Morgunblaðið - 17.08.1978, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 17.08.1978, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. ÁGÚST 1978 f/ í™ MORÖdN-.v KAff/no * r Hættan er liðin hjá. — Hann var ckki frá skattrannsóknar- embættinu. Lífgeislan og þróun BRIDGE Umsjón: Páll Bergsson Segja má, að verðlaunasam- keppni Bols-fyrirtækisins sé orð- inn fastur liður í meiri háttar mótum. Á Olympíumótinu í New Orleans hlaut frakkinn Roudin- esco ein af verðlaunum þessum fyrir skemmtilega hugsað útspil. Hann sat í vestur, var gjafari og átti þessi spil. S. DG6 H. Á T. 42 L. G1097532 Og velja þurfti útspil gegn fjórum gröndum eftir þessar sagnir: Vcstur )>ass I L Norður pass pass Austur Suður 1 S :í G pass A Grönd Suður, sagnhafi, var einnig franskur, vel þekktur og traustur spilari. Og Roudinesco bjóst við, að sagnhafi stöðvaði spaðann vel og byggist jafnvel við útspili þar. Hendi suðurs gæti þessu lík: Ás eða kóngur í spaða, þéttur sex til sjölitur í tígli og tveir slagir í laufi. Samkvæmt því var hjartað vonin. Austur hafði opnað í þriðju hendi og gat vel átt háspil í spaðanum og jafnvel einnig í laufi. Og sennilega átti hann einnig hjartalit. Að þessu athuguðu spilaði Roudinesco út hjarta ás! Það reyndist vel því allt spilið var þannig: Norður S. 1073 H. 1098653 T. G10 L. K8 „Nokkur skrif hafa stundum orðið í blöðum um hið sígilda umræðuefni: Þróun og sköpun. og hafa þátttakendur verið á önd- verðum meiði. Erfitt á ég með að skilja, hvernig sköpun á n þróun- ar. hefði getað átt sér stað, og á ég þar ekki eingöngu við manninn, heldur við allar líftegundir jarðar- innar, dýr og jurtir. Dettur nokkrum manni í hug, að allar hafi þær skapazt eða komið hér fram fullmótaöar, í einhverri fortíð, og að síðan hafi engar breytingar á þeim orðið? Hvað um hin ótalmörgu afbrigði allra megintegunda? Sagt er t.d. að mismunandi afbrigði eða undir- tegundir höggorma séu um eitt þúsund talsins. Er það hugsanlegt, að öll þessi afbrigði hafi í upphafi verið sköpuð án þess að þróun á löngum tíma hafi þar komið til greina? Svipað er að segja um allar aðrar tegundir í lífríki jarðar okkar. Af undafíflum t.d. eru til um 40 afbrigði hér á landi, og að mörgu leyti frábrugðin hvert öðru. Mannkynið sjálft skiptist í nokkra megin kynþætti: Hvítan, gulan, svartan. Hver um sig skiptist svo aftur í nokkra undir- flokka eða afbrigði, eftir mismun- andi líkamseinkennum. Sumir mannfræðingar skipta t.d. hvíta kynstofinum í 10 meginundirþætti eða mannflokka, þar sem Norður- landabúar eru einn þeirra en Ajnúar í Japan annar, svo ólík dæmi séu nefnd. Gula kynstofnin- um skipta þeir í 8 meginundir- þætti og mætti þar nefna sem dæmi Eskimóa og Kínverja, þótt langt sé á milli þessara þjóða. Svarta kynstofninum er venjulega skipt í 7 aðalundirþætti og má nefna Eþíópíubúa og Búskmenn sem dæmi um þessa skiptingu. Getur einhverjum þótt það líkleg skýring, að allir hinir fjölmörgu kynþættir manna hafi einhvern tíma komið hér fram fullmótaðir og að enginn breyting eða þróun hafi orðið síðan? • Áhrif geislunar Eg held að flestar hugleiðingar um þróun og sköpun, ýmist með eða móti, stafi mest af því, að menn vita ekki nægilega um eðli lífsins og um hið mikla alsamband lífsins. Lífið hér á jörð hefur ekki sprottið upp af einni saman tilviljun. Líf jarðar okkar er ekki einstætt. Á óteljandi stjörnum annarsstaðar í geimi er líf, og víða óendanlega miklu fullkomnara en líf jarðarinnar. Lífgeislan er tengiliður alls lífs í alheimi, og fjarlægðir geimsins eru lífgeislan- um engin hindrun. Á örskotsstund fer hann milli sólhverfa og vetrar- brauta. Islenzkur vitsnillingur, Helgi Pjeturss, hefur haldiö því fram, að fyrstu kviknun lífs á jörðu okkar sé að rekja til geislunaráhrifa frá lífheimum annarra stjarna. Sú geislun hefur síðan haldið óslitið áfram og haft áhrif á allt líf jarðar okkar. Hinar alsamstilltu verur annarra hnatta sem eins mætti nefna hina æðstu veru, hafa frá upphafi lífs á jörðu hér leitazt við að þróa lífið fram til æ meiri fullkomnunar. Hin stöðuga líf- geislan frá hinni æðstu veru hefur haft áhrif á allar lífverur jarðar- innar, þær hafa breytzt í aldanna rás, og síðari tegundir orðið á ýmsan hátt fullkomnari en þær sem á undan voru. Steingervinga- fræðin leiðir þessa þróun í ijós, svo að óyggjandi má telja. í fornöld jarðsögunnar voru t.d. fiskar æðstu dýr jarðar, á steinkolatíma- bilinu voru froskar æðstu dýr jarðar, á miðöld jarðar voru skriðdýr æðstu lífverurnar, á tretiertímanum var blómaskeið spendýranna og helzt raunar enn, og verður maður nútímans að teljast æðsta vera jarðar, því hann hefur vit og sjálfstæða hugsun fram yfir önnur dýr, þótt enn skorti hann vit til að fara sér ekki að voða. Hin æðsta vera hefur frá upphafi leitazt við að koma hér upp hugsandi vitveru, sem væri henni lík og sem gæti orðið henni samtaka í hinni miklu heimssmíð. Þróun fyrir áhrif lífmagnandi geislunar hefur verið hennar aðferð. Er nú eftir að sjá, hvernig smíðin hefur tekizt, og hvort manninum auðnast að verða hinni æðstu veru samtaka svo sem til var stefnt um sköpun æ fegurri heims og fegurra mannlífs, eða hvort hann gerir að engu óþrotlega viðleitni guðanna til að koma hér upp hugsandi og vitibornum „manni“. Ingvar Agnarsson.“ Vestur S. DG6 H. Á T. 42 L. G1097532 Austur S. Á8542 H. KG742 T. 85 L.6 Suður S. K9 H. D T. ÁKD9763 L. ÁD4 Siöan skipti hann' spaðadrottn- ingu, sem austur tók með ás og tók síðan á hjartakóng og gosa. Einn niður og sagnhafi óskaði Roudin- esco til hamingju með útspilið. Kirsuber í nóvember 41 Framhaldssaga eftir Mariu Lang Jóhanna Kristjónsdóttir íslenzkaði kalíumsýaniðilaskan? I ís- skápnum? — Nei; hún stóð á hillu hjá ýmsum öðrum flöskum og glösum. Það var brún lyfja- flaska af gamaldags gerð með slipuðum korktappa og tvöföld- um miða tii að sýna hve hættulegt eitrið væri. — Og innihaldið? Var það fljótandi eða í föstu formi? — Sýankah'um, sagði Bo Roland lítillátur — er salt af sýanbrinte eða blásýru. Eitrið í flöskunni var hvítt duft, hvítt og krystaliað, eins og gróft eldhússait. Ég las efnafræði í denn tíð, svo að ég vissi heilmikið um þetta og lýsti þvf meðal annars hver áhrifin væru og að örlítili skammtur dygði til að gera út af við mann. — Já, þú hefur augljóslega haldið uppi hressilegum áróðri fyrir vörunni. — Ég hegðaði mér cins og fífl, sagði Rolle kuldalcga. — Ég var hins vegar enn á stúdentastiginu. Én það er engin afsökun. Ef ég hefði ekki farið að ræða um þetta svona fjáiglega hefði líklega aldrei hvarflað að Matta Sandor nokkuð í þessum dúr. En það þróaðist í næstum sjúklegan áhuga hjá honum. Það lá við hann vildi ekki hverfa frá hillunni og hann taiaði stöðugt um safn sem hann átti af pínulíkjörflöskum. Hann gleypti næstum eiturglasið með augunum og þegar við ætluðum að fara stóð hann alit í einu mcð það í hcndinni. Ég öskraði upp og skipaði honum að setja flöskuna á sinn stað aftur, en því miður fylgdist ég ekki með því HVORT hann gerði það. í meira en ár var ég miður mfn út af þessu og óttaðist að ég yrði ákærður, vegna þess ég heíði með kærulcysi átt sök á dauða hans, þessa fáráða hálf- vita. — Já, þú hefðir nú átt að fá einhverja refsingu, sagði Christer hvassyrtur. — Hven- ær uppgötvuðuð þið að eitur glasið var horfið úr rannsókn- arstofunni? — Snemma á þriðjudags- morgun. En pabbi hringdi og vakti húsráðanda minn f Stokk- hólmi klukkan fimm um morg- uninn. svo að honum tókst að verða á undan og lögreglan kom mér þvf ekki f opna skjöidu. — Já, sagði Kiemenson veit- ingastjóri. — Ég var með í athöfninni sem Nordell hélt úti á rannsóknarstofunni. Og ég myndi treysta mér tíl að sverja að Matti fór ekki þaðan með fullan vasa af eiturkrystöllum. Hann lýgur. bansettur ... Það var sunnudagskvöld. Klukkan var sjö. Og samtalið fór fram f forsal Klemensson — þar sem allir veggir voru kla ddir mahonf. Helena Wijk, sem var í hláum ullarkjól, var að tala af ákefð við ungan pilt með stór gleraugu skammt frá. Þegar pilturinn hvarf niður hringstigann og í diskótekið sagði Kiemens hlýlega> — Já, Helena aflar sér alls staðar vina. Hann er plötusnúð- ur hjá mér. Hreinasta gersemi. — Hann heitir Bartolómeus, sagði írú Wijk glaðlega. — Hann sló fyrir mig grasflötina síðasta sumar og svo veit hann alit um gregoríska kirkjutón- Ifet. — Vfirleitt veit hann allt um alla tónlist sagði Klemens. — En hér koma nú gestir ykkar. Ég hef lagt á borð fyrir ykkur inni f klúbbnum. Gestir Christers báru utan á sér að þeir kunnu vel að meta góðan mat. Daniel Severin héraðslæknir, sem var nú reyndar nýlega kominn á eftir- laun, var bœði hár og digur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.