Morgunblaðið - 17.08.1978, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. ÁGÚST 1978
19
Kekkonen með 16 laxa
KEKKONEN Finnlandsforsoti fókk fjóra laxa úr Víðidalsá í fyrri veiðitímanum í gær ok hafði hann
þá frngið lfi laxa í allt frá því hann hóf veiðar í ánni á sunnuda^. byngSitu laxarnir sem forsetinn
hefur veitt eru 11 punda ok fékk hann tvo slíka í Ka“r. Fyrri veiðitíminn í Víðidalsá er frá klukkan
7—13 ok sá síðari frá lfi til 22.
l>essar myndir tók Egill Gunnlaugsson í ga'rmorKun og sýna þa‘r Finnlandsforseta setja í einn
laxanna og landa honum með aðstoð vina sinna.
Viðbrögð stjórnmálaleiðtoganna:
/
„Ihugunarver ð
tímamót — við-
horfin breytt”
MORGUNBLAÐIÐ sneri sér til formanna
Sjálfstæðisflokksins, Alþýðuflokksins og
Framsóknarflokksins og leitaði álits þeirra á
viðhorfunum nú eftir að Lúðvík Jósepssyni
hefur verið falið að hafa forystu um
stjórnarmyndunarviðræður.
Afturganga
„Þetta eru vissulega íhugun-
arverð tímamót," sagði Geir
Hallgrímsson, formaður Sjálf-
stæðisflokksins, þegar Mbl.
spurði hann álits á þessu atriði.
„Þetta mun ekki aðeins vera í
fyrsta skipi á Islandi að formað-
ur flokks, sem saman stendur að
vísu af mismunandi skoðana-
hópum en þar sem áhrifaríkur
kjarni er kommúnistar, hefur
forystu um stjórnarmyndunar-
viðræður heldur og í vestrænum
ríkjum. Það er því full ástæða
fyrir alla lýðræðissinna að
fylgjast vel með framvindu
mála.
Hér er reyndar um aftur-
göngu að ræða. Reynt er að
endurtaka vinstristjórnarvið-
ræður, sem lauk fyrir tveimur
vikum með hatrömmum öpin-
berum deilum, án þess að þessir
flokkar hafi sý'nt fram á að þeir
hafi sett niður deilur sínar.“
Geir var að því spurður hvort
Sjálfstæðisflokkurinn myndi
taka þátt í stjórnarmyndunar-
Við bíðum nú bara eftir því að
fá formlegt boð og munum aö
sjálfsögðu ganga til þessara
viðræðna. Ég geri hins vegar ráð
fyrir að þær ættu að verða þeim
mun styttri í þetta sinn að við
unnum mjög ítarlega að þessari
tilraun í fyrra skiptið, héldum
þá 7 fundi á fjórum dögum, og
þá lágu fyrir bæði drög að
heildarsáttmála og ýmislegt
fleira, svo að maður vonar að
þetta þurfi ekki að taka eins
langan tíma eins og fyrri
tilraunir."
Morgunblaðið spurði Benedikt
hvort Alþýðuflokkurinn mundi
sætta sig við að Lúðvík Jóseps-
son færi með forsætisráðherra-
embættið í hugsanlegri ríkis-
stjórn þessara flokka. „Við
höfum ekki rætt það í okkar
hópi né tekið neina ákvörðun
þar um. Persónulega set ég
engin skilyrði hvað snertir neitt
ráðuneyti nema utanríkisráðu-
neytið. Við munum aldrei sætta
okkur við, að Alþýðubandalagið
fái það ráðuneyti eða ráði
stefnunni í því máli.“
tilraunum undir forystu AÍ-
þýðubandalagsins ef til þess
kæmi. „Það er ekkert tilefni til
þess að svo stöddu að svara
þeirri spurningu."
Alþýðubandalagið
fær ekki utan-
ríkisráðuneytið
„Það er helzt um þetta að
segja, að fyrir mánuði síðan
gerði ég tilraun til að mynda
samstjórn þessara þriggja
flokka, sem Lúðvík hefur nú í
hyggju að fá til viðræðna, en við
munum að sjálfsögðu taka þátt
í annarri tilraun," sagði Bene-
dikt Gröndal, formaður Alþýðu-
flokksins. „Það reynir nú á það
hvort sá tími sem liðið hefur og
þær tilraunir til stjórnarmynd-
unar sem síðan hafa farið fram
kunna að hafa orðið til þess að
menn hafi breytt viðhorfum
sínum eitthvað og meiri mögu-
leikar séu þannig á því að ná
samkomulagi en var fyrir mán-
uði. Það hefur komið fram í
útvarpsviðtali við Lúðvík, að
Alþýðubandalagið ætlar sér að
viðurkenna að gengisfelling sé
óhjákvæmileg, en það var nú
nánast á því máli sem fyrri
tilraunin sprakk og á ýmsu þar
að lútandi.
Ég skal ekkert uip það segja
hvernig þessari tilraun lyktar
nú en tíminn hefur liðið og
vandamál þjóðarinnar eru svo
hrikaleg og aðkallandi, að þessi
stjórnarkreppa má ekki standa
miklu lengur.
Viðhorfin hljóta
að vera breytt
Olafur Jóhannesson, formað-
ur Framsóknarflokksins, sagði
að Lúðvík væri búinn að hafa
samband við hann en þar hefði
þó ekki verið um nein formleg
tilmæli að ræða varðandi við-
ræður heldur hefði Lúðvík
reifað málið. Ólafur sagði þó, að
Framsóknarflokkurinn myndi
taka þátt í þessum viðræðum, og
hann kvaðst eiga von á því að
framsóknarmenn myndu nú
eitthvað ræða í sínum hópi þá
tillögugerð sem þeir mundu
hafa uppi, sem yrði eitthvað
svipuð því og hefði verið í fyrri
viðræðum.
Ólafur var spurður álits á
ummælum Lúðvíks varðandi
bre.vtta afstöðu til gengislækk-
unar. „Ég vil skilja það að þeir
mæta í viðræður aftur á þá
lund, að viðhorf þessara tveggja
flokka hafi breytzt eitthvað frá
því sem var, en ég vil ekki og get
ekki farið út í einstök atriði.“
Hann var þá spurður að því
hvort ummæli Lúðvíks um að
skilyrði fyrir því að Alþýðu-
bandalagið féllist á gengisíækk-
un væri að samningarnir væru
í fullu gildi yrðu ekki erfiður
biti fyrir framsóknarmenn að
kyngja. „Hann orðaði það nú
ekki með því slagorði, þó að
kannski megi skilja hann þann-
ig en eins og hann sagði það í
útvárpinu getur þetta atriði nú
verið eitthvað teygjanlegra,"
svaraði Ólafur.