Morgunblaðið - 15.07.1978, Page 19

Morgunblaðið - 15.07.1978, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. JÚLÍ 1978 19 í tilefni af þeim umra*ðum. sem að undanförnu hafa farið fram hér í MorRunblaðinu um stöðu blaðsins og samskipti þess við Sjálfstæðisflokkinn er hér endurhirt Rrein. sem Eyjólfur Konráð Jónsson. fyrrverandi ritstjóri MorRunblaðsins. ritaði í 50 ára afmadisblað MorRunblaðsins hinn 2. nóvember 1903. í Rrein þessari er lýst viðhorfum ritstjóra hlaðsins til samskipta þess við Sjálfstæðisflokkinn or almennrar þróunar þess næstu árin á eftir. í öllum meRÍnefnum hefur á þeim 15 árum. sem liðin éru. verið fvlRt þeim huRmyndum. sem fram koma í grein Eyjólfs Konráðs Jónssonar. or raunar höfðu mótað stefnu blaðsins or þróun í nokkur ár áður. Hún fer hér á eftir í heild. Nánar verður fjallað um þetta efni í Ileykjavíkurbréfi MorRunhlaðsins á morjíun. Ritstj. SAGAN er rakin. Við segjum frá aðstæðum í dag. Og loks eiga ýmsar afmælisgreinar, sem birtast í þessu blaði og framhaldi þess næstu daga, að vera framtíðarspár. Höfundarnir voru beðnir að láta hugann reika og vera ekki alltof fræðilegir. Þetta þrennt, og ekki sízt það síðastnefnda, hef ég í huga, þegar ég rita þessa grein. Einhver hefur sagt, að lýðræðisskipu- lag væri óhugsandi án dagblaða. Þau hefðu verið grundvöllur þess. Er þar auðvitað átt við það, að án blaðanna væri. útilokuð sú frjálsa skoðanamyndun, byggð á stöðugum og réttum upplýsing- um, sem lýðræðið útheimtir. Ef þetta er rétt, sést, hve mikil stjórnmálaþýðing dagblaðanna er, ekki einungis vegna hinna eiginlegu stjórnmálaskrifa, heldur ef til vill öllu fremur vegna hinnar daglegu fræðslu og upplýsinga, sem þau veita. Hér skal ekki farið langt út í þá sálma að ræða um hinar almennu fréttir, þótt þær í eðli sínu geti flestar hverjar haft stjórnmálalega þýðingu og áhrif á framvindu þjóðmála. Þannig getur slysa- frétt orðið til þess að gripið er til nýrra öryggisráðstafana, afbrotafréttir vekja upp umræður um refsilöggjöf, aflafréttir hafa áhrif á fjármálaráðstafanir, fréttir af vaxtahækkun geta aukið sparifjár- myndun o.s.frv. I stuttu máli verður látið nægja að benda á, að fréttirnar á að segja og verður að segja, ef þær á annað borð eru þess eðlis, að þær eiga erindi til almennings. Og þær verður að segja óbrenglaðar, þótt menn geri sér grein fyrir því, að þær geti verið skoðanamynd- andi — eða öllu heldur einmitt vegna þess að þær geta haft og eiga að hafa áhrif. Fréttaþjónusta íslenzkra blaða hefur jafnvægi milli stjórnmálastuðnings, góðrar blaðamennsku og traustrar fjár- málastjórnar. Enginn þarf að ætla, að ætíð hafi verið auðvelt verk eða árekstra- laust að sameina þetta þrennt. En í dag viðurkenna þeir, sem að flokksins hálfu sóttu á, fúslegast allra hið ómetanlega starf þeirra tveggja manna, sem óþarft er að nafngreina, en hvor á sínu sviði unnu þau störf og tóku þær ákvarðanir, sem gerðu Morgunblaðið að „stórveldi“, eins og andstæðingunum er tamt að nefna það. Svo mikið um söguna. En hvernig er stjórnmálaskrifum háttað í dag? Og hvað skyldi framtíðin bera í skauti sínu? Ef við leitumst við að svara þessum spurningum, getum við a.m.k. fullyrt eitt með vissu: Sama svarið getur ekki átt við þær báðar. Eg vona að vísu, að Morgun- Eyjólfur Konráð Jónsson: Blöðin — Þessi hefur a.m.k. orðið raunin með þau blöð, sem íslenzku stjórnmálaflokk- arnir gefa út. En þá spyrja menn: Er Morgunblaðið mikið frjálslyndara? Gagnrýnir það nokkurn tíma gerðir Sjálfstæðisflokks- ins? Leyfir það frjálsar umræður um hann, stefnu eða forustu hans? Eg leyfi mér að fullyrða, að Morgun- blaðið hafi lengst af verið mun frjáls- lyndara í þessu efni en andstöðublöðin og eigi velgengni sína meðfram því að þakka. Og fyrir tæpum þremur árum auglýsti það beinlínis eftir ádeilugreinum í greinaflokk, sem vera skyldi frjáls vettvangur umræðna um hin marghátt- uðu þjóðfélagsvandamál og hefur síðan birt fjölda slíkra greina, (of fáar þó, vegna þess að nógu margar góðar greinar hafa ekki borizt), bæði í þessum dálkum og síðar jafnframt í blaðinu sjálfu, því að skilningur hefur stöðugt farið vaxandi á réttmæti og nauðsyn slíkra umræðna. Allt bendir þetta til þess, að stjórn- málaskrif Morgunblaðsins muni halda áfram að þróast í átt til aukins frjálslyndis, þótt ekki sé auðvelt að spá neinu um það, hvort blaðið verður einhvern tíma alveg óháð, líkt og erlendu stórblöðin — né heldur hvenær það þá yrði. Forusta Morgunblaðsins á þessu sviði mundi vafalaust hafa þau áhrif, að andstöðublöðin reyndu að feta í fótsporin, eins og þau hafa áður gert varðandi fréttaþjónustu og fleira. En það eðli þeirra og uppbygging, sem áður er getið, mundi verða þeim fjötur um fót. Hugleiðingar sem þessar ritar eindreg- inn stuðningsmaður Sjálfstæðisflokksins þó auðvitað ekki, án þess að leitast við að gera sér grein fyrir því, hvaða áhrif slík þróun mundi hafa á mátt flokksins og sigurlíkur stefnu hans. Og mér er nær að halda, að hvort tveggja mundi aukast. Skal reynt að rökstyðja það. Geri ég mér þó grein fyrir því, að ekki munu allir sammála þeirri röksemdafærslu, a.m.k. ekki ungi maðurinn, sem eitt sinn tók sér fyrir hendur að sanna, að Morgunblaðið væri hálfkommúnískt og sendi okkur sönnunargögnin, sem voru fjöldi úrklippa úr blaðinu, þar sem rétt var skýrt frá orðum Krúsjeffs og annarra kommún- og st jórnmálin farið vaxandi og þau gera sér í stöðugt ríkari mæli grein fyrir nauðsyn þess að flytja réttar fregnir. Oumdeilt er, að í því efni hefur Morgunblaðið ætíð haft forustuna, og á því hefur velgengni þess ekki sízt byggzt. En þrátt fyrir þessa ánægjulegu þróun verður að segja þá sögu eins og hún er, að í blaðaútgáfu hafa menn yfirleitt ekki ráðizt hér á landi til þess fyrst og fremst að flytja réttar fréttir eða óháðar skoðanir, heldur til styrktar ákveðnum þjóðfélagsöflum eða flokkum. Morgunblaðið er þó undantekn- ing. Það var upphaflega stofnað sem fréttablað og hefur lengi búið að því. Þrír stjórnmálaflokkar hafa lengi gefið út jafn mörg dagblöð til útbreiðslu stefnu þeirri, sem hver um sig fylgir. Þessi blöð flytja að vísu fréttir, en af illri nauðsyn. Án fréttanna mundu þau ekki seljast. Þess vegna eru þær teknar í þjónustu flokksins, sem þarf að koma sjónarmiðum sínum á framfæri, oft með ærnum kostnaði. Þessu er á annan veg varið með Morgunblaðið. Það hefur að vísu dyggi- lega stutt Sjálfstæðisflokkinn og af þeim stuðningi hafa blaðið og flokkurinn haft gagnkvæman styrk. En eigendur og ráðamenn blaðsins hafa gert sér grein fyrir því, að fyrst þurfti að gefa út dagblað, sem réttnefnt var því nafni, og gat aukizt og batnað af eigin rammleik. Síðan gat það eflt stuðninginn við sameiginlegar hugsjónir Sjálfstæðis- manna. Ákvarðanir hafa af þessum sökum ekki verið teknar á Morgunblaðinu út frá þröngum flokkssjónarmiðum. Þar hefur verið leitazt við að halda heilbrigðu blaðið verði ætíð nægilega íhaldssamt til þess að þar geti aldrei orðið snöggar umbyltingar og enginn einn eða fáir menn geti kollvarpað því, sem á er byggt. En hitt er víst, að um kyrrstöðu verður aldrei að ræða. Þróunin heldur áfram og þar verða mörg öfl að verki. Vera má, að hálfrar aldar saga stjórnmálaskrifa Morgunblaðsins segi okkur lítið um það, hver þróunin muni verða næstu 50 ár. En stefnan síðari árin, viðhorf áhrifamanna í dag og erlend reynsla ætti að geta gefið nokkra vísbendingu er við leitumst við að skyggnast inn í framtíðina. Fyrir allmörgum árum var sú grund- vallarbreyting gerð á frásögnum frá Alþingi, að tekið var að skýra frá sjónarmiðum andstæðinga Sjálfstæðis- flokksins í Morgunblaðinu og reynt að gefa sem réttasta mynd af umræðum á þingi. Síðan fetuðu önnur blöð að nokkru leyti í fótsporin. Þegar þetta gerðist var Bjarni Benediktsson, núverandi formaður Sjálfstæðisflokksins, ritstjóri. Hann hefur síðar haft orð á því, að einn ánægjulegasti vottur viðreisnarinnar væri sá, að dregið hefði úr pólitísku valdi og fólkinu hefði verið fengin yfirráð málefna, sem áður voru í höndum stjórnmálamanna. I þjóðhátíðarræðu sinni í sumar vék Olafur Thors, forsætisráðherra, að hinum illvígu stjórnmálaskrifum íslenzkra dag- blaða og gat þess, að í nágrannalöndunum gæti varla heitið, að á því bæri í dagblöðunum, svo að til lýta væri, að kosningar væru fyrir dyrum, og þó væri þar mikil kosningaþátttaka. Orð þessara tveggja mikilhæfu stjórn- málaleiðtoga fara ekki óséð fram hjá fólki. Og þegar þeir, sem sjálfir standa í fremstu víglínu stjórnmálabaráttunnar, vara við óhóflegum stjórnmálaátökum, hlýtur slíkt frjálslyndi að hafa áhrif á málgagn þeirra. Sannleikurinn er líka sá, að margir eru þreyttir á því naggi og nuddi, sem fær of mikið rúm í stjórn- máladálkum dagblaðanna, líka þeir, sem finnst þeir til neyddir að svara skætingi í svipuðum dúr. En erlenda reynslan? Hún hefur víðast orðið sú, að hrein flokksblöð hafa lognazt út af. Fólkið hefur viljað kaupa blöð, sem reynt hafa að brjóta málin til mergjar óháð því, hvort það hentaði einum flokki eða öðrum þá stundina. Þar með er þó ekki sagt, að þessi blöð séu stefnulaus. Þvert á móti taka þau yfirleitt skelegga afstöðu til mála í ritstjórnargreinum sínum, og áhrifamestu blöðin fylgja vel grundvallaðri meginstefnu, þótt þau séu óháð. En það, sem mest er um vert: Þau eru opin fyrir rökræðum og mismunandi sjónarmiðum. Þau útiloka ekki allt nema hinn eina „sannleika." Hrein flokksblöð * eru ekki ginnkeypt fyrir slíkum skrifum. Þeirra hlutverk er einfaldlega ekki að ljá þeim rúm. Það getur meira að segja orðið til að rugla menn í ríminu og þannig verið í beinni andstöðu við markmiðið — að fá sem flesta til að aðhyllast málstaðinn, til að trúa „hinum eina sannleika". — Eða hví skyldu flokkarnir leggja á sig erfiði og útgjöld til þess að sérvitringar geti látið móðan mása? istaleiðtoga. Þótti hinum unga manni óþarft að koma slíkum óhróðri á framfæri við auðtrúa almúgann. Þótt þróunin yrði í sömu átt og hugrenningar mínar hér að framan, yrði Morgunblaðið að sjálfsögðu ætíð mál- svari Sjálfstæðisstefnunnar, þeirrar meg- inhugsjónar, að frelsi til orðs og æðis geti eitt megnað að færa einstaklingunum, og þar með þjóðinni í heild, farsæld og hamingju. Það mundi áfram styðja einkaframtak samhliða þeim félagslegu umbótum, sem nægja til að hér megi ávallt ríkja réttlátt þjóðfélag. Þar að auki mundi það styðja og styrkja þá heilbrigðu utanríkismálastefnu, sem íslendingar hafa markað og fylgt. Af þessu leiðir að sjálfsögðu, að Morgunblaðið og Sjálf- stæðisflokkurinn yrðu sammála í grund- vallaratriðum og í meginefnum sömu skoðunar um markmiðin. Hins vegar er ekki víst, að í einstökum atriðum þyrfti ritstjórnin að vera sammála þeim leiðum, sem forusta eða meirihluti áhrifamanna ákvæði að fara. Blaðið mundi gagnrýna sumar ákvarðan- ir flokksins og athafnir eða athafnaleysi einstakra forustumanna og kynni jafnvel að benda á, að stefna sú, sem einhver annar flokkur hefði í ákveðnu máli, væri heppilegri. Þannig mundu ekki einungis áhrif blaðsins á stefnu Sjálfstæðisflokks- ins aukast, heldur líka á stefnu annarra flokka og meðal fylgjenda þeirra sem eðlilega væru næmari fyrir skoðunum Framhald á bls. 23

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.