Morgunblaðið - 15.07.1978, Qupperneq 36
AUÍÍLÝSINCÍASÍMINN EK:
22480
LAUGARDAGUR 15. JÚLÍ 1978
Frystihúsin á Suðurnesjum:
Uppsagnir í
næstu viku?
í fróttatilkynningu frá fundi
frystihÚNaeÍRenda á Suðurnesj-
um, sem birtist f Morgunblaðinu
í (jær. er saj?t að 5 frystihús hafi
þegar stöðvazt og nokkur dregið
úr rekstri vegna þeirra erfið-
leika, sem frystiiðnaðurinn eigi
við að búa.
Helgar-
veðrið
VEÐURSTOFAN sajfði þær
fréttir í gær, að horfur væru
á litlum veðurbreytinj'um á
landinu næstu dajja. Á suð-
vestur-horninu má búast við
áframhaldandi súld á köflum.
Reykvíkinj;ar oj; aðrir fbúar
höfuðborj;arsvæðisins verða
því að fara austur fyrir fjall ef
þeir vilja komast í sól um
helgina.
Veður hefur verið með bezta
móti í Vestur-Skaftafellssýslu
að undanförnu, hitinn á Kirkju-
bæjarklaustri fór í 19 stij; í
j;ær. Það getur hins vej;ar orðið
erfitt fyrir íbúa vestan Mýr-
dalssands að komast í veður-
sæluna fyrir austan sandinn,
því rok er mikið á sandinum og
má búast við að vegurinn verði
illfær um helgina.
Á Norðurlandi hefur verið
þurrt veður og góðir dagar á
Akureyri. Hitinn þar fór upp í
18 stig í vikunni.
Samkvæmt upplýsingum, sem
Morgunblaðið fékk í gær frá
Huxley Ólafssyni, hafa þessi
frystihús verið að komast í þrot
frá því í fyrra, er erfiðleikarnir
fóru að gera vart við sig. Huxley
kvað erfiðleika frystihúsanna hafa
hafizt fyrir alllöngu og hafi húsin
síðan verið að smátýnast úr
lestinni.
Vegna þeirra erfiðleika, sem nú
steðja að, kvað Huxley engar
uppsagnir hafa átt sér stað enn í
frystihúsum á Suðurnesjum, en
fyrirsjáanlegt væri að uppsagnir
yrðu í næstu viku. Uppsagnir yrðu
að koma með viku fyrirvara og
yrðu þær ekki gerðar fyrr en
sennilega á miðvikudag og fram
undir helgina þá.
Islandsmótið é Hellu stendur nú yfir og keppa 9 svifflugmenn é jafn mörgum svifflugum. Morgunbladið
bré sér í svifflugið og résaði daglangt um loftin blé yfir Rangérvöllunum. Vélin é myndinni svífur yfir
Þríhyrningi í hlíðauppstreymi en í fjarska sést Eyjafjallajökull. í vélinni er Sigurbjarni Þórmundsson, en
nénar segir fré íslandsmótinu í svifflugi é bis. 3. Ljósmynd Mbl. Árni Johnsen.
Benedikt Gröndal formaður Alþýðuflokksins:
Krefst skýrra svara um
ástæður neitunarinnar
„ÉG mun krcfjast skýrra svara af
hálfu Alþýðubandalagsins á
þessu næsta furðulcga neitunar-
bréfi og eftir að þau eru fengin
mun ég taka ákvörðun um næsta
skref í sambandi við stjórnar-
Mikill mannfjöldi
er á Þingvöllum
IIELDUR viðraði illa á Lands-
móti hestamanna á Skógarhólum
í gær, en veður var þó að mestu
þurrt og sólar naut ekki við.
Stöðugur straumur fólks var á
mótið í gær og var áætlað að
þangað væru komnir um 7 þús-
und manns.
Mótinu verður fram haldið í dag
og á morgun. 1 dag verða m.a.
hross á sölumarkaði mótsins
kynnt og lýst verður dómum
kynbótahrossa. Þá fara fram
kappreiðar. Á morgun verða verð-
laun veitt í einstökum greinum, en
dagskrá sunnudagsins hefst með
helgistund í Hvannajgá, þar sem
biskup Islands predikar við helgi-
stund.
myndunarviðræður,“ sagði Bene-
dikt Gröndal eftir fund þing-
flokks og flokksstjórnar Alþýðu-
flokksins í gær. Bcnedikt sagði að
eftir könnunarviðræður Alþýðu-
flokksins og Alþýðubandalagsins
kæmi Alþýðuflokksmönnum „það
spánskt fyrir sjónir að sjá í
bréfinu talað um að enginn
málefnagrundvöllur sé fyrir
hendi“. Spurningu um það hvort
hann teldi þá að Alþýðubandalag-
ið hefði verið að blekkja Alþýðu-
flokkinn með könnunarviðræðun-
um svaraði Benedikti„Ég vil ekki
segja neitt um það. En neitunar-
bréf þeirra gefur okkur tilefni til
að bera fram ýmsar spurningar
um það hvað þeir cigi við og það
á þá eftir að koma í ljós hvort
þeir eru fyrst og fremst að
fullnægja einhverjum pólitískum
sjonarmiðum sem þeir taka fram
yfir þjóðarhag á þessari stundu.“
„Ég á von á bréfi frá Benedikt,"
sagði Lúðvík Jósepsson er Mbl.
ræddi við hann í gærkvöldi. Sagði
Lúðvík að Benedikt hefði hringt í
sig og tilkynnt honum að bréf væri
á leiðinni. „Mér skilst að efni þess
sé einhver samþykkt sem þeir
gerðu í dag og að þeir óski eftir
svörum okkar við ýmsum hlutum.
Við munum að sjálfsögðu svara
þessum spurningum. Það fer eftir
Framhald á bls. 20.
Árni Friðriksson fann fallega loðnu:
Fyrstu bátarnir
komnir á miðin
FYRSTU loðnubátarnir voru
væntanlegir á miðin norður af
Vestfjörðum í gærkvöldi, en þar
hafði rannsóknaskipiö Árni Frið-
riksson fundið loðnutorfur fyrr
um daginn. Hins vegar er mikill
ís á þessum slóðum og getur hanr.
„Sama gamla hræðslan að
grípa fólkið”
Stóraukin sala á sjónvörpum og
heimilistækjum síðustu dagana
STÓRAUKIN sala hefur verið
á sjónvarpstækjum og heimilis-
tækjum hjá verzlunum í
Reykjavík núna síðustu tvær til
þrjár vikurnar. Til þcss að
kanna þetta nánar hafði Morg-
unblaöið samband við nokkrar 1
verzlanir sem þessa hluti selja.
Hjá Gunnari Ásgeirssyni
sagði sölumaður sjónvarpstækja
okkur það, að mun meira væri
spurt um sjónvörp en verið hefði
þó svo að nú væri sjónvarpslaus
mánuður, og taldi hann að það
stafaði tvímælalaust af því að
fólk væri hrætt við verðbreyt-
ingar á næstunni.
Birgir Helgason hja Nesco
tjáði Morgunblaðinu að miklu
meiri sala væri á sjónvarps-
tækjum en venjulegt mætti
teljast í þesum mánuði og væri
salan ekki minni en.hina mán-
uðina. Birgir taldi að söluaukn-
ingin stafaði af því að fólk væri
hrætt við verðbreytingar og
flestir reiknuðu með einhverjum
gengisbreytingum á næstunni.
Vilberg Sigurjónsson hjá
Radíóstofu Vilbergs og Þor-
steins sagði, að þeir hefðu ætlað
að hafa það rólegt í júlímánuði
þar sem, þeir hefðu ekki búist
við mikilli sölu vegna sumar-
leyfis sjónvarpsins. Raunin
hefði þó verið önnur og nánast
hefði kaupæði gripið fólk, þann-
ig að salan væri miklu meiri en
eðlilegt gæti talist. Taldi hann
að þetta stafaði af ótta við það
að tækin hækkuðu verulega á
næstunni.
Hjá Karnabæ fengum við þær
upplýsingar hja Þorsteini
Daníelssyni, að sjónvarpstækin
seldust mjög vel og að salan
hefði tekið kipp fyrir um það bil
viku og væri hún óvenjulega
mikil miðað við að nú væri
sjónvarpslaus mánuður. Sagði
hann að þetta stafaði sennilega
af því, að fólk óttaðist gengis-
breytingar.
Birgir Steindórsson hja
Heimilistækjum tjáði blaðinu
að þeir seldu nú mun meira af
heimilistækjum en venjulega og
það væri augljóslega gengisfell-
ingarhugur í fólki. „Söluaukn-
ingin hófst um mánaðamótin og
héldum við að hún myndi detta
strax niður, en raunin hefur
orðið önnur því salan eykst
stöðugt."
„Það hefur selst mikið af
heimilistækjum og þá helst
ísskápum og frystikistum núna
Framhald á bls. 20.
valdið erfiðleikum. að því er
Iljálmar Vilhjálmsson fiski-
fræðingur og leiðangursstjóri um
borð í Árna Friðrikssyni tjáði
Mbl.
Að sögn Hjálmars er ísinn mun
meiri á þessum slóðum en hann
kvaðst hafa gert sér grein fyrir,
ísröndin úti af Vestfjörðum liggur
frá austri til vesturs á móts við
landgrunnsbrúnina frá Barða-
grunni og norðaustur á móts við
Kögurkantshólfið en í sundinu
milli lands og ísrandarinnar er
töluverður rekís og stakir jakar,
sem valda erfiðleikum.
Á þessum slóðum reyndi Árni
Friðriksson fyrir sér í fyrrakvöld
Framhald á bls. 23
Pylsur og
bjúgu hækka
VERÐLAGSNEFND heimilaði í
gær hækkun á taxta þvottahúsa
og verði unninnar kjötvöru.
Heimilað var að taxti þvotta-
húsanna hækkaði um 13% en
hækkun á unninni kjötvöru er á
bilinu 15 — 18%. Vínarpylsur
hækka t.d. úr kr. 1339 kg í 1541,
kindabjúgu úr 1253 í 1447 kr.,
kjötfars úr 806 í 957 kr. og
kindakæfa úr kr. 1540 í 1822
krónur kílóið.