Morgunblaðið - 12.07.1978, Side 12

Morgunblaðið - 12.07.1978, Side 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 12. JÚLÍ 1978 Heimir Steinsson rektor: Sérkenni lýðháskóla Hvað er „lýð- háskóli44? Þótt nú séu liðin nær sex ár frá þvi að lýðháskólahald var að nýju til hafið á íslandi með stofnun Skálholtsskóla, verð ég þess þrásinnis var, að mönnum er það tæpast svo ljóst sem skyldi, hvers konar skólahald hér er á ferð. Ef til vill liggja orsakirnar í augum uppi: Þótt nemendur þeir, sem stundað hafa nám í Skálholts- skóla, séu nú á þriðja hundraði, verður ekki sagt, að skólinn sé ýkja fyrirferðarmikill á lands- mælikvarða. Aldrei hefur verið efnt til stórvægilegra auglýsinga- herferða, þótt hér væri brofið upp á nokkru nýmæli. Það er því ekki að undra, þótt ýmsir spyrji: Hvað er lýðháskóli? Hvaða sérkenni hefur þess konar stofnun? Og að hve miklu leyti er unnt að segja, að Skálholtsskóli standi undir nafni sem lýðháskóli á Islandi? Valírelsi Eitt þýðingarmesta einkenni lýðháskóla er þetta, aö honum er ætlað að bjóða nemendum svo fjölþætt námsefni samkvæmt frjálsu vali sem framast er kostur á. Á eiginlegum lýðháskóla eru ekki aðrar greinar skyldubundnar en þær, sem allir geta orðið á einu máli um, að hverjum skóla beri að sinna. Sá sameiginlegi kjarni er umfram allt móðurmál og þjóðar- saga, auk almennrar menningar- sögu og yfirlits yfir samtímavið- burði. Aðrar greinar allar eru valfrjálsar á lýðháskóla, og þannig er málum háttað í Skálholti á komandi vetri. Þegar um það er rætt, hvernig hagað skuli valfrjálsu námsefni á lýðháskóla, verður einkum tvennt ofarlega á baugi: Annars vegar reynir lýðháskóli að gefa nemend- um kost á að bæta hlut sinn í ýmsum hagnýtum greinum, svo sem tungumálum og raungreinum. Hins vegar kappkostar skólinn að láta nemendum í té einhver þau viðfangsefni, er varða manninn og veröld hans. Er hér oft og einatt um að ræða þess konar námsgrein- ar, sem ekki er unnt að sinna á skyldunámsstigi og einnig hefur verið takmarkaður gaumur gefinn víða innan framhaldsskóla. Allt er þetta efni valfrjálst sem fyrr segir. Getur sérhver nemandi einbeitt sér að þeim hugðarefnum einum, sem honum eru kærust ellegar hann telur sig hafa mesta þörfina fyrir. Með þeim hætti ganga menn til dagsverksins fúsari en ella og ná að sama skapi drýgri árangri. Engin próf — nám án streitu Það sérkenni lýðháskóla, sem alla jafna þykir hvað mestum tíðindum sæta, er í því fólgið, að skólar þessir leggja engin próf- verkefni fyrir nemendur, hvorki á námstímanum né við leiðarlok. Sú er sannfæring lýöháskólamanna, studd langri reynslu, að valfrjálst nám, án þess þrýstings, sem próf Ilcimir Steinsson rektor hafa í för með sér, reynist mörgum ungmennum og raunar fólki á öllum aldri næsta heillavænlegt. Með þessu er engum steini varpað að þeim skólum, er iðka próf. Hinu er haldið fram, að við hlið slíkra skóla sé þörf fyrir próflausar menntastofnanir, þar sem nem- endum gefst kostur á að staldra við og styrkja sig í einstökum greinum að eigin vali ellegar íhuga sitt ráð við lestur nýstárlegra fræða. Að lokinni slíkri viðdvöl er nemandinn hæfari til þess en fyrr að bregða á leik á skeiðvelli hins almenna skólakerfis og reyndar á vinnumarkaði einnig. Nemandinn hefur hvílst frá þeirri streitu, sem einkennir þjóðfélag samtímans. En hvíld frá streitu merkir ekki hið sama og hvíld frá námi. Reynsla lýðháskólanna sýnir ein- mitt, að það nám án streitu, sem iðkað er innan veggja þeirra, getur í ýmsum tilvikum orðið árangurs- ríkara og markvísara en hinn harðasti próflestur. Veganesti og brautargengi Þótt engin próf séu tekin á eiginlegum lýðháskólum, fer því fjarri, að nemendur hverfi þaðan á brott allslausir. Við lok náms- tímans er hverjum og einum afhent námsferilsvottorð, þar sem gerð er grein fyrir því, hvað hlutaðeigandi hefur stundað vetrarlangt. Jafnframt hlýtur hver sá, sem þess óskar, umsögn eða meðmæli frá skólanum, og er þar einkum gerð grein fyrir þeim framförum, sem nemandinn hefur tekið. Gögn þessi hafa veitt mörgum nemanda brautargengi í þeim löndum þar sem lýðháskólar eru rótgrónir, en hið sama hefur einnig orðið uppi á teningnum hér á landi. Auk þessa hefur nemand- inn heim með sér að veganesti ýmis þau efni, er áður voru nefnd, og draga mætti saman í hugtakinu „persónuþroski". Víðsýni og fjölskyggni Með hinu síðast greinda er komið að því stefnumiði lýð- háskóla, sem telja má grundvöll þeirra allra. Lýðháskólar eru starfræktir með ýmsum hætti og studdir af sundurleitum aðilum. En eitt markmið eiga þeir sam- eiginlegt og það er þetta að leiða nemendur fram á þann sjónarhól, er horfa má af til allra átta. Vilji forystumenn menntastofnunar raunverulega efla lýðháskóla, hljóta þeir að opna allar gáttir og bjóða velkomið sérhvert það við- horf, er kynnir sig af háttvísi og sanngirni. Með þeim hætti einum fá víðsýni og fjölskyggni dafnað, — og þar með sú mennska, sem lýöháskólum öllu öðru fremur er ætlað að standa vörð um. En sú mennska er uppistaða þess bræðralags skólasystkina, kenn- ara og vina, sem er aðalsmerki lýðháskólahreyfingarinnar um Norðurlönd öll. Hcimir Steinsson. Amnesty fórnarlamb eigin velgengni GÓÐUR mælikvarði á vaxandi áhrifamátt Amensty Inter- nationai siðan samtökin urðu til í kjölfar greinar í Observer, er að samtökin hafa hlotið Nóbelsverðlaun og að greinar- gerðir þeirra eiga mikinn þátt í að móta stefnu Bandaríkj- anna f utanríkismálum. En jafnframt þvf að vaxandi vonir eru bundnar við störf samtakanna eftir að þau hlutu Nóbelsverðlaun og voru tekin undir smásjá, hefur gagnrýnin á þau vaxið að sama skapi. Harðasta og skaðlegasta árásin var gerð sl. vor. Arás sem Amnesty tók svo aivarlega, að deild f einu landi taldi sig tiineydda að svara henni opin- berlega og í smáatriðum. Sú gagnrýni kom fram í grein Stephens nokkurs Milier í hinu virta bandaríska mánaðarriti Commentary, sem Bandaríska gyðingaráðið gefur út. Greinin, sem birt var sem gagn í Þingtíðindum, hefur gefið and- stæðingum samtaksnna byr undir vængi, því þeir telja að þar hafi verið dregnir fram annmarkar þessara mann- réttindasamtaka og opinberiega komið fram það sem margir hugsuðu í hljóði. Þetta hefur valdið talsmönnum Amnesty áhyggjum, því þeir segja að Miller, sem er aðstoðarfram- kvæmdastjóri fræðsluáætlana við Úthlutunarstofnun til mannúðarmála, hafi misskilið hlutverk Amnesty og byggt árás sína á yfirborðskönnun á starf- semi þess. Helzta gagnrýni Millers er að Amnesty haldi óaflátanlega áfram að safna gögnum um misgerðir hægri stjórna, en líti undan meðan vinstri stjórnir á borð við Kambódíustjórn komist upp með þjóðarmorð. Upplýsingar hans virðast byggðar á ársskýrslu samtak- ; anna fyrir árið 1977, þar sem hann hefur uppgötvað að miklu meira rými er eytt í stjórnvöld sem eru á hægri væng en allar vistri stjórnir til samans. Hann sakar Amensty um að vera hallt undir skoðanir sem ríkjandi eru almennt í alþjóða- málum. Með því að telja línu- fjölda er fellur í hlut hverrar þjóðar, telur Miller sig finna mat Amnesty á mannréttindum í því landi. í ársskýrslunni 1977 finnur hann að Sviss er vert tveggja greina, en Norður Kórea er aðeins einnar greinar virði. Hann vekur athygli á því, að 14 samviskufangar hafi verið teknir upp á arma samtakanna í Bandaríkjunum, en aðeins 25 á Kúbu, þar sem viðurkennt er að pólitískir fangar skipti þúsund- um. Jafnmargar blaðsíður, eða hálf fimmta síða, eru helgaðar Kína og Singapore; en hálf fimmta blaðsíða skýrir frá ástandinu í Suður-Kóreu á móti tveimur blaðsíðum um Kambódíu. Með löngum gagnrýnilista, þar sem m.a. er staðhæft að Amnesty hirði meira um hungurverkfall í Israel en „blóðugustu byltingu sögunnar" í Kambódíu, dregur Miller þá ályktun að „erfitt sé að forðast þá niðurstöðu að einhver stefna eða að minnsta kosti einhvers konar meðvitað viðhorf standi að baki þeirri vaxandi tilhneig- ingu að hvísla lágt þegar málið snýst um Víetnam, Kúbu, Kína og Kambódíu, en hrópa af krafti þegar komið er að Argentínu, Chile, Filippseyjum og Suður- Kóreu. Sé þetta rétt, þá eru ásakanir Millers mjög alvarlegar. Amnesty hafnar þeim algerlega og í smáatriðum, þar sem segir að Miller telji Amnesty sýnilega stóra skriffinnskustofnun með mikil fjárráð, sem fáist við að meta mannréttindabrot um víða veröld og beri framferði eins lands saman við annars. Þegar stefnuskrá Amnesty er lesin, sést að fyrsta boðorðið þar á blaði er að starfið verði að vera „óháð pólitískum viðhorf- um“ og erfitt væri að finna pólitíska hlutdrægni í störfum þessara 200.000 ólaunuðu meðlima, sem starfa í frístund- um sínum í yfir 100 löndum. Sennilegt er þó að almennt séu ungir hugsjónamenn í fullu starfi í London, sem vinna við rannsóknastörf og útgáfustarf- semi, vinstri sinnaðir. En allar upplýsingar, sem einhver einn starfsmaður safn- ar, eru yfirfarnar af að minnsta kosti einum öðrum í þeirri ákveönu deild, áður en þær eru birtar. Að vissu marki hefur Amnesty orðið fórnarlamb sinn- ar eigin velgengni. Starfsliði í fullu starfi hefur fjölgað um helming, upp í 30 manns í London, þó það dugi engan veginn til að mæta kröfunum, sem nú eru gerðar til samtak- anna. Hvar. sem mannréttindi eru brotin í heiminum, eiga menn nú von á að heyra frá Amnesty. En auðvitað verður starfsfólkið að marka sér for- gangsverkefni vegna tak- markaðs efnahags. Einn starfs- maður er kannski að vinna að upplýsingaöflun í allt frá 2—3 löndum og upp í 20 lönd á sínu ábyrgðarsvæði. Þannig hefur Kína verið tekið sem mikilvæg- asta landið til rannsókna í Asíudeildinni, á kostnað annarra, þar á meðal Kambódíu. En sá heimshluti er mjög dreginn fram í gagnrýni Millers. Vandinn í sambandi við brot á mannréttindum í Kambódíu er mikill. Þar er einfaldlega um að ræða skort á upplýsingum, sem kemur í veg fyrir frekari rannsóknir, segir Amnesty. Hvað eftir annað hefur verið lagt að stjórnendum að veita upplýsingar, sem ekki hefur verið svarað. Samtökin hallast að því í hlutleysis- og nákvæmnisskyni að byggja skýrslur sínar á viðtölum við flóttamenn einum saman. Ásakanir um brot á mannréttindum eru rannsökuð þegar þeirra verður vart og Amnesty leggur á það áherslu að samtökin hafi enga aðstöðu til að meta framkomu einnar þjóðar í samanburði við aðra, jafnvel þó þau hefðu hug á því. Það, sem Amnesty leggur mesta áherslu á að mótmæla, er þessi „talnaleikur" Millers. Dregnir eru fram gallarnir á mati á efni ársskýrslunnar með línutalningu einni saman, og lagt út af því: af 20 línum um Sviss eru 12 um ástæðurnar fyrir því að ekki er hægt að bera undir atkvæði fyrr en á árinu 1980 meðferð á rétti manna til að hafa skylduþjónustu af sam- viskuástæðum, þar sem 7 línurnar um Norður-Kóreu fjalla um algera ritskoðun á öllu sem fjallar um mannréttindi. Við höfum tekið 25 fanga upp á okkar arma á Kúbu, segja samtökin, af þeirri einföldu ástæðu að ekki eru fleiri tilfelli fyrir hendi, sem eru í þann stakk búin. En Dick Oosting, varafram- kvæmdastjóri Amnesty International viðurkennir að samtökin eigi í vaxandi erfið- leikum. „Við eigum við vanda- mál að stríða, ekki síst eftir Nóbelsverðlaunin," segir hann. „Sífellt reynist meiri erfiðleik- unt bundið að uppfylla það sem búist er við af okkur. Kannski höfum við hlotið viðurkenningu of fljótt, og e.t.v. hefðum við alls ekki átt að hljóta hana.“ „Þeir sem saka okkur um að gera tvennskonar kröfur, leggja sjálfir á tvenns konar mat. Við tökum til hendi hvar sem nauðsyn krefur og möguleikar eru á því. Þetta fólk ætti að leggja mat á störf okkar á heilu ári, með því að athuga hvað við höfum gert og líta á allt það sem við höfum gefið út.“ Orðstír samtakanna er samt það sem Amnesty lætur sig einna mestu varða. „Óáreiðan- leiki hangir yfir höfði okkar eins og Damoclesarsverð. Ein mistök og samtökin líða fyrir þau, segir Oosting að lokum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.