Morgunblaðið - 02.09.1978, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. SEPTEMBER 1978
37
.II
VELVAKANDI
,, SVARAR í SÍMA
^OIOOKL 10—11
FRÁ MÁNUDEGI
bjargráðunum, en hafði rétt áður
fordæmt hana. Lúðvík sagði her-
inn vel mega vera kyrran í landinu
um sinn. En skömmu áður höfðu
kommar hellt sér yfir Einar
Agústsson sem sérlegan loftfim-
leikameistara í utanríkismálum á
síðustu sjö árum (1971—1978).
Rétt er það, að Einar Ágústsson
hefur verið nokkuð reikull í ráði í
þeim efnum, en skoðanaskipti
Lúðvíks í þessu máli voru þó mun
meiri á sjö dögum en Einars á sjö
árum.
Sautján milljarða gat reyndist í
efnahagsmálatillögum Lúðvíks
Jósepssonar (á „ársgrundvelli",
eins og sagt er á nútíma íslensku).
Fyrstu daga sinnar stjórnarmynd-
unartilraunar taldi Lúðvík Jóseps-
son forsætisráðherrastólinn ekki
vera neitt úrslitaatriði, en rétt
strax sneri hann þó við blaðinu, og
setti Alþýðuflokkinn upp við vegg
í þessu efni með frægu bréfi, og
heimtaði skýr svör þegar í stað.
Nú hefur Lúðvík Jósepsson löng-
um verið talinn manna klókastur,
en þó merkilegt sé, sáu þeir
Benedikt Gröndal og Ólafur
Jóhannesson þarna við honum, og
varð Lúðvík bráðlætið að falli, er
hann hugðist leika nýkvænta
manninn, sem forðum sagði: „Ekk-
ert kaffi, bara hátta“.
Allt ber hér að sama brunni:
Þær kúnstir, sem hér hefir verið
drepið á, voru þess eðlis, að
japönsku ólympíumeistararnir í
fimleikum karla í Montreal hefðu
talið þess háttar garp sem Lúðvík
sóma sér vel í því einvala liði þ.e.
mann, sem tekið gat slík heljar-
stökk afturábak eins og að drekka
vatn, þó að þar sæust að vísu
nokkur merki um hægri hlið-
ar-snúning.
Reykjavík, 28.8. 1978,
Sigurjón Jónsson.
P.s. Eitt hefur raunar aldrei
brugðist hjá Lúðvík Jósepssyni, en
það er tryggð hans við Rússa, allt
frá Finnlandi (1939—1940), Ung-
verjalandi, Tékkóslóvakíu, Berlín
og til Moskvuréttarhaldanna á
þessu herrans ári 1978.
S.J.
• Lausavísa
eftir Vestur-
bæjarskáld
Kæri Velvakandi.
Ég sá það í einu bréfa þinna,
að velkveðnar vísur væru vel
þegnar til birtingar í dálkum
þínum. Hér er ein eftir Vilhjálm
frá Skálholti, það mikla Vestur-
bæjarskáld:
Þó ég stæli' glóandi gulli
úr greipum hvers einasta manns,
þá væri ég örn minnar ættar
og orka míns föðurlands.
Með þökk fyrir birtinguna!
2920-8867.
Þessir hringdu . . .
• Verðlagsmál
Steini vélsmiður vildi koma
eftirfarandi á framfæri í dálkum
Velvakanda:
Ég er nú barasta leikmaður í
viðskiptum og panta stundum frá
útlandinu hitt og þetta smávegis
og reyni að selja það.
Þegar ég heyrði svo verðlags-
stjórann okkar ávarpa þjóðina um
daginn rifjaðist upp fyrir mér
svolítil lífsre.vnsla í sambandi við
innkaup frá breskum járnsteypu-
framleiðanda. Mig langaði í svolít-
ið merkilegt stykki frá honum,
sem ég var viss um að hægt væri
að selja nokkur stykki af hér á
landi.
En viti menn. Hann svaraði að
ef ég pantaði 1 stykki í einu
kostaði stykkið 7 pund og 15, ef ég
keypti 4 stykki í einu 4 pund og 97,
ef ég keypti 8 stykki í einu 4,41
pund og 40 stykki í einu 4.30 pund
og ef ég keypti 200 stykki í einu
var verðið aðeins 3 pund og 97.
Nú er bara íslenski markaður-
inn ekki stærri en svo, þegar um
slíkt stykki er að ræða að ég þorði
SKÁK
Umsjón:
Margeir Pétursson
Á alþjóðiga skákmótinu í Torre-
molinos á Spáni í fyrra kom þessi
staða upp í skák þeirra
Garciá-Padrons, Spáni, og Larry
Christiansens, Bandaríkjunum,
sem hafði svart og átti leik. Hvítur
lék síðast 38. De3 - b3?? '
38. ... Hal! og hvítur gafst upp.
Hann getur með engu móti forðað
mannstapi.
ekki fyrir mitt litla líf að panta
meira en 4 stykki í einu, enda kom
það á daginn að mér hefur enn
ekki tekist að selja nema þrjú
stykki á tveimur árum.
Það sér hver heilvita maður að
ekki er hægt að gera hagkvæm
innkaup, þegar markaðurinn er
svona lítill, en samt er maður
rægður fyrir okur yfir alla alþjóð
og það af æðstu mönnum þjóðar-
innar.
Það má ryðia einhverjum af
þessum „pótentátum** úr vegi.
Svoná menn, sem gera ekkert
annað en að vefjast fyrir. „Sveiatt-
ann“.
Steini vélsmiður.“
Svo mörg voru þau orð, en
Velvakanda þætti fróðlegt að
heyra meira frá fólki um verðlags-
málin, en vinsamlegast munið
eftir að láta nafn og símanúmer
fylgja með, svo.hægt sé að birta
bréf ykkar.
HÖGNI HREKKVÍSI
Frá Menntaskólanum
á ísafirði
9. starfsár skólans hefst viö skólasetningu
sunnudaginn 10. september kl. 16:00.
Mánudaginn 11.9 mæti nemendur sem hér segir:
1. bekkur kl. 09:00.
2—4 bekkur kl. 11.00.
Vegna valgreinakönnunar er áríöandi aö allir
nemendur skólans mæti strax á 1. degi.
Skólameistari.
FRÍKIRK JUFÓLK
Séra Kristján Róbertsson, eini umsækjandi um
Fríkirkjuna í Reykjavík, flytur messugjörð í
kirkjunni, sunnudaginn 3. september 1978 kl. 11.
árdegis.
Fjölmennið. Allir hjartanlega velkomnir.
Athugið breyttan messutíma. Safnaöarstjórn
Orð
Krossins
Fagnaöarerindi veröur boöaö á íslensku frá Trans
World Radio, Monte Carlo, á hverju mánudags-
kvöldi kl. 23.15—23.30. Sent verður á miðbylgju
205 metra (1466 KHz)
Ath: Breyttur tími og bylgjulengd.
Orö krossins,
Pósth. 4187, Reykjavík.
Stórmarkaður
í vikulokin
Herra- dömu- og barnaföt á verksmiöjuveröi.
, Fóöur og efni á tilboðsveröi. Ný sending af
íslenskum skinnum á einstaklega hagstæöu
veröi.
Stórmarkaðurinn er aöeins opinn föstudaga frá
kl. 6—10 og laugardaga 9—6.
Módel magasín
Tunguhálsi 9,
Árbæjarhverfi,
sími 85020.
blaðburðarfólki
Austurbær Freyjugata frá 28—
Sóleyjargata Samtún
Vesturbær Reynimelur 1—56.
Hringbraut II Kvisthagi
Miöbær Túngata
Hávallagata
Seltj.nes Baröaströnd
Uppl. í síma 35408