Morgunblaðið - 23.05.1978, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. MAÍ 1978
LOFTLEIDIR
Hópferðabílar
8—50 farþega
Kjartan Ingimarsson
Sími 86155. 32716
SKIPAÚTGCRÐ BÍKISINS
m/s Hekla
fer frá Reykjavík föstudaginn
26. þ m. vestur um land til
Akureyrar og tekur vörur á
eftirtaldar hafnir: Patreksfjörð,
(Tálknafjörð og Bíldudal um
Patreksfjörð), ísafjörð, (Bol-
ungarvík um ísafjörð), Norður-
fjörð, Siglufjörð og Akureyri.
Móttaka þriöjudag, miövikudag
og fimmtudag.
véla
| pakkningar
■
■
■
■
I
Ford 4-6-8 strokka
benzín og díesel vélar
Austin Mini
Bedtord
B.M.W.
Buick
Chevrolet
4-6-8 strokka
Chrysler
Citroen
Datsun benzín
og díesel
Dodge — Plymouth
Fiat
Lada — Moskvitch
Landrover
benzín og díesel
Mazda
Mercedes Benz
benzín og díesel
Opel
Peugout
Pontiac
Rambler
Range Rover
Renault
Saab
Scania Vabis
Scout
Simca
Sunbeam
Tékkneskar
bifreiðar
Toyota
Vauxhall
Volga
Volkswagen
Volvo benzin
og díesel
I
ÞJÓNSSON&CO
Skeifan 17 s. 84515 — 84516
Nokkur
þakklætis-
orð til
Skálatúns
Þar sem Erla dóttir mín vard
fimmtUK fyrir nokkrum dögum
síðan ok étc hafði sjálf ekki
aðstöðu til að halda upp á afmæli
hennar heima hjá mér. þá bauð
forstöðumaður heimilisins. Einar
Hólni. að halda aímælið þar á
staðnum.
Ék vil nota tækifærið ok
sérstaklesa þakka Einari og
konu hans. svo ok öllu starfsfólki
Skálatúnsheimilisins fyrir þetta
en ég vil ekki heldur láta hjá líða
að þakka sérstaklejía starfsfólk-
inu öllu og vistfólki fyrir hina
höfðinjíleKU Kjöf. sem það færði
dóttur minni þennan datí- Einnig
vil éK þakka öllum vinum og
vandamönnum sem glöddu okkur
þennan dau.
Þar sem kærleikurinn ríkir.
líður manni ætíð vel. Guð blessi
ykkur öll.
Súsanna Guðjónsdóttir.
Útvarp Reykjavik
ÞRIÐJUDKGUR
23. maí
MORGUNNINN
7.00 Morgunútvarp. Veður-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og
10.10.
Morgunleikfimi kl. 7.15 og
9.05.
Fréttir kl. 7.30. 8.15 (og
forustugr. dagbi.), 9.00 og
10.00
Morgunbæn kl. 7.55.
Morgunstund barnanna kl.
9.15i „Sigríður Eyþórsdóttir
les söguna „Salómon svarta“
eftir Hjört Gíslason (2).
Tilkynningar kl. 9.30. Létt
liig milli atriða.
Aður fyrr á árunum kl.
10.25r Agústa Björnsdóttir
sér um þáttinn.
Morguntónleikar kl. ll.OOi
Vladimír Ashkenazy og Sin-
fóníuhljómsveit Lundúna
leika Píanókonsert nr. 6 í
B-dúr (K. 238) eftir Mozart,
Ilans Schmidt-Isserstedt
stjórnar /Fflharmoníu-
hljómsveit Vínarborgar leik-
ur Sinfóniu nr. 2 í B-dúr
eftir Schuberts Istvan
Kertesz stjórnar.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
SÍÐDEGIÐ
12.25 Veðurfregnir og fréttir.
Tilkynningar.
Við vinnunat Tónleikar.
14.30 Miðdegissagant „Gler-
húsin“ eftir Finn Söeborg.
Halldór S. Stefánsson les
þýðingu sína (2).
15 .OOMiðdegistón lei kar. Ch rist-
ian Ferras og Pierre
Barbizet leika Fiðlusónötu
nr. 1 í a moll op. 105 eftir
Schumann. Immaculate-trió-
ið leikur Tríó nr. 2 í Es-dúr
op. 100 eftir Schubert.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.20 Popp.
17.20 Sagant „Trygg ertu,
Toppa" eftir Mary O'Hara
Friðgeir H. Berg íslenzkaði.
Jónfna H. Jónsdóttir les (6).
17.50 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
KVÖLDIÐ
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Lestur og tal. Helgi
Tryggvason yfirkennari
flytur fyrra erindi sitt.
20.00 Frá tónleikum lúðra-
sveitarinnar Svans í Há-
skólabíó í marz. Stjórnandii
Sæbjörn Jónsson.
20.30 Stjórnmálaumræður. Um
borgarmálefni Reykjavíkur.
Ræðutími hvers framboðs-
lista er 32 mínútur, sem
skiptist í þrjár umferðir, 15,
10 og 7 mínútur fyrir hvern
lista. Flokkarnir eru. Al-
þýðubandalag, Alþýðuflokk-
ur, Framsóknarflokkur, og
Sjálfstæðisflokkur.
Umræðum stýrir Hjörtur
Pálsson dagskrárstjóri.
Veðurfregnir og fréttir um
klukkan 22.50.
23.00 Kvöldtónleikari Sænsk
tónlist. Flutt verður tónlist
eftir Lille Bror Söderlundh,
Wilhelm Stenhammar, Gösta
Nyström og Hugo Alfvén.
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
ÞRIDJUDAGUR
23. maí
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.35 Alþýðufræðsla um efna-
hagsmál (L)
íslenskur fræðslumynda-
fiokkur í sex þáttum.
2. þáttur. Viðskipti við
útlönd
Umsjónarmenn Asmundur
Stefánsson og dr. Þráinn
Eggertsson.
Stjórn upptöku Örn Harð-
arson.
21.05 Serpico (L)
Bandarískur sakamála-
myndaflokkur.
Hæli
Þýðandi Jón Thor Haralds-
son.
21.55 í Kjallaranum
Gunnar Egilsson, Jón Sig-
urðsson trompetleikari.
Árni Elíar, Guðmundur
Steingrímsson, Gunnar
Ormslev, Björn R. Einars-
son og Jón Sigurðsson
bassaleikari leika jazzlög.
Söngvari og kynnir er Sig-
rún Hjálmtýsdóttir. Áður á
dagskrá 26. maí 1976.
22.20 Sjónhending (L)
Erlendar myndir og mál-
efni.
Umsjónarmaður Bogi
Ágústsson.
22.40 Dagskrárlok
Sjónvarp í kvöld kl 22:20
r
Um Italíu og Zaire
Síðast á dagskrá sjón-
varps í kvöld er „Sjónhend-
ing“ í umsjá Boga Agústs-
sonar. Aðspurður sagði
Bogi að í kvöld yrðu þrjú
efni tekin fyrir, Ítalía,
afvopunarmál og Zaire.
Fyrst er sýnd nýleg
mynd um Italíu, og fléttast
inn í hana margir þættir
þjóðlífsins á Italíu. Brugðið
er upp myndum af sveita-
þorpum í Suður-Ítalíu, sem
nú standa auð, og þau borin
saman við borgir Norð-
ur-ítalíu, þar sem atvinnu-
leysið ræöur nú ríkjum.
Öðrum þræði má segja aö
myndin fjalli um ránið og
morðið á Aldo Moro, en
eins og fyrr segir er komið
víðar við sögu í myndinni.
Þá er horfið til Alls-
herjaþings Sameinuðu
þjóðanna, en það mun í dag
halda fund um afvopnunar-
mál í heiminum.
Að lokum er ástandið í
Zaire tekið fyrir, en þar
hafa síðustu daga verið
nokkur átök í suðurhluta
landsins. Voru belgískir og
franskir hermenn sendir á
vettvang til að freista þess
að bjarga útlendingum frá
bardagasvæðinu, en fregnir
herma að margir þeirra
hafi verið drepnir.
„Serpico“ er í sjónvarpi í kvöld klukkan 21,05, en þá mun lögreglumaðurinn eltast
við glæpamenn í þætti sem ber nafnið „Hæli“.
Hjörtur Pálsson, dagskrár-
stjóri.
Klukkan 20.30 í kvöld er
í útvarpi þáttur um borgar-
málefni Reykjavíkur.
Ræðutími hvers framboðs-
lisa er 32 mínútur og
skiptist hann í þrjár um-
ferðir: 15, 10 og sjö mínút-
ur. Flokkarnir sem hér um
ræðir eru Alþýðubandalag,
Alþýðuflokkur, Fram-
sóknarflokkur og Sjálf-
stæðisflokkur, en
umræðunum stjórnar
Hjörtur Pálsson dagskrár-
stjóri.