Morgunblaðið - 31.08.1978, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. ÁGÚST 1978
13
losnuðum þannig strax við fiskinn.
Sameinaða verzlunin átti mótor-
báta, sem margir útvegsmannanna
stunduðu róðra á og þvi hafði
verzlunin móttöku fyrir fiskinn á
Látrum."
„Fréttist ekkert
af þeim í viku ...“
„Annars var Aðalvík lengi sam-
bandslaus við umheiminn, bæði
fyrir og eftir aldamót. Fréttir
komu með póstbátnum og
stundum kom Morgunblaðið.
Þegar fyrra heimsstriðið geysaði
minnist ég umræðna, þar sem
menn voru að gera sér einhverjar
hugmyndir um hvað ætti sér
eiginlega stað úti í hinum stóra
heimi.
Ég get sagt þér eina dæmisögu
um sambandsleysið. Það var
skömmu eftir aldamót, í janúar-
mánuði — ekki man ég hvaða ár
en það er skráð í bókum. Þá fór
pabbi á sjóinn ásamt Friðriki
Magnússyni, föður Gunnars
formanns Slysavarnafélagsins og
fleirum. Þeir lentu í vondu veðri og
náðu ekki landi í Aðalvík. Gátu
þeir ekki hafið upp segl og höfðu
bara mastrið lengi vel. Það var
ofsarok og stýrðu þeir skáhallt
undan veðri til að reyna að komast
að landi. Sjóferðin fór þannig að
þeir komust yfir Djúpið og náðu
lendingu í Bolungarvík. Þar hafði
orðið mannskaði vegna óveðursins.
Hvolfdi bát þeirra í lendingu en
allir sex björguðust þótt þeir væru
velktir mjög. Tveir voru illa
hraktir og tæpt komnir. Voru
mennirnir teknir inn í hús og
morguninn eftir lagði pabbi af
stað til ísafjarðar til að sækja
þeim lyf.
Ekkert fréttist um atburð
þennan til Aðalvíkur og leið heil
vika. Fengu þeir þá léðan bát í
Bolungarvík og hugðust róa til
Sléttu, þar sem hreppstjórasetrið
X "111 1 ® Valdimar
Þorbergsson
^ m á leið til
vinnu með
11' 11 y s kaffibrúsann.
| l var. Þegar þeir náðu landi þar, var
hreppstjórinn ásamt fleirum
: J nýlagður af stað til Miðvíkur til að
’ f^lL' « 1 | ' j1| tilkynna ættingjum að mennirnir væru taldir af. Þegar hreppstjóri
og fylgdarlið höfðu rétt náð til
Miðvíkur, komu hinir í kjölfarið og sáu baksvip hreppstjóra. Eflaust hefur þá grunað í hvaða erinda- gjörðum hann var og tóku þeir
þann kostinn að labba samsíða
4 ■pPBBt'' "y*1: allir sex niður hlíðina þannig að fólkið í Miðvík gæti talið þá þegar
þeir kæmu niður brekkuna.
.. ' |ÍM Ji Það urðu miklir
NjBr , . r; fagnaðarfundir ..“
„Þaö rann ekki
-sO| ^ Jl - j Æjjjjf af honum alla
; ^ 11 | • v v leiö til Lissabon“ „Tuttugu og eins árs fór ég að
heiman og til Isafjarðar. Þar var
ÉlÉÉÉII ég á bát eina haustvertíð en þá
voru vertíðaskiptin mikil og oft
Vii: ■ ffi mH dauður tími á veturna. Bátar
\, IHÉ hvorki nægilega góðir né stórir til
að hægt væri að róa allan ársins
hring.
Þá var ég á togurum frá
Reykjavík í fjögur ár, en þegar
atvinnuleysið jókst þar fluttist ég
aftur til heimaslóðanna i Aðalvík.
Kveldúlfur hafði komið upp síldar-
bræðslu á Hesteyri og þar vann ég
á: ■^r \ í sex sumur. Fór að vísu í eitt ár sem kyndari á fragtskip, sem
sigldi á Spán og Portúgal. Það
þótti mikið ævintýri í þá tíð.
Fiskurinn var losaður í Bilbao á
Spáni. Þegar þangað kom eitt sinn
fengum við kyndararnir tvo tíu
lítra dúnka. af spíra en í staðinn
létum við brenndar ristir sem
Spánverjar notuðu til bræðslu.
Einn kyndaranna tók að sér að
hafa dúnkana í sinni vörzlu. Við
vorum rétt lagðir af stað þegar
hann birtist, blindfullur. Það rann
ekki af honum alla leiðina til
Lissabon og þurftum við tveir að
taka hans vakt líka. Dúnkarnir
fundust ekki fyrr en við komum til
Keflavíkur þar sem skipað var upp
fullfermi af salti. Fannst þá
afgangurinn af spíranum sem
dugði rétt á þrjár flöskur og í eitt
glas. Hann var lúnkinn náungi ...“
„Þeir sem mest
höfðu bolmagnið
fóru fyrst“
„Þegar síldarstöðin á Hesteyri
var lögð niður 1937 fór ég aftur til
róðra frá Aðalvík. Síðan skellur
stríðið á og það er helzta orsökin
fyrir því að Aðalvíkin lagðist i
eyði. Bretinn keýpti allan fisk
nýjan og það var enginn markaður
fyrir okkur að salta fiskinn. Við
urðum aö kosta flutning til
Isafjarðar á þeim afla sem við
fengum, því Bretinn var þar og
þénustan varð lélegri og lélegri í
Aðalvík. Því fóru þeir sem mest
höfðu bolmagnið yfir til ísafjarðar
en þeir verr settu fóru sér hægar.
Með tímanum yfirgáfu samt
allir Aðalvíkina. Sorglegt þótti
mér að yfirgefa æskustöðvarnar
en ég fór það fyrir fullt og allt árið
1947.
Fólkið úr Aðalvík dreifðist um
allt landið. Sumir eru á ísafirði,
fleiri fóru suður. Ég hélt mig við
ísafjörðinn. Hér er næg vinna og
velmegun fvrir þá sem geta unnið
. . .“ - ILÞ.
a
andinu
skíðalyftur. Bílaleiga er rekin í
plássinu og þar eru stórar verzlan-
ir með allar nauðsynjar á boðstól-
um og þær ekki af verra taginu.
Allir þeir Bolvíkingar sem blm.
tók tali voru eins og að líkum
lætur harðánægðir með lífið og
tilveruna og enginn kvaðst geta
hugsað sér að búa annars staðar
á landinu og urðu flestir reyndar
hneykslaðir á slíkri spurningu,
sem er kannski ekkert skrýtið.
„Það er fátt sem aðrir staðir hafa
uppá að bjóða — okkur skortir hér
í Víkinni" sagði einn án þess að
nokkurs yfirlætis yrði vart í
röddinni. — ÁJR.
En SUNNA býður ykkur mögu-
leika á fleiri sólardögurn.
HAUSTFERDIR Á HAGKVÆMU VERÐI:
Grikkland
5/9 2 vikur og 4 vikur
19/9 BIOLISTI
3/10 VIKUFERÐ
Kanaríeyjar
Sérstök fjölskyldukjör
21/9 BIDLISTI
Mallorca
10/9 3 vikur
17/9 2 og 3 vikur
24/9 2 og 3 vikur
1/10 1, 2 og 4 vikur
8/10 1 og 3 vikur
15/10 2 vikur
Costa Del Sol
8/9 BIÐLISTI
15/9 3 vikur
22/9 2 vikur
Mogalluf
Beint dagflug
án
BANKASTRÆTI 10. SÍMI 29322.
AKUREYRL HAFNARSTRÆTI 94, SÍMI 21835.