Morgunblaðið - 31.08.1978, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 31.08.1978, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. ÁGÚST 1978 15 Jónas Guövarðarson sýnir um þessar mundir í Norræna hús- inu. Hann hefur haldiö nokkrar sýningar hér í borg áður og einnig tekið þátt í samsýning- um. Löngum hefur hann dvalið í suðurlöndum og nam þar málaralist að ég held aðallega í Barcelona og Palma, eftir að hafa lokið námi hér heima í Myndlistarskólanum í Reykja- vík. Annars er þetta allt í stuttum formála sýningarskrár Jónasar og því engin ástæða til að endurtaka það hér. Það eru 55 verk á þessari sýningu Jónasar, og eru þau öll unnin á undanförnum mánuðum. Hann gerir mynd- verk sín í ýmiss konar efni, sem er nokkuð óvenjulegt hér hjá okkur. Jónas teflir saman tré, kopar og fleira. Sumt málar hann svo og gefur verkinu Myndllst eftir VALTÝ PÉTURSSON Sýning Jónasar Guðvarðarsonar vissan tón, sem oft og tíðum er nokkuð framandi í íslenskri myndlist, en áhrif frá þeim spænsku fara ekki á milli mála. Við því er ekkert að segja. Jónas vinnur af mikilli natni þessar lágmyndir, ef ég má kalla þær það? En vart verður annað nafn fundið á íslenskri tungu, sem hæfir þessum verkum betur. Ef maður skoðar eitt og eitt verk, kemur í ljós, að Jónas hefur nokkra fjölbreytni í verkum sinum, sem orsakast af mismun- andi meðferð forms og litar, en í heild er þessi sýning nokkuð þung í eðli sínu og ber óneitan- lega keim af dulúð suðursins, einmitt því, sem Spánverjum er svo ríkulega í blóð borið. Einnig má finna hrjúfleika Katalóníu- listar í þessum verkum, en ég held að ég megi segja, að Jónasi takist samt að koma sínu fram. Það verður að skoða þessa sýningu nokkuð vel til að greina þá þætti hennar, sem gera hana ekki eins drungalega og einhliða og við fyrstu sýn. Það er margt ágætlega gert í þessum verkum, og á ég þá sérstaklega við, hvernig Jónas hagnýtir sér samhljóm trés og málms. Það getur vel verið, að þar liggi hans sterkasta hlið eins og stendur, og það er sjaldgæft í list okkar, að undanskildum verkum Sigur- jóns Ólafssonar, sem annars eru af allt öðrum heimi en þau verk, er Jónas Guðvarðarson sýnir á þessari sýningu. Það verður einnig að játast í þessum línum, að á stundum virðist Jónas ekki hafa nægilegt vald yfir sjálfum litnum til að hann geti kallast verulega góður í litameðferð. Ég held, að hann geri best í þessum verkum, þegar hann lætur efni- viðinn tala sínu máli, tálgaðan og samsettan á mismunandi hátt. Á því er enginn vafi, að þá tekst honum miklu betur en þegar hann málar yfir hlutina, en þá kemur það fyrir að þeir verða of yfirborðskenndir. Þetta er atriði, sem ég hjó eftir á sýningu Jónasar en þrátt fyrir þessa galla á hann ýmislegt gott skilið fyrir þessi verk. Eins og oft vill veröa, hefði betur farið á, ef rýmra hefði verið eða færri verk í sölu Norræna hússins. En ekki skulum við fást meir um það. Þessi sýning er vel þess virði, að hún sé skoðuð og það vandlega. Sýning Jónasar er að mestu í abstrakt stíl, og aðeins örlar fyrir andlitum hér og þar. Sýningin hefur gengið með ágætum, og ég er viss um, að margir hafa ánægju af að skoða þessi verk Jónasar, en hann er fæddur á Sauðárkróki eins og nokkuð margir aðrir mynd- listarmenn okkar. Kannski er skyldleiki milli söngs, hesta- mennsku og málverks? En þau munu vera héraðseinkenni þeirra í Skagafirðinum. Valtýr Pétursson. Ungverji í Suðurgötu 7 Fyrir nokkrum árum hitti ég gamlan vin frá Parísarárum mínum, sem býr í Ungverja- iandi. Hann var fæddur þar og uppalinn, en hafði dvalið láng- dvölum í París. Þar var hann mikill kommúnisti og hélt svo einn góöan veðurdag heim á hinar grösugu sléttur, sem hann elskaði öðru fremur. En hann komst aftur til Parísar og dvaldi þar um hríð. Hann var óhrædd- ur við að segja frá því, hvern hramm valdhafarnir höfðu lagt á allt andlegt líf og þar með sköpunarlöngun listamanna. Það fór ekki milli mála, að hann vonaðist til að einn góðan veðurdag mundi þetta allt batna og lagði mikla áherslu á, að stunduð væri myndlist, sem væri mikil framúrstefna, á laun. Því mundi ekki langt í þá tíma, að frelsið yrði endurheimt í heimalandi hans. Það eru nú liðin nokkur ár síðan þetta var, eins og segir hér að ofan, og enn virðist ósk þessa vinar míns ekki hafa ræst, því að líklegast er GABOR ATTALAI, sem nú sýnir í Gallerí Suðurgötu 7, einn af þeim, er vinna á laun og njóta ekki trausts ráðamanna í Ung- verjalandi. Eitt er víst, honum hefur verið meinað að fara úr landi og fylgja verkum sínum, en hvernig þau eru komin í Gallerí Suðurgötu 7, hef ég ekki hugmynd um og ætla mér ekki að blanda mér í það mál. GABOR ATTALAI kallar þessa sýningu sína „Red-y and Post Red-y made“. Ég gæti trúað, að þessi titill hafi póli- tíska merkingu, ög rauöi litur- inn gengur fram í öllum verkun- um á þessari sýningu. Hlutar af húsnæðinu eru einnig málaðir rauðir og rautt sett inn á ljósmyndir og kort af mörgum stórborgum Evrópu. Póstkort frá Islandi fá einnig rauðar skellur eða strik; rautt skal það vera og ekkert nema rautt. Ef þetta er áróður, veit ég ekki hvort Attalai er í krossferð fyrir eða á móti ríkjandi stjórnar- háttum í heimalandinu. En ég kem því ekki úr mínum kolli, að hér sé pólitík á ferð, hver sem hún annars er. Það er dálítil fjölbreytni í þessari sýningu, en ég er viss um, að ýmislegt hefur farið fyrir ofan garð og neðan hjá mér í þessum verkum. Mér er það lítt skiljanlegt, að hneppa þurfi menn í átthagafjötra f.vrir að gera slíka hluti sem eru í Suöurgötu 7. En svona er nú heimurinn skitinn. Það, sem sumum finnst. góðlátleg glettni, verðm- öðrum til að óttast um vald sitt og mekt. Það er sannarlega erfitt að lifa í þessum ágæta heimi. En frelsið verður ekki dregið niður í svaðið, það kemur aftur og aftur, hvernig sem á því er troðið, og ég er sannfærður um, að einn góðan veðurdag verður draumur vinar míns um betri tíð að raunveruleika. En hvenær? Það er spurning, sem ég ætla að lofa lesendum aö glíma við. Þessi sýning í Suður- götu 7 er að mínum dómi ekki þess megnug að kollsteypa ríkisvaldi eða e.vðileggja marxíska lífsskoðun. Éf hún er það! Já, hvað á maður þá að segja? Stundum virðist kerfið eins og tölva, sem er ekki rétt fóðruð, og þá veit hver og einn, að útkoman er ekki tii að henda reiður á. „Listamenn okkar vinna mjög merkilegt starf á laun og í blóra við kerfið," sagði vinur minn, sem ég vitnaði til i upphafi þessara skrifa. „Komdu bara í heimsókn, og ég skal sýna þér, hvað raunverulega er að gerast," bætti hann við. Nú er þetta komið alla leið út í miðja Atlantsála, og hver og einn getur séð verk GABOR ATTALAI í Gallerí Suðurgötu 7. Að lokum kemur hér texti á enskri tungu, sem virðist vera motto þessarar sýningar og er finnanlegur í flestum verkanna. Textinn er innrammaður í hring og hljóðar ■ þannig „THÉ OBJECT COMES TO END BY RED-Y MADE, WIIILE KEEPS THE APPEARANCE OF EARLIERITSELF" svo mörg voru þau orð. Valtýr Pétursson. SVFÍ berast goðar Slysavarnafélagi Islands hafa' borist margar góðar gjafir að undanförnu í tilefni af 50 ára afmælisins. Þrjár systur af íslenzkum ættum, sem búsettar eru í Kanada hafa sent peningagjöf í minningu afa síns, Séra Odds V. Gíslasonar, prests að Stað í Grindavík, hins mikla braut- ryðjanda um sjóslysavarnir hér á landi. Séra Oddur ritaði margar greinar um öruggismál sjómanna og gaf út tímaritið „SÆBJÖRG", sem hann helgaði sérstaklega þessum málum. Hann þjónaði að Stað frá 1878 til fardaga 1894 að hann fluttist vestur um haf, þar sem hann andaðist í janúar 1911. Brezka fyrirtækið Pains-Wessex Schermuly, sem framleiðir línubyss- ur og allskonar merkjaskot og blys hefur sent SVFI að gjöf 4 samstæður af hinum nýju línubyssum „Speed- line“ með ósk um, að þær verði afhentar þeirri björgunarsveit félagsins sem flestum mönnum hefurbjargað úr sjávarháska. Björg- unarsveitin „Þorbjörn" í Grindavík hefur fengið þessar línubyssur til afnota, en hún hefur bjargað 194 mönnum af strönduðum skipum. Það var í marz 1931, að í fyrsta sinn var bjargað mönnum með fluglínutækj- um og var það „Þorbjörn" er vann það afrek með línubyssu af gerðinni Schermuly-Supreme. Og á síðast liðnu ári bjargaði „Þorbjörn" ís- lenskum sjómanni af fiskibát, sem strandaði skammt vestan Grindavík- ur. Þá var í fyrsta sinn notuð línubyssa af gerðinni „Speedline", en björgunarsveitir SVFI eru nú sem óðast að taka þá gerð af línubyssum í notkun í staðinn fyrir þær eldri, sem nú hafa verið aflagðar að mestu. Lionsklúbburinn Þór í Reykjavík hefur afhent SVFÍ vandað eintak af nýrri útgáfu kennslukvikmyndarinn- ar „Pulse of Life“ er sýnir lífgun úr dauðadái með blástursaðferðinni. Myndin er með íslenzku tali, sem eykur notagildi hennar mjög við gjafir kennslu á hinum mörgu námskeiðum í skyndihjálp, er félagið gengst fyrir. Það er ekki í fyrsta sinni, er ÞÓRS-félagar sýna starfsemi SVFÍ slíkan vinarhug. Áður höfðu þeir afhent framlag til kaupa á fjar- skiptabúnaði og gefið einni björgun- arsveitinni vandaða talsstöð. Fjallamannaklúbburinn C.E.Poblet í Barcelona á Spáni hefur sent félaginu fagurlega gerðan veggskjöld með eftirfarandi áletrun: „Með þakklæti til Slysavarnafélags íslands fyrir gott samstarf og hjálp vegna veittrar aðstoðar. Frá leið- angri til íslands 1977.“ Axel Gomez Retana, íslenzkur ríkisborgari, afhenti þennan fagra grip í nafni landa sinna. Strandgæzla Bandaríkjanna — US COAST GUARD - hefur sent SVFÍ tvær kvikmyndir til fræðslu og kynningar. Sýnir önnur myndin hina margþættu starfsemi, er Strand- gæzlan hefur með höndum, en hin myndin er um þjálfun áhafna hinna rómuðu 44 feta björgunarbáta og sýnir þá að störfum. Lawrence M. Grossman sendiráðsritari hér í Reykjavík afhenti kvikmyndirnar fyrir hönd Strandgæzlunnar. Adolf Wendel innflytjandi í Reykjavík hefur afhent sérhannaðan ljóskastara mjög meðfæranlegan, sem er til fleiri hluta nytlegur en við leitar- og björgunarstörf. Ljóskast- arinn er sambyggður litlum mótor og vegur hvort tveggja um 7 kg. Við sérstakar aðstæður er hægt að losa sjálfan ljóskastarann frá motornum og koma fyrir á þar til gerðum þrífót og tengja saman að nýju með 6 mtr. langri rafmagnssnúru. Þá hafa ýmsir ónafngreindir einstaklingar og félög styrkt starf- semi SVFI með fjárframlögum, og verður þeirra sérstaklega getið í Árbók félagsins eins og venja er. Slysavarnafélag Islands þakkar öll- um sem hlut eiga að máli, velvild og hlýjar óskir. (Fréttatilkynning frá SVFÍ.) Gunnar Friðriksson formaður SVFÍ, ásamt forystumönnum björgunarsveitarinnar Þorbjarnar í Grindavík, með nýju línubyssurn- ar frá Schermuly. Talið f.v. Tómas Þorvaldsson en hann var í mörg ár formaður Þorbjarnar. Gunnar Friðriksson. Gunnar Tómasson. sonur Tómasar Þorvaldssonar. cn hann hefur nú tekið við formennsku í Þorbirni. Árni Magnússon. sem í mörg ár var skytta hjörgunarsveit- arinnar og Guðmundur Þorsteinsson. sem var formaður svoitarinnar um fjölda ára skeið. Fyrirlestrar um vanda- mál foreldra þroskaheftra LANDSSAMTÖKIN Þroskahjálp eru að hefja starfsemi sína á ný eftir sumarleyfi. í na*stu viku oru fyrirhugaðir almennir fundir um málefni þroskaheftra hæði í Reykjavík og úti á landi. Þroska- hjálp hefur boðið til landsins fulltrúa frá Landssamtökum for- eldra þroskaheftra í Danmörku. Agnete Schou. sem dvelur hér dagana 3. til 10. september. Mánudagskvöldið 4. september mun Agnete Schou flytja erindi á almennum fundi í Domus Medica við Egilsgötu kl. 8.30. Þar mun hún ræða um vandamál foreldra þroskaheftra barna, um fræðslu- og upplýsingastarf fyrir foreldra, svo og samstarf milli foreldra og starfsfólks stofnana. Þriðjudagskvöldið 5. sept.' er fyrirhugaður almennur fundur um málefni þroskaheftra á Akuryeri kl. 20.30. Fundarstaður er Hótel KEA. Og á miðvikudagskvöld er fyrirhugaður funduri á ’Egilsstöð- um kl. 20.30 og flytur Agnete Schou framsöguerindi á báðum stöðum. Allir fundirnir eru opnir öllu áhugafólki um málefni þroskaheftra, en foreldrar og starfsfólk stofnana ásamt barna- læknum og hjúkrunarfræðingum, eru sérstaklega hvattir til að sækja þessa fundi. Agnete Schou hefur mikla reynslu og þekkingu á málefnum vangefinna og þroskaheftra, bæði af eigin raun sem foreldri vangef- innar dóttur, svo og vegna starfs síns í Landssamtökunum Evnesvage Vel í Danmörku. Hún hefur flutt marga fyrirlestra víða á Norður'öndum og ritað fjölda greina um málefni þroskaheftra. Erindin verða flutt á dönsku, en túlkuð á íslenzku.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.