Morgunblaðið - 31.08.1978, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. ÁGÚST 1978
37
r\
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL 10 — 11
FRÁ MÁNUDEGI
allmörgum árum meöan sjórinn
þarna var nægilega hreinn til
sunds og baða.
Bílastæði voru gerð s.l. vetur
nálægt læknum og er sú lagfæring
mjög til bóta. Sá galli er þó við þau
stæði, að ofaníburðurinn má heita
eintóm leirleðja og verður þarna
mjög óþrifalegt svað í vætum.
Nauðsynlega þyrfti því að bera
þarna í stæðin hreinlega smágerða
möl.
Eins og að ofan segir, er allt
umhverfi lækjarins hið
viðkunnanlegasta einkum á
sumrum þegar sólar nýtur og er
því tilvalið til útilífs og sólbaða.
Heiti lækurinn hefur líka það
aðdráttarafl, að allir gestir Naut-
hólsvíkur vilja þangað koma, sér
til ánægju og heilsubótar.
Leiðinlegt er því að vita til þess,
að drukkið fólk skuli spilla þessum
friðsæla stað, með illri umgengni
og drykkjulátum um nætur. Það er
þessum drukknu næturgestum að
kenna, að glerbrot eru nú út um
allt, svo að gæslu verður að hafa
til að meiða sig ekki á þeim.
Yfirvöld þyrftu reyndar að senda
þangað einhvern unglingahópinn,
sem vinnur að fegrun og snyrtingu
gróðurbletta, til að tína upp öll
þau glerbrot, sem hægt er að
finna.
Ég vil svo eindregið mælast til
þess, að læknum verði ekki lokað
um daga, en allt verði gert til þess,
að friðsamt fólk geti notið þeirrar
hressingar, sem þessi staður hefur
að bjóða og þeirrar útivistar, sem
öllum er nauðsynleg til heilsu-
bótar.
I. A.
Velvakandi óskaði um daginn
eftir velgerðum lausavísum og
hafa margir brugðið við og sent
inn vísur. Bent skal þó á það að
nauðsynlegt er að nafn höfundar
fylgi vísunum, þó svo að það sé
ekki birt í blaðinu, sé þess óskað.
• Ólafur
sauðamaður
Erindi hafði æði brýnt
uppi á regin fjöllum,
sauðunum hafði sínum týnt
sjálfur, næstum því öllum.
En snarmennska Olafs undrar mig
og úrræðakúnstin slynga,
óðar vandi hann undir sig
óskila-tvílembinga.
ort á höfuðdag 1978.
Hestamenn
Uppboð á 15—20 reiðhestum og hlaupurum verður
haldið við tamninqastöðina Blönduósi laugardaginn 2.
sept. kl. 14. Hæfileikavottorð mun fylgja hverjum hesti
auk sýningar áður en sala hefst.
Sölufélag Austur-Húnvetninga
Blönduósi, sími 91-4200.
ÉAÉ milward
Hringprjónar
Fimmprjónar
Tviprjónar
000 MILWARD
Þessir hringdu . . .
• Vil vinna
einn dag
kauplaust
Starfsmaður, sem vill hjálpa
ríkinu til að losna við eitthvað af
skuldunum, hringdi til Velvakanda
og vildi fá að koma eftirfarandi á
frámfæri:
„Ég er kvenkyns ríkisstarfs-
maður og vinn á spítala. Aldrei hef
ég tekið þátt í verkfalli og reyni að
komast hjá því að verða atvinnu-
laus. Ég vildi gjarnan leggja mitt
af mörkum til að hjálpa ríkinu að
losna við eitthvað af skuldunum og
væri til dæmis reiðubúin að vinna
einn dag kauplaust, og láta kaupið
mitt ganga upp í skuldirnar.
Einnig vil ég benda á það að það
ætti að hætta að flytja inn alls
kyns munaðarvörur frá útlöndum
og skuldbinda þannig alla þjóðina
ævilangt. Við getum alveg komist
hjá því að nota allar þessar
munaðarvörur.
Ég tel ekki að það sé nauðsyn-
legt að segja upp um 8.000 manns
eins og sagt er í fréttum, og því
síður að verkföll séu nauðsynleg.
Verkföll og atvinnuleysi eru aðeins
SKÁK
Umsjón:
Margeir Pétursson
Á minningarmóti Sokolskys í
Minsk í Sovétríkjunum í janúar
kom þessi staða upp í skák þeirra
Sakharovs, sem hafði hvítt og átti
leik, og Litvinovs.
26. Bb6!! og svartur gafst upp, því
að 26 ... Hxb6 yrði svarað með 27.
Hxe6+! Öllum á óvart sigraði hinn
14 ára gamli Kasparov á mótinu.
Hann hlaut 13 v. af 17 mögulegum.
Næstur kom alþjóðlegi meistarinn
Kupreichik með 12 Vz v. Þátttak-
endur voru 18, allt sovétmenn.
til ama og gerir lífið leiðinlegt.
Það verður líka til þess að skapa
ennþá meiri skuldir og peninga-
vandræði.
Ég vildi því gjarnan vinna einn
dag kauplaust til þess að leggja
mitt af mörkum til að hjálpa
ríkinu út úr ógöngunum og skora
ég á sem flesta að gera slíkt hið
sama.
Starfsmaður á
ríkisspítala."
HÖGNI HREKKVÍSI
Heklunálar
Framleitt úr léttri
álblöndu
Heildsölubirgðir:
Davið S. Jónsson & Cu. hi.
Sími 24-333
Nýtt — Nýtt
Vinsælasta skólapeysan
á Noröurlöndum í ár
er komin til okkar.
ALLAR STÆRÐIR
GEísiP
MANNI OG KON
BÖRN GERA SÉR EKKI ALLTAF GREIN FYRIR FLAUTI BÍLA