Morgunblaðið - 03.09.1978, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. SEPTEMBER 1978
37
kvöldin, eftir að menn eru gengnir
til náða, og étur alla unga nema
kannske sína eigin.
Óhugnanleg sjón
Sigurður bóndi ber Friðrik á
Efri-Hólum vel sögu, — enda var
ég þar í 12 ár, segir hann, og
sauðburðinn það 13. Friðrik var
greindur maður, gat spjallað við
hvern sem var.
En því er frá þessu sagt, að
Friðrik hafði hvatt Sigurð til að
fækka ref og hafði hann jafnan
byssu með ser, þegar hann gekk tll
kinda. Einu sinni mætti honum
óhugnanleg sjón: Féð hafði hnapp-
að sig saman í skjóli í stórhríð og
refur komizt í það og var það
alblóðugt. Búið var að bíta snopp-
una af einni kindinni að augum,
þau voru alheil, og rekja garnirnar
út um endaþarminn, svo að engin
var eftir. Samt gekk hún hiklaust
heim með hinu fénu. Minna var þó
bitið en ætlandi var í fyrstu. Síðan
hefur Sigurður verið erkifjandi
tófu og minks og eru þeir feðgar
aðgangsharðir 1 þeirra viðureign.
78 minkar
Tófan fer helzt ekki inn fyrir
girðingu á Kötiu. Þó komu þeir
feðgar að þrem i kríuvarpinu í vor
og náðu öllum. Hliðin höfðu veriö
skilin eftir opin, var þeirra
skýring á því. Aður höfðu þeir séð
sex tófur samtímis í æðarvarpinu
á Oddstöðum og náð þar tveimur.
Fyrst og fremst leggja þeir
Núpskötlufeðgar sig eftir mink,
svo sem embættisskylda þeirra er,
og hafa til þess tvo minkahunda.
Fyrir þremur árum drápu þeir 78
minka, en ekki nema 3 karldýr í
vor á svæðinu frá Sigurðarstöðum
inn í Núpasveit, svo að árangur er
verulegur.
Tófan drepur minkinn
Minkurinn býr vel um sig og eru
margar vistarverur í greninu.
Stundum leggur hann plast í
gólfið. I búrinu er silungunum
raðaö snyrtilega í lög með sinu á
milli til að halda honum köldum,
svo hann geymist betur. Náðhúsið
er út af fyrir sig.
Um sambúð minks og tófu segir
Sigurður: Tófan sækist eftir
minki. Oft sér maður það á slóum,
þegar gott er föl, að minkurinn má
hafa sig allan við til að sleppa. Ég
hef séð hann taka voðalegar rispur
til að hafa sig í vatnið, áður en
tófan nær honum.
Að pakka fyrir sig
Hér hefur verið sagt undan og
ofan af ýmsu, sem fyrir augu og
eyru bar nú um verzlunarmanna-
helgina, þegar við tvenn hjón
tókum okkur upp og tjölduðum
undir Núpnum rauða og gerðumst
gistivinir Sigurðar bónda og fjöl-
skyldu hans. Eftir er að árna þessu
fólki heilla og þakka því fyrir
silunginn, sem það færði okkur,
eftir að sýnt var, að við vorum ekki
menn til að veiða í matinn sjálfir
og fengum ekki bein, þótt við
værum sex saman með ekki færri
veiðistengur.
llalldór Blöndal
Álíhildur
Gunnarsdóttir
Nýi
tónlistarskólinn
Tekið veröur á móti umsóknum um skólavist á
skrifstofu skólans í Breiöageröisskóla 1. til 20.
sept. milli kl. 5 og 7 alla virka daga nema
laugardaga. Sími 35432.
Kennslugreinar:
Forskóli, fyrir börn 6—8 ára. Skólagjald kr.
20.000.-.
Aðalskóli, píanó, orgel og strokhljóöfæri.
Skólagj. kr. 35.000-
Skólastjóri.
Bólstrai Húsgagna Eigum ennþá á lager rai ve úrval 0 — rzlanir af húsgagna-
áklæöum á gamla verðinu.
Davíð S. Jónsson & Co. h.ff.
Sími 24333. ,
Stóiglæsilegt úrval
Útsala stendur nú yfir í Adam. Boðið er upp á
stórglæsilegt úrval fatnaðar s.s. leðurjakka,
mittisblússur, skyrtur, peysur, föt, Lee Cooper
kvenskyrtur og fermingarföt.
Buxuráalla
Kjallarinn í Adam er undirlagður
af buxum í öllum stærðum
og gerðum, s.s. gallabuxum,
kanvasbuxum (khaki),
buxum úr þvegnum kanvas,
barnabuxum o.s.frv.
LAUGAVEGI47