Morgunblaðið - 23.05.1978, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 23.05.1978, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. MAÍ W78 5 í lok borgarstjórnarfundar s.l. fimmtudag, Sem jafnframt var síðasti fundur borgarstjórnar á því kjörtímabili, sem nú er að ljúka, kvaddi Birgir ísl. Gunnarsson borgarstjóri sér hljóðs og þakkaði þeim borgar- fulltrúum, sem kveðja borgar- stjórn. Af núverandi borgarfull- trúum verða þó allir í framboði við kosningarnar n.k. sunnudag, nema Alfreð Þorsteinsson, ann- ar af borgarfulltrúum Fram- sóknarflokksins. Mbl. sneri sér til Alfreðs og spurði hann um helztu mál, sem hann hefði beitt sér fyrir á þeim tæpu tveimur kjörtímabilum, sem hann hefur setið í borgar- stjórn Reykjavíkur. sérstaks aðhalds, ekki aðeins til að tryggja borginni sem hag- kvæmast verð, heldur verður og að gæta þess, að allir bjóðendur vöru og verksölu sitji við sama borð. — Viltu nefna eitthvert eitt mál, sem þér er minnisstæðara en annað, á þessu tímabili, sem þú hefur setið í borgarstjórn? — Ef átt er við mál, sem ég hef sjálfur beitt mér fyrir, þá væri hægt að nefna ýmislegt. Þó dettur mér í hug tillaga, sem ég flutti um breytingu á Aðal- skipulagi varðandi svæðið norð- an Grafarvogs. Samkvæmt gamla Aðalskipulaginu var ein- ungis gert ráð fyrir iðnaðar- og athafnahverfi á þessu svæði, arinnar. Að sjálfsögðu gildir þetta ekki um óraunhæfar til- lögur, sem stundum eru fluttar af einstökum minnihlutaflokk- um eða fulltrúum þeirra, enda er núverandi borgarstjórnar- meirihluti blessunarlega laus vuð alla ævintýramennsku í fjármálum. Fyrir það má hæla Sjálfstæðisflokknum, þó að ég sé ekki gjarn á að hæla honum. — Myndi þá skapast fjár- málalegt öngþveiti, ef núverandi minnihlutaflokkar næðu meiri- hluta í borgarstjórn? • — Það þarf ekki endilega að verða. Það er alltaf miklu þægilegra að vera í stjórnarand- stöðu og reynslan er oftast sú, að menn verða miklu ábyrgari. TQ efs að samstarf minnihluta- flokka í mdrihluta undir ftrystu Aliýðubandalaæ niundi Uessast — segir Alfreð Þorsteinsson sem nú lætur af störfum í borgarstjóm — Á svo löngu bímabili, sem tvö kjörtímabil spanna yfir, eru það auðvitað mörg málin, sem ég hef haft afskipti af. Fyrst af öllu vil ég nefna það, að ég hef beitt mér mjög fyrir bættum starfsskilyrðum íþróttafélag- anna í borginni. Eg tel, að sú barátta mín hafi skilað tölu- verðum árangri, þó að ég hefði gjarnan kosið, að enn meira tillit hefði verið tekið til tillagna minna, t.d. með afnámi húsa- leigu á íþróttasölum borgarinn- ar. Þessi húsaleiga er mikill baggi á íþróttafélögunum, en skipti borgina sáralitlu máli sem útgjaldaliður. Þá vil ég nefna það, að ég hef beitt mér sérstaklega fyrir málefnum Breiðholtshverfa, sem ekki er óeðlilegt í sjálfu sér, þar sem ég hef búið þar s.l. 6 ár og þekki því vel til aðstæðna. Ég tel, að málefnum Breiðholts- hverfa hafi þokað nokkuð áleið- is, þó að þar sé margt ógert enn þá, sérstaklega í samgöngumál- um. Meirihlutinn í borgarstjórn hefur sér til afsökunar, að fólksfjölgun í Breiðholtinu hef- ur orðið miklu örari en gert var ráð fyrir í Aðalskipulaginu og því ekki óeðlilegt, að sitt hvað hafi gengið hægar fyrir sig en æskilegt væri. í þessu sambandi er oft deilt um forgangsverkefni og í þeim efnum hef ég verið ósammála Sjálfstæðisflokknum í mörgu. Ég get einnig nefnt, að ég hef látið til mín taka í sambandi við innkaupamál borgarinnar, en ég hef átt sæti í stjórn Innkaupa- stofnunar Reykjavíkurborgar s.l. fjögur ár. Þessi málaflokkur er miklu stærri og þýðingar- meiri en margir hyggja. Árlega gerir Reykjavíkurborg innkaup og samninga við verktaka fyrir hundruð milljóna króna. I þessum málum þarf að gæta sem þó hefur upp á að bjóða eitthvert fegursta útsýni, sem fyrirfinnst í borginni, því að þarna er gott útsýni til sunda og eyja. Ég gerði að tillögu minni, að þarna risi íbúðahverfi jafn- hliða. Þegar Aðalskipulagið var endurskoðað og samþykkt sem slíkt hafði þetta sjónarmið verið tekið til greina og var það mér fagnaðarefni. — Hafa borgarfulltrúar minnihlutaflokkanna áhrif á stjórn borgarinnar? — Alveg tvímælalaust. Að mínu mati er ekki við lýði alger einsflokks stjórn á Reykjavíkur- borg, þrátt fyrir traustan meiri- hluta Sjálfstæðisflokksins. Þvert á móti hefur vérið tekið töluvert tillit til tillagna minni- hlutans í ýmsum málum. Þá á ég ekki aðeins við tillögur fluttar í borgarstjórn heldur einnig til- lögur, sem fluttar eru í hinum ýmsu ráðum og nefndum borg- er þeir taka við stjórn sjálfir. En ég vil þó ekki leyna því, að mér litist illa á, ef Alþýðu- bandalagið ætti að hafa forystu í fjármálastjórn borgarinnar. Borgarfulltrúar þess eru oft á tíðum í sáralitlum tengslum við raunveruleikann. Persónulega hef ég ekkert á móti borgarfull- trúum Alþýðubandalagsins frekar en öðrum borgarfulltrú- um, þetta er prýðisfólk í dag- legri umgengni, en sú tilhneig- ing Alþýðubandalagsmanna að vilja koma öllum einstaklingum frá vöggu til grafar á einhverjar stofnanir, myndi fljótlega gera Reykjavíkurborg gjaldþrota. Mér er til efs, að samstarf núverandi minnihlutaflokka í hugsanlegum meirihluta undir stjórn Alþýðubandalagsins, myndi blessast. Þá ályktun dreg ég af því, að samstarf þessara flokka á kjörtímabilinu, sem nú er að ljúka, hefur verið miklu skrikkjóttari undir forystu Framhald á bls. 31 Athugasemd frá Þorbimi Broddasyni Ritstjórar gódir. Mér er ljóst að það er til allmikils mælst að æskja rýmis í Morgunblaðinu í slíkri viku, en málsbætur eru nokkrar og því treysti ég ykkur til að birta þetta bréfkorn í næsta tölublaði. Þið birtið í dag frétt á baksíðu sem fjallar um tillögu um aukið lýðræði í stjórn borgarinnar og ég flutti á fundi borgarstjórnar s.l. fimmtudag. Einn liður tillögunnar fjallaði um að komið skyldi í veg fyrir að ákvarðanir sem varða almenning miklu yrðu teknar fyrir lokuðum tjöldum. Hugmyndin um bann við lokuðum meirihlutafund- um byggir á bandarískri lagahefð sem að sögn vinnur sér æ meira fylgi vestra („open meetings laws“). Meirihlutafundur getur tekið endanlega bindandi ákvörð- un, minnihlutafundur getur það alls ekki. Þess vegna eru lokaðir meirihlutafundir hættulegir lýð- ræðislegum starfsháttum í miklu ríkari mæli en sambærilegir fund- ir minnihluta. I tillögu minni var hvergi vikið að Sjálfstæðisflokknum, enda var hún almenns eðlis. Á hinn bóginn blandaðist núverandi meirihluti borgarstjórnar óhjákvæmilega inn í umræðurnar. Tillagan fjallaði heldur ekki um starfshætti Al- þingis, enda þótt svo mætti ætla við lestur Morgunblaðsins í dag. Jafnvel þótt hún væri heimfærð upp á Alþingi þá gæti hún ekki tekið til funda þingflokkanna þar sem enginn einn þingflokkur hefur meirihlutaaðstöðu á Alþingi. Þetta tók ég rækilega fram við umræð- urnar í borgarstjórn að gefnu tilefni frá Davíð Oddssyni. Blaða- maður Morgunblaðsins, sem er prýðilega athugull, fylgdist með þessum umræðum. Með vinsemd og virðingu, Þorbjörn Broddason. Sunnuferd78áÉ 75 ARA 75 ÁRA er í dag á Sauðárkróki, frú Ólína Björnsdóttir Aðalgötu 5, eiginkona Guðjói\s Sigurðssonar bakarameistara þar í bæ. GKIKKLAND AÞENUSTRENDUR RHODOS SKEMMTISIGLING Dagflug á þriðjudögum. Nýr og heillandi sumarleyfis- staður fslendinga. Yfir 1000 farþegar fóru þangað á síðasta ári þegar Sunna hóf fyrsta íslenska farþegaflugið til Grikklands og hafa margir þeirra pantað í ár. Þér getið valið um dvöl í frægasta tískubaðstrandarbæjum Gylfada í nágrenni Aþenu, þér gatið dvaliö þar á íbúðarhótelinu Oasis, bestu íbúöum á öllum Aþenu- svæðinu með hótelgarði og tveimur sundlaugum, rétt við lúxusvillu Onassis-fjölskyldunnar, góðum hótelum, eða rólegu grísku umhverfi, Vouliagmeni, 26 km frá Aþenu. Einnig glæsileg hótel og íbúðir á eyjunum fögru, Rhodos og Korfu að ógleymdri ævintýrasiglingu með 17. þús. lesta skemmtiferðaskipi til eyjanna Rhodos, Krítar og Korfu, auk viðkomu i Júgóslavíu og Feneyjum. Hægt er að skipta Grikklandsdvöl, og velja viku með skemmtiferöaskipinu, og 1 eða 2 vikur á Aþenuströndum eða eynni Rhodos. Reyndir íslenskir farastjórar Sunnu og íslensk skrifstofa. Einnig Sunnuflug til: MALLORCA dagflug á sunnudögum ; COSTA DEL SOL dagflug á föstudögum COSTA BRAVA dagflug á sunnudögum ÍTALÍA dagflug á þriöjudögum K ANARÍEYJAR dagflug á fimmtudögum PORTÚGAL dagflug á fimmtudögum SUNNA s! 8 i Z 5 <> REYKJAVÍK: BANKASTRÆTI 10 - SÍMI 29322. AKUREYRI: HAENARSTRÆTI 94 - SÍMI 21835 éf

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.