Morgunblaðið - 02.09.1978, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. SEPTEMBER 1978
Utgefandi
Framkvæmdastjóri
Rítstjórar
Ritstjórnarfulltrúi
Fréttastjóri
Auglýsingastjórí
Ritstjórn og afgreiðsla
Auglýsingar
hf. Árvakur, Reykjavík.
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guðmundsson.
Björn Jóhannsson.
Baldvin Jónsson
Aðalstræti 6, sími 10100.
Aðalstræti 6, sími 22480.
Áskriftargjald 2000.00 kr. á mánuði innanlands.
í lausasölu 100 kr. eintakið.
Stórsigur í sjálf-
stæðisbaráttu
merkasti árangur
Ríkisstjórn Geirs Hallgríms-
sonar, sem lét af völdum í
gær eftir að hafa setið út allt
kjörtímabilið — eina ríkisstjórnin
í sögu íslenzka lýðveldisins, sem
það hefur gert utan viðreisnar-
stjórnarinnar, sem sat full þrjú
kjörtímabil eins og menn muna —
mun hljóta verðugan sess í sögu
lands og þjóðar, þótt kjörtímabil
hennar hafi einkennzt af óánægju
fólks meö það, að ekki hafi tekizt
nægilega vel til í efnahagsmálum.
Astæðan fyrir því, að ríkisstjórn
Geirs Hallgrímssonar mun talin
þegar fram í sækir ein merkasta
stjórn, sem satið hefur að völdum
á Islandi, er sú, að undir forystu
hennar var íslenzka fiskveiðilög-
sagan færð út í 200 sjómílur og
hreinsuð af erlendum fiskiskipum.
I margar aldir hafa fiskiskip
nágrannaþjóða okkar í Evrópu
stefnt á Islandsmið og ausið
gegndarlaust af auðlindum ís-
lenzku þjóðarinnar allt í kringum
landið, alveg upp í fjörusteina.
Alla þessa öld hafa íslendingar
barizt hart fyrir því að ná meiri
yfirráðum yfir þessum helztu
auðlindum þjóðarinnar. Áfangarn-
ir í þeirri baráttu eru margir og
óþarfi að rifja þá upp, en stærsta
skrefið til fullnaðarsigurs var
stigið 15. okt. 1975, þegar fiskveiði-
lögsagan var færð út í 200 sjómílur
og aðeins tveimur árum seinna má
segja, að fullur sigur hafi verið
unninn á þann veg, að fiskimiðin
höfðu verið hreinsuð af erlendum
fiskiskipum. Nú er svo komið, að
við Islendingar höfum alger yfir-
ráð yfir þessum auðlindum hafsins
við land okkar og þessi yfirráð
munu valda því, að á næstu árum
og áratugum mun mikil velmegun
ríkja á Islandi, ef við kunnum rétt
með þennan auð að fara.
Þessi árangur er mesti sigur í
sjálfstæðisbaráttu íslenzku
þjóðarinnar frá því að lýðveldi var
stofnað á Þingvöllum í júní 1944.
Þessi mikli sigur var ekki unninn
átakalaust og ekki skorti á úrtölu-
menn sem beittu öllum brögðum
til þess að koma í veg fyrir, að
þessi árangur mætti nást. Þar
voru fremstir í flokki alþýðu-
bandalagsmenn, sem frá upphafi
höfðu engan áhuga á, að fiskveiði-
lögsaga Islands yrði færð út í 200
sjómílur fyrr en hafréttarráð-
stefnu Sameinuðu þjóðanna væri
lokið, en hún stendur enn sem
kunnugt er, og allt á huldu um,
hvenær henni lýkur. Alþýðu-
bandalagsmenn og raunar ýmsir
fleiri gerðu allt sem í þeirra valdi
stóð til þess að spilla fyrir því, að
þeir samningar gætu tekizt við
nágrannaþjóðirnar, sem að lokum
leiddu til fullnaðarsigurs okkar í
landhelgisbaráttunni. En þrátt
fyrir þessar tilráunir til þess að
koma í veg fyrir sigurinn m.ikla í
landhelgisbaráttunni hélt ríkis-
stjórn Geirs Hallgrímssonar
þannig á málum, að fullur sigur
vannst og íslenzka þjóðin hélt
reisn sinni og sæmd.
Annar meginárangur í starfi
þessarar ríkisstjórnar á síðustu
fjórum árum er að sjálfsögðu, að
eytt var því óvissuástandi, sem
ríkti á árunum 1971—1974 um
framhald varnarsamvinnu íslands
og Bandaríkjanna og um aðild
Islands að Atlantshafsbandalag-
inu. Frá því að ríkisstjórnin tók
við völdum haustið 1974 hefur
festa ríkt í þessum efnum og svo
afgerandi voru þær ákvarðanir,
sem teknar voru í upphafi
stjórnartímabils ríkisstjórnar
Geirs Hallgrímssonar fyrir 4
árum, að jafnvel þótt nú hafi verið
mynduð vinstri stjórn í þriðja sinn
í sögu lýðveldisins, hafa forráða-
menn hennar enga tilburði uppi til
þess að segja upp þessu varnar-
samstarfi og er það mikill sigur í
sjálfu sér, að sá árangur hefur
náðst í fyrsta skipti, að vinstri
stjórn er mynduð án þess að hún
hafi það á stefnuskrá sinni að
segja upp varnarsamningnum.
Þótt margt hafi farið úrskeiðis
í efnahagsmálum í tíð fráfarandi
ríkisstjórnar er þó alveg ljóst, að
hún náði mjög verulegum árangri
í að hreinsa til í því sukki, sem
fyrri vinstri stjórn skildi eftir sig
sumarið 1974 í efnahagsmálum,
þegar efnahagslíf landsmanna var
á heljarþröm. Það sem núverandi
ríkisstjórn tókst hins vegar ekki
var að ná verðbólgunni verulega
niður og hafði hún þó minnkað um
helming á síðasta ári. En kjara-
samningarnir, sem gerðir voru í
júní 1977, hlutu óhjákvæmilega að
leiða til aukinnar verðbólgu eins
og raunin hefur orðið á. Það er því
alls ekki út í hött þegar sagt er,
að verkalýðshreyfingin og þeir
fiokkar, sem stutt hafa hana í
aðgerðúm hennar undanfarin
misseri, beri mesta ábyrgð á þeim
vanda, sem nú blasir við í
efnahagsmálum. Þessi vandi veld-
ur því, að nú þegar upp er staðið,
nýtur ríkisstjórn Geirs Hallgríms-
sonar ekki sannmælis en þegar frá
líður og fólk gerir sér betri grein
fyrir þeim árangri sem hún náði
í örlagamálum þjóðarinnar mun
sú afstaða breytast.
Fræðslustarfið hefur borið árangur:
TÍÐNI reykinga hjá
nemendum í grunnskólum
Reykjavíkur hefur lækk-
að um meira en f jórðung
frá 1974 til 1978. Árið
1974 reyktu 2123 nemend-
ur eða tæplega 23,4%, en
nú reykja 17,2% nemenda.
Þetta kemur fram í könn-
un, sem gerð var í grunn-
jskólum. borgarinnar í apr-
íl síðast liðnum, en á .
hlaðamannafundi á föstu-
dag kynnti borgarlæknir,
Skúli G. Johnsen, niður-
stöður könnunarinnar.
Að sama skapi hefur dreg-
ið úr daglegum reyking-
um nemenda og eru
nemendur sem reykja
daglega nú rúmlega 300
færri en 1974.
I niðurstöðum kemur fram að
reykingar hafa minnkað hjá öllum
aldursflokkum, en þó mjög mis-
munandi. Mest hafa reykingar
minnkað hjá 12 ára nemendum, en
á þeim aldri reykja nú þrefalt
færri en áður eða 3,8% á móti
11,5% 1974.
Á sama hátt og 1974 eru
skörpust skilin í reykingatíðni
þegar bornir eru saman 12 og 13
ára nemendur. A því aldursbili
aukast reykingar þrefalt úr 3,8%
hjá 12 ára í 13,2% hjá 13 ára, en
skilin voru enn skarpari 1974.
Við könnunina nú helzt munur-
inn á drengjum og stúlkum sem
reykja óbreyttur frá 1974, þ.e. lítið
eitt fleiri drengir reykja fram að
12 ára aldri, en eftir það eru
reykingar meðal stúlkna algengari
og vex munurinn fram að 16 ára
aldri, en þá reykja 53% stúlkna,
en 41% drengja. Lítið er vitað um
hvað veldur þessum mun, en
orsakir þess eru án efa fróðlegt
rannsóknarefni.
Könnunin nú fór þannig fram
að dreift var til allra nemenda
spurningalista um reykingar.
Voru nemendurnir spurðir að
aldri, hversu mikið þeir reyktu,
hve mörg bekkjarsystkini þeirra
reyktu, hvort einhverjir á heimili
þeirra reyktu og hvort þeir álitu
reykingar skaðlausar eða ekki.
Ennfremur var spurt um ástæður
þess að þeir byrjuðu að reykja og
loks hvort þeir óskuðu eftir því að
hætta að reykja.
Athyglisvert er að langalgeng-
asta ástæðan, sem nemendur gáfu
upp fyrir að hafa byrjað að reykja,
eru reykingar foreldra, en 50 af
hundraði nemenda tilgreindi þá
Skúli G. Johnsen borgarlæknir kynnir niðurstöður könnunarinnar a
blaðamannafundi á föstudag. Ljósmynd: Kristján
Ástæður fyrir reykingum barna
og unglinga 1978.
ástæðu. Forvitni er næstalgeng-
asta ástæðan. Þá kemur einnig
fram í könnuninni að nær þrisvar
sinnum meiri líkur eru á að 13 ára
nemandi hefji reykingar ef for-
eldrar hans reykja og fjórum
sinnum meiri líkur ef systkini
hans reykja. Með öðrum orðum,
langveigamesta ástæðan fyrir
reykingum ungs fólks er fordæmi
foreldranna og heimilisins. Þá
kemur fram að faðir og / eða
móðir reykja á næstum helmingi
28.5%
7.6%
ANNAR REYKIR REYKIR MOÐIR REYKJA
REYKIR REYKJA
Tengsl reykinga á heimilum og
reykinga nemenda 1978. Hlutfall
13 ára nemenda sem reykja
miðað við hverjir aðrir reykja á
heimilinu.
heimila skólanemenda. Einnig er
athyglisvert að 76% af strákum og
85% af stúlkum kváðust vilja
hætta að reykja. Varðandi þá
spurningu er rétt að geta þess að
626 piltar sögðust reykja, en
aðeins 509 svara þessari spurn-
ingu. Virðist því vera nokkuð
mikið um það að nemendur hafi
ekki gert upp hug sinn, hvort þeir
reyki eða reyki ekki.
Þrátt fyrir að könnun sýni að
reykingar eru enn mjög algengar
eru niðurstöður hennar mjög
uppörvandi. Sú breyting, sem
orðið hefur á síðustu fjórum árum
meðal ungmenna á grunnskóla-
aldri, sýnir að mikil umskipti hafa'
orðið ef miðað er við, að á
tímabilinu frá því 1960 til 1974 var
stöðug aukning á reykingum
meðal skólanema, en 1960 var
einnig gerð könnun á tíðni reyk-
inga meðal þeirra.
Að sögn Skúla G. Johnsen, er
orsaka þessara umskipta ekki sízt
að leita í fræðsluátaki skólanna,
sem hrundið var af stað að
frumkvæði Krabbameinsfélagsins,
undir forystu framkvæmdastjóra
þess fyrir tveimur og hálfu ári.
„Hér kemur þó fleira til, því um
er að ræða samstillt átak margra
aðila; Krabbameinsfélagsins, sam-
starfsnefndar um reykingavarnir,
skólamanna, læknanema o.fl., sem
fjölmiðlar studdu með góðri og
jákvæðri umfjöllun, eins og segir
í niðurstöðu könnunarinnar.
„frumkvæði sjónvarpsins er það
efndi til námskeiðs fyrir þá, sem
vildu hætta reykingum, bar ef-
laust góðan ávöxt, sem einnig
birtist í niðurstöðum könnunar-
innar.
Það stóraukna átak, sem gert
hefur verið í skólum og fjölmiðl-
um undanfarið til að fræða um
skaðsemi reykinga, hefur borið
ótvíræðan árangur. Að baki þeirra
talna, sem sýna samdrátt reyk-
inga meðal skólanema og
minnkaðar reykingar á heimilum,
eru ýmis önnur merki um árang-
Fjórðungi færri skólanem-
endur reykja nú en 1974
1974 1978
Samanburður á reykingum nemenda 1974 og 1978. Hlutfall af heildartölu
Þátttakenda í hverjum aldursflokki.
ur, sem engum tölum verður
komið á. Með hinu síðarnefnda er
átt við hugarfarsbreytingu gagn-
vart reykingum, sem orðin er
meðal þorra landsmanna. Til
dæmis er réttur þess, sem ekki
reykir. nú virtur í mun ríkara
mæli en áður var.
Sé gerð tilraun til að meta
árangur fræðslunnar og upplýs-
ingastarfsins til fjár, mætti líta á
fækkun nemenda, sem reykja
daglega. Ef gert er ráð fyrir að 200
þeirra hefðu ella orðið lífstíðar-
reykingamenn og reiknað með
erlendum upplýsingum um hvað
einn lífstíðarreykingamaður kost-
ar heilbrigðisþjónustuna að
meðaltali umfram þann, sem ekki
reykir, mun sparst einn milljarður
í minnkuðum sjúkrakostnaði og
tveir milljarðar í tóbakskaup
miðað við núverandi verðlag. í
þessa mynd vantar þó enn fjölda
sparnaðaratriða, svo sem minni
reykingar fullorðinna og minna
v'nnutap, auk þess sem tölurnar
ná einungis til nemenda í skólum
Reykjavíkur," segir í niðurstöðun-
um.