Morgunblaðið - 31.08.1978, Síða 40
FIMMTUDAGUR 31. ágúst 1978
vid þangslátt
Mjðhúsum, 30. áfjúst.
SLÁTTUR fyrir Þörunga-
vinnsluna gengur mjög vel
og eru um 8700 tonn af
blautu þangi komin í land,
sem gerir um 2200 tonn af
þangmjöli. í sumar eru
Atburóurinn
í Þormóósdal:
Maðurinn
skildi eft-
ir sig bréf
Rannsóknarlögreglan
telur nú fullsannað, að
atburðarásin á bænum Þor-
móðsdal við Hafravatn
árla þriðjudags hafi verið
með þeim hætti, að maður-
inn hafi fyrst orðið konu
sinni að bana, því næst
tilkynnt lögreglunni að
slys hafi orðið, en síðan
svipt sig lífi.
Morgunblaðinu er
kunnugt um, að maðurinn
skildi eftir sig bréf en
ekkert hefur verið látið uppi
um efni þess.
Maðurinn og konan sem
létust með þessum voveif-
lega hætti hétu Gísli Krist-
insson og Sólveig Jórunn
Jóhannsdóttir, og var hann
á sextugsaldri en hún um
fertugt. Þau voru barnlaus.
prammarnir nær eingongu
notaðir og eru hæstu geng-
in komin með um 2000
tonn og eru fjórir menn í
hverju gengi. Hlutur
þeirra er um 2,5 millj. kr.
á mann, eða um 800 þús.
kr. á mánuði. Gengin vinna
á vöktum allan sólarhring-
inn þegar straumar og
veður leyfa.
Mjölgeymslur eru að
verða fullar, en búið er að
senda út 760 tonn af þang-
mjöli og bíða nú um
1400—1500 tonn af unnu
mjöli eftir útflutningi, en
skip er væntanlegt á næstu
dögum. Vonazt er til að
hægt verði að afla þangs
fram í október.
— Sveinn.
Benedikt Griindal. formaður ÁlþýAuflokksins, kemur til flokksstjórnarfundarins í gærkvöldi ásamt
Sighvati Björsfvinssyni og Vilmundi Gylfasyni, sem fylgdu formanni sfnum ekki að málum í því að fara
út í vinstri stjórn. Ljósm. Mbl. K. Öi.
Vinstri stjórn mynduð:
Flokksstjórn Alþýðu-
flokks samþykkti 30:12
Alþýdubandalag 104:19 — Framsókn með einu mótatkvæði
ALLT bendir til þess að
endanlega verði gengið frá
myndun vinstri stjórnar í
dag, en allir flokkarnir
þrír, Framsóknarflokkur,
Alþýðubandalagið og Al-
Keyrði á stúlku og bíl
í FYRRADAG gerðist það á
Ilvammsstanga að piitur á skelli-
nöðru keyrði utan í stúlku sem
var gangandi á götu.
Féll stúlkan
í götuna. en pilturinn missti
stjórn á skeliinöðrunni og lenti
framan á bíl sem var ekið hægt
á móti honum. Stúikan var flutt
í sjúkrahúsið á Hvammstanga og
var hún ekki alvarlega slösuð. en
pilturinn var fluttur til Reykja-
víkur til rannsóknar þar en hann
mun ekki hafa slasazt alvarlega.
þýðuílokkur, samþykktu
endanlega að ganga til
stjórnarsamstarfs á grund-
velli þeirra málefna, sem
að hefur verið unnið að
móta síðustu daga, á
flokksfundum í gærkvöldi.
Mestar sviptingar urðu á
fundi Alþýðuflokksins en
þar var þó málefnagrund-
völlurinn samþykktur með
30 atkvæðum gegn 12 um
kl. 2 í nótt. Flokksstjórn
Alþýðubandalagsins sam-
þykkti grundvöllinn með
Frystihúsum ekki lokad:
Treyst á aðgerðir í
dag eða næstu daga
104 atkvæðum gegn 19 og
miðstjórn Framsóknar
flokksins samþykkti hann
einróma eða með einu
mótatkvæði.
Mjög skiptar skoðanir komu
fram meðal fundarmanna á
flokksstjórnarfundi Alþýðuflokks-
ins og framan af var talið að ekki
mætti á milli sjá hvorir yrðu ofan
á — þeir er vildu fella það að fara
í stjórnarsamstarf á grundvelli
þeirra samstarfsyfirlýsingar sem
fyrir lá, eða hinna sem vildu
samþykkja. Miklar umræður urðu
á fundinum og það bar til tíðinda
að í odda skarst milli Gylfa Þ.
Gíslasonar, fyrrum formanns Al-
þýðuflokksins, sem vildi að fund-
urinn felldi grundvöllinn og Bene-
dikts Gröndals, formanns flokks-
ins, sem vildi að hann yrði
samþykktur. Atkvæðagreiðslan
fór þó á þá leið að samstarfsýfir-
lýsingin var samþykkt með 30
atkvæðum gegn 12 en meðal þeirra
er greiddu atkvæði á móti yfirlýs-
ingunni voru þingmennirnir Vil-
mundur Gylfason, Sighvatur
Björgvinsson og Bragi Sigurjóns-
son.
Alþýðubandalagið samþykkti
eftir langan flokksstjórnarfund, er
stóð fram á kvöld, með 104
atkvæðum gegn 19 að veita þing-
flokknum umboð til að ganga
endanlega frá samningi um stjórn-
arsamstarf og strax að flokks-
stjórnarfundi loknum hófst þing-
flokksfundur þar sem ákveða átti
ráðherraefni flokksins en hann
stóð enn um kl. 2 í nótt. Framsókn-
arflokkurinn samþykkti. málefna-
grundvöllinn á miðstjórnarfundi
með atkvæðum þorra fundar-
manna gegn aðeins einu.
EKKI ER gert ráð fyrir að
þeim frystihúsum, sem boð-
að hafði verið að yrði lokað
rrá og með miðnætti í nótt
vegna rekstrarerfiðleik-
anna, verði lokað að svo
komnu, í von um að tekizt
hafi fyrir þann tíma að
mynda nýja nýja ríkis-
stjórn og ráðstafanir
vegna vanda frystihúsanna
verði gerðar á næstu
dögum.
Þeir frystihúsamenn, sm
Morgunblaðið ræddi við í
gær, sögðu, að þeir tryðu
ekki öðru en einhverjar
viðeigandi ráðstafanir yrðu
gerðar í dag eða á allra
næstu dögum. Sögðu þeir,
að það yrði hreint skelfilegt
ef öll þessi frystihús stöðv-
uðust, þar sem nú væri
ljóst, að það yrði mjög
mikill vandi að koma þeim
frystihúsum af stað á ný,
sem þegar hefðu lokazt.
Flest íslenzku frystihús-
anna, sem enn eru starf-
rækt, munu nú liggja með
fiskbirgðir fram í næstu
viku. Þá eru einir 70 togarar
á veiðum og 150—200 bátar
eru á bolfiskveiðum.
Þegar Morgunblaðið
spurði Geir Hallgrímsson
forsætisráðherra í gær
hvort einhverja ráðstafana
vegna frystihúsanna væri
að vænta frá þeirri ríkis-
stjórn sem nú situr, sagði
hann, að beðið væri eftir
úrslitum stjórnarmyndun-
arviðræðnanna.
Vilmundur Gylfason:
Lít á mig sem
frjálsan þingmann
„ÉG GREIDDI atkvæði gegn
þessu stjórnarsamstarfi á flokks-
stjórnarfundinum vegna þess að
sá pakki í efnahagsmálunum seni
þessi ríkisstjórn leggur upp með
f handarkrikanum er tómt bulii
vegna þess að umbótaþátturinn
er ekki með þeirn hætti sem ég
hefði kosið og í þriðja lagi tel ég
það fávíslega samið af okkar
forystumönnum að láta dómsmál-
in í hendur framsóknarmönnum.
Ef ekki verður algjör kúvending
hjá þessari ríkisstjórn í efna-
hagsmáium á næstu mánuðum þá
tel ég hana aðeins vera að
framlengja stjórnleysi síðustu
fjögurra ára og ég heíði talið að
hlutverk Alþýðuflokksins ætti að
vera rismeira cn það,“ sagði
Vilmundur Gylfason aiþingis-
maður er Mbl. ræddi við hann
eftir flokksstjórnarfund Alþýðu-
flokksins í nótt. Um stöðu sína á
Alþingi sagði Vilmundur. „Ég
mun styðja þessa stjórn til góðra
verka, en ég lít á mig sem
frjálsan þingmann.“
Upp í800 þús.
kr. mánaðarlaun