Morgunblaðið - 21.07.1978, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. JÚLÍ 1978
21
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
Ungt par óskar
eftir aö taka
íbúö á leigu, helzt í gamla
bænum. Reglusemi og góöri
umgengni heitiö. Fyrirfram-
greiösla ef óskaö er.
Vinsamlegast hringiö í síma
13736 milli kl. 19 og 20.
Bifreiðaviögerðir
Óskum eftir aö ráöa mann
vanan bifreiöaviögeröum.
Bifreiöastöö Steindórs s/f.
Sími: 11588 og 13127.
AUGLÝSINGASÍMINN ER: .
22480
JMargunbtahih
R:S
2 herb. og eldhús
meö húsgögnum til leigu. Áriö
fyrirfram. Upplýsingar í síma
53556.
Munið sérverzlunina
meö ódýran fatnað.
Verðlistinn, Laugarnesvegi 82,
S. 31330.
Föstud. 21/7 kl.20
1. Sprengisandur,
Laugafell, Kiöagil, Fjórö-
ungsalda og víöar í fylgd
með Jóni I. Bjarnasyni.
2. Þórsmörk, Fararstj. Erl-
ingur Thoroddsen. Farseöl-
ar á skrifst. Lækjarg. 6a
sími 14606.
Versi.mannahelgi
1. Þórsmörk
2. Gæsavötn-Vatnajökull
3. Lakagígar
4. Hvítárvatn - Karlsdráttur
5. Skagafjöróur, reiötúr,
Mælisfellshnúkur
Útivist
Föstudagur
21. júlí kl. 20.00
1) Þórsmörk,
2) Landmannalaugar — Eldgjá,
3) Hveravellir — Kerlingarfjöll,
2) Gönguferö yfir Fimmvöröu-
háls. Fararstjóri: Finnur Fróða-
son. Farmiðar seldir á
skrifstofunni.
Laugardagur
22. júlí kl. 13.00
1) Skoöunarferð í
Bláfjallahella, eitt sérkennileg-
asta náttúrusmíö í nágrenni
Reykjavíkur. Hafiö góö tjós
meðferðis. Fararstjóri: Siguröur
Kristinsson.
2) Fjallgrasaferö i Bláfjöll:
Hafiö ílát meöferöis. Fararstjóri:
Anna Guömundsdóttir. Verö kr.
1500 gr. v. bílinn. Fariö frá
Umferöamiöstööinni aö austan-
veröu.
Ferðafélag íslands.
Air Bahama 10 ára
Ný gerð sjúkraskráa
rædd á þingi um
læknisfræðimenntun
Tönllst
eftir JÓN
ÁSGEIRSSON
Kóra-
heim-
sóknir
UNDANFARNAR vikur hafa
kórar frá Norðurlöndunum
heimsótt Island og eru þessar
heimsóknir meira og minna
óskipulagðar og fer hljóm-
leikahald kóranna því að
mestu út um þúfur. Hér er
aðallega um að ræða áhuga-
kóra og er frekar lítil viðbót
að framlagi þeirra fyrir ís-
lenzka tónmennt. Þeir, sem
lenda í þeirri aðstöðu að vera
kórfólkinu til aðstoðar hér-
lendis, ættu að leggja áherzlu
á, að hljómleikar eru nær
óhugsandi um og eftir mitt
sumar, eina tímann sem
Islendingar geta átt von á
sæmilegu veðri. Doremi kór-
inn frá Gautaborg var síðast-
ur kóra hér í heimsókn
dagana 8. til 18. júlí og söng
meðal annars í Lindarbæ,
fyrir um það bil 30 áheyrend-
ur. Efnisskráin var byggð á
sænskum alþýðulögum,
tveimur íslenskum söngvum,
nokkrum lögum frá Mið-Evr-
ópu, galdralagi frá Tahiti og
dægurlagasvrpu eftir Sven
Asmunssen. Stjórnandi kórs-
ins Stig Ring raddsetti tvö
íslenzku lögin á efnisskránni
og kom það skýrt fram, eins
og ávallt áður er erlendir
menn ætla að raddsetja og
móta íslenzka tónlist, að úr
tiltækinu varð skrípamynd,
sams konar og þegar íslend-
ingar taka til að útsetja
erlend lög. Sænsku alþýðulög-
in voru skemmtilegust, en
lögin eftir Marenzio, Lasso og
svo Swingel Singers útgáfa á
lagi eftir Bach, var fyrir
neðan þau mörk sem jafnvel
áhugamannakór getur leyft
sér. Þess ber að geta að aðeins
helmingur kórsins var í þess-
ari ferð. Inngöngustefið (ekki
tilgreint í efnisskrá), Polska
eftir Röjas Jonas, Sa
skimrande var aldrig havet
eftir Evert Taube og Husar-
visa eftir Ture Rangström,
voru beztu lög kórsins.
Jón Asgcirsson
í gær. 20. júlí, voru tíu ár liðin
frá því að þota Intcrnational Air
Iiahama fór sína fyrstu ferð með
farþcga frá Luxcmbourg til
Nassau. en félagið hafði verið
stofnað einu og hálfu ári áður.
Það var fyrst í eigu breskra aðila
en síðar bandarfskra. en vegna
samkcppni á Atlantshafsleiðum
fengu Loftleiðir áhuga á þessu
félagi og gengið var frá kaupum
á því árið 1969.
Eftir að Air Bahama komst í
eigu Loftleiða voru sölukerfi
félaganna samræmd og lét árang-
ur ekki á sér standa og á síðasta
ári flutti félagið 82 þús. farþega
í áætlunarflugi. Var þar um að
ra'ða aukningu frá fyrra ári um
tiAVr og sadanýting var 7G.5'5r.
Síðustu tvö ár hefur félagið
tekið að sér leiguflug í auknum
niæli og flutti sl. ár 10.500 farþega
í slíkum ferðum. Félagið hefur
lagt áherslu á að fá flugréttindi
bæði til Lundúna og Frankfurt am
Main og hefur sendinefnd frá
stjórn Bahama heimsótt London
og Bonn til að greiða fyrir
leyfisveitingum Standa vonir til
að Lundúnaflug geti hafist fijót-
lega.
Fyrirgreiðsla fyrir ferðamenn
og tekjur af ferðafólki nema uni
73% af tekjum Bahamabúa og
vinna um 447í verkfærra manna
við ferðamennsku. Fyrir nokkrum
árum varð samdráttur í ferðum til
eyjanna, en nú hefur rofað til að
nýju og sagði Guillermo de
Freitas, yfirmaður Air Bahama í
Nassau, nýlega að allt benti til að
þetta ár yrði félaginu hagstætt og
þá jafnframt eyjaskeggjum.
Ferðamenn frá Evrópu hefðu
heinisótt Bahama í vaxandi mæli
að undanförnu og myndi að öllurn
líkindum sama þróun verða í
framtíðinni. A síðasta ári flutti
Air Bahania fleiri farþega til
eyjanna en British og Lufthansa
samanlagt og eru nú enda líkur á
að Bahamabúar gerist eignaraðil-
ar að félaginu.
Air Bamhama hefur DC-8-63
þotu á leigu frá Flugleiðum og í
sumar eru flognar fimm áætlunar-
ferðir í viku milli Luxemborgar og
Nassau. Um helmingur flugfreyja
félagsins er frá Bahama og þaðan
eru einnig þrír flugmenn, en
annars er starfsfólk félagsins af
ýmsu þjóðerni.
Yfirstjórn félagsins er í Reykja-
vík og er Sigurður Helgason
forstjóri þess. Bókhaldsdeild
féiagsins er á skrifstofu Flugleiða
í New York. Frá Reykjavík er
flugrekstri og sölumálum félagsins
stjórnað, en flugdeild þess er í
Nassau og í Miami á Flórída.
Næstkomandi sunnudag. hinn
23. júlí. verður haldin hin árlega
Skálhidtshátíð. Verður hún með
hefðbundnu sniði og verður
messa kl. 11 og klukkan 16.30
samkoma í kirkjunni.
A undan messunni verður
organleikur frá kl. 13.10 og er
Ilaukur Guðlaugsson organleik-
ari. Biskup Islands hr. Sigur-
hjiirn Einarsson prédikar og
þjónar fyrir altari ásamt sr.
Guðmundi Óla Ólafssyni. Skál-
holtskórinn syngur og eru for-
söngvarar Ingvar Þórðarson.
Bragi Þorsteinsson og Sigurður
Erlendsson. Trompetleik annast
Jón Sigurðsson og Lárus Sveins-
son og söngstjóri er Glúmur
Gylfason.
SAMBAND um mcnntun í læknis-
fra'ðum á Norðurlöndum hélt
fyrir nokkru þing sitt á Akur-
eyri. en slík þing eru haldin á
einhverju Norðurlandanna annað
hvert ár og auk fulltrúaþings og
aðalfundar samhandsins er hald-
in vísindaleg ráðstefna um leið.
Samhandið er nefnt á norður-
landamálum Nordisk Fedcration
för Medicinsk Undervisning
NFFMU.
Þetta er í fyrsta sinn serr
aðalfundur og kennsluráðstefna
NFFMU er haldin hér á landi, en
einu sinni áður hafa samtökin
haldið fund hérlendis um sam-
menntun heilbrigðisstétta og nýj-
ungar í skipulagi heilbrigðisþjón-
ustu, en það var árið 1974.
Jafnframt þingstörfum var
haldin ráðstefna um nýjungar í
ritun sjúkraskráa og segir í frétt
frá undirbúningsnefnd þingsins
m.a.: „Þessi ráðstefnuþáttur
þinghaldsins um sjúkraskrárnar
fór að nokkru leyti fram sem
námskeið um nýja gerð sjúkra-
skráa, auk umræðufunda og sam-
Samkoman kl. 16.30 hefst með
organleik dr. Finns Viderö og
leikur hann verk eftir Buxtehude,
Carl Nielsen og Christensen. flutt
verður verkið Lofsöngur eftir
Þorkel Sigurbjönsson og eru
flytjendur kór Háteigskirkju nteð
einsöngvurunum Guðfinnu Dóru
Ólafsdóttur, Rut Magnússon, Friö-
birni G. Jónssyni og Halldóri
Vilhelmssyni og félögum úr Sin-
fóníuhljómsveit íslands undir
stjórn Marteins H. Friðrikssonar.
Ræðu flytur Björn Þorsteinsson
prófessor og lýkur samkomunni
með ritningalestri og bæn í umsjá
sr. Heimis Steinssonar rektors.
I tengslum við Skálholtshátíð
verða ferðir frá Umferðarmiðstöð-
inni í Reykjavík kl. 11 og frá
Skálholti kl. 18.
ráðs þar sem menn báru saman
bækur sínar um reynslu af nýj-
ungum á þessu sviði austan hafs
og vestan. Kennarar á námskeið-
inu voru Lawrence Weed, Leslie J.
Sandlow og Philip Bashook frá
Bandaríkjunum, en Max Rendall
frá Bretlandi gerði grein fyrir
re.vnslu þar í landi af nýrri gerð
sjúkraskráa. Flestir þeir íslenzkir
læknar, sem reynslu höfðu af
þeirri gerð sjúkraskráa, sent hér
var til umræðu, tóku þátt í
umræðunum og Guðmundur Pét-
ursson héraðslæknir á Egilsstöð-
um gerði grein fyrir reynslu sinni
af hinni nýju gerð sjúkraskráa.
Þessi nýja gerð sjúkraskráa hefur
verið nefnd „vandaliðuð sjúkra-
skrá (problem oriented medical
records) og er frábrugðin sjúkra-
skrám í hefðbundnu formi í
veigamiklum atriðuni, en menn
hafa á síðustu árum gert sér æ
betri grein fyrir þvi að slíkum
sjúkraskrám er um margt ábóta-
vant.“
Vandaliðuð sjúkraskrá er frá-
brugðin þeirri hefðbundnu að því
leyti að þær upplýsingar, sem
safnað er um sjúklinginn, eru
flokkaðar eftir þeim vandamálum,
sem að honum steðja, en ekki eftir
uppruna upplýsinganna. „Með
þessu móti gefur sjúkraskýrslan
skýrari mynd af, þeirn yandamál-
um sjúklingsins sem mestu máli
skipta og fyrir bragðið verður
auðveldara að sinna þeim fljótt og
vel. Ennfremur verða upplýsingar
í sjúkraskýrslunum aðgengilegri
fyrir tölfræðilega úrvinnslu og því
verða læknisfræðilegar rannsókn-
ir svo eg mat á gæðum heilbrigðis-
þjónustunnar og skipulag og hag-
ræðing í henni auöveldari," segir
ennfremur í fréttinni.
Guðmundur Sigurðsson héraðs-
læknir á Egilsstöðuni skýrði á
þinginu frá reynslu sitini af þessu
kerfi, en hann tók það upp fyrstur
mann með skipuleguni hætti árið
1976 og styðst heilsugæzlustöðin á
Egilsstöðum eingöngu \iö sjúkra-
skrár sem ritaðar eru eftir þessu
kerfi. Kvað Guðmundur alla
pappírsvinnu mun minni og væru
allir starfsmenn heilsugæzlustöðv-
arinnar sammála um ágæti þessa
nýja kerfis.
NFFMU var stofnað árið 1966 og
er markmið samtakanna að stuðla
að framförum í kennslu í læknis-
íra'öi og öðrum heilbrigðisfra'ðum
á Norðurlöndum. Til þess að ná
þessu markmiði skipuleggur sani-
bandið námskeið, samráðsfundi,
ráðstefnur og upplýsingamiðlun
tneð ýmsu móti. A aðalfundi
samtakanna eru rædd mál er
varða framfarir í kennslu og
menntun lækna og hefur það á
undanförnum árutn í vaxandi
mæli beitt sér fyrir framförum um
menntun annarra heilbrigðisstétta
Framhald á bls. 19
Skálholtshátíd
á sunnudaginn