Morgunblaðið - 17.08.1978, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 17.08.1978, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. ÁGUST 1978 11 Fórnarlamb svoneíndrar klasasprenjíinKar. Ilún virkar þannig að hún dreiíir iirlitlum nálum yfir fórnarlambið. en nálarnar eru hannaðar þannig að þær smjúga hægt og rólega í gegnum likamann og orsaka ha'gan dauða. Erfitt er að greina nálarnar. jafnvel þótt fórnarlambið sé gegnumlýst. — á mörkum Afríku og Mið-Austurlanda a baráttu fyrir lífi sínu Allir skólarnir eru munaðarleysinKjaskólar. Biirnin þar líkjast einna helst fulltíða fólki. þótt ennþá séu þau ung að aldri. þar liggi heil fjölskylda, eða jafnvel íbúar heils þorps, allt eftir fjölda minnismerkjanna hverju sinni. Landið virðist við fyrstu sýn vra mannlaust, því þegar ekið er í gegnum landið er hvergi fólk að sjá. En segja má að Eritrea sé þjóð næturinnar. Þegar skyggja tekur, kemur fólkið í ljós, næstum eins og það komi upp úr jörðinni. Undir morgun gera skæruliðarnir óvinunum fyrirsát og áður en nær að birta, flytja þeir hina látnu og særðu í skjól. Börnin fara í skólann í rökkri og bændurnir vinna á ökrum sínum í tunglsljósi. í norður- hluta landsins hefur verið byggð upp iðnaðarborg, en hún er að metu leyti neðanjarðar. Þar eru til dæmis verksmiðjur og málm- steypuver og segja má að þarna hafi sjálfmenntaðir menn og konur, synir og dætur bænda og hirðingja, komið af stað sinni eigin iðnbyltingu. I vopnaverksmiðjunni eru vopn frá ýmsum löndum tekin í sundur og rannsökuð, en síðan eru fjöldaframleiddar eftirlík- ingar af þeim. I málmsteypunni hefur flak af sovézkri flugvél verið notað til ýmissa hluta, til dæmis hafa verið framleidd úr því vopn, vatnsfötur, eldavélar og önnur eldhúsáhöld, en auk þess margs konar vélarhlutar. í verksmiðju, er aðallega séð um framleiðslu á rafmagnsvörum, eru framleidd útvarpstæki í nákvæmri eftirlíkingu af þekkt- um vörumerkjum á Vesturlönd- um og á trésmíðaverkstæðinu eru smíðuð skólaborð, hækjur og útHmir á fólk, svo eitthvað sé nefnt. I fataverksmiðjunni vinn- ur fjöldi fatlaðra hermanna við framleiðslu á einkennisbúning- um, barnafötum og fánum, sem nota á þegar landið verður sjálfstætt, en það segja þeir að hljóti að verða bráðlega. „Við höfum enga þörf fyrir getnaðarvarnir, eða annað af því taginu, því hér er ekkert fólksfjölgunarvandamál. Hér fæðast varla nógu mörg börn, til að koma í staðinn fyrir þau sem deyja, þannig að reynt er að veita stórum fjölskyldum stuðn- ing eftir mætti," sagði kennslu- konan í einum skólanna, sem flestir eru neðanjarðar. í skól- anum var aðeins til ein skrifbók og tveir blýantar, en nemend- urnir voru fimmtíu og þurftu þeir að skiptast á um að nota þessa hluti. Flestir skólarnir eru munaðarleysingjaskólar og eru börnin þar undir ströngum aga. í rauninni líkjast þau einna helzt fulltíða fólki, þótt ennþá séu þau aðeins börn að aldri. I skólanum læra börnin margt, sem komið getur þeim að gagni í hinni hörðu lífsbaráttu þeirra, en kann að koma Vesturlanda- búum undarlega fyrir sjónir. Til dæmis er þeim kennt að þegar þau lenda í loftárás á opnu svæði eiga þau að læðast áfram í hnipri og í einfaldri röð, þannig að sem fæstir í röðinni verði fyrir skoti. Þegar börnin verða 14 ára eru þau beðin um að gerast sjálfboðaliðar í hern- um, vitandi það að minna en helmingur þeirra hefur ein- hverja lífsvon. En lítum nú á batavonir særðra og sjúkra. Helztu lyfin eru að verða uppurin í landinu og birgðir hafa ekki verið endurnýjaðar. Sjúkrahúsin eru einnig mjög vanbúin tækjum og lítið framboð er af sérmenntuðu fólki til starfa í þeim. í einu sjúkrahúsinu var til dæmis ekki til einn einasti sjúkrakassi, en fyrir utan var verið að þvo notuð sárabindi, sem síðan verða notuð aftur og aftur, en þvotta- ílátin voru matarpottarnir úr eldhúsinu. Hópur barna sá um að binda um sár hinna særðu, en kunnátta þeirra var vissulega ekki upp á marga fiska, aðeins viljinn til að reyna að gera vel. Sum sjúkrahúsin eru í rökum neðanjarðargöngum, og smit- hættan er gífurleg. Smit er því eitt helzta banamein hinna særðu. I Eritreu eru aðeins þrjár skurðstofur og þrettán læknar til að sinna hinum þremur og hálfri milljón íbúa landsins. Þeir eru mjög vanbúnir að læknisáhöldum og þurfa að gefa inn lyf, sem orðin eru allt of gömul. I einu tilfellinu þurfti ungur læknir að horfast í augu við það vandamál að skera úr um það hvor sjúklingurinn af tveimur skyldi fá eina skammtinn af bakteríudrepandi lyfi, sem var eftir. Ánnar sjúklingurinn var ungur drengur, sem orðið hafði fyrir sprengjukúlu, en hinn var grindhorað barn, mjög þjáð af berklum. Batahorfur drengsins voru mun betri, þannig að honum var gefið inn lyfið, en barnið dó. Ástandið í Eritreu er því vissulega slæmt, og mikil þörf er á aðstoð. Það virðist þó ætla að verða erfitt fyrir hin vest- rænu lönd að koma sér saman um það í hvaða formi sú aðstoð eigi helzt að vera, en vonir standa þó til að úr rætist innan tíðar. Þýtt og endursagt. Allurbúnaður fyrir lokuð sjónvarpskerfi í fyrirtæki og verslanir. Verð ótrúlega hagstætt. Sjónvarpsvélar frá kr.115.000.- Upplýsingar hjá tæknimönnum okkar. heimilistæki sf TÆKNIDEILD — SÍMI: 24000

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.