Morgunblaðið - 20.08.1978, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 20.08.1978, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. ÁGÚST 1978 57 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 0100 KL. 10—11 FRÁ MANUDEGI komið til hugar fjórar leiðir, sem hver fyrir sig, eða allar saman, ættu að leiða til betri skilnings á málinu. Þær eru þessar: 1. Námskeið í sjónvarpi. 2. Verzlunarfyrirtæki, sem selja t.d. eldavélar, skápa með hillum eða skúffum niður við gólf, ritvél- ar o.fl., gefi kaupendum dálitla örk með leiðbeiningum um vinnustell- ingar og notkun. 3. Efnið sé tengt leikfimi- kennslu og íþróttakennslu í skól- um. 4, íþróttafélögin hafi málið á stefnuskrá sinni. Heilsa þjóðar- innar er þýðingarmeiri en öll íþróttamet. Fleira mætti sjálfsagt tína til, en þetta læt ég nægja. Að lokum vil ég taka fram, að þessar hugmyndir mínar eru auðvitað alveg óviðkomandi því ágæta starfi, sem unnið er á endurhæf- ingarstöðvunum og sjúkrahúsun- um. Það er og verður í fullu gildi sem hjálp við sjúka menn, en gott væri það, ef almennari þekking og meiri æfing í réttri notkun líkam- ans gæti eitthvað dregið úr eða komið í veg fyrir t.d. gigt eða aðra kvilla, sem af misnotkun geta leitt. Slíkt gæti einnig orðið til þess, að hjálp þjálfaranna kæmi að betri notum þeim, sem fyrir veikindum verða. Læt ég hér staðar numið og vona, að þessi hugleiðing mín fái einhvers staðar hljómgrunn hjá þeim, sem hafa tök á að fram- kvæma tillögurnar. Jakob Jónsson dr. theol. Þessir hringdu . . . • Á móti sjálf- stæði þjóðarinnar? Jón Jónsson. Ég er eldgamall Reykvíking- ur kominn yfir áttrætt. Ég álít það að forseti íslands hafi kannski haft lagalegan rétt til þess að veita Lúðvík Jósefssyni umboð til þess að mynda ríkisstjórn en hann hafði engan siðferðislegan rétt til þess. Það mælir á móti sjálfstæði íslenzku þjóðarinnar. Svo langar mig til þess að senda alþýðuflokks- mönnufn kveðjur og segja þeim að þeir megi skammast sín. Það er auðséð að forysta þeirra er ekki frá Jóni Baldvinssyni og þeim heiðursmönnum sem áður stjórn- uðu flokknum. • Hvað kosta sjónvörp? Örn Ásmundsson. Ég sá hjá kunningja mínum um daginn að það stóð í Tímanum að meðalverð á sjónvarpstækjum væri 142.000 krónur. Ég tel það ekki rétt. Meðalverð á sjónvarps- tækjum samkvæmt þýska genginu er 40—100.000 krónur og er þá miðað við svart-hvít og litsjón- varpstæki. Tæki kosta erlendis í dag yfirleitt um 100.000 en geta farið niður í 40.000 en er þau koma út úr búð hér á landi eru þau komin upp í kringum 400.000 krónur. EF ÞAÐ ER FRÉTTNÆMT ÞÁ ER ÞAÐ í MORGUNBLAÐINU HÖGNI HREKKVÍSI ,Þetta eru mýs af aðalsættum!“ 03= SlGeA V/GGA 2 ^LVtRAW £$r vý wKtto [w 4« a/mw ághw , 'íYRft? 07/1N ALIK GALLA / SKYNDIMYNMR Vandaðar litmyndir í öll skírteini. barna&fþlskyldu- Ijósmyndir ÁL5ÍURSrR€TI 6 SfMI 12644 Vestur-þýzku byggingakíkirarnir frá THEIS aftur fyrirliggjandi. Iðnaðarvörur, Vélaverslun, Kleppsvegi 150 (versl. miðst. við Sæviðar sund) Reykjavík, sími 86375. Gjallarhorn, hljóónemar og magnarar í miklu úrvali heimilistæki sf Tœknideild - Sœtúni 8. simi 24000 4-position input se/ectorsocket I.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.