkömum. Reyndar hefur granna tízkan haft oskoruð völd frá lok- um fyrri heimsstyrjaldar. Það virðist eins og leitað hafi verið til vísindanna vegna áhrifavalds þeirra eftir góðri, raunhæfri ástæðu til þess, sem alltaf hefur verið og er flókið, fagurfræðilegt atriði. Margt fólk vill vera grannt, þó að það hafi alls engar áhyggjur af heilsu sinni — til dæmis milljónir táninga. Það hefur orðið aðalatriðið, hvað snertir glæsilegt útlit, að vera grannholda, og það er ekki aðeins heilbrigðisatriði, heldur varðar það viðurkénndan smekk, sem er stöðugt haldið við — alveg eins og á tímum Rubens — með myndrænum lofgjörðum. s ekk nur.* n / nn í Myndavélin og holdafarið Sennilega var það auga mynda- vélarinnar fremur en þjóðfélags- breytingar eóa læknisfræðileg vitneskja, sem kom aðallega óorði á fituna. Löngu fyrir lok 19 aldar var farið að líta á ljósoyndir æ meir sem miðla hins myndræna sannleika. Ljósmyndunumm var ætlað að sýna, hvernig hlutirnir litu raunverulega út, en ekki hvernig þeir kæmu myndlista- mönnum fyrir sjónir. En í raun- inni skilaði ljósmyndarinn — listamaðurinn sem slikur mynd- inni eftir sínu höfði. Ljósmynda- vélin varð tæki til að lagfæra og fegra raunverulegt útlit af slótt- ugri kænsku en nokkru sinni fyrr, og sú lagfæring mótaði og markaði nútíma smekk. Kyrr ljósmyndun grípur hið lið- andi augnablik, sem kvikmyndun nemur hreyfingaunasjálfa. í báð- um tilfellum hneigist auga ljós- myndavélarinnar til að auka við vöxt fyrirmyndarinnar. Það virð- ist umvefja hana geislahjúp, ytri útlinum. Þess vegna verður hin ákjósanlega fyrirsæta að vera í raun mjög grönn til að geta bætt við sig því, sem gerist á filmunni. Þegar ljósmyndavélin á öðrum tug þessarar aldar tók að fegra allar sýnilegar stærðir í venju- legu lífi með kvikmyndum fyrir almenning, þá varð hið ákjósan- lega útlit fólks að vera sem næst því, sem myndirnar sýndu. Likaminn varð að birtast í augnabliksmyndum eða myndaröðum, sem augað gat fangað á augabraði — og dáðst að. Auðnumin löngun og skarpar línur urðu að einkenna persón- una — engar óljósar útlínur, ekki klæða > neitt burtu með . fötum og alls ekk neinar ójöfnur. Skrokkurinn varð að grannur, klæðnaðurinn kvikmyndunum . '* varð að vera lát- ðj* . laus og snyrtilegur og þannig sniðinn, að hann færi vel i hreyf- ingu — og myndaðist vel í svörtu og hvítu. Bein, sem myndavélin afhjúpaði óhjákvæmilega, urðu smám saman ómissandi hlutir hinnar nýju fyrirmyndar. Kjálka- bein kvenna, viðbein, rifbein, herðablöð og mjaðmargrind öðluðust nú loksins sitt eigið gildi í heimi tizkunnar, þar sem kveðið var á um yndisþokka og kyntörfa. Þrátt fyrir allt hafa menn aldrei hætt með öllu að sýna hin- um gömlu goðum virðingu. Lítum aðeins á hin einstaka feril Mae West. Allar kvikmyndir hennar sýna, hvernig skapandi kik- my.ndavél gat gert mynd þroskaðrar, feitlaginnar konu eins töfrandi og aðlaðandi og nú- tíma auga gat óskað sér. I flestum kvikmyndum sinum var Mae West skrýdd sams konar skraut- klæðum og önnur þokkadís fyrri tima, Lillian Russell, fellingalíni og fjöðrum, stunda glasa-lífstykki, stórum hatti og pompadourhárkollu. Og í þessum hefðbundna útbúnaði með glettnisleg svefnherbergisaugun í holdugu andlitinu sigraði hún karlkynið, um leið og hún sveif yfir gólfið. í raun og veru var Mae West ekki feit, en eins og á timum Rubens sýndu fötin og það, hvern- ig hún klæddist þeim, á hvern hátt hún leit á sjálfa sig: hún væri hlý og mjúk undir öllu skrautinu. Hún var áhyggjulaus i lífinu út af sinum þriflega kroppi. Hún var eins og gangandi rúm i Holly- wood, sem naut sín á sínum eigin koddum undir silkiábreiðu. í rauninni hættum við aldrei að hrifast af þeim eiginleikum, sem Mae West var gædd, og við kunn- um vel við hana végna hennar eigin ánægju yfir þeim, jafnvel þótt við og allur heimurinn ein- beittum okkur að þvi að hugsa grannt. gætu skapað nýjan mælikvarða á það, hvað séu kyntörfrar eða kyn- ferðislega eftirsóknarvert. Alveg eins og rangsnúinn smekkur fyrir horuðum, kinnfiskasognum og sjúklegum manngerðum skapaði smám saman nýjan átrúnað á rómantiska tímabilinu, þá gætu hinar óeðlilega hrifandi fituboll- ur hinna nýju kvikmynda hrund- ið af stað undiröldu tízku, sem í framtiðinni mun skjóta upp á yfirborðið nýjum fyrirmyndum að skapnaði. Sannleikurinn er sá, að á þessum megrunartimum hef- ur þrifleg fegurð yfirburði — öllu meiri líkur til að verða nýjasta, ósvífnasta framúrstefnu tilhneig- ingin, hvað snertir smekk i ásta- málum. Þegar höfum við fengið tækifæri til að dást a nokkrum fyrirmyndum: Mama Cass á sjö- unda áratugnum og Barbara Cook á hinum áttunda. Svo getur jafn- vel farið, að minningin um Zero Hin sællega Mae West, kvik- rtiyndastjarnan þriflega sem karlmönnum fannst flestum stjörnum girnilegri fyrir fjörutíu árum Hvað næst? Ný andlit i kvikmyndum, aðal- lega innflutt frá ítaliu, kunna að valda nýjum breytingum á mynd- rænum smekk fólks. Hinar feiknalega þriflegu konur i kvik- myndum Fellinis og Wertmúllers Mostel og hinn umfangsmikla þokka hans eigi eftir að skapa timabil hins eftirsóknarverða, feita manns. Önnur stórmenni eins og James Coco og Robert Morley hafa þegar látið i ljós ánægju sína yfir sinni eigin stærð. Og einhvern tíma á næst- unni kann svo að fara, að flestir okkar séu á leiðinni til Fituborgar — á réttum tíma og betur til þess fallnir að taka þátt í næstu hátíða- höldum vegna listar Rubens. —svá— Magazine" úr „New York Times

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.