Morgunblaðið - 23.04.1978, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. APRIL 1978
63
Atriði úr þrillernum MORÐHELGI. (Nýja Bíó/
Keflavík).
stjóri hefur nú ákveðið að
setjast í helgan stein, hvað
leikstjórn snertir. „Það má
vera að ég geri mynd eftir
svo sem ein tíu—tuttugu ár,
svona að gamni mínu.“
Hlutur Lucas er á milli
þrjátíu og fjörutíu milljóna
Bandaríkjadala og mestöllu
af þessu fé hefur hann
varið í ýmis, eigin fyrirtæki
sem öll eru á einhvern hátt
tengd aðsóknarmyndinni
miklu. Eitt fyrirtækjanna
sér t.d. um gerð leikfanga
eftir sviþsmunum myndar-.
innar, en þau hafa notið
gífurlegra vinsælda; annað
er kvikmyndaver, þar sem
ungir og óþekktir listamenn
fá sitt tækifæri, og í krafti
fjármagnsins mun LUCAS
takast að gera þennan
gamla draum Francis Ford
Coppola að veruleika, en
þrátt fyrir að Coppola
auðgaðist verulega á
Godfathermyndunum, þá
nægði það fé hvergi nærri
til að gera þennan draum
að veruleika. The Amer-
ican Zoetrope Co.. en svo
nefndist fyrirtækið, fram-
leiddi aðeins sárafáar kvik-
myndir, en ein þeirra var
einmitt THX 1138, fyrsta
mynd GEORGE LUCAS.
Wars var fyrst og fremst
gerð með börn og unglinga
í huga — velgengni hennar
hefur sjálfsagt ekki komið
neinum jafn mikið á óvart
og framleiðendum hennar.
En léttleiki hennar, gleði og
gáskafullt ímyndunaraflið
hefur fallið í góðan jarðveg
hjá ofbeldishrjáðum kvik-
myndahúsgestum um allan
heim.
En svo ég víki sögunni
aftur að LUCAS, þá hefur
fyrirtæki hans eitt, Lucas-
film Limited. ákveðið
hvorki meira ne minna en
tiu framhaldsmyndir af
Star Wars, og er þegar
hafinn undirbúningur á
þeirri fyrstu. Með aðalhlut-
verkin fara flest hin sömu
og í fyrstu myndinni, þ.e.
þau Mark Hamill. Harri-
son Ford og Carrie Fisher.
í hlutverkum Luke Sky-
vvalker, Han Solo og Leiu
prinsessu. Verður myndin
aðeins dýrari í framleiðslu
en fyrirrennarinn. Eins og
getið var hér að framan, þá
mun LUCAS hvergi koma
nærri leikstjórninni, en til
þess hefur hann valið eftir-
tektarverðan, gamalreynd-
an en misgóðan leikstjóra,
Irwin Kershner ( A Fine
NÝJA BÍÓ/ KEFLAVÍK: MORÐHELGI
Um þessar mundir er verið að sýna nýlega kanadíska
mynd í Nýja Bíó, Keflavík. Þetta er heilmikil hasarmynd,
hlaðin spennu næstum alla myndina. Kemur blóðinu á
köflum á ærlega hreyfingu. Það er því vel þess virði fyrir
alla þá, sem á annað borð hafa gaman af þessari gerð
mynda, að renna suður með sjó einhvern góðviðrisdaginn.
SV.
David Bowie í myndinni JUST A GIGOLO.
Madness, The Luck Of
Ginger Coffey, The Flim
Flam Man).
• Sú mynd sem nýtur hvað
mestra vinsælda í vestur-
heimi þessa dagana, er
„söngva- og dansa-mynd-
in“, þessi skilgreining er
reyndar orðin ærið jöskuð
og úr sér gengin, Saturday
Night Fever. Tónlistin í
myndinni hefur um nokk-
urt skeið notið gífurlegra
vinsælda beggja vegna At-
lantshafs'ins, en hún er
samin að mestu leyti af
þeim Gibbsbræðrum, betur
kunnir undir nafninu BEE
GEES. Slíkar eru vinsæld-
ir tónlistarinnar, að á
tímabili voru fimm lög úr
myndinni á vinsældalista
CASIIBOX. bessi lög eru
m.a. How Deep Is Your
Love, en það lag hlaut
einmitt GRAMMY-verð-
launin núna á dögunum;
Night Fever, og Stayin'
vínoG
BREITT
• Eins og allir vita, sem
eitthvað fylgjast með kvik-
myndum, hefur velgengni
myndarinnar Star Wars,
verið með eindæmum.
Myndin hefur slegið öll
aðsóknarmet, hvarvetna
sem hún hefur verið sýnd í
veröldinni. Leikstjóra sín-
um og meðframleiðanda,
George Lucas, hefur hún
fært slík reginauöæfi að
þessi ungi, frábæri leik-
Margir kunningja minna
hafa komið að máli við mig
eftir að hafa barið Star
Wars augum á erlendri
grund, og flestir til að lýsa
yfir óánægju sinni. Sumir
hverjir til að hundskamma
mig fyrir að hafa gert þeim
þá glennu að benda þeim á
að sjá myndina. Þetta
ágæta fólk hefur gjörsam-
lega misskilið tilgang
myndarinnar, en Star
(Jr mislukkuðum sjónvarpsþætti
Sissy Spaceck og Shelley Duvall í myndinni 3 WOMEN.
Fljótlega fáum við að sjá þessa ágætu leikkonu í
hryllingsmyndinni CARRIE.
geysivinsælum sjónvarps-
þætti, sem ég hirði ekki um
að geta hér vegna þess að
það gengi kraftaverki næst
ef hann yrði sýndur hér-
lendis.
• Enfyrst sjónvarp er
y nefnt, þá verður ekki hjá
; því komist að gagnrýna hið
| furðulega efnisval ráða-
manna á þeim vígstöðvum.
Endalausir, breskættaðir
munnræpuþættir — bæði
dramatískir sem „fyndnir“,
virðast í takmarkalausu
uppáhaldi. Ekki virðist far-
ið eftir vinsæidalistum,
sem vandalítið er að kom-
ast yfir, þegar keyptir eru
| nýir þættir. Sem dæmi nm
það má nefna lögregluþátt-
inn SERPICO. Þetta er
mjög nýlegur þáttur, sem
hélt út í aðeins hálfan
ársfjórðung vestan hafs.
Slíkt er afspyrnulélegt, Hér
kannast almenningur t.d.
ekki við marga af vinsæl-
SERPICO. ' ustu þáttunum vestra, eins
• Þær gleðilegu fréttir
hafa borist, að gamli, góði
meistari FELLINI, sé far-
inn að huga að gerð nýrrar
mýndar. Nefnist hún City
Of Women. og hefst kvik-
myndatakan í sumar, í
Cinecittá-kvikmyndaverinu
í Róm. Að venju hefur
gengið í brösum með að ná
endum saman í samningum
við hinn ákveðna ítala, en
að þessu sinni er það
útgefandinn Bob Guceione
(Penthouse mag.). sem
stendur að gerð myndar-
innar. En það eru snillingar
eins og FÉLLINI sem halda
áhuga kvikmyndaunnenda
vakandi, án þeirra væri
kvikmyndalistin öllu flat-
neskjulegri og kvikmynda-
húsin breytast fyrir töfra
þeirra í heillandi menning-
arsetur.
• Hin umtalaða mynd
Steven Spielberg. Close
Encounters ..., gerir það
Framhald á bls. 4 1
A NÆSTUNNl
TÓNABÍÓ: CARRIE
Hér mun vera á ferðinni
einhver óhugnanlegasta mynd
sem gerð hefur verið á síðari
árum, enda er leikstjórinn
enginn annar en hrollvekju-
meistarinn Brian De Palma.
Carrie er saklaus gagnfræða-
stúlka sem hefur mátt þola
aðkast og stríðni skólasystkina
sína alla tíð. Hún býr yfir
miðilshæfileikum, og að því
kemur að þessi rólynda, vel
gerða stúlka fær nóg ...
Alive, öll sungin af BEE
GEES! Love Is Thicker
Than Water, sungið af
„litla bróður“, sem er ekki
í hljómsveitinni, ANDY
GIBB. Þá má einnig nefna
lagið Emotion með Sam-
antha Sang, þá eiga K C
And The Sunshine Band
ágæt lög í myndinni.
En sá .sem hlotið hefur
hvað mesta frægð vegna
myndarinnar, er sjálfsagt
aðalkarlleikarinn, John
Travolta. Smápíur halda
tæpast vatni þegar nafn
hans ber á góma. Fyrir
skömmu komst hann á
forsíðu TIME magazine, og
það eitt er meira afrek en
menn sjálfsagt grunar. Þar
ræður engin slembilukka
úrslitum. En TRA-
VOLTA-æðið, í Bandaríkj-
unum, sérstaklega, er ein-
hver mesta múgsefjum sem
um getur í langa tíð.
TRAVOLTA var lítt kunn-
ur áður en myndin var gerð,
utan þess að hann lék í
og: Laverne & Shirley,
Ilappy Days, Three’s
Company. All In The Fam-
ily, Charlie's Angels, Alice.
GO Minutes. Little Ilouse
On The Prairie, On Our
Own, Soap. Lesendum til
fróðleiks, þá eru þetta tíu
vinsælustu þættirnir í
Bandaríkjunum, í réttri
röð.
Enginn má taka þetta
svo, að ég sé að falast eftir
því að sjónvarpsdagskrá
okkar byggist upp á banda-
rísku efni, því fer fjarri.
Það þarf aðeins að vanda
valið mikið betur. Ég á til
dæmis bágt með að trúa því
að einhver ábyrgur maður
hafi skoðað þá makalausu
rússnesku þætti sem sýndir
voru í fyrra. Jafnvel harð-
línukommar hafa örugglega
átt í erfiðleikum með að
halda sér vakandi yfir
þeirri leiðinda langloku.
Rússar hijóta að eiga fjöl-
margt mun skárra í poka-
horninu — ef að er gáð.