Morgunblaðið - 17.08.1978, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 17.08.1978, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. ÁGÚST 1978 33 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 0100 KL. 10— 11 FRÁ MANUDEGI ^ ny ujjvnpK'UKj'L) n Hið fagra gleður, en „Máltækið segir: svo má illu venjast að gott þyki. Eins má e.t.v. segja, — hinu ljóta má venjast svo ekki sé eftir því tekið. Auga og tilfinning dofnar fyrir því. Hvor- ugt þetta get ég aðhyllzt. Ég á oft leið um Lækjargötuna, eins og margir aðrir bæði borgar- búar og landsmenn hvaðanæva að. Oft er þarna líka margt af útlendu fólki. En hví skyldi ég vera að hafa orð á þessu? Jú, það er vegna þess að oft doka ég eftir strætisvagni þarna og verður þá litið upp í Bakarabrekkuna. Hvað sé ég þar? Gömul timburhús sem oft geta verið falleg í útliti og það hafa þessi einnig verið á meðan þeim var sómi sýndur og þau nutu eðlilegrar umhirðu. Hús þessi, gamla Landlæknishúsið og hluti af Bernhöftsbakaríi bera þess enn merki, að fyrir nokkrum árum lá við að þau yrðu eldinum að bráð og þess bera þau óhugguleg merki; brotnar rúður, brunnið þakris og allt útlit þeirra eftir þessu. Manni finnst næstum að betra hefði verið, að þau hefðu brunnið til kaldra kola. Þá hefði grunnurinn sennilega verið hreinsaður. í þessu ófremdarástandi sér maður nú hið gamla Landlæknishús, sem geymir minningar þess tíma, þegar einn af fremstu forystumönnum þjóð- arinnar og brautryðjandi margra merkra mála, ekki aðeins heil- brigðismála, heldur einnig fjölda annarra, m.a. stofnunar Sl.vsa- varnafélags íslands, bjó þar. Yfirsýn Bakarabrekkunnar gef- ur óþægilega hugmynd um snyrti- mennsku okkar Islendinga, en þó má víða sjá í okkar fallegu borg fegurð og góða umgengni. Gagnrýni þessi er sett fram til ábendingar þeim, sem hér eiga' hlut að máli svo úr verði bætt hið bráðasta. Karl Helgason.“ Þessir hringdu . . . • Þjónusta með föt Einhleypingur. — Mig langar til að spyrja að því hvort ekki sé einhvers staðar hægt að fá veitta ýmiss konar viðgerðarþjónustu fyrir föt? Hvað eiga einhleypir menn, sem ekki hafa saumavél eða kunna ekki með slík verkfæri að fara, að gera þegar setja þarf nýja rennilása á buxur, staga í göt eða jafnvel sauma á tölur, þegar þeir geta ekki þrætt nál? Á þá bara að henda flíkunum eða er einhvers staðar hægt að finna saumastofu eða saumakonur, sem sinna smáverk- efnum sem þessum? Fataverzlanir annast ekki svona þjónustu nema í fyrsta sinn, þ.e. þegar fötin eru keypt og þarf að breyta þeim í samræmi við vöxt þess er kaupir. En svona smáþjónusta, sem vissu- lega er nauðsynleg, er hvergi fyrir hendi að því er virðist og mætti gjarnan nefna það hjá Velvak- anda, ef hægt er að komast í samband við slíkan aðila. Skv. upplýsingum sem Velvak- andi hefur aflað sér mun vera saumakona á Laugavegi í Reykja- vík, sem annazt gæti þjónustu sem þessa. Ekki vissi heimildarmaður SKAK Umsjón: Margeir Pétursson Á skákmóti í Buenos Aires í fyrra kom þessi staða upp í skák þeirra Schwebers og Sanguinettis, sem hafði svart og átti leik. Hl SIIMm Velvakanda gjörla hvar á Lauga- hélt að húsnúmerið væri 48 eða veginum þetta væri, en sagði það þar um bil. Vonandi gefur þetta vera gegnt veTzluninni Adam, og nógu glögga hugmynd. HÖGNI HREKKVÍSI .. kveðja til Högna hrekkvísa & co. með laginu...“ MANNI OG KONNA ÉG-Sft' VAENM \lERft RÐ WftLft SvAKft STÓR STRIK ft GÖTUNft MÉR FANNST Þftt> SOLDI© FlNT 39... h4! 40. gxh4 — g3! 41. fxg3 (Eftir 41. hxg5 — gxf2 42. Ddl — F1=D+ 43. Rxfl — Dg4+ verður hvítur mát) Bxe3! Hér leysti klukkan hvítan frá frekari þjáningum, en eins og sjá má var staða hans hvort eð var töpuð. Sanguinetti sigraði á mótinu, hann hlaut 8V4 v. af 11 möguleg- um. Næstur kom Panno með 8 v. og þriðji varð Najdorf með 6‘/2 v. Söluturn til leigu Til leigu er frá 1. okbóber, einn af betri söluturnum borgarinnar. Tilboö sendist Mbl. merkt; „Verslunarmiöstöö — 7675“. S UTSALAN f FULLUM GANGI Gallabuxur barna Vatteraöar mittisúlpur barna Vatteraöar mittisúlpur fulloröinna Barnaskyrtur, stutt- og langerma Dömubuxur velour Flauelskápur, dömu 20% afsláttur af dúnsængum Úrval af glösum á útsölunni. VerÖ frá kr. 199/stk. frá kr. 1.995 frá kr. 3.995 frá kr. 4.995 frá kr. 699 kr. 4.995 kr. 9.995 ijQTÍRgYfiJÖ® ÚTSALA HAGKAUP SKEIFUNN115 KJÖRGARÐI LÆKJARGÖTU EF ÞAÐ ER FRETT- NÆMTÞÁERÞAÐÍ MORGUNBLAÐINU HAGTRYGGING HF KAN5KI ER BftRft ALVEG- EINS ÖOTT Af> Fft 5ÉR ZEBRft- HEST TIL AÐ KOI4A5T í'0-—^ YFIR&ÖTU UTSKYRIÐ TILGANG GANGBRAUTAR FYRIR BÖRNUNUM

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.