Morgunblaðið - 31.08.1978, Qupperneq 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. ÁGÚST 1978
Dregið í Evrópumótum í handknattleik:
Valur mætir Ref-
stad frá Noregi
ÍSLANDSMEISTARAR Vals í handknattlcik drógust xegn norsku meisturunum Refstad í
Evrópukeppninni í handknattleik. en dregið var í 1. umferðina í Sviss í ga‘r. Refstad hefur marga snjalla
handknattleiksmenn innan sinna raða og róðurinn verður því örugRlega erfiður fyrir Valsmenn. Ekki
eru mörs ár síðan hálft norska landsliðið kom einmitt frá Refstad. Valsm^in eiga þó töluverða möguleika
á að komast áfram. því lið Vals er sterkt og býr yfir mikilli reynslu.
Engin tvö stórlið leika saman í
1. umferð keppninnar o)í er
uppííjör Vals ok Refstad e.t.v.
athvglisverðasti leikurinn í 1.
umferðinni. Valsmenn unnu Is-
landsmótið í handknattleik í
fyrravetur eftir mikla keppni við
Víking og Hauka. Valur tapaði
síöan úrslitaleik bikarkeppninnar
fyrir Víkingum og um síðustu
heljíi töpuöu Valsmenn í úrslita-
leik í íslandsmótinu utanhúss
fyrir Haukum.
íslandsmeistarar Fram í
kvennahandknattleik tilkynntu
ekki þátttöku í Evrópukeppni í ár,
en eftirtalin liö leika saman í 1.
umferð Evrópukeppni meistara-
liöa hjá körlum:
Den HaaK. Hollandi —
Neerpelt. Beljjíu
Kirkby. Englandi —
Eschois Fola, Luxemborx
Kosice, Kússlandi —
Zofingen. Sviss
Linz. Austurriki —
Rovereto. Ítalíu
Sarajevo. ítaliu —
Petah-Tikva. ísrael
Refstad. Ósló —
VALUR, REYKJAVÍK
Ilalmstad, Svfþjóó —
Neistinn, Wrshöfn
KronohaKen, Finnlandi —
ZSKA, Rússlandi
Lissabon. Portúgal —
Stella Sports. Frakklandi
- éii-
Liverpool loks andstæöingur í Evrópu-
keppni, en þó ekki 1 knattspyrnu
Víkingar öruggir
í aðra umferðina
KNATTSPYRNUMEINN hafa alið með sér þann draum á ári hverju undanfarið að fá nú Liverpool sem
mótherja í Evrópukeppni. Þessi draumur hefur ekki rætzt síðan KR lék við þctta snjalla lið fyrir
allmiirgum árum og reyndar er langt síðan íslenzkt lið hefur dregist á móti ensku í Evrópumótum
knattspyrnumanna. Ilingað hafa mcnn viljað fá snillingana írá Liverpool til að sjá það bezta í evrópskri
knattspyrnu en ekki mcð það í huga að komast áfram 1' þessum mótum.
Loks hefur sá draumur rætzt að
íslenzkt lið mætir Liverpool í
Evrópukeppni, en því njiður ekki í
knattsp.vrnu heldur handknattleik.
Er dregið var um það í gær i
Zurieh hvaða lið leika saman í 1.
umferð Evrópukeppni bikarmeist-
ara kom upp hlutur Víkings að
leika gegn Halewood frá Liverpool.
Er forystumenn Víkings fréttu um
dráttinn í gær vissu þeir eiginlega
ekki hvernig þeir áttu að bregðast
við. Andstæðingarnir eru ekki hátt
skrifaðir í handknattleiknum og
það er ekki fyrr en á síðustu árum
að enskir byrjuðu þátttöku í
alþjóðlegum mótum handknatt-
leiksmanna. Þeir hafa yfirleitt
mátt þola tap og í fyrra töpuðu
ensku meistararnir með 20—30
marka mun fyrir norskum and-
stæðingum í keppninni.
Víkingar ættu því að vera
bókaðir í aðra umferð keppninnar,
en ljóst er að fjárhagslegur
ávinningur verður lítill af leikjum
Víkinga við hina ensku mótherja.
Þegar hefur sú hugmynd komið
upp að leika báða leikina ytra og
sameina keppnisferð Víkinga og
hópferð á valda leiki í ensku
knattspyrnunni.
Eftirtalin lið leika saman 1 Evrópukeppni
hikarhafai
Mechelen — Huttenbert;. V l'ýzkaland)
Dudelange — WIT, Hollandi
Trieste. ítalfu — Kapronice. Kússlandi
Zurich. Sviss — Krems. Austurríki
Ramat Gan — Baie Mare. Rúmenfu
Plodiv. Búlgarfu — Maí Moskvu
Fjellhammer, Norcgi — Álaborg. Dan-
mörku
Riihimaeki. Finnlandi — Ystad. Svíþjóó
llalewood. Englandi — Víkingur
Lissabonn. Portúgal — Madrid. Spáni
- áij
Leikur
Janus með
Gróttu?
MORGUNBLAÐIÐ hefur
fregnað að landsliðsmaðurinn
snjalli i' handknattleik og
knattspyrnu. Janus Guðlaugs-
son. ætli í vetur að þjálfa og
leika með Gróttu. sem leikur í
þriðju deild. Ef af þessu verður
þarf ekki að hafa mörg orð um
hver blóðtaka það er fyrir FH
að missa Janus og sömuleiðis
hversu gífurlegur styrkur það
er fyrir Gróttu að fá Janus í
sínar raðir. Grótta féll í fyrra-
vor niður í þriðju deild. en
hefur þó í sínum hópi nokkra
lcikmcnn. sem myndu sóma sér
vel í 1. deildinni.
- áij.
• Sigurbergur tekur við
Framliðinu.
Enn missa
Víkingar
leikmann
VÍKINGAR hafa misst enn
einn handknattleiksmann úr
sínum röðum. en Erlendur
Hermannsson, sá snjalli línu-
maður. hefur ákveðið að dvelja
á Dalvik að þjálfa flesta flokka
handknattleiksfólks á Dalvík
og að auki leika með liðinu í 3.
deild.
Víkingar misstu sem kunnugt
er landsliðsmennina Björgvin
Björgvinsson og Þorberg Aðal-
steinsson til Þýzkalands i sumar
og munar um minna en þessa
tvo snjöllu leikmenn. Þá hefur
Jón Sigurðsson flutzt austur á
Fáskrúðsfjörð og tekið við
störfum bæjarstjóra þar. Um-
ræður hafa verið um að Viggó
Sigurðsson hygðist flytjast til
Kanada og starfa þar við
þjálfun i vetur. Þær fréttir
munu þó ekki lengur hafa við
rök að styðjast og samkvæmt
nýjustu fréttum verður Viggó
áfram í herbúðum Víkings.
Fleiri handknattleiksmenn
hafa verið orðaðir við Kanada-
för með þjálfun þar aðallega í
huga. Halldór Rafnsson frá
Akureyri hefur verið í sambandi
við kanadískt félag og Björn
Blöndal, HK, mun einnig hafa
kynnt sér möguleika á þjálfun
þar ytra.
Framarar hafa ráðið Sigur-
berg Sigsteinsson sem þjálfara
1. deildarliðs félagsins í vetur.
Ætlar Sigurbergur þó áfram að
leika með félögum sínum. Sigur-
bergur hefur þjálfað mikið
undanfarin ár og þá einkum
kvennalið og náð góðum ár-
angri. — áij.
• Ejnski lögregluþjónninn Geofí Capes ásamt Hreini Ilalldórssyni og Guðna Halldórssyni,
aðstoðarmanni hans.
Hreinn oröinn góður
af meiðslunum og er
bjartsýnn á árangur
IIREINN Halldórsson keppir í undankeppni kúluvarpsins í dag og heíst keppnin klukkan 10 fyrir
hádegi. Alls eru 19 kraftakarlar skráðir til keppninnar. Keppendur þurfa að kasta yfir 19.50 m
til að komast í sjálfa aðalkeppnina og fá til þess þrjú köst. I sjálfri aðalkeppninni, sem hefst klukkan
17.30 á föstudag. fá keppendur þrjú köst og eftir það halda átta þeir beztu áfram f síðustu þrjár
umferðirnar.
Af keppendunum 19 hafa 11
kastað yfir 20 metra í ár og
beztan árangur á A-Þjóðverjinn
Udo Beyer, sem kastaði 22.15
metra fyrir nokkru. Barysnikov,
fyrrverandi heimsmeistari, er
meðal keppenda og á hann bezt
í ár nákvæmlega sama árangur
og Hreinn Halldórsson, 20.95.
Heimsmethafinn í kringlukasti,
Wolfgang Schmid, keppir einnig
í kúlunni og á hann bezt í ár
20.78. Sovétmaðurinn Jaros á
20.89 og tveir Norðurlandabúar
aðrir en Hreinn eru meðal
keppenda, Arrenius frá Svíþjóð
á 19.92 og Finninn Rejo Stálberg
á 20.96 m í ár.
Hreinn Halldórsson sagði í
spjalli í gær, miðvikudag, að
hann væri tilbúinn í slaginn.
— Beyer er með þrjú höfuð
og þrjá hálsa segir Capes
um þann sem flestir veðja
á í kúluvarpinu
Hann væri orðinn góður af
meiðslum sem hefðu hrjáð hann
í baki undanfarið og sömuleiðis
af magakrampa, sem hann fékk
vegna lítils háttar matareitrun-
ar í Prag á laugardag. — Ég
vona bara að ég standi mig,
sagði Hreinn. — Það er mikil
taugaspenna, sem fylgir því að
taka þátt í svona móti og lítið
má fara úrskeiðis til að illa
gangi. Eins og sjá má eru þetta
engjr,sm.ákarlar, sem ég keppi á
móti, en mér hefur gengið vel á
æfingurri að undanförnu og ég
vona að það lofi góðu, sagði
Hreinn Halldórsson.
Geoff Capes frá Bretlandi er
ófeiminn við að segja skoðanir
sínar við blaðamenn og í spjalli
við Morgunblaðið sagði Capes að
það væri engin leið að keppa á
móti frjálsíþröttafólki frá lönd-
unum austan járntjaldsins. —
Þeir eru allir meira og minna á
lyfjum, sagði Capes. — Sjáðu
t.d. Udo Bayer, hann er með
þrjú höfuð og þrjá hálsa, hann
er ekki eins og mennskur maður.
Hann getur varla gengið fyrir
stærð og kröftum. Þessir karlar
eru aldrei „dópprófaðir" í sínum
heimalöndum og svo rétt fyrir
svona stórmót hætta þeir lyfja-
notkun, þannig að ef þeir eru
prófaðir þá er allt í fínu lagi hjá
þeim, sagði Capes.
Er fréttamaður hitti Udo
Bayer að máli og kynnti sig sem
blaðamann frá íslandi, spurði
Bayer að bragði hvernig Hreinn
hefði það, hvað hann hefði
kastað að undanförnu og hvort
hann væri búinn að ná sér af
öllum meiðslum. Þeir fylgjast
greinilega vel með hver öðrum
þessir kappar og Bayer hafði
greinilega áhyggjur af Hreini.
Hann sagðist þó myndu sigra
nokkuð örugglega í kúluvarpinu
og flestir eru þeirrar skoðunar
að fari allt samkvæmt áætlun
þá verði Bayer sterkastur í hópi
þeirra sterkustu í þeirri grein,
sem Islendingar eiga mesta
möguleika í á Evrópumóti í um
20 ár. Tekst Hreini að vinna til
verðlauna, er spurning, sem ekki
verður svarað fyrr en á morgun,
en allir vona að svo verði.
— ÞR