Morgunblaðið - 17.08.1978, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 17.08.1978, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. ÁGUST 1978 Funduðu við kertaliós erfátæktin var sem mest \ I>ESSU ári eru liðin 100 ár frá því að Manchestcr United, eða Newton Ileath eins og félagið hét í byrjun var stofnað og til að halda upp á afmælið. lék liðið vináttuleik við hina gömlu félaga sína Real Madrid. Leikið var á Spáni og sýndi United þá meistaratakta. er sigur vannst. 1—0. I>að eru breyttir tímar frá því að liðin léku saman í fyrsta sinni í apríl 1957, en þá léku liðin heima og heiman í Evropuleik. Real vann fyrri leikinn 3—1 og þeim síðari lauk með jafntefli. 2—2, en Real hafði engu að síður algera yfirburði. Þetta var á tímum argentínska snillingsins Di Stcfano og hjá United voru ekki lakari karlar en Foulkes. Taylor. Rowley o.fl. Þeir bræður Jommy og Brian hafa verið veigamiklir hlekkir í liði Manchester United undanfarin ár. Á meðfylgjandi mynd fagna þeir sigri í ensku bikarkeppninni vorið 1977. Öld liðin f rá því að enska stórlið- ið Manchester Unrted var stofnað LABBI ÞJÁLFAR HJÁ ÍA SKAGAMENN hafa ráðið Gunnlaug Iljálmarsson til að þjálfa þriðju deildar lið ÍA og 1. flokk karla í handknattleik á nasta keppnistímabili. Binda Skagamenn miklar von- ir við störf Gunnlaugs. en handknattleiksiþróttin er f miklum vexti í knattspyrnu- ba-num Akranesi. í byrjun júlí fóru tveir þjálfarar af Skagan- um á viku þjálfaranámskeið í Árósum. en námskeiðið var haldið af danska handknatt- leikssambandinu. TEKST WILKINS AÐ SETJA HEIMSMET? ALÞIÓÐLEGT frjálsíþrótta- mót fer fram á Laugardalsvell- inum í kvöld. og hefst kl. 19.30. Athyglin mun beinast að kringlukastinu en þar mun fyrrverandi heimsmethafi Mac VVilkins gera tilraun til að endurheimta heimsmet sitt. Keppt verður í mörgum aukagreinum á mótinu. kúlu- varpi. 100 m hlaupi. 100 m grindahlaupi kvenna o.íl. Úrslit íþriöja flokki á morgun ÚRSLITALEIKURINN í þriðja flokki íslandsmótsins í knattspyrnu fer fram á gras- vellinum við Varmá í Mosfells- sveit á morgun og heíst leikurinn klukkan 19. Liðin gerðu jafntefli í úrsiitakeppni leikmanna þriðja flokks á Húsavík um síðustu helgi og er ekki að efa að hart verður harizt í úrslitaieik liðanna annað kvöld. Golfkennsla áAkureyri ÞORVALDUR Ásgeirsson golfkennari byrjar golf- kennslu á Akureyri á föstu- daginn. Kennir Þorvaldur nyrðra til 24. ágúst. Þcir. sem hafa áhuga á að kynnast íþróttinni eða auka getu sína. geta fengið upplýsingar á Golfvellinum á Jaðri. Árið 1878 stofnuðu nokkrir náungar í Yorskhire Railway og híbýladeild Carrige and Wagon verksmiðjanna í Manchester knattsp.vrnulið, sem var þá skýrt Newton Heath og var völlur liðsins á North Road Monsall. Völlurinn var víðast hvar glerharður, nema á köflum þar sem mýrafen var ríkjandi. Lítið fór fyrir Newton Heath fyrstu árin, en árin 1907—08 og síðan aftur 1910—11, vann liðið fyrstu deildina og 1909 vann liðið FA bikarinn eftirsótta. Síðan fór að syrta í álinn og félagið rambaði á barmi gjald- þrots. Einn stjórnarfundur fór fram í kertaljósi, vegna þess að rafmagnið var tekið af húsakynn- unum. Átti félagið ekki fyrir reikningnum. Var sá fundur hald- inn til þess að ræða hvernig borga bæri reikninginn. Árið 1894 féll liðið niður í aðra deild, aðeins ári eftir að nýr völlur hafði verið vígður á Bank Lane, síst betri völlur heldur en á North Road. Hér var það einkum fnykur frá nærliggjandi efnaverksmiðjum, sem gerði knattspyrnu illmögu- lega. Harry nokkur Stafford var fyrirliði liðsins um þessar mundir og átti hann hund einn gífurlegan vexti. Sagan segir að hundurinn hafi þvælst að heiman og hafnað að lokum hjá vellauðugum brugg- ara, John Henry Davies að nafni. Stafford og Davies urðu síðan perluvinir og Dávis bjargaði fjár- málunum. Old Trafford, hinn frægi leik- vangur Manchester United, var tekinn í notkun árið 1910 og var kostnaðurinn áætlaður um 60.000 sterlingspund, sem þótti ægiupp- hæð í þá daga. Allt fram í seinna stríð, barðist félagið í bökkum fjárhagslega, en James nokkur Gibson, klæðskeri bjargaði því, enda átti hann sand af seðlum. Gibson varð síðan stjórnarmaður hjá United. Árið 1941 var gerð loftárás á Manchester og þýsk herflugvél sem ætlaði að varpa sprengju á verksmiðju nærri Old Trafford, missti marks og hæfði þess í stað völlinn og gereyðilagði hann. Þökkuðu þá menn fyrir að ekki var leikur í fullum gangi. Upp úr þessu fór sól Manchester United ört hækkandi, Matt nokkur Busby var ráðinn framkvæmda- stjóri og hann hóf uppbygginguna ásamt fyrrnefndum Gibson og Jimmy Murphy, velskum manni, sem hann gerði að sérlegum aðstoðarmanni sínum. Busby tók við mjög efnilegu liði, þar var að finna kappa eins og Rowley, Mitten, Pearson og Carey, unglingana Aston, Morris og1 Walton og síðan keypti Busby hinn : sköllótta útherja Delaney frá Celtic. Delaney var lokastykkið í púsluspil Busby og þetta lið sigraði í FA bikarnum árið 1948, vann Blaekpool 4—2 í leik sem er eftirminnilegur þeim er sáu. Allt lék í lyndi og árið 1952 vannst sigur í deildakeppninni. Þó að margir álitu, að þetta væri besta liðið sem Manchester United gæti nokkru sinni teflt fram, var Busb.v ekki á þeirri-skoðun og' njósnarar hans voru eins og gráir kettir um allar Bretlandseyjar. Duncan Edwards var meðal þeirra er kom fram á sjónarsviðið á miðjum sjötta áratugnum. 1. deildarkeppnin vannst á nýjan leik árið 1956 og United bókaði sig í Evrópukeppnina að ári. United komst í undanúrslit, en tapaði þar fyrir Real Madrid og hafa síðan verið mikil tengsl milli þeirra félaga. I febrúar sama ár, varð Munich flugslysið fræga og meðal þeirra sem létust, voru 8 leikmenn Manchester United, þ.á m. stór- stjarnan Duncan Edwards. Meðal þeirra er lifðu slysið af var Bobby Charlton er síðar varð lykilmaður liðsins. Eftirfarandi vor komst United í úrslit FA bikarsins og var rétt svo að þeim tækist að skrapa saman liði til þess eins að tapa fyrir Bolton, en allur heimurinn var á bandi United. Nú varð uppbyggingin að byrja aftur frá grunni og til skjalanna komu menn eins og Denis Law, keyptur frá Ítalíu, og George Best. United voru nærri sínu besta árið 1966, en mistókst engu að síður í Evrópukeppninni. Busby varð afar sár við, enda hélt hann að tækifærið væri farið. Svo var þó eigi og liðið sigraði Benfica í úrslitum keppninnar, 4—1 árið 1968, varð fyrsta enska liðið til þess að vinna titilinn eftirsótta og Busby var sleginn til riddara fyrir vikið. Busby hætti sem framkvæmda- stjóri sama ár, vildi hætta á toppnum og þá má segja, að á ýmsu hafi farið að ganga hjá United. Liðið fór að skipta um framkvæmdastjóra, eins og meðal- maðúr skiptir um sokka og þeim darraðadansi lauk með því að liðið datt ofan í aðra deild. Þá var nýtekinn við Tommy nokkur Docgerty, litríkur náungi svo ekki sé meira sagt. En hann var þó frábær við stjórnina og hann stýrði liðinu upp í fyrsti deild á ný strax næsta keppnistímabil. Og hvílík breyting hafði orðið á liði United, aðeins markvörðurinn Alec Stepney var eftir úr röðum stórliðsins, sem vann Evrópubik- arinn 1968 og rambaði síðan á barmi 2. deildar uns þeir féllu fyrir fimm keppnistímabilum síð- an. Docherty eyddi feiknalegum upphæðum í nýja menn og það bar árangur og síðustu árin hefur liðið verið meðal þeirra bestu í Eng- landi og unnið FA bikarinn 1977 eftir að hafa sigrað Liverpool í hörkugóðum úrslitaleik. Docherty var síðan rekinn undir lok síðasta keppnistímabils og Dave Sexton tók við. Hann hefur gert umdeildar breytingar á liðs- skipaninni og eru nú ýmsar blikur á lofti varðandi framtíð ýmissa þekktustu leikmanna liðsins, m.a. Stuart Pearson og Jimmy Green- hoff. Eigi að síður er alltaf reiknað með United meðal fremstu liðanna og þrátt fyrir þá ólgu sem virðist vera undir yfirborðinu eins og er, er liðið meðal þeirra sem flestir veðmangarar spá að verði í baráttunni um Englandsmeistara- titilinn, enda ekki annað sæmandi liði sem heitir Manchester United. (Þýtt og endursagt — gg.). ! Ein milljón í , i mfnus hjá FRÍ I NÝAFSTAÐNIR Reykjavíkurleikar í frjálsum íþrúttum voru á | flestan hátt mjög vel heppnaðir, en þeir voru einnig að sama skapi ■ mjög kostnaðarsamir fyrir Frjálsíþróttasamhandið. Morgunblað- ' ið halði í gaer samband við Örn Eiðsson, formann FRÍ, og innti | hann eftir íjárhagslegri útkomu leikanna. I — Tap varð á Rcykjavíkurieikunum og nemur það um cinni milljón króna. sagði Örn. — Þetta tap er mun meira en við I bjuggumst við. Þó svo að tvö þúsund manns hafi komið til að | fylgjast með mótinu samanlagt báða dagana dugði það ekki fyrir kostnaði. Nettó hagnaður okkar af aðgangseyri nam 1.3 I milljónum króna. | — Nú hefur því verið íleygt að erlendir frjálsfþróttamenn fái , greitt fyrir að taka þátt í mótum scm þessum og það enga 1 smáaura. Tölur eins og hálf milljór. króna fyrir stærstu | stjörnurnar hafa verið nefndar. Þurftuð þið að grciða bandarísku I keppendunum fyrir að koma hingað og keppa? — Nei, þess þurftum við ekki og fréttir um slíkt eru algjörlega I úr lausu lofti gripnar. Hins vegar greiddum við að sjálfsögðu j flugfar þeirra frá Evrópu, hótelkostnað, sem er mjög mikill, og 1 dagpeninga, sem ekki var mikil upphæð. Ég hef ekki trú á að I þessir menn fái greiðslur fyrir að keppa á mótum annars staðar | eins og sagt er. — Mac Wilkins kemur t.d. hingað öðru sinni og aldrei hefur I hann minnst á greiðslur einu orði. Dvöl hans hér greiðum við | og dagpeninga ásamt flugfargjaldi hingað, ekki annað, sagði Örn , Eiðsson, formaður FRÍ. að lokum. — ÞR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.