Morgunblaðið - 15.07.1978, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. JÚLÍ 1978
11
„Andalæknarnir
velta milljónum
II
UNDANFARIN ár hafa
Filippscyjar stöðugt laðað til
sín fleiri og fleiri erlenda
ferðamenn. Filippseyjar hafa
vafalaust upp á ýmislegt að
bjóða sem ferðamenn sækjast
eftir, en þó eiga hinar svo
nefndu andalækningar senni-
lega mestan þátt í vinsældum
Filippseyja sem ferðamanna-
staðar nú seinni árin.
Á hverju ári streyma stöðugt
fleiri þúsundir ferðamanna til
Manila til að fá lækningu við
sjúkdómum sfnum Illar tungur
segja að ef þessi hópur af fólki,
sem til landsins kemur til að
leita sér lækninga, myndi
minnka verulega. yrði flug-
félagið á Filippseyjum.
„Philippine Air Lines“, fyrir
miklum fjárhagserfiðleikum,
þannig að mikið er í húfi að
halda uppi ferðamanna-
straumnum til landsins.
En hvað er það sem þessir
filippísku andalæknar geta, og
fær svo marga til að borga háar
fjárupphæðir til að komast til
þessa lands? Það er fullyrt að
andalæknarnir geti læknað
hvaða sjúkdóm sem er með
guðdómlegum krafti. Furðulegt
er að sjá mannlega veru fjar-
lægja bólgukýli, gallsteina eða
nýrnasteina án þess að nota til
þess nokkur tæki. Þegar fólki
eru sýndar kvikmyndir og
Ijósmyndir af þessum
lækningum er eðlilegt að margir
velti því fyrir sér hvort það geti
ekki ennþá gerst kraftaverk.
í mörg ár hafa þessir hlutir
verið ræddir fram og aftur og
borin fram rök og mótrök við
andalækningunum. Reynt hefur
verfð að útskýra hvað þarna
gerist íraunveruleikanum, en
eins og margir vita er það
jafnvel erfiðara en að afsanna
hlutinn algerlega.
Fyrir um það bil 5 árum fór
bandaríski skurðlæknirinn
William A. Nolen til Filippseyja
í því skyni að reyna að rannsaka
málið sjálfur. Hann heimsótti
nokkra þekkta andalækna, eins
og til dæmis Tony Agpaoa, sem
hefur um 10 til 15 milljónir
íslenskra króna í tekjur á
mánuði. Aðrir frægir anda-
læknar, sem Nolen ræddi við,
voru David Oligani, Joe
Mergado og Josephine.
Eftir ferðina til Filippseyja
gaf Nolen út bókina sem á
enskri tungu nefnist „Healing",
en þýða mætti sem „Lækning-
in“. Að margra dómi líktist
þessi bók einna helst sakamála-
sögu, þar sem sannleikurinn er
afhjúpaður í bókarlok. I bókinni
er sagt frá margskonar furðu-
legum „skurðaðgerðum", sem
Nolen sjálfur var viðstaddur.
Þar kemur fram að lækninga-
aðferðirnar breytast ekki mikið
þótt um mismunandi sjúkdóma
sé að ræða. Lækningin fer
venjulega þannig fram að
sjúklingurinn leggst á bekk, þar
sem andalæknirinn rannsakar
hann og notar til þess berar
hendurnar einar. Þegar guðleg-
ar hendur hans nálgast hinn
sjúka stað í líkama mannsins,
skrá þær niður sjúkdóminn.
Hendur andalæknanna gegna
því svipuðu hlutverki og rönt-
gentæki okkar Vesturlandabúa.
Þegar sjúkdómurinn hefur
verið staðsettur og skilgreindur
undirbýr aðstoðarstúlka
aðgerðina. Hún leggur
baðmullarkúlur á stærð við
hænuegg nálægt hinum sjúka og
stillir flösku með tærum vökva
við hliðina á rúminu. Þá er allt
tilbúið fyrir aðgerina. Áhorf-
endurnir, sem flestir eru
sjúklingarnir sem bíða eftir að
röðin komi að þeim, fylgjast
ákafir með öllu. Því næst biður
andalæknirinn stutta bæn, en
frá bæninni fullyrðir hann að
hinn yfirnáttúrulegi kraftur
komi. Andalæknirinn hreinsar
sjúka staðinn með tæra vökvan-
um úr flöskunni og byrjar að
nudda staðinn. Síðan þrýstir
hann húðinni í tvo hluta og
hefur góða skoru þar á milli.
Skyndilega sést ekki lengur ysti
hlutinn á fingri andalæknisins,
og virðist sem hann sé kominn
lengst inn í líkama sjúklingsins.
Þessi ályktun áhorfenda
staðfestist þegar dökkruður
vökvi byrjar að leka út á milli
fingra andalæknisins. Enn
betur staðfestist þó þetta þegar
stuttu seinna kemur í ljós
eldrauður hlutur í annarri hendi
andalæknisins og kippir hann
honum með sigrihrósandi hreif-
ingu burt. £etta er kýlið sem olli
sjúkdómnum, og andalæknirinn
hefur fundið — og sönnunar-
gagnið fyrir því að aðgerðin hafi
heppnast. Nú er aðeins eftir að
þurrka burt blóðið af líkama
sjúklingsins og þegar því er
lokið lítur sjúklingurinn
undrandi upp og virðist hissa á
því að aðgerðin tók ekki nema
örfáar mínútur og hann fann
ekki hið minnsta til. Líkami
hans er nú laus við sjúkdóminn.
Er þetta kraftaverk — eða
hvað?
Ennþá undarlegri er augna-
aðgerð sem dr. Nolen lýsir í bók
sinni. Eftir örstutta þuklun á
svæðinu umhverfis augað
stendur andalæknirinn allt í
einu með augað í höndunum,
eins og ekkert væri eðlilegra.
Hann dregur það út um 7—8
sentimetra frá augnatóftinni og
þurrkar af því með vasaklút, á
svipaðan hátt og menn þurrka
framrúðuna í bíl, en setur síðan
augað á sinn stað aftur. Því
næst reisir sjúklingurinn sig
upp og blikkar augunum og
hrosir bakklátleea til anda-
læknisins, stendur upp og fer.
Svo, einfalt var það nú.
Fólk sem einhvern tíman
hefur haft samband við anda-
lækna hefur margar aðrar
svipaðar sögur að segja. Þær
hafa síðan orðið til þess að fjöldi
fólks streymir til Filippseyja í
von um að fá bót meina sinna.
En getur það verið að hægt sé
að lækna hvers kyns sjúkdóma
á þennan hátt? Sjúkdóma sem
læknar á Vesturlöndum hafa
ekki getað ráðið við, eða þá að
þeir þyrftu að gera mun erfiðari
og hættulegri aðgerðir til að
geta læknað þá?
Flestar þær rannsóknir sem
gerðar hafa verið á anda-
lækningum í dag benda í þá átt
að þær séu einungis vel útfærð-
ar sjónhverfingar. I nýlegri
bandarískri blaðagrein segir
James Randi, bandarískur sjón-
hverfingamaður, frá því hvernig
hægt sé á mjög einfaldan hátt
að látast opna líkama sjúklings
og fjaríægja kýli.
En blekkingin styrkist þegar
blóðlitur vökvi kemur í ljós, því
hvað er eðlilegra en að það blæði
þegar líkaminn er opnaöur.
Rannsóknir á þessum hlutum
hafa þó sýnt að það er ekki
Filippísk skurðaðgerð. Engin tæki eru notuð — aðeins hendurnar.
raunverulegt mannablóð sem
þarna kemur í ljós, heldur
eitthvað annað. Hvað það er
getur verið breytilegt hjá anda-
læknum en venjulega er um
dýrablóð að ræða, sem þá hefur
verið komið fyrir í höndum
andalæknisins á einhvern hátt,
áður en aðgerðin hefst. Margir
nota þó einhvern annan vökvá,
sem líkist mannablóði.
Rannsóknir hafa einnig sýnt
að innyflin, sem koma í ljós við
þessar andalækningar, eru yfir-
leitt úr dýrum, og þá oftast úr
kjúklingum. í einu tilfelli var
verið að fjarlægja nýrnasteina
úr kanadískum sjúklingi. Hon-
um tókst að koma við nýrna-
stein, sem verið var að fjarlægja
og fullyrti hann á eftir að þarna
hefði ekki verið um neinn
nýrnastein að ræða, heldur
sykurmola. Þó er yfirleitt ekki
auðvelt að rannsaka þessa hluti,
því um leið og andalæknirinn
hefur sýnt áhorfendum það sem
um er að ræða tekur aðstoðar-
stúlkan við því og brennir það í
flýti.
Eru þá filippísku andalækn-
ingarnar eingöngu skottulækn-
ingar og aðalsjónarmið anda-
læknanna að blekkja fólk til
þess að hafa af því fé? Reynslan
hefur sýnt að þegar um er að
ræða alvarlega lífræna sjúk-
dóma fá sjúklingar ekki bata og
þá ber vissulega að taka sterka
afstöðu gegn andalækningum.
Það er ekki rétt að villa þannig
um f.vrir sjúku fólki og telja því
trú um að það muni fá bata, ef
það getur svo ekki orðið.
Hvað er það þá sem veldur því
að fólk borgar stöðugt hærri
fjárupphæðir til að komast til
Filippseyja? Á því hlýtur að
vera til einhver skýring. Vissu-
lega eru til sjúklingar sem snúið
hafa heim aftur og fengið bata.
En það eru sjúklingar sem eru
hrjáðir af annars konar sjúk-
dómum, sem þá lýsa sér þannig
að þeir.koma í köstum, eins og
til dæmis vissar tegundir af
migrene. Einnig er til fjöldi
annarra sjúkdóma sem
filippísku andalæknarnir geta
ráðið bót á að einhverju leyti.
Það eru til dæmis sjúkdómar af
sálfræðilegum toga spunnir, en
í því sambandi má nefna heila-
kvikssjúkdóma og ýmsa tauga-
sjúkdóma. Á þessum sjúkdóm-
um geta andalæknarnir jafnvel
betur ráðið bót, en venjulegir
læknar, sem oft geta ekki fundið
likamlega orsök fyrir sjúkdóm
inum. I okkar þjóðfélagi eru
þess konar sjúkdómar því miður
oft ekki viðurkenndir sem eigin-
legir sjúkdómar, og sjúklingar
sem þjást af þessum sjúkdómum
oft litnir öðrum augum en aðrir
sjúklingar.
Þrátt fyrir allt verður fólk
Framhald á bls. 23
frjáls
verzlun
eina íslenzka viöskiptaritiö,
nú í nýjum búningi.
d - *
Til Frjálsrar verzlunar, Ármúla 18, Rvk
Óska eftir að gerast áskrifandi.
Áskriftarsímar 82300 og 82302.
Nafn...........
Heimilísfang.
Sími.........