Morgunblaðið - 17.08.1978, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 17.08.1978, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. ÁGÚST 1978 25 Guðríður Gísladótt- ir—Minningarorð Guðríður Gísladóttir var fædd í Reykjavík 3. desember 1916. For- eldrar hennar voru Guðrún Ein- arsdóttir og Gísli Sveinsson, þáverandi lögmaður við landsyfir- réttinn, síðar sýslumaður, alþing- ismaður og sendiherra. Árið 1918 fluttist Guðríður með foreldrum sínum austur til Víkur í Mýrdal, en þar var sýslumanns- setur Skaftfellinga. í Vík ólst hún upp í skjóli góðra foreldra. Frænd- garður var stór í sýslunni og vinir margir. Að bernskuárum liðnum í Vík leitaði Guðríður sér mennta í Reykjavík og erlendis. Hún hafði næmt eyra fyrir íslenzkri tungu og lipran penna og náði fljótt góðu valdi á erlendum málum, en það varð henni til brautargengis í blaðamannastarfi, sem hún rækti í mörg ár ásamt húsmóðurstörf- tímans rás tók hún við þætti, sem hún hafði algerlega veg og vanda af um árabil og var bæði vinsæll og vandaður. Þessi þáttur spann- aði hvaðeina, sem að heimilishaldi laut og var með menningarsniði svo sem vænta mátti. Skrif Guðríðar þurfti aldrei að yfirfara; smekkvísi hennar var óbrigðul og aldrei brást, að Guðríður kom nákvæmlega á réttum tíma með það, sem henni hafði verið trúað fyrir. Guðríður var dóttir Gísla Sveinssonar alþingismanns, sem var á sinni tíð þjóðkunnur gáfu- maður og arfurinn leyndi sér ekki. Guðríður var kynborin eins og menn hefðu sagt til forna. En nú, þegar hún er öll, minnist ég þess aldrei að hafa spurt hana um skólagöngu. Þess gerðist aldrei þörf. Það lá alltaf ljóst fyrir, að Guðríður Gísladóttir var mennta- kona og hámenntuð í beztu merk- ingu þess orðs. Hún var ein þeirra, sem gerir hvern mann ögn betri og maður er þakklátur fyrir að hafa kynnst. Gísli Sigurðsson. um. Árið 1941 giftist Guðríður dr. Finni Guðmundssyni. Þau eignuð- ust tvær dætur, Helgu og Guð- rúnu. Báðar hafa þ‘ær gifst og eignast börn. Maður Helgu er Björn G. Ólafsson en Guðrún var gift Anthony Yates. Undanfarna mánuði fékk Gúðrún leyfi frá störfum til þess að sjá heimili foreldra sinna borgið eftir að móðir hennar varð alvarlega veik. Guðríður vissi vel að hverju dró en lét sér ekki bregða. Hún lést 12. desember og verður borin til grafar í dag. Við dr. Finnur höfum verið trúnaðarvinir allt frá mennta- skólaárum og tengsl aldrei rofnað. Það varð okkur gleðiefni að konur okkar skyldu eiga lund saman, en þær urðu mjög nánar vinkonur. Við hjónin sendum skyldfólki Guðríðar Gísladóttur einlægar samúðarkveðjur. Missir fjölskyld- unnar var þó mestur, því að Guöríður var burðarás hennar, eins og gegnri húsfreyju sæmdi. Við hjónin söknum sárt góðrar vinkonu, en fremur öðru þökkum við forsjóninni að hafa átt hana að vini. Jón Á. Gissurarson. Vissulega er það ótímabært að þurfa að stinga niður penna til að minnast. Guðríðar Gísladóttur, sem nú er látin fyrir aldur fram. Á þeim liðlega 20 árum, sem ég hef séð um eða ritstýrt blöðum, hafa skapazt kynni við margt ágætis- fólk utan blaðamannastéttarinnar, sem lagði blöðunum lið og starfaði í rauninni meira og minna við blaðamennsku, enda þótt það starf færi fram annarsstaðar en á ritstjórnarskrifstofum blaðanna. Guðríður Gísladóttir var þar á meðal. Kynni okkar og samstarf á sjötta áratugnum varð með þeim hætli, að Guðríður gekk til liðs við Vikuna, sem ég ritstýrði þá. Hún var eiginkona Finns Guðmunds- sonar fuglafræðings; hafði verið húsmóðir og ekki unnið annað starf utan heimilis. Helga dóttir þeirra hjóna hóf sinn blaða- mennskuferil á unga aldri á Vikunni og ugglaust hafa kynni okkar Guðríðar hafizt vegna þess. I fyrstu voru störf Guðríðar á Vikunni bundin við þýðingar, en þær fullnægðu ekki þrá hennar eftir því að skrifa sjálfstætt og í t Elskuleg móöir okkar, tengdamóöir, amma og langamma JÓHANNA G. GÍSLADÓTTIR, Yrsufelli 15, lést sunnudaginn 13. ágúst. Útför hennar veröur gerö frá Fossvogskirkju mánudaginn 21. ágúst ki. 10.30. Fyrir hönd barna og annarra vandamanna Oddur Sigurðsson. t Eiginkona mín, móöir okkar, tengdamóðir og amma. ELÍNA INGA HARALDSDÓTTIR, Hrafnhólum 6, lést í Landspítalanum aö morgni 16. ágúst. Fyrir hönd barna, tengdadætra og barnabarna, Steingrímur Jóhannesson. Maöurinn minn, + VALDIMAR TÓMASSON, Vik í Mýrdal, sem lést á Landspítalanum föstudaginn 18. ágúst kl. 2. 11. ágúst, verður jarösettur frá Víkurkirkju, Fyrir hönd aöstandenda. Sigríður Ólatsdóttir. t Jaröarför mannsins míns INGIMARS KR. MAGNÚSSONAR húsasmiöameistara fer fram frá Akraneskirkju í dag fimmtudaginn 17. ágúst kl. 14.30. Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Sjúkrahús Akraness. Bóthildur Jónsdóttir. t Útför eiginmanns míns, BJÖRNS BJÖRGVINSSONAR, löggilts endurskoöanda, veröur gerö frá Dómkirkjunni föstudaginn 18. ágúst kl. 10.30. Erla Jónsdóttir t Maöurinn minn, SIGURÐUR ÞÓRÐARSON, Bröttugötu 12A, Vestmannaeyjum veröur jarösunginn frá Landakirkju laugardaginn 19. ág. kl. 2 e.h. Blóm vinsamlegast afbeöin. Margrét Stefánsdóttir og börn. SVAR MITT EFTIR BILLY GRAHAM Eg vinn í verzlun með mönnum, sem blóta og lastmæla Guði. Eg finn, að þetta truflar trúarlíf mitt. Finnst yður eg ætti að hætta að vinna þarna? Það er áreiðanlega ekkert rangt við starf yðar. Það er heiðarlegt að vinna. Það nýtur virðingar bæði Guðs og manna. Það væri hörmulegt, ef allir kristnir menn yfirgæfu vinnustaði sína, til þess eins að þeir gætu verið með öðrum kristnum mönnum. Öðru máli gegndi, ef starf yðar samrýmdist ekki kristnum sjónarmiðum. Eg vil gefa yður ráð, sem eg held, að gæti orðið yður að gagni. Lítið svo á, að einmitt á þessum vinnustað sé yður veitt tækifæri til þess að flytja fagnaðarerindið mönnum, sem vilja ekki hlusta á predikara. Þér eigið að vera vottur Guðs á þessum stað, og ef þér notið þetta tækifæri af trúmennsku, gefur Guð yður annað meira verkefni. Yður ber að láta þá vita, að Jesús Kristur sé Drottinn yðar og frelsari. Ef þér fynduð vinnustað, þar sem allir væru yður sammála, hvar hefðuð þér þá tækifæri til að vitna? Þegar þér kynnizt gáleysi og guðleysi þessara manna, ættuð þér líka að þakka Guði fyrir þá breytingu, sem hann hefur komið til vegar í lífi yðar. + Útför eiginkonu minnar, móöur okkar og tengdamóöur SIGRÍDAR HJÖRLEIFSDÓTTUR Bogahlíö 24, fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 18. ágúst kl. 10.30 f.h. Ágúst Guömundsson, Sigríður Ágústsdóttir, Grímur Brandsson, Atli Ágústsson, Þóra Sigurjónsdóttir. t Eiginkona mín, GUDBJÖRG SIGURDARDÓTTIR, Sléttahrauni 32, lézt 13. þ.m. Kveöjuathöfn fer fram í Hafnarfjaröarkirkju, föstudaginn 18. ágúst kl. 10.30. Jarðarför fer fram frá Landakirkju í Vestmannaeyjum, laugardaginn 19. ágúst kl. 16.00. Fyrir hönd sona, tengdadætra, barnabarna, systur og annarra vandamanna. Jón Vigfússon. + Útför mannsins míns, fööur okkar, tengdafööur og afa, INGVA JÓNSSONAR fré Ljérskógum, Sunnubraut 2, Grindavík, veröur gerö frá Grindavíkurkirkju laugardaginn 19. þ.m. kl. 14. Ferð frá Umferðarmiðstöðinni kl. 12.30. Guörún Jóeladóttir, synir, tengdadntur og barnabörn. + Útför systur okkar, ÞÓRUNNAR PÉTURSDÓTTUR, sjúkraÞjélfa, Álfaskeiöi 40, Hafnartiröi er lést á Landspítalanum 8. ágúst veröur gerö frá Fossvogskirkju föstudaginn 18. ágúst kl. 1.30. Blóm og kransar eru vinsamlega afbeðin. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á kvenfélagiö Hringinn í Hafnarfirði eöa aörar góðgeröarstofnanir. Aöalheiður Pétursdóttir, Sigríóur Pétursdóttir, Karl Pétursson. + Þökkum innilega öllum þeim, er sýndu okkur samúö og vinarhug viö andlát og útför GUDRÍÐAR JÓNSDÓTTUR, fré Hlíðarendakoti, Sigríður Árnadóttir, Ólafía Árnadóttir, ættingjar og vandamenn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.