Morgunblaðið - 17.08.1978, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 17.08.1978, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. ÁGÚST 1978 * Norrænu fóstrumóti nýlokið í Finnlandi K jartan Jóhannesson: Vísitalan og kaup- gjaldsmálin „Hætt verði að greiða verðlags- uppbætur samkvæmt vísitöluút- reikningi." Kjartan Jóhannesson í Jörð 1. hefti 1943. „ ... meinsemdin sjálf, hefur verið látin afskiptalaus, en alls kyns skottumeðul eru notuð til að ráða bót á sjúkdómseinkennunum þ.e. verðbólgunni og fjármálaspill- ingunni.“ Magni Guðmundsson í Morgun- blaðinu 24. sept. 1947 „Það er óumdeilanlegt, að vísi- tölukerfið hefur verið bölvaldur- inn í íslenzkum efnahagsmálum." Þórarinn Þórarinsson í Tíman- um 30. júlí 1978. „Nú búum við við brjálað vísitölukerfi og brjálaða hringrás efnahagslífsins, sem leitt hefur til óðrar verðbólgu og alls þess hryllings sem henni fylgir.“ Vilmundur Gylfason í Dagblað- inu 11. ágúst 1978 Ymsum virðist nú ljósara en áður, hver áhrif hið svonefnda „vísitölukerfi" hefur á efnahag þjóðarinnar. Kommúnistar og nokkrir „nítjándu aldar“ hagfræð- ingar munu þó ekki þeirra á meðal, sbr. þýdda grein. eftir Irving Kristol í Lesbók Morgun- blaðsins 13. júní 1965. Greinin heitir: „Tuttugasta öldin hófst árið 1945“. Þar segir svo m.a: „Nýja hagfræðin — hagfræði 20. aldarinnar — er svo nýstárleg frá rótum, að við erum jafnvel enn ekki farnir að gera okkur grein fyrir því.“ Fjórum árum síðar en greinin var birt varð „pappírsgullið" að veruleika á fundi Alþjóða gjald- eyrissjóðsins 3. okt. 1969, sjá Morgunblaðið 5. okt. 1969. Þannig miðar í þekkingarátt. Víst er kaupgjaldið ekki nema einn þáttur fjármálanna, en sá þáttur þarf líka að vera í lagi. Spurningin er, hvort reynslan hefur kennt nógu mörgum, að kjarasamningar um kaupgreiðslur bundnar framfærsluvísitölu fá aldrei staðizt. Að halda fram öðru er hagfræðiskekkja frá liðinni öld. Reykjavík 14. ágúst 1978 Kjartan Jóhannesson Karfavogi 34. NORRÆNT fóstrumót var haldið í Esbo í Finnlandi dagana 23.-27. júlí s.1. Þátttakendur voru um 500, þar af 2 frá íslandi, en yfirskrift mótsins var „För- skoliararens roll i ett globalt pcrspektiv“, sem hefur vcrið þýtt „hlutverk fóstru í fjölþjóða umhverfi.“ 1 Fyrirlesarar voru frá öllum Norðurlöndum nema íslandi, en einnig frá Englandi og Bandaríkj- unum. Rætt var um ýmis vanda- mál varðandi þroska og uppeldi barna í heiminum í dag og bar þar margt á góma. Rita Liljeström dósent við háskólann í Gautaborg skipulagði efni mótsins og flutti hún sjálf tvo fyrirlestra. Annar fjallaði um það hvort barnið hefði það betra nú en áður, en í hinum fyrirlestrinum ræddi hún aðallega efni út frá yfirskrift mótsins „hlutverk fóstrunnar í fjölþjóða umhverfi." Nýr vigtarskúr í Stykkishólmi Stykkishólmi. IG. áMÚst. FYRIR skömmu lauk byggingu nýs vigtarskúrs við höfnina og komu mcnn til að tengja vigtina nú um daginn. Einnig hefur verið gengið snyrtilega frá öllu kringum vigtar- húsið, sem er vandað og gott. Er þetta merkur áfangi í Hólminum og nú verður gamla vigtin tekin úr notkun en hefir þjónað vel í mörg ár og var kominn tími til að endurbæta þetta allt saman. Fréttaritari. menn. í mótslok voru hafðar hring- borðsumræður, þar sem þátt tóku tveir fulltrúar frá hverju land- anna. Þar var rætt um efni mótsins út frá aðstæðum í hverju landi og reynslu hvers eog eins. Ennfremur var samþykkt ályktun mótsins, en niðurlag hennar hljóð- ar á þessa leið: „Norrænar fóstrur verða að skilja aðstæðurnar í þjóðfélagi’því, sem börn okkar alast upp í. Sá skilningur verður einnig að ná til þeirra staðreynda, að iðnaðarþjóð- félög hagnast á þróunarlöndunum. Við berum ábyrgð á því, að börn í þróunarlöndunum njóta ekki almennra mannréttinda. Við verð- um að miðla þessum skilningi til þeirra barna, sem við ölum upp, svo þau öðlist vilja og þekkingu til þess að breyta eigin lífskjörum og annarra." • Fóstrufélag íslands er aðili að samnorrænu fóstruráði og flyst skrifstofa þess á milli landa með ákveðnu millibili. Um næstu ára- mót kemur hún til íslands og verður það því Fóstrufélagið hér, sem mun halda næsta mót, en það verður í námskeiðsformi, segir í fréttatilkynningu frá Fóstrufélagi íslands. Einar sýnir á Eskifirði EINAR Helgason. myndlistarmaður frá Akureyri, heldur sýningu í Valhöll á Eskifirði um næstu helgi. Sýningin verður opnuð á föstudag klukkan 20 og á laugardag og sunnudag vcrður hún opin írá klukkan 13-23. Helgi Þorgilssýn- ir í Gallerí SÚM Blaðamenn í flugslysi Windhoek. SV-Afríku, Namihíu, 16. ágúst. Reuter. LEIGUFLUGVÉL með blaða- menn innanborðs sem voru í fylgd með sérlegum sendifulltrúa Sameinuðu þjóðanna, Martti Ahtisarri. brotlenti í norðurhluta Namibíu í dag og vitað er að tveir af sjö blaðamönnum um borð, svo og flugmaðurinn. slösuðust. Slysið varð á flugvelli við smábæinn Opuwa. Sjónvarvottar segja að vélin sem var af Cessna- gerð hafi verið að hefja sig til flugs, en sveigt skyndilega, senni- lega til þess að forðast árekstur við DC-3 vél Ahtisaari sem var á hrautinni. Sjúkraflugvél flutti hina slösuðu til Odangua og þaðan til Windhoek. Hinir slös- uðu voru suðurafrískir blaða- Karl prins fékk 68 laxa KARL Bretaprins hélt heim- leiðis í gærmorgun írá Egils- stöðum, en þangað var hann séjttur af brezkri herflugvél. Prinsinn var ákaflega ánægð- ur með dvölina í Hofsá að þessu sinni sem fyrr, og hafði hann á orði þegar hann fór, að koma á ný næsta sumar, að því er Morgunhlaðinu var tjáð í gær. Laxveiðin gekk með ein- dæmum vel hjá prinsinum þann tíma sem hann dvaldist við Hofsá og fékk hann alls 68 laxa. Sá minnsti var 4 pund, en sá stærsti 18 pund. FÖSTUDAGINN 18. ágúst 1978 kl. 20, opnar Ilelgi Þorgils Friðjónsson myndlistarsýningu í Gallerí SÚM. Vatnsstíg 3B, Rcykjavík. Helgi Þorgils er fæddur i Reykjavík 1953. Hann útskrifaðist frá Myndlista- og handíðaskóla íslands vorið 1976. Stundaði fram- haldsnám í Hollandi við De Vrije Academie Pcychopolis í Haag, og Jan Van Eyck Academie í Maastricht. Þetta er þriðja einkasýning Helga Þorgils. Þær fyrri voru: Gallery OUT-PUT, Rv'k. ‘75, og Galerie LÓA, Haarlem í Hollandi ‘78. Að auki hefur hann tekið þátt í fjölda samsýninga, á Islandi og víða erlendis. © INNLENT Á sýningunni í Gallerí SÚM eru 19 verk, sem sum hver eru í mörgum hlutum. Það eru málverk og teikningar, stimplaverk, grafík og bækur. Flest verkin eru unnin á þessu ári. Sýningin í Gallerí SÚM er opin daglega frá kl. 16—22. Henni lýkur þann 27. ágúst n.k. Fimm skip med loðnu LOÐNUVEIÐI var ckki eins góð í fyrrinótt og síðustu þrjá dag- ana. en frá kl. 17 í fyrradag fram til kl. 17 í gær tilkynntu fimm skip um afla, samtals 3590 lestir. Þær fréttir bárust aí loðnumiðun- um norður af Vestfjörðum í gærkvöldi, að nokkur skip hefðu fengið góð köst þar. Skipin sem tilkynntu um afla í fyrrinótt og í gær eru þessi: Víkingur AK 1350 lestir, Hilmir SU 530, Stapavík SI 550, Gísli Árni RE 600 og Eldborg GK 560 lestir. 21. ágúst hreyfingin: „Bregða herstöðvaandstæðingar skildi fyrir ógeðslega búka Kremlarkeisara” Herstöðvaandstæðingar með útifund á mánudag Umferðar- f ræðsla á Akranesi UMFERÐARFRÆÐSLA fyrir 5 og 6 ára börn verður í fjölbrauta- skólanum á Akranesi n.k. mánu- dag 21. ágúst kl. 10 árdegis. Þar verða börnunum fengin verkefni, ennfremur verður þeim sýnd kvikmynd og brúðuleikhús kemur í Jieimsókn. MORGUNBLAÐINU heíur borizt opið bréf frá „21. ágúst hreyfing- unni“ til miðnefndar Samtaka herstöðvaandstæðinga. í þessu bréfi er veitzt að Samtökunum fyrir að hafa ekki viljað taka þátt í sameiginlegum mótmælaaðgerð- um n.k. mánudag 21. ágúst þegar þess er minnst að 10 ár eru liðin frá innrás Sovétríkjanna í Tékkóslóvakiu. I þréfi 21. ágúst hreyfingarinnar segir að hreyfingin berjist gegn allri heimsvaldastefnu — einnig þeirri sovésku, en það geri Samtök herstöðvaandstæðinga ekki, og' í lok bréfsins segir: „En um leið og við styðjum þessar aðgerðir og hvetjum liðsmenn okkar til þátt- töku í þeim, áteljum við það harðlega, að þið í miönefndinni skuluð neita að taka upp baráttu gegn hætt^legustu óvinum ís- lenzkrar og tékkneskrar alþýðu — hinum tveim heimsvaldasinnuðu risaveldum — Bandaríkjunum og Sovétríkjunum. Við eigum erfitt með að sjá hvernig þið ætlið að verja það fyrir félögum í SHA að þið skuluð efna til vísvitaðs klofnings um aðgerðir 21. ágúst. Við vorum svo sannarlega reiðu- búnir til viðræðna og málamiðl- ana. Það kom mjög skýrt fram í samstarfstilboði okkar. Vinnu- brögð ykkar gagnast ekki kúgaðri alþýðu Tékkóslóvakíu, heldur eru þau þegar allt kemur til alls vatn á myllu verstu óvina hennar, sovésku heimsvaldaseggjanna. Þeir sem kynna sér afstöðu ykkar hljóta að spyrja sig þeirrar spurningar, hvort klofningstil- burðir ykkar séu til komnir vegna óskarinnar um að brjóta niður allt baráttusinnað andheimsvaldastarf hérlendis, eða vegna óskarinnar um að bregða skjöld fyrir ógeðs- lega búka Kremlarkeisara, sem verða nú fyrir æ harðari gagnrýni og ásökunum vegna framkomu sinnar í garð alþýðu í heiminum." Þá hefur Morgunblaðinp borizt fréttatilkynning frá Samtökum herstöðvaandstæðinga, þar sem segir, að samtökin hafi ákveðið að gangast fyrir útifundi fyrir fram- an sovéska sendiráðið mánudaginn 21. ágúsL n.k. til að mótmæla innrás Varsjárbandalagsins í Tékkóslóvakíu og veru sovéska hersins þar. Fundurinn hefst kl. 17.30. UTSALA HJÁ VERKSM.SÖLU 20% AFSLÁTTUR AF VERKSMIÐJUVERÐI BARNA- DOMU- & HERRABUXUR PILS — TOPPAR — EFNI. Verksm.salan SKEIFAN 13 — SUÐURDYR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.